FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 841 through 860 (of 1,024 total)
← 1 … 42 43 44 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 19.12.2007 at 21:08 #607322
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Svo ég bauli aftur sömu romsuna og ég kom með áðan, þá myndi ég kíkja á jarðtenginguna á mælinum. Man eftir að hafa lent í þessu 1-2 og þá var í bæði skiptin laus jarðvír. Reyndar veit ég ekki með ’00 módelið af Terrornum hvort það sé komið eitthvað bus kerfi (tölvudót) fyrir snúningshraðamælinn. Þessar rafmagnsbilanir verða alltaf svæsnari og svæsnari með hverjum nýjum árgangi af bílum. Alveg glatað.
    Er mjög feginn að bíllinn hjá mér er nánast laus við rafmagnsdót nema eitthvað voða einfalt.

    Rafmagnskveðjur, Úlfr
    E-1851





    19.12.2007 at 21:03 #607282
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þakka fyrir svarið.
    En greinilega þurfti ég bara að spyrja að þessu því að ég var varla búinn að sleppa augunum af svarinu þegar skírteinið kom fljúgandi innum bréfalúguna!
    (Kannski örlítið skreytt, en þið náið drífunni)

    kkv, Úlfr á Undanfara II
    E-1851





    19.12.2007 at 21:01 #607316
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Haha. Alveg magnað.
    kkv, Úlfr





    19.12.2007 at 19:52 #606166
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég var að brimbretta á f4x4 og rakst á mynd, og þar undir rak ég augun í áhugavert heiti, nefninlega [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/862/5273:34hpossx]slóðaskelfir![/url:34hpossx]

    Tilviljun eða samsæri? Maður spyr sig…

    Jólakveðja, Úlfr á Undanfara II
    E-1851





    19.12.2007 at 18:45 #607318
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta hljómar eins og laus jörð einhversstaðar.
    Ef ég man rétt eru jarðvírarnir úr mælaborðinu teknir saman allir í einn stað vinstra megin, bakvið innréttinguna sem liggur niður að gólfi. Myndi athuga það áður en þú ferð með hann á eitthvað verkstæði.
    Annars gæti ég nú örugglega litið á þetta fyrir þig ef þú finnur ekkert úr þessu.

    kkv, Úlfr
    E-1851
    ulfr.thor@ulfr.net





    19.12.2007 at 01:11 #607278
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    En svo ég nöldri aðeins, hvernig er með félagsskírteini fyrir (ekki-svo) nýliða? Eru þau send í pósti (ég er btw löööngu búinn að greiða þennan gíró) eða þarf ég að biðja sérstaklega um þetta eða? …. Einn sem veit lítið :/
    kkv, Úlfr





    18.12.2007 at 18:33 #607266
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Mér finnst þetta hið besta mál, og ætla ég mér að leggja ferð mína í Húsó til að athuga þessar festingar. Því að orginal festingarnar sem eru í bílnum eru ágætar, en ekki nógu góðar fyrir allt það drasl sem er í skottinu.
    Ég hef alltaf lagt mikið uppúr því að allt lauslegt sé vel tjóðrað niður sé það eitthvað þyngra en kexpakki.
    Fyrir næstum því ári síðan varð ég fyrir því að velta jeppanum og þakkaði mikið fyrir þá sérvisku mína að tjóðra allt niður. Því aftur í skotti var meðal annars c.a. 15-20kg verkfærataska, bensínbrúsi (ekki gáfulegt að hafa inní bíl, en maður hafði engan annan kost á þeim tíma) og svo kista með ýmsum þungum hlutum, sé ekki minnst á drullutjakkinn sem lág þarna líka.

    Var feginn að eina sem ég hefði getað slasað mig á var helvítis slaghamarinn sem gataði kassann sem hann var í og hentist um skottið, sem betur fer slasaði hann engann og allir (nema bíllinn) sluppu án teljandi meiðsla þrátt fyrir smá byltu. =)

    Þannig að, festa alla hluti vel og vandlega svo enginn slasi sig að óþörfu. Ég mun endilega kíkja á þessar festingar.

