Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.02.2008 at 19:02 #615472
Ef þú ert alveg á nálum varðandi þetta getur þú prófað að bjalla í mig, get litið á þetta og líklegast séð út hvert vandamálið er.
.
kkv, Úlfr
E-1851
S: 848-2317
28.02.2008 at 02:38 #615252Það er yfirleitt auðvelt að finna lása í þessar hásingar (svo lengi sem menn nenna að opna veskið, kostar morðfjár…)
.
En þægileg drif og ekki svo dýr hlutföll, hægt að spæna keisinguna úr með litlu veseni, þarf ekkert að stilla drifið með rörið undir og fljótlegt að skipta út kögglum ef eitthvað klúðrast.
N.B. Það er 8" (7,8" raunar) kambur í þessum drifum. Reverse að framan (ef þú vissir ekki af því nú þegar, sem ég geri eiginlega ráð fyrir ef þú hefur skoðað þessar hásingar eitthvað:)
Nægilega sterk fyrir þína þyngd. Ég er með svona hásingu að framan í 2,5t (brúttó) bíl (4runner TD). Virðist halda enn sem komið er. (kemur samt að því að þetta bro…. 7-9-13)
.
kkv, Úlfr
E-1851
26.02.2008 at 01:46 #615338Ég held ég fari með rétt mál, þegar ég segi eftirfarandi:
.
Hlutir sem hafa verið soðnir í stýrisgangi, þurfa að vera myndaðir og vottaðir af Iðntæknistofnun.
Til þess þarf að senda þeim (eða mæta á staðinn með) hlutinn og fá hann röntgen myndaðan.
.
Það kostar um 40.000 ISK að láta röntgenmynda hluti held ég.
Amk minnir mig að það hafi verið c.a. verðið sem mér var gefið upp þegar ég ætlaði að lengja (og síðan stytta…) stýrisöxulinn hjá mér.
Endaði með að ég "mixaði" þetta með maskínu úr öðrum bíl og "lét þetta" passa…
.
Vona þetta skýri eitthvað.
kkv, Úlfr
E-1851
.
P.S.
Vil bara minna á að það er ekki góð hugmynd að röntgenmynda hluti heima hjá sér, það veldur krabbameini… Ef þú skilur hvað ég er að fara… 😉
26.02.2008 at 01:37 #615318Ég mæli ekki með WD40, þar sem það smyr ekki, heldur þornar bara í kantinum.
.
Ég smurði gúmmíin hjá mér fyrst með WD-40, en svo fór það til andskotans stuttu seinna, þannig að ég notaði matarolíu (grínlaust) og það gerði hlutina strax betri, það mýkir líka upp gúmmíið.
.
kkv, Úlfr
E-1851
26.02.2008 at 01:06 #615308Ég á nú ekki Jimny sjálfur, en á félaga sem á einn slíkan.
Er einmitt að huga að svona einskonar "network" um fólk með viðgerðarbækur, það er að segja, uppá að geta fengið að blaða í bækur hjá fólki.
.
Gæti alveg þegið þessa bók ef þú ert ekki búinn að losa þig við hana.
.
kkv, Úlfr
E-1851
24.02.2008 at 20:45 #614930Ég get ekki séð að það sé íslendingum til frama að senda út einhverja alvörugefna tónlistarmenn sem virkilega meina það sem þau eru að gera.
.
Eurovision ER og VERÐUR alltaf litið niður á af öllum löndum og þjóðum, og litið á sem eitthvað til að hlæja að, fremur en einhverja keppni sem "skiptir máli"
.
En já, Proppé hefði átt að fara út, algjör snillingur og töff lag, svo er það Barði, atriðið frá honum væri helvíti góður fulltrúi þangað út.
.
Enda bara gott og gaman að gera gys að eurovision. 😉
.
kkv, Úlfr
E-1851
24.02.2008 at 20:28 #615000– Hvar getur maður séð þennan samning sem var gerður milli f4x4 og TETRA?
.
Mér vitanlega var þetta bara munnlegur samningur, en gaman væri að sjá hvað stjórn segir um málið.
