FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 741 through 760 (of 1,024 total)
← 1 … 37 38 39 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 09.03.2008 at 13:10 #617130
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    WV Passat er með svona rafmagnshandbremsusystem. Og það er ekki inverterað, þeas, það þarf að fara rafmagn á til að setja hana á.
    Hvort það sé löglegt veit ég ekki…
    kkv, Úlfr
    E-1851





    09.03.2008 at 12:42 #617086
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég get ekki betur séð en þetta sé hugmynd vefstjórnar, þetta fyrirkomulag þekkist mikið á erlendum spjallþráðum, og ég sé ekkert að þessu.
    .
    Eins og Hafsteinn segir þá er þetta til að peppa aðeins uppá stemninguna, þó sumir virðast eingöngu vera að reyna að rífa þetta niður með endalausri neikvæðni…
    .
    kkv, Úlfr.
    E-1851





    09.03.2008 at 01:44 #617032
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    …það er hvernig þú notar þau! 😉
    En nei annars, í alvöru, þá eru 36" að mínu mati mun drifmeiri dekk, og þá aðalega útaf mýktinni og breiddinni.
    Cepekinn og Mödderinn voru til 14,5" breið minnir mig á meðan flestar 35" eru 12,5" breið.
    .
    Ertu viss um að þú hafir verið með 35" og 36" þarna? Miðað við að þú hafir verið með þetta í höndunum hljómar þetta eins og dekkin hafi verið minni, nema þú sért með svona tröllvaxnar hendur…
    .
    Nei okay, það er áliðið, ég held ég ætti að fara að sofa.
    kkv, Úlfr
    E-1851





    08.03.2008 at 02:29 #616794
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég er nú með tjakkinn aftan á hjá mér, fyrir neðan stuðarann.
    Hann er reyndar í poka, en hefur aldrei svikið, en ég tek hann yfirleitt og smyr hann með Toyota Ofurfeiti á spreybrúsa ™ þegar ég er að bíða eftir að mótorolían drjúpi af mótornum. (m.ö.o. þegar ég smyr bílinn).
    .
    Maður vill að svona hlutir virki þegar þeir eiga að virka, leiðinlegt að vera með sjúkrapúða sem er síðan morkinn að innan, ef þið skiljið hvað ég er að fara.
    .
    kkv, Úlfr.
    E-1851.





    07.03.2008 at 06:57 #616770
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta er ágætis listi hjá þér, en ég verð samt að vera með smá leiðindi (enda morgunfúll að vana, hehe).
    Afhverju fartölvu? Ég myndi frekar kalla þetta "gott að hafa með" heldur en "bráðnauðsynlegt að hafa með.
    Af þeirri einföldu ástæðu, þú þarft ekki fartölvu. GPS tæki og landakort koma manni ágætlega áfram, þó gott og þægilegt sé að hafa fartölvu með korti og rútum.

    [i:2fviuwox]
    6. Stuðaratjakkur, eða drullutjakkur
    [/i:2fviuwox]
    Það er það sama (tíhíhíhí)

    [i:2fviuwox]
    12. Auka smurolía
    [/i:2fviuwox]
    Eiginlega bara alla þá vökva sem þarf á bíl, sjálfskiptiolíu, frostlög, gírolíur og þess háttar.

    [i:2fviuwox]
    15. Snjókeðjur
    [/i:2fviuwox]
    Það er stundum gott að hafa keðjur, en ég veit ekki alveg hvar ég finn keðjur fyrir 44…. 😛
    [i:2fviuwox]
    16. 2 olíubrúsa, fyrir lengri ferðir
    [/i:2fviuwox]
    Bara nóg af eldsneyti fyrir þann bíl sem farið er á fyrir þá ferð sem farið er! (skildi þetta einhver?)

