FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 801 through 820 (of 1,024 total)
← 1 … 40 41 42 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 20.01.2008 at 19:05 #611018
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Síðast þegar ég vissi (fyrir um hálfu ári síðan) var vonlaust að finna þessi hlutföll nema hjá einhverjum bílskúrsguttum sem ættu eitthvað af þeim eða þá finna þau notuð.

    Eftir því sem ég best veit voru þessi hlutföll smíðuð einhversstaðar á spáni í takmörkuðu upplagi og eru ekki lengur framleidd.

    Annars veit ég um nokkra Troopera sem eru á orginal hlutföllum á 38" og gengur bara ágætlega.
    Þetta eru náttúrulega kraftmiklar dísel vélar (Ekki einusinni fara að ræða endinguna í þeim, það er góð ástæða fyrir að þessi bíltegund er oft kölluð "troblari") og eru að mínu mati of lággíraðir orginal.

    Mér er allavegana illa við að keyra dísel bíl sem snýst rúmlega 4000rpm á 90 í 3000rpm. (á sérstaklega við Toy’ 4Hlaupara) Heh.

    kkv, Úlfr
    E-1851





    17.01.2008 at 18:09 #610496
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Afhverju ertu með 10mm speisera að framan? Er rörið breiðara að aftan?
    kkv, Úlfr
    E-1851





    17.01.2008 at 03:34 #610492
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    klafahásingar eru c.a. 38mm breiðari á hvorn kant. S.s. í heildina c.a. 3" eða c.a. 75mm (ekki spurja útí reikningana, þetta eru tölur sem ég man eftir rörapælingu að framan hjá mér)
    Drifið í 4runner er öðruvísi (sem og öxlarnir, þeir eru lengri) en í hásinga-hásingunum (h0h0), það eru massífari legur og mismunadrifið er eitthvað stærra í rönnerrörinu, hvort sá styrkur skiptir *einhverju* máli veit ég ekki, hef aldrei vitað til þess að þetta sé vandamál nema kannski í einhverjum ofur klettabeltaklifrum hjá könunum.

    Bara svo þú vitir að það er hvorki hægt að nota drif né öxla úr SFA röri í IFS rör.
    ATH, þetta gildir bara um 4runner v.s. hilux rör.
    IFS hilux er með sömu afturhásingu og SFA hilux en bara breiðari, s.s. sama drif og "veikburða" legur á pinjón (aldrei heyrt að þetta hafi farið samt sem áður).

    Rörið sjálft er að mig minnir líka eitthvað eilítið þykkara, hvort það bognar seinna en rör undan SFA bíl veit ég ekki, kannske spurning að prófa ef einhver á tvennskonar rör, torfærugrind og þykka húfu? 😀

    Annars er hægt að breikka framhásinguna þína með millileggjum ("speiserum") eða sérmixaðari aðferð þar sem nafið af IFS bílnum er notað ásamt hubbinum og einhverju fleira dóti. Það er samt mix sem ég hef aldrei fundið nógu góðar upplýsingar um til að fara að föndra, svo ég lét mér nægja millileggirnir í bíli.

    Svo eru það alltaf hásingarnar undan LC60, þær eru held ég rúmum 60mm breiðari en orginal 4runner hásing, s.s. eitthvað um 135mm breiðari en SAF hásing.

    Þetta er birt með fyrirvara um að þessu er póstað af mér um hánótt og svefnleysið er algert, sennilega geta einhverjir gráhærðir Toyotafræðingar leiðrétt mig ef ég fer með rangt mál. (…og það er sko ekki af því þeir eru orðnir gamlir, toyotur eru bara sko, æji þú veist…)

    Tog&Ýta kveðjur, Úlfr á Undanfara II
    E-1851





    17.01.2008 at 03:01 #610506
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Jú, þeir eiga þetta til í barbí, en bara að aftan."

    "Toyota Prado
    90 & 120 Series – Rear"

    Líta út fyrir að vera eitthvað áhugaverðar læsingar sem mætti kynna sér betur. Virðast eiga þetta til að bæði framan og aftan fyrir mig.

    kkv, Úlfr
    E-1851





    15.01.2008 at 23:34 #610390
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Stefnuvirknin verður meiri ef loftnetið er á bretti.
    Auk þess meiri hætta á standbylgju.

    Best er að hafa sléttan stálflöt í c.a. 20-30cm radíus út frá loftnetinu. Þá ertu nokkuð öruggur, og svo sem hæst uppi, er best. Mæli með 1/4 bylgju loftneti og setja það hægra/vinstra megin að aftan c.a. 25cm frá brún.
    Muna svo að gluða vel af feiti á botninn á loftnetinu þegar það er sett á, annars ryðgar allt í döðlur.
    kkv, Úlfr





    13.01.2008 at 17:16 #610022
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég held að það þurfi að svína til 2-4 boddífestingum en annars eigi svona lang flest að smella saman.
    Grindin í Hilux er reyndar að ég held örlítið lengri en grindin úr 4runner, gæti verið að það þurfi að snyrta eitthvað aftan af henni.
    kkv, Úlfr
    E-1851





    12.01.2008 at 20:56 #609962
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þá útilokar þú dísel vélar. (amk engar sem ég veit um…)
    Auðvitað er lítið mál að setja t.d. 350 eða einhverja aðra SBC oní 4runner, hægt að fá milliplötur til að nota orginal gírkassann. Eða bara að fá sér amerískan kassa eða ssk til að setja aftan á þetta.

    kkv, Úlfr

    P.S. Röravæðing er ekki svo dýr. Held ég hafi eytt rétt rúmlega 100þús þegar ég setti mitt undir, og þá skipti ég um alla slitfleti (notaði orginal drifhlutfallið reyndar, 1:4,56) og þurfti að kaupa nýjar langstífur.