.
.
– Hvaða aðgang hafa félagar f4x4 að kerfinu og hvaða talhópa fá þeir afnot af?
.
Við höfum aðgang að einhverjum tugum almennum talhópa, og svo tæplega 10 sér-f4x4 hópa. Eflaust á hópaskipulagið eftir að breytast samfarandi aukinni notkun.
Er annars ekki með stöð hérna við hliðiná mér og er ekki með þetta í kollinum nákvæmlega, en þetta var eitthvað í áttina að því.
.
.
– Hversu margir eru komnir með TETRA stöðvar í bílana sína?
.
Erfitt að segja um þetta, en notkunin virðist vera einhver ef marka má traffíkina á talhópum f4x4 um helgar. (Engan veginn á við VHF kerfið en sennilega hátt á annan tug kominn með þetta í bílana)
.
.
– Hver er rekstrarkostnaðurinn í raun?
.
Mánaðargjald minnir mig og svo ársgjald, svo er náttúrulega mínútugjald fyrir símtöl.
Maður gæti ímyndað sér að þetta væri einhver 10-20þús á ári miðað við lágmarkshringingar.
Mér vitanlega er ekki búið að ganga frá endanlegri gjaldskrá TETRA.
.
.
– Hvaða útbreiðslu telja menn að þetta nái innan f4x4?
.
Tíminn einn mun leiða þetta í ljós, en ég held að þetta eigi eftir að verða almennra en flesta grunar.
.
.
MHN, hvað hefur þú fyrir þér að TETRA búnaður komi til með að lækka í verði eftir því sem líður á árið?
Ég nefninlega veit ekki betur en að TETRA stöðvarnar séu á einstaklega lágu verði eins og er, og sennilega eitthvað fram á árið, og þá rýkur þetta upp í verði.
.
kkv, Úlfr.
E-1851
18.02.2008 at 03:56 #614284Ég er með Maxon stöð í mínum jeppa, hefur reynst mér þokkalega og er ekkert sérlega dýr. En hún er einföld og hrá. Kannski svolítið klossuð (DIN stærð á útvarpi, ef þið þekkið þann staðal).
.
Fæst hjá Múlaradíó og verð með ísetningu og loftneti og látum er um 39.900 ef mig misminnir ekki.
.
kkv, Úlfr.
E-1851
.
P.S. mæli ekki með að þú setjir loftnetið á N1 annan stað en toppinn c.a. 20cm radíus af flötu stáli. (s.s. 20cm frá öllum brúnum.)
.
Það verður alltaf vesen með stefnuvirkni ef þú setur það á frambrettið.
13.02.2008 at 22:52 #614126Hmm, Varadekkjahlíf, væri líklegast rétta orðið.
Það er að segja, hlífin sem kemur aftan á jeppa yfir varadekkið.
.
En hvar fæst svoleiðis með mynd á? Ætli þú þurfir ekki bara að láta prenta út fyrir þig mynd af einni bykkju og klístra þessu á sjálfur.
Gæti samt hugsast að þetta sé til útí ameríkunni, þeas saumað úr leðri eða gúmmí eða eitthvað. Nema þú sért að tala um plasthlífarnar (eins og eru t.d. á Pajero ef mig misminnir ekki).
.
Farðu svo að læra að skrifa á íslensku, setur 99% af gömlu körlunum hérna inni á annan endann við að koma með þráð uppá "úgglenskuna".
Gott mál samt ef þú skilur íslenskuna vel, það er strax byrjun.
.
kkv, Úlfr.
E-1851
13.02.2008 at 22:41 #614124Það er ódýrasta lausnin.
En svona ef þú ert ekki með raföpun í bílum á hreinu, þá er kannske réttast að fara á verkstæði.
.
Veit um nokkur verkstæði, og þó ég sé hlutdrægur þá ætla ég bara að lista þau sem ég þekki, nenni ekki að standa í veseni við Stalínana þarna uppi um hvað má segja og hvað ekki. (úps)
.
Múlaradíó, eru staðsettir í Fellsmúla.
