Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.02.2008 at 11:52 #612542
Það hefur oft verið gert og virkar fínt. Létt og gott.
Hinsvegar verður að varast að hafa einhverjar styrkingar í botninum eða láta tankinn sitja á einhverjum vinklum.
Passa bara að láta ekki stál snerta álið, s.s. nota plast eða gúmmí á milli.
.
Skiptir rosalegu máli náttúrulega að þetta sé líka soðið almennilega, annars lekur þetta og verður aldrei til friðs.
.
kkv, Úlfr
E-1851
01.02.2008 at 11:50 #612534Hefur bíllinn orðið bensínlaus nýlega? Man eftir svipuðu vandamáli með súkku sem ég var með, eftir að hann varð bensínlaus þá gekk hann leiðinlega.
.
Það sem mér dettur helst í hug er að bensínsían sé orðin mettuð eða einhver drulla eða jafnvel raki í tanknum.
.
Prófaðu að setja innspýtingahreinsi og ísvara í tankinn (fæst á næstu eldsneytisstöð) og sjá hvort hann batni eitthvað.
Ef það lagar ekki þá er sían næsti staður til að skoða.
Man því miður ekki hvar sían í þessum bílum er staðsett.
.
kkv, Úlfr
E-1851
31.01.2008 at 18:18 #612484Sæl..
Til fullt af þráðum um þetta málefni, en annars er nú yfirleitt seld vetrarolía á þessum tíma ársins. Hún er frostþolin að c.a. 20 gráðu frosti.En linkur á nokkra þræði um þetta mál.
[url=http://www.f4x4.is/new/search/default.aspx?search=steinol%C3%ADa+&category=16:364j8har]Hér eru upplýsingar um þetta[/url:364j8har]
Vona þetta komi að gagni.
kkv, Úlfr
E-1851
31.01.2008 at 00:08 #611918Ég held að vandamálið sé ekki það að MHN er að ýta öllum "alvöru þráðunum" (ég hef ekki séð þá lengi en okay) útaf spjallinu, heldur er þetta meingallað spjallkerfi.
Þræðir jú, deyja nánast samdægurs og þeir fara útaf forsíðu og gagnsæin í spjallinu er engin, þyrfti að fá sér þokuljós til að sjá eitthvað í öllu þessu flóði…
kkv, Úlfr
E-1851
28.01.2008 at 02:20 #611978Ég myndi prófa að máta þær undir. Giska samt á að það þurfi eitthvað að snyrta stuðarann til. Efa að það þurfi að gera mikið að aftan.
En ég tróð nú 38" undir 4runner án þess að skera snifsi úr hvalbaknum svo það ætti nú að vera hægt að banka þetta örlítið til ef 36" er með vesen.
Minnir að þetta sé svipað mikið pláss í LC90 og Hlauparanum að framan.
Enda eftir allt saman þá eru þetta bæði "Pradóar".kkv, Úlfr.
25.01.2008 at 16:58 #611474Jahérna… númer tvö er hreint og beint ógeðfellt.
En þetta með hreyfingunum á 4link er snilld.Takk fyrir þetta.
kkv, Úlfr
E-1851
25.01.2008 at 02:04 #611184Er ekki 1KZ-TE í öllum 90 krúserum fram að common rail?
Nú verð ég að viðurkenna að ég er ekki alveg 100% viss um hvaða árgerðir voru með hvaða vélar. En ég er nokkuð viss um að eftir 96 hafi allar KZ vélarnar verið með tölvustýrðu olíuverki. S.s. 1KZ-TE.
Annars er einfalt að athuga það, taka listann í farþegahurðinni frammí burt, losa litlu hlífina hægra megin að innanverðu og sjá hvort það sé forhitara-segulrofabox þar eða tölva. Minnir amk að tölvan sé *ALLTAF* þar upphaflega í toyotum.
kkv, Úlfr.
24.01.2008 at 12:19 #611360…Sætir þegar þeir sofa.
Sum svæði geta verið örlítið varasamari en önnur, gott að allt fór samt vel.
.
Man líka eftir þegar þetta var blásið vel út í fjölmiðlum.Ferðakveðjur, Úlfr
E-1851
24.01.2008 at 02:56 #611174Mótorinn ætti samkvæmt reglu (og tölvunni) að vera kraftminni þegar hann er kaldur. *Hinsvegar*, ef það er kallt úti, þá ætti bíllinn að vera aflmeiri. Ég finn greinilegan mun á því að keyra í kulda og svo aftur á móti ef það er hlýrra úti. =)
En aftur á móti, þá er engin tölva fyrir vélina í mínum bíl.
Enda gömul og góð dísel vél, ekkert óþarfa rafmagnsrusl (væri reyndar til í að vera laus við rafmagnsádrepann og hafa hann sogstýrðan (Vacuum).
.
En varðandi stærð á pústum, þá þætti mér gaman að sjá dyno tölur yfir bíl með mismunandi pústkerfum. Ég er ekkert viss um að hálf tomma breyti miklu.