    Kkv, Úlfr
    E-1851





    18.12.2007 at 02:22 #607218
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þið getið nú líka laggst undir bílana smá stund og talið þetta. =) Pinjónninn hreyfist jafnmarga snúninga og drifið er, ef dekkinu er snúið einn hring. m.v. annað dekk á lofti, annars þarf að margfalda með 2 ef bæði dekkin eru á lofti.

    Mig minnir allavegana að þetta sé svona.
    Annars þykir mér mjög líklegt að það sé 4,30:1 í þessum bílum.

    kkv, Úlfr.
    E-1851





    18.12.2007 at 00:20 #607222
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Er ekki hægt að fá K&N síur sem passa á þetta? Ég var amk einhverntíman að spá í að smíða snorkel og nota K&N síu á toppinn á þessu.
    Annars eru Land Rover með ágætis toppa líka, held það fáist bara hjá umboðinu. Svo eru K2 á akureyri með einhver snorkel held ég. Veit ekki með AT en það mætti prófa að athuga þar.

    kkv, Úlfr.





    17.12.2007 at 13:09 #606492
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Fæst bara í AT síðast þegar ég vissi.
    kkv, Úlfr





    17.12.2007 at 13:07 #607062
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það væri nú ekki í fyrsta skipti, ég reyni yfirleitt að vera bara með nóg af olíu með mér til að þurfa ekki að treysta á stöðvarnar við og á hálendinu.
    kkv, Úlfr





    16.12.2007 at 21:43 #606810
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Er ekki bara ráð að fá bílinn uppí rétt hitastig samkvæmt mæli og mæla hitann með einhverjum góðum hitamæli og sjá hver hitinn er?

    kkv, Úlfr.





    14.12.2007 at 21:20 #606566
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Í ljósi þess að einum ónefndum aðila þótti óþarfi að hengja ýmist dót framan á bílinn (kastaragrindur t.d til að verja plastssvuntur eða veika framenda fyrir ís og krapa, eða spil til að draga fólk upp, svo má lengi telja), þá á bara að banna þetta allt? Ekkert að aðhafast í málinu frekar en að bara sjá hvernig útkoman verði? Mér þykir þetta afar dularfullt mál, en nefndin hlýtur nú að geta útskýrt fyrir okkur hvernig þetta á að æxlast og "reddast" með tímanum, fyrst þeir virðast vera með þetta allt á hreinu.

    Mér þykir alvarlegt ef persónulegar skoðanir nefndarmanna eru hafðar að leiðarljósi í málákvörðunum, ég tel að það hafi verið fullljóst frá byrjun að þessi lög myndu hitta á fínustu taugar annsi marga. Ég er ekki með að fólk sé að hlaða kengúrugrindum með göddum á framan á bílana, en mér finnst meðalhófs mega gæta, öll aðför að frelsi jeppamanna (og almennt fólks hér í heiminum) eigi að teljast varasöm, sama í hvaða formi hún birtist.
    Allt í lagi að setja reglur um hvað megi hafa framan á bílum og hvað ekki, en allavegana þykir mér að þetta mætti vera skýrara og birtast fyrir framan sótsvartan almúginn svo hann geti nú eitthvað fylgst með.

    Ég bíð bara eftir, eins og fleiri hafa minnst á, að upphækkanir verði bannaðar, dekk yfir 29" verði dæmd ólögleg og felgur breiðari en 10" verði ávísun á rauða miðann í skoðun.

    Ég verð að segja fyrir mitt leiti, ég er æfur. Virkilega, virkilega æfur yfir því að tækninefnd, sem ég sem félagsmaður treysti á að geti gætt að hagsmunum jeppamanna og félagsmanna 4×4 að leiðarljósi.

    Mér finnst þetta afturför. Þetta kallar á að fólk þarf að fara í kringum lögin á allan hátt með sín ljós og "mannvígsgrindur" (eins og hæstvirtu f**istar í Brussel líta á þetta).
    Kannske er ég að dæma þetta of hart, kannske mun þetta "reddast" eftir því sem nær dregur lagasetningunni. Ég veit það ekki.