Radíóraf, veit ekki hvort þeir sjá um svona hluti, en eru amk staðsettir í kópavoginum, rétt hjá byko, man ekki hvað gatan heitir.
Aukaraf, Dalbrekku kópavogi, rétt fyrir ofan Toyota.
Nesradíó, eru í síðumúlanum.
.
Svo eru eflaust laghentir menn hér innan f4x4 sem myndu eflaust getað aðstoðað við svona verk. (þetta er tæp kveldstund)
.
kkv, Úlfr
E-1851
13.02.2008 at 22:31 #613956FYI: Þá tekur ríkið x krónur fyrir hvern bensvínslíter, en ekki einhverjar prósentu.
Þar af leiðandi, Ríkið hagnast ekki á hækkandi verði bensínlíters.
Þar fyrir utan, mætti alveg taka þetta af, bifreiðaskatturinn upphaflega (Bifreiðagjöld, þungaskattur, hvað þið viljið kalla þetta) átti að dekka kostnað við vegagerð, ef mig misminnir ekki.
.
Ég mæli með því að við gerum sem minnst og tölum sem mest.
Á þann máta breytist sem fæst, nema olíukostnaðurinn. (hann er kominn uppí að verða stærsti útgjaldaliður heimilanna)
.
kkv, Úlfr hinn ekki svo franski,
E-1851
12.02.2008 at 18:50 #613994Það fer allt eftir því hvað þú telur mikið mál vera…
En boddífestingar eru ekki á sama stað, grindin er "næstum" því eins að öðru leiti. En mig minnir að það sé eitthvað meira maus en bara boddífestingarnar.
.
Annars hef ég ekki gert þetta en ég veit að boddífestingarnar eru ekki á sama stað allstaðar. Eflaust eitthvað af þeim á svipuðum stöðum.
.
En nú spyr ég, afhverju að setja nýrra boddí á eldri grind?
Nýrra boddíið er mun þyngra.
kkv,
Úlfr
E-1851
11.02.2008 at 20:07 #613820Sæll, ég einmitt eyðilagði spindilkúlu í haust og fékk nóg.
(Það var allt annað hvort eð er ónýtt, ótrúlegt eiginlega að bíllinn skyldi fá skoðun út á þetta svona)
.
Allavegana, svona var þetta nokkurnveginn hjá mér:
.
Hásing undan LC70: Mismunandi verð en ég fékk mína á 15þús ef mig minnir rétt. Í henni var tiltörulega óslitið 1:4,56 opið drif. Notaði það bara, en ég er á Grútabrennara svo það hentar illa fyrir Bensínhákana. Mæli með 1:5,29 ef þú ert með V6 bílinn bsk.
.
Slitfletir hásingar:
Spindillegur, legubakkar, naffóðringar og pakkdósir í rörið: c.a. 45þús í heildina í Toyota (mæli ekki með að kaupa þetta annarsstaðar.
.
Stýrisendana fékk ég frá Stál og stönsum, en ef þú færð þá frá Toyota eru þeir mun dýrari en þú færð tvær millibilsstangir og tvær togstangir með… Kostuðu um 12-15þús allir saman ef mig misminnir ekki.
.
Hjóllegur fékk ég frá Fálkanum, en þær fást líka hjá Stál og stönsum. C.a. 12þús.
.
Notaði öxlana sem voru í rörinu, enda voru þeir í lagi, tók bara hjöruliðina og þreif þá vel og setti svo vel af feiti í þá.
.
Lengja drifskaft: Það var einhverstaðar í kringum 20þúsund, hjá stál og stönsum. Notaði skaftið úr IFS draslinu með 2falda liðnum. Það er mjög gott og tryggir lítinn víbring.
.
Stífufóðringar fékk ég hjá stál og stönsum og kostuðu um 10þús kr ef mig misminnir ekki.
.
Ég notaði stýrissnekkju úr LC70 og færði rörið framar um c.a. 70mm
Gormarnir sem urðu fyrir valinu voru svo LC80 gormar.