Gæti verið áhugavert samt að sjá muninn með afgashitamæli og dyno.
.
kkv, Úlfr
E-1851
23.01.2008 at 18:22 #611168Það er hitaskynjari á vatnskassanum (vitanlega) en hann er tengdur tölvunni og lætur hana "róa" vélina ef það t.d. vantar vatn á kassann. Það lýsir sér t.d. með afleysi og of hægum hægagangi.
Hef lent í þessu oftar en einusinni.
kkv, Úlfr
E-1851
23.01.2008 at 18:17 #611332Þú ert væntanlega að tala um rás 41, ekki satt?
Það er sítónn á henni, en mér finnst hálf skrítið að 2 hafi heyrt í þér ef sítónninn væri vitlaus.Byrjaði þetta allt í einu eða hefur þú ekkert notað þessa rás áður?
kkv, Úlfr.
E-1851
23.01.2008 at 02:00 #611162Ef ég á að segja fyrir mitt leiti, þá er 2,5" púst alveg nóg fyrir þessa vél. (Er reyndar ekki með afgashitamæli, langar að sjá muninn á afgashita á 3" og 2,5")
Og nota bene, þá er afgasið orðið það kallt eftir að það kemur niðrúr beygjunni að það hefur lítil áhrif á hvað pústið er stórt afturúr. (Þeorískt séð)
.
Ég er reyndar með frekar stutta pústlögn, en áður var ég með enga. Fann engan kraftmun (dísel er sama þó það vanti pústið, það er aldrei nógu lítið viðnám fyrir aftan þær)
.
Aðal atriðið er held ég að losa sig við hvarfakútinn, sennilegast best að hreinsa hann bara að innan, svo þeir í skoðun setji ekki útá það. (Sá sem minnist á að það sé ólöglegt skal einnig minnast á það að engum hvarfakút er löglega fargað á Íslandi).
og taka hljóðkútinn undan líka.
.
Ég er með 2,5" púst og eina sprengitúbu (heyrist ekkert voða hátt í þessu). Pústið er c.a. 1,6m í heildarlengd frá túrbínu hjá mér.Veit ekkert hvort þetta hjálpar en svona er þetta bara. 😉
Ég er btw með sömu vél og þú, þó þetta flak mitt heiti 4runner, reyndar bara túrbó .En mér þykir samt líklegast að þetta sé eins og fyrr hefur verið minnst á, olíusían.
En það eru samt fullt af skynjurum ef mig misminnir ekki sem gætu flækt hlutina.Smá misgagnlegt info: 1KZ-TE er með tölvustýrða innsprautun af 3VZ-E, eins furðulegt og það hljómar. Það er að segja, innsprautunartölvan vinnur eins og er með í grófum dráttum sömu skynjara, og sömu villumeldingar
kkv, Úlfr. (ekki að tapa sér í tog&ýta pælingum…ekki enn)
E-1851P.S. (ég veit þetta hljómar furðulega) Er nóg vatn á vatnskassanum?
23.01.2008 at 01:27 #611060Maður lærir af biturri reynslu. (Eða verður bitur af reynslunni…)
Annars er þér nú velkomið að spottast á eftir okkur ef við skyldum nú asnast út fyrir bæjarmörkin einhvern daginn.
Þó þarf nú ekki að fara út fyrir þau til að finna smá snjó til að ,,æfa“ sig. Heh.
kkv, Úlfr varkári
E-1851
21.01.2008 at 18:56 #611030Ef ég man rétt er einhver afar afbrigðileg Dana 44 að framan og 12 eða 14 bolta GM að aftan, sama með hana, hún er mjög afbrigðileg.
Með öðrum orðum, nei, það er ekki hægt að skipta um hlutföll og nota önnur. Besta ráðið við þessu væri sennilegast að skipta út hásingunum og setja einhverja eðlilegri hásingar að framan og aftan. Grunar að LC60 hásingar væru temmilega breiðar fyrir þessa bíla. Eða D44 bara.
Jafnvel slá tvær flugur í einu höggi og setja ALVÖRU hásingu að framan, ekki þetta klafasull.
Mín reynsla er að þessi týpa af klöfum geti aldrei orðið jafn góð og gott rör. Þetta eru flexitorar, eins og voru undir rönnernum mínum, og munurinn að keyra bílinn í dag yfir holur og leiðindarhóla… Í dag er hægt að tala um fjöðrun í þessum bíl, ekki bara hopp og skopp.
(Er reyndar ekki nógu vel sáttur við stýrisganginn hjá mér en það ætti að lagast með að laga slagið í maskínunni og jafnvel stýristjakk)
Annars ætti þetta nú að vera auðfundið, er með viðgerðarbók hérna um Troblarann.kkv, Úlfr
E-1851
P.S. vona að þetta hafi verið eitthvað gagnlegt, ekki bara þraus um klafa vs. hásingu
Leiðrétting: Það er samkvæmt mínum heimildum 10bolta GM að framan, og 12 bolta GM að aftan.
