Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.01.2008 at 00:16 #608414
Er virkilega búið að stela bílnum, eða stakkstu honum oní mýri og átt í erfiðleikum með að segja frá því? Tvíræðnin í þessum þræði er að fara með mig…
kkv, Úlfr taugahrúga…
03.01.2008 at 00:07 #608678Ætli þeir séu ekki þeir einu sem hafa efni á þessum fjanda. Annars finnst mér nýjar toyotur mjög óspennandi valkostur, að undanskildum LC70 með 4,5l CR 2TDI V8.
Wranglerinn er mun ákjósanlegri kostur ef ég væri að fá mér nýjan jeppa. Skil ekki fólk sem kaupir sér nýjan hilux/LC 120/100/200 og breytir þeim fyrir það sem væri tvöfalt á við að gera upp gamla druslu til að skröltast á í ferðir…
En hver verður sinn stíg að feta.
kkv, Úlfr og skröltdruzlan Undanfari II.
E-1851
02.01.2008 at 23:32 #608408Fyrst þegar ég las þetta trúði ég ekki að þetta væri alvara, en ég hef samt haft augun hjá mér.
Vona að bíllinn finnist, alltaf sárt að láta stela svona hlutum af sér. :/
Baráttukveðjur, Úlfr & Undanfari II.
E-1851
02.01.2008 at 23:12 #607954Þetta var fínt rit, stórt og veglegt og afsakar nokkurnveginn þær örfáu villur sem í því eru, enda er nokkurnveginn búið að leiðrétta þær hér með á vefnum. Sem er bara gott mál.
Ég hló nú bara þegar ég sá þennan miða í regatta, rann út sama dag og ég hafði tækifæri til að líta í bleðilinn.
Og til þín Ofsi, ef þú vilt aðstoð við ferlasöfnunina er ég alltaf til þjónustu reiðubúinn, ef ég kem að einhverjum notum það er að segja.
kkv, Úlfr á Undanfara II
E-1851
27.12.2007 at 18:10 #607842Mér vöfðust fingur um lyklaborð þarna, auðvitað meinti ég 2013. =)
Það er samt langt í það. Ég verð orðinn háaldraður maður þegar Galileo kemst í gagnið.
kkv, Úlfr
27.12.2007 at 12:46 #607828Eins og þetta er í t.d. toytum og fleiri bílum:
Er ekki bara rofi á skiptingunni og upp í öryggja- eða segulrofaboxið í húddi?
Myndi mæla með að reyna að leita að rofanum og mæla hann.
Rúðuþurrkumótorinn fær bara spennu frá öryggjaboxinu inní bíl og rofinn er bara í stýrinu og svo liggur frá honum gegnum hvalbakinn og uppí mótor. Minnir að þetta sé svona í langflestum bílum.
Mæli allavegana með því að rekja þetta svona með AVO mæli (Volt/viðnám).Getur bjallað í mig ef þú vilt fá einhverjar nánari upplýsingar um hvernig svona hlutir eru "oftast".
848-2317
kkv, Úlfr
27.12.2007 at 12:42 #607814Svo ég verði nú með almenn leiðindi og dólgshátt, þá heitir fjallið Skjaldbreiður samkvæmt mínum bókum.
Hinsvegar er annað fjall sem heitir Herðubreið. Gæti valdið ruglingi. 😛
kkv, Úlfr örnefnanörd
27.12.2007 at 12:37 #607838Svo er það, sam-evrópska kerfið er í fullum uppvexti og stefn á að koma því í gang 2031.
Held að það séu nú þegar komin gps tæki sem styðja nokkur kerfi.
kkv, Úlfr
26.12.2007 at 18:19 #607706Þó það klikki í henni þá getur snertan verið brunnin
bara svona smá info.
Gangi þér vel með þetta,
kkv, Úlfr á Undanfara II
26.12.2007 at 16:57 #607790Bíllinn getur orðið leiðinlegur að framan á klafabíl ef jafnvægisstangir vantar, gerði þetta við 2 rönnera sem ég hef átt og annar þeirra varð hundleiðinlegur en á hinum fann ég engan mun. Hef aldrei getað gert mér grein fyrir afhverju það munaði…
En að aftan skiptir þetta engu máli og er bara til bóta að rífa þetta undan.
kkv, Úlfr.
21.12.2007 at 21:40 #607456Ég myndi veðja á hverskyns vinnuvélalakk sem er Þrískipt, hammerite (er samt of dýrt ) og þess háttar lökk.
Ég keypti ágætis lakk í húsasmiðjunni fyrir einhverju síðan sem er svipað og hammerite, bara mun ódýrara, það hefur virkað ágætlega á kastaragrindur og fleira drasl sem ég hef málað, og hægt að fá í mismunandi gljástigum líka.
Svo er alltaf hægt að kíkja í Poulsen, þeir eru með eitthvað úrval af lakki ef mig minnir rétt.