    12.01.2008 at 19:51 #609982
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þér, Kæri Magnús, hafið ekki hugsað til þess að meðal-íslenzku kunnátta á Voru spjalli er eigi svo há.
    Vér leggjum hér með til að Vorir þjáningabræður (og þær örfáu systur) komi hingað til Oss í kaffi og kleinur, og gott íslenzkunámskeiði! (Tryggva er líka boðið).
    Jafnvel væri hægt að halda slíkt námskeiði í afdrepi okkar félagsmanna í hverri deild. Vér munum þá flakka um landið og fræða landann um Þérun og aðrar góðar og gildar íslenzku-reglur, svo sem notkun á Vorri zetu og hvar eigi eiginlega að þröngva Yppsilon-I og venjulegu I.
    Vér bjóðum Oss hér með fram sem sér stakur íslenzku-fulltrúi Ferðaklúbbsins 4×4.

    Með auðmýkstu kveðju frá bezta stað í heimi (Vort Akraness),
    Samúel Úlfur Þór.
    E-1851





    12.01.2008 at 03:21 #609968
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hún er 10% en þó ekki meira en 4km lægra en raunhraði.
    Frekar súrt. Hehe.
    Allavegana, ég veit ekki hvar fást gírar en það er sennilega best að spyrja AT menn eða jafnvel þá uppí Fjallabílum S&S. :)
    kkv, Úlfr.
    E-1851
    P.S. Í hvernig bíl er þetta og er ekki bara stafrænn hraðamælir? Þá er hægt að fá spes box sem kostar "bönns af monníi" en þrælvirkar.





    12.01.2008 at 03:17 #609986
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Mér fannst ég kannast við þau, get svo svarið að þau eru undan reiðhjólinu mínu!
    kkv, Úlfr
    E-1851





    12.01.2008 at 03:16 #609974
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ló-lúxar eru ekki seldir á sænskum dekkjum né felgum hér á fróni.

    Það voru dekkin sem veltu elgnum, nei ég meina….
    kkv, Úlfr
    E-1851





    12.01.2008 at 03:14 #609958
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég held ég fari með rétt mál þegar ég segi að ég viti til þess að 2L-T II (2,4TD) hafi verið settur ofaní klafa 4runner.
    Annars er auðveldast að setja 1KZ-T (3l vél úr 4runner eða gamla LC90). Þær vélar hinsvegar liggja ekki beint á lausu, og fólk krefst yfirleitt morðfjár fyrir vélar sem eru eknar til tunglsins og til baka…
    Nokkuð viss um að þú getir keypt annsi marga bensínlítra fyrir þann pening. Heh.

    Annars held ég að það sé bara að finna einhverja dísel mótora og mæla hæðina á þeim. Sennilega hægt að smíða olíupönnur sem passa við klafastellið.

    Annars er rör bara málið =)
    Ég allavegana þröngvaði röri undan LC70 undir minn og er bara nokkuð ánægður, amk ánægðari en með klafana.
    En hver velur sína leið.
    kkv, Úlfr
    E-1851





    11.01.2008 at 17:30 #609914
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Greinarnar passa ekki á milli. Því miður. :)
    btw, http://www.yotatech.com er sniðugt forum sem hægt er að finna fullt af gagnlegum (og fullt af mjög heimskulegum) pælingum og upplýsingum. Nokkrir þarna inni sem vita *annsi* mikið um ‘yotur.
    kkv, Úlfr
    E-1851
    P.S. Þetta f**kin’ linkakerfi er alveg útúrsteikt og virkar ekki r**s.





    11.01.2008 at 17:21 #608464
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það var gjörsamlega óháð tilgangi atriðisins að keyra á grónu landi. Þetta hefði vel mátt taka annars staðar þar sem engin för sáust, þetta atriði stakk mig svo í augun! (sem voru að mestu annars lokuð yfir skaupinu…)
    Mér finnst þetta vera skammarlegt, og skiptir engu þó að árið þurfi að byrja á neikvæðri umfjöllun. Þarna var um HREINAN OG KLÁRAN utanvegaakstur! Annað en mörg dæmi um meintan utanvegaakstur.

    Mér finnst þetta mál ekki vera til framdráttar fyrir bæði björgunarsveit er átti hlut að máli og lögreglu- og bæjaryfirvöld.

    kkv, Úlfr
    E-1851





    07.01.2008 at 18:29 #609318
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hvers vegna í ósköpunum ættu boddíhækkun að vera "óvönduð vinnubrögð"?
    Þegar ég breytti gamla rönnernum hækkaði ég hann 50mm á boddí, 25mm á fjöðrun og skar svo restina úr.