    [i:2fviuwox]
    41. Stroffur til að skorða lausa hluti niður
    [/i:2fviuwox]
    Strappar! en hvað um það, ágætt að minnast á þetta því fólk er alltof duglegt við að láta 50kg verkfærakistur hoppa og skoppa í skottinu…
    .
    Kæra kveðja, Úlfr á Undanfara II
    E-1851
    Morgunstund gefur gull í uh? Mund? Þetta er eitthvað bull…





    06.03.2008 at 02:40 #616628
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    …það sem við eigum, og kunnum að gera við (ofast).
    Ég er allavegana lítið fyrir að brjóta hluti sem ég hvorki á eða kann ekki að gera við (ég læri það svosem oftast á endanum…)
    .
    Note: ekki taka mig of alvarlega!
    kkv, Úlfr á Undanfara II (loksins á dekkjum til að brjóta eitthvað! Hvar er vélaraflið…)
    E-1851





    05.03.2008 at 12:43 #616574
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef mig misminnir ekki, þá var 4runner með ssk annaðhvort með 4,56:1 eða 4,88:1.
    Mæli með að þú tjakkir bílinn upp að aftan á, minnir að bæði hjól verði að vera á lofti, (útaf LSD dótinu) og snúir hjólinu einn hring á meðan telur þú hve marga hringi pinjónninn snýst. Ættir að fá út 4,5 hringi eða rétt tæpa 5 (fyrir 4,88) eða rétt svo rúmlega 4 (fyrir 4,10, þykir þó hæpið að 4,10 hafi verið í 4runner, minnir að hiluxarnir hafi verið þeir einu sem komu á 4,10 og svo þeir örfáu annarar kynslóðar rönnerar sem komu með 2,4EFI (22RE))
    .
    Eitthvað grunar mig að 4,88 ætti að vera alveg nóg fyrir ssk 4runner á 35", þó ég þori ekki að fara með það, enda aldrei átt við slíkan. (veit bara af einum á 35" ssk með 4,88hlutföll og virkar þokkalega).
    .
    8" toyota úr hilux passar ekki á milli NEMA það sé úr IFS bíl, og jafnvel þá, myndi ég ekki taka það drif því það er ,,veikara“ drif. (Veit ekki hvort það sé sláandi munur, sverari legur í V6 drifinu).
    Er reyndar ekki *alveg* viss á að það passi en ég held samt því öxlarnir eru að ég held þeir sömu.
    .
    Annars er ég með bók um þetta hérna einhverstaðar á flækingi sem þér er velkomið að blaða í hana ef þú vilt.
    .
    Kkv, Úlfr.
    E-1851
    S:848-2317
    P.S. Ég á einhverstaðar framdrif með 4,56:1 ef það er 4,10:1 eða jafnvel 4,30:1 (sem mér þykir afar hæpið reyndar).





    05.03.2008 at 02:26 #616548
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Mikil mildi að þið séuð heilir!
    .
    Fáið mína bestu samúðarkveðjur.
    Þekki þetta of vel að krassa bíl eftir margra mánaða skúringa.
    .
    kkv, Úlfr.
    E-1851





    05.03.2008 at 00:36 #616190
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    úps, aðeins of mikill æsingur í manni :S
    kkv, Úlfr
    E-1851





    05.03.2008 at 00:35 #616188
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ætli ég sé ekki með!
    kkv, Úlfr
    E-1851





    03.03.2008 at 19:46 #615986
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Reimin hjá þér hljómar alltof slök miðað við að geta færst 20-30mm.
    .
    En annars, hvaða módel ertu með af LC90?
    Ef þetta er með 1KZ-TE mótornum (fram að 2001 minnir mig) þá er stýrisdælan gírdrifin, þeas, bara viftan og rafallinn sem eru á reim.
    .
    Þetta gæti verið stýris"snekkjan" (tannstangarstýri í þessum bílum ef mig misminnir ekki)
    Er nægur vökvi á aflstýrinu og enginn leki sjáanlegur?
    .
    Annars er ég með viðgerðarbók fyrir 1KZ-T(E) og að ég held nýrri vélina sem ég man ekki hvað heitir alveg í augnablikinu.
    Getur bjallað í mig ef þú vilt fá að blaða í hana, bý í borg óttans.
    kkv, Samúel Úlfr
    E-1851
    S: 848-2317
    .
    P.S. var að muna eftir einu, getur verið að stýrisdemparinn þinn sé búinn á því? Gæti stífnað upp og verið leiðinlegur, en haldið illa við höggum ef hann er búinn.