Stífuturna og gormaskálar smíðaði ég svo úr 4-8mm stáli, eftir því hvað var til þá stundina. Sennilega er 4-6mm stál alveg nóg í flest af þessu.
En það þarf einhvern hólk utanum stífufóðringarnar upp við grind. Þarft sennilega að láta renna það fyrir þig.
.
Í heildina með öllum tilfæringum, pústfærslum og fleira endaði þetta í einhverjum rúmum 130þús.
En þá er framlás og drif sem enn á eftir að bætast við ef þú ert í slíkum pælingum.
Mæli ekki með að fara útí svona æfingar ef maður er blankur eða nískur. 😀
.
Þér er svo velkomið að hafa samband og skoða ýmislegt misgáfulegt undir bílnum hjá mér ef þú hefur áhuga. (það var eitt og annað sem ég hefði kannski átt að hugsa aðeins betur útí…)
.
Næst í síma 848-2317.
kkv, Úlfr á Undanfara II
E-1851
11.02.2008 at 18:10 #613770En að setja handbremsuna aftan á gírkassann?
Jói félagi okkar útfærði þetta svona snilldarlega á sínum lúxa og ég er að fara í svipaðar smíðar.
.
Væri ekki þá hægt að nota hvaða bremsur sem er og smíða festingar fyrir þær á rörið sjálft?
.
Smá pælingar. 😉
.
kkv, Úlfr
E-1851
11.02.2008 at 17:34 #613650Notar standbylgjumæli og klippir loftnetið til, þar til standbylgjan er sem lægst.
Mæli með að þú kíkir á einhvert rafeindaverkstæðið og látir mæla þetta fyrir þig.
Múlaradíó eru t.d. mjög fínir hvað þetta varðar einnig Nesradíó og líklegast aukaraf. Veit ekki hvernig RSH er orðið í dag. Svo er náttúrulega radíóraf uppí kópavogi.
kkv, Úlfr
E-1851
11.02.2008 at 13:06 #613710Þessi "glæfraakstur" sem sýndur var, var tekinn upp á leiðinni heim, að mér skilst.
.
Mér skildist líka að það hefði verið meira af tóniki en gini þarna á ferð, en ég sel það ekki dýrara en ég stal því.
.
Er segulskautið ekki á leiðinni til rússlands?
.
Annars finnst mér hálf fyndið að í auglýsingunni er talað um "sérsmíðaðan Jeppa".
Eftir því sem ég best veit var þetta lítillega breyttur Hilux. 😉
kkv, Úlfr.
E-1851
04.02.2008 at 18:08 #612968Var það bara ekki lítil eftirspurn sem olli því að fáir af þessum jeppum eru hér á landi?
Væri alveg til í að eiga millilangan svona eða LC 75 pickup.kkv, Úlfr
E-1851
02.02.2008 at 00:10 #612632…gotta love ’em
Þarf að fá mér svona græju, efa að færið væri eitthvað fyrir manni þá. 😉
kkv, Úlfr
E-1851
01.02.2008 at 23:58 #612558"Ulfr, Hversvegna "verður að varast að hafa einhverjar styrkingar í botninum eða láta tankinn sitja á einhverjum vinklum" ?" – SBA
.
Illa orðað hjá mér, það sem ég átti við er að það þarf að passa að botninn fari ekki að gefa sig.
.
En annars, varðandi léttleikann, þá er áltankurinn minn muuuuuun léttari en stál tankur.
Miðað við útlitið á honum og þær hremmingar sem hann hefur átt í höggi við er ál alveg nóg í þetta.
.
kkv, Úlfr
E-1851
P.S. Ég er yfirleitt hrifnari af stáli fremur en áli.
01.02.2008 at 16:25 #612538Það að stíga á kúplingsfetilinn breytir álaginu á mótornum, og minnsta breyting veldur því að hann drepur á sér. Eða það er amk eina skýringin sem ég get fengið á þessu, það gerðist það sama hjá mér þegar hann var búinn að verða bensínlaus og búið að bæta á hann.
.
Hvaða árgerð af súkku er þetta?
.
kkv, Úlfr
E-1851
-
AuthorReplies