    Kkv, Samúel Úlfur Þór.
    E-1851

    P.S. Endilega, endilega leiðréttið mig ef ykkur finnst ég fara með rangt mál. Því ég er afar svekktur ef þetta er niðurstaðan í málinu…





    12.12.2007 at 16:20 #605298
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Myndi nú hafa smá veltu-áhyggjur af þessari tundru hjá BSV, hún er upphækkaðari en andskotinn. Lítur út eins og 44" bíll á 38" dekkjum, nema hún er á 44"
    Verð að segja fyrir mitt leiti þá myndi ég ekki fara þessa leið í að breyta Tundru. 😛

    kkv, Úlfr.





    12.12.2007 at 16:05 #606380
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég næ ekki alveg kostunum við að nota amatörband við þessi fjarskipti. Það er ekki eins og allir jeppamenn eða ferðafólk á íslandi komi til með að grípa sér Amatör réttindi. Frekar fer það í TETRA/CDMA450 eða Iridium/Globalstar…
    Bara svona pælingar.

    Ég er með SSB í bílnum hjá mér, ef fleira fólk tæki sig til að hafa þetta í bílunum og hafa kveikt á þessu þá væri þarna mun stöðugara öryggisnet en nokkurntíman þessi VHF/UHF/gervihnattasíma fjarskipti.

    Ég vil taka það fram að ég stefni á radíóamatörpróf, svo ekki telja mig andvígann því að fólk sé að fá sér það, mér finnst bara súrt að ekki nóg með að borga leyfisgjöld að hinu og þessu tæki, þá þurfi maður líka að fara á námskeið til þess að getað haft samband þegar óhapp eða slys ber að garði.

    kkv, Úlfr





    11.12.2007 at 19:50 #605380
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    ég er nú bara á 38" eins og er….





    06.12.2007 at 18:34 #604962
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    er eftir því sem ég best veit enn í beta útgáfu og virkar hálf undarlega.
    Endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.

    Motorola eru mjög þægilegar stöðvar til að vinna með, og eru laaang ódýrastar hér á Íslandi (amk í bili…)

    eina sem mér finnst galli við motorola er hvað displayið á þeim er alveg fáránlegt í laginu. Maður þyrfti að eiga mælaborð úr yaris til að koma þessu drasli fyrir þannig að þetta líti ekki út eins og eplabaka…

    Ég kýs að hafa hlutina bara ferkantaða…

    kkv, Úlfr
    E-1851

    P.S. Cleartone notaðist bara við eiginleika sem til voru í TETRA staðlinum. Motorola nýttu sér ekki þennan "þátt" í staðlinum





    06.12.2007 at 02:40 #604948
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Svo ég vekji nú upp gamlan þráð. Þá myndi ég ætla að í TETRA skipti engu máli hversu mörg wött það eru umfram nema hugsanlega í direct mode.
    Því wött hafa bara uppá sendingarstyrk að gera. Altsvo, það er enginn tilgangur að hafa mikið hærri útsend wött en endurvarpinn sendir frá sér.

    Jafnvel þá skiptir það ekki svo miklu máli, því sendirinn leyfir bara talstöðvum í x radíus kringum sig að senda í gegnum sig.

    Og MHN, ef þú vilt að hlutirnir virki við verztu skilyrði, þá held ég að þú ættir að leita frekar í MF/HF tæknina frekar en TETRA… (Ekki þar fyrir að TETRA kerfið á sennilega eftir að batna helling með árunum, þá eru bara of margar gloppur í kerfinu til að það virki sem öryggisnet)

    kkv, Úlfr





    04.12.2007 at 11:52 #605364
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ja, eins og ég sagði, þá held ég að 2x skriðgírar væru kannski örlítið skot yfir markið.
    Held ég haldi mig við 1x milligír + venjulega lága.
    En er mikið mál að breyta "forward shift"

    kkv, Úlfr.





    04.12.2007 at 11:48 #605376
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það virðist ekki vera neitt slag í þverstífunni.
    Boltarnir eru róthertir og turninn frekar massívur. Þannig að það ætti ekki að vera vandamál.

    kkv, Úlfr.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 841 through 860 (of 1,024 total)
← 1 … 42 43 44 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.