    Með boddíhækkun ertu að halda þyngdarpunktinum mun neðar en með að hækka á fjöðrun, því ekki færast einu þyngstu hlutir bílsins upp með, grindin, vélin og kassarnir… Boddíið eitt og sér er ekki það þungt nefninlega.

    kkv, Úlfr.





    07.01.2008 at 12:44 #609290
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það er til krómlakk. Hef séð nokkra bíla sem voru sprautaðir með því, að vísu ekki á íslandi. En þetta er til, minnir að það kosti eitthvað nálægt 14.000kr líterinn í ameríkunni. Myndi prófa að bjalla í poulsen eða einhverja litasnillinga varðandi þetta.
    kkv, Úlfr





    03.01.2008 at 12:35 #608502
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég þekki ekki þessar dælur hvort þær mega snúa þverse og kruss, en er ekki hægt að smíða bracket á hvalbakinn?
    Félagi minn er með það þannig og hún stendur upprétt.
    Bara svona pæling.
    Annars sé ég ekki alveg hvað gæti farið úrskeiðis við að dælan snúi á hlið, nema kannski að stimpillinn sé svo svaðalega óþéttur að hann lemjist út í hliðarnar…
    kkv, Úlfr.





    03.01.2008 at 12:30 #608682
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hvað er eftir af Cherokee? Mig minnir að það séu allar týpur af kareoke komnir á klafa að framan (og jafnvel aftan).
    Land Rover Discovery er kominn á klafa… Hvað er eftir?

    Toyota: LC 70, LC 105 (að vísu ekki almennur markaður á 105)
    Jeep: Wrangler
    Land Rover: Defender
    Og svo eru það náttúrulega 250(0) pallbílarnir og uppúr hjá þrem stærstu í ameríkunni.
    Nissan: Patrol
    Benz: G-bíllinn er enn held ég í framleiðslu, og er enn á hásingu framan og aftan eftir því sem ég síðast vissi.
    kkv, Úlfr





    03.01.2008 at 12:23 #608802
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, OME stýrisdempari kostar um 6þús kr hjá Benna f. toyotur.
    RANCO demparinn sem ég er með kostaði um 8000kr minnir mig. Annars á ég líka lítið notaðann OME stýrisdempara fyrir toyotu (sennilega passar í marga aðra bíla) sem ég væri alveg til í að losna við.

    Annars hefur stýrisdempari voða lítil áhrif á hvort bíllinn beygji þegar keyrt er oní polla og miðað við lýsingarnar hjá þér er líklegast ekki misjafn halli á þverstífu og togstöng (ef þú ert á annað borð með heilt rör að framan).
    Minn beygir þvers og kruss þegar ég ek oní polla, en það er mér og stýrismaskínunni minni að kenna.
    Er nokkuð slag í maskínunni hjá þér eða leki?

    kkv, Úlfr
    E-1851
    S: 848-2317

    P.S. sá það núna að þú ert á wrangler. Veit ekki hvort þessi dempari passi, en ég held að verðið sé svipað á ranco sama hvaða útgáfu þeir eru (prjónar, göt eða þess háttar)





    03.01.2008 at 00:27 #608718
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, 3L (2,8) vélin togar mun meira en 2L-T, þeas með túrbó.
    4l vélin úr LC 60 túrbó (H eitthvað minnir mig að hún heiti) togar eins og andskotinn og er ágætlega kraftmikil, en spurning hvort hún sé einfaldlega ekki of þung fyrir þennan ágæta bíl.
    Ef ég væri í vélapælingum varðandi hilux/4runner og ætlaði mér að setja dísel vél oní, þá myndi ég reyna að finna mér 1KZ-T(E) vélina úr Prado (LC90, 4runner TD).
    Ég er með þannig mótor (reyndar orginal) oní Hlaupara sem ég á og hún er að svínvirka, eða svona eins mikið og dísel vélar yfir höfuð gera. Um 90kW og c.a. 300Nm tog við 2k snúninga.
    Byrjar að toga frekar snemma (um 1200 snúningum byrjar hún að rífa örlítið í og hámarks tog í 2000), eða gerir það hjá mér allavegana.
    Ég er btw með bílinn á 4,56:1 hlutföllum og líkar vel á 38" (kannski nær 36" þar sem munstrið er orðið hálf dapurt).
    En ég þekki náttúrulega ekki 3L en hef bara heyrt að hún sé að virka.

    Gæti reyndar grunað að þessar vélar kosti svolítið mikið og eru sjaldséðari en hvítir hrafnar. Eða svona þannig lagað séð.
    Að minnsta kosti er það, það sem ég hef heyrt af 1KZ-T(E)

    Allavegana, þetta eru mínir fimmeyringar og vona að þú komist eitthvað nær niðurstöðu…

    kkv, Úlfr & Undanfari II
    E-1851.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 801 through 820 (of 1,024 total)
← 1 … 40 41 42 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.