Ef þú rúllar bílinn með fínni rúllu (ekki grófri, kemur ömurleg áferð af þeim) þá ætti þetta að koma svona þokkalega út. Bara um að gera að annðhvort hita hana (hætt við að það þorni í dollunni samt) eða bæta þynni útí þetta til að fá betri áferð og betri meðhöndlun.En ég veit svosem ekki mikið um hvernig best sé að láta vaða á heilan bíl, hef bara málað grindur og drasl. Ef ég væri að spá í þessu (sem ég er reyndar að gera) þá myndi ég nota einhverskonar vinnuvélalakk, t.d. þetta sem ég minntist á og nota fínar rúllur og rúlla þetta bara.
Þú færð mun betri áferð með rúllu en pennsli.
kkv, Úlfr
21.12.2007 at 21:34 #607486Gleðileg jól öllsömul og megið þið eiga farsælt komandi ár, hvort sem það er á fjöllum eða á láglendinu!
kkv, Úlfr á Undanfara II
E-1851
21.12.2007 at 21:32 #607440Ég get svo svarið það, það er annar hver jeppi (lesist: Nokkrir) með rafmagnsbilun svona rétt fyrir jólin. Er þetta inflúensan?
Annars myndi ég skjóta á að það væri annaðhvort vatn komið í einhverjar lagnir og byrjað að leiða á milli (ath, hærra salt innihalds vatn eykur leiðni!)
Eða, vír í sundur og liggur saman við ljósin hreinlega. Þetta hljómar amk eins og eitthvað að leiða saman.kkv, Úlfr
21.12.2007 at 21:28 #607408Myndi skjóta á að það færi afar illa með bæði kertin og spíssana. Það er amk það sem ég hef heyrt að sé vandamál þegar fólk slysast til að henda olíu á bensínháka. 😛
Heyrði nú samt eina sögu af bronco sem var kominn með það háa þjöppu að hann gekk á dísel einu saman, fór samt ekkert of vel með mótorinn skyldist mér.
kkv, Úlfr
21.12.2007 at 21:26 #607554Ertu búinn að athuga með alla vírana sem liggja uppí mælaborðið? Dettur í hug að það sé sambandsleysi þar eða þar sem þetta fer fram úr hvalbaknum.
Annars er það aðalega bara að tæta og skoða. Fyrst þeir detta allir út hlítur þetta að vera vír einhverstaðar eða öryggi.
kkv, Úlfr (sem er að laga rafmagnsskítamix í jeppanum núna) 😛
20.12.2007 at 23:53 #607392Ég stórefa að einhver nýleg vél geti keyrt á 100% steinolíu. En svosem, þetta gæti kannske enst eitthvað.
Hvert er verðið á líter af steinolíu?
kkv, Úlfr
E-1851
20.12.2007 at 12:04 #607334Spurning að mæla líka vírinn sem sendir merki til rafalsins að hann eigi að byrja að hlaða. Ef það vantar (á það til að fara í sundur eða segulrofinn/stýringin fyrir það sé í rugli) þá hleður hann náttúrulega ekki. Gæti verið eitthvað sambandsleysi fyrst að mælingar sýna að hann hlaði eitthvað takmarkað.
Svo er náttúrulega þjóðráð að hreinsa upp öll tengi og geymasambandið ef það er einhver skítur á því. Lenti eitt sinn í því að ná ekki bílnum mínum í gang sama hvað ég gerði, og hélt hreinlega að startarinn væri farinn hjá mér, þar til ég tók eftir smá feitiklessu á milli tengjanna… Þreif það og voila, bíllinn hrökk í gang eins og nýsmurt brauð.
kkv, Úlfr.
(Titillinn er fyrir Tryggva. :P)
20.12.2007 at 01:36 #607330Nú? Hver er að beita þig svona miklum þrýstingi? 30psi er slatti! (amk meira en í dekkjunum hjá mér þessa dagana)
Allavegana, ég held að íslensku kunnátta mín sé nú ekki þess verð að fara að kenna öðrum mína ósiði í rituðu og töluðu máli. =)
En þú getur náttúrulega alltaf kíkt í skúrinn eitthvert kveldið og ég get kannski gert fyrir þig æfingahefti. 😉
kkv, Úlfr málfræðikennari (greinilega…)
E-1851
20.12.2007 at 01:32 #607372Oh ætli maður taki ekki bara sénsinn, allt útlit fyrir því að ég verði bara skúraskeinir um jólin… ;(
Verð nú samt uppí húsafelli um áramótin svo það er enn von að druslan komist allavegana hálfa leið upp að langjökli.
kkv, Úlfr á "Undanfara" II
E-1851
19.12.2007 at 21:11 #607324Reyndar, fór aðeins að spá með þetta víbringshljóð, getur verið að díóðubrúin/reglarinn á riðstraumsrafalnum (fyrst maður er að nota íslensk orð á annað borð… hehe) sé eitthvað orðinn dapur? Eru aðrir hlutir eins og útvarp farnir að haga sér undarlega? Jafnvel blikka eða álíka grunsamlega hluti?
kkv, Úlfr
E-1851
-
AuthorReplies