21.01.2008 at 18:10 #611026Þetta var það sem ég átti við, heh.
En ég hef aldrei keyrt Trooper á orginal hlutföllum, en grunar að hann yrði svipaður og 4runnerinn á orginal hlutföllum. (3l TD)
Fór með minn úr 1:4,30 yfir í 1:4,56 og finnst það vera temmilegt f. 38"
Hann var samt allt í lagi á 38" á 1:4,30. 90km/h í 2000rpm
kkv, Úlfr
E-1851
21.01.2008 at 18:07 #611042Eru diskarnir ekki bara orðnir eitthvað slappir?
Ég held alveg örugglega að Ljónstaðabræðurnir skoði skiptingar, þeir amk skoðuðu skiptinguna hjá félaga mínum sem var á suburban og komust að því að hún þyrfti á upptekningu. Mæli með að athuga með þá.
kkv, Úlfr
E-1851
21.01.2008 at 02:46 #611064[url=http://www.rqriley.com/suspensn.htm:43jl48zx]Hér[/url:43jl48zx] er smá grein um málið, nennti samt ekki að lesa hana alla svo það er spurning hversu gagnlegt infoið er, en annars er ég búin að vera að velta ýmsu svona fyrir mér.
Það skiptir líka máli hver hallinn er á stífunum og bilið á milli stífufestinganna á hásingunni og svo á milli festingana uppí grind sem þú væntanlega hefur lesið þér til um á netinu geri ég ráð fyrir.
Svo eru örugglega 100 atriði í viðbót sem skipta máli.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.
Það var líka heljarinnar þráður hér ekki fyrir svo löngu um einmitt fjöðrun, og þar á meðal RR fjöðrun versus linkuð fjöðrun og lengd á stífum og fleira..kkv, Úlfr
E-1851
21.01.2008 at 02:22 #611054Svo eru náttúrulega af og til nýliðaferðir…
En annars er þér nú velkomið að hitta fólk á opnu húsi yfir kaffibolla og þiggja ráð og fleira. Verzt að það eru svo margir þar að þú fengir örugglega jafnmismunandi ráð og fjöldi mannana… hah.
Svo er náttúrulega bara ráðið að keyra og fikra sig áfram held ég. Ég er allavegana búinn að læra helling á því að gera tómar vitleysur hægri vinstri. (Aðalega samt búinn að læra hvernig á að gera vitleysurnar, eða þannig…)
Svo er náttúrulega gott að líta í skottið á einhverjum bílnum til að fá smá hugmynd hvað sé gott að hafa sem staðalbúnað.Svo ég taki sem dæmi, þá er skottið mitt alltaf með eftirfarandi:
Loftdælu og slöngu,
tappasett (og óþornað lím),
Loftmælir, 0-20psi og 5-50psi (frammí að vísu)
topplyklasett, (reyndar er ég með heila verkfærakistu en það er kannske fullmikið af hinu góða)
spotti sem þolir bílinn (hangir reyndar framan á grindinni hjá mér)
Teppi
Sjúkrapúði/kassi
Slökkvitæki
Tjakkur sem hæfir bílnum. (Stuðaratjakkur í mínu tilfelli, orginal tjakkurinn dugaði ekki almennilega þó ég væri bara á 32" dekkjum þá.
Ekki má gleyma góðri skóflu, ég kýs malarskófluna fram yfir helvítans ál druslurnar einfaldlega útaf styrkleikamun, og svo náttúrulega verðmunurinn og notagildið.Og svo er fullt af öðru dóti sem kannske þarf ekki beint að vera fyrir flesta notkun, en þetta sem ég taldi upp er eitthvað sem ég fer ekki útúr bænum án þess að hafa í bílnum.
En ég er kannske ekki alveg heill á geði á köflum, hah.kkv, Úlfr á Undanfara II
E-1851.
21.01.2008 at 01:44 #610092Ég er nú einhverstaðar með rafmagnsteikningar og gæti eflaust leyft þér að líta á þær eða jafnvel lagst yfir þær sjálfur. Annars er þetta voðalega einfalt dæmi, þetta fær bara svisstraum ef mig minnir rétt og svo jörð… Amk byrjar dælan að dæla strax og það er svissað á bílinn.
Gætir prófað að mæla tengið sjálft með svissað á bílinn og sjá hvort þú fáir eitthvað úr því.
Rafapakveðjur, Úlfr
E-1851
20.01.2008 at 19:08 #611012Ég hef *ALDREI* vitað til þess að snjóbolti hafi skaðað bíl. Í guðanna bænum, getiði ekki vælt yfir einhverju öðru.
Fólk sem er svona hrætt um bílana sína ætti bara að vera heima hjá sér.
Ég afsaka stóru orðin, en þetta fer svo í taugarnar á mér að fólk skuli verða svona bandbrjálað yfir jafn smáum hlut og þetta er. Snjóbolti gerir varla mikið HA?
kkv, Úlfr (Sem lenti í fyrirsát um daginn)
E-1851
-
AuthorReplies