    02.03.2008 at 16:43 #615800
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Átta mig alveg á því, en það hefur meiri áhrif á leguna, þó það taki eflaust á öxlinum líka. En nóg af því, þetta eykur allt slit og bla bla bla bla (ekki eins og ég hafi ekki búið mig undir það að taka hásingarnar í gegn á nokkra ára, jafnvel eins árs fresti)
    .
    En að öðrum sálmum, Ofsi, er einhver séns á að ég fái að líta örlítið á bílinn þinn við tækifæri? Langar aðsjá hvort ég geti ekki reddað mér á þessum hefðbundnu 44" köntum.
    Væri líka ágætt bara ef einhver góðhjartaður einstaklingur nennti að ráðast á brettakantana sína með málbandi (ekki teygjumálbandi þó) og mæla breiddina, mig vantar c.a. 18cm breiða kanta m.v. frá boddí, ef þið skiljið hvað ég er að fara.
    .
    Kkv, Úlfr.
    E-1851
    S: 848-2317





    02.03.2008 at 16:13 #615842
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég á líka viðgerðarbækur fyrir nánast allar vélar sem komið hafa í hilux/4runner/Surf/Prado (LC 90 & 120) og fólki er velkomið að bjalla í mig ef því vantar að blaða í slíkt. Númerið er í prófílnum.
    Að vísu ekki PDF, en gamli góði pappírinn svíkur sjaldnast.
    (Að vísu er olía honum meinóhollur)

    .
    kkv, Úlfr
    E-1851





    02.03.2008 at 15:33 #615796
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ofsi, væri kannske ágætt að vita hvar þið gróðursettuð öxulinn, svo ég gæti "tímasett" öxulbrotin mín einhverstaðar þar í grennd, ef þetta er byrjað að vaxa almennilega það er að segja. Hehe.
    .
    Og Hilmar, varðandi felgubreiddina, þá var ýmislegt sem réð því að ég fór í 18" í stað 16", ég fékk felgurnar á lægra verði en samskonar 16", svo hef ég líka alltaf verið þannig að ég þarf alltaf að ganga lengra og lengra og leeeengra… 😉
    Svo verður hann líka svo ruddalegur á þessu…. 😛
    .
    kkv, Úlfr.
    E-1851
    P.S. Ég skil ekki alveg hvernig breiðari felga ætti að hafa áhrif á öxulbrot, myndi ætla að breiðari felga tæki á legunni, en meira ummál dekks myndi gera meira átak á öxulinn.





    01.03.2008 at 18:22 #201995
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir félagar, þannig er stendur nú á hjá mér að ég aulaðist til að troða 44″ blöðrum undir djásnið, ákvað að hafa 18″ felgur frekar en 16″ og er núna að velta fyrir mér hvort þið vitið til að það séu til kantar fyrir svona breiðar felgur?
    .
    Ég veit vel að það eru til kantar en þeir eru bara fyrir 16″ breiðar felgur minnir mig. Ef einhver á svona kanta hinsvegar sem liggja á lausu gæti ég alveg þegið að fá þá lánaða eitt augnablik meðan ég máta og sé hvort það dugi mér eða bara ef einhver hefur málin af þessum köntum.
    .
    Svo er ég líka að velta fyrir mér, ég ætla að færa afturhásinguna 100mm aftur í viðbót (er færð c.a. 12-14cm fyrir) hvort einhverjir séu með sérsmíði á köntum og hvað það myndi c.a. kosta?
    .
    Veit af einum rönner sem er með einhverja svaða vængi, kallaður Megas.
    .
    Sjá hér
    .
    Veit einhver eitthvað meira um þá kanta?
    .
    Með von um góð svör.
    kkv, Úlfr
    E-1851
    .
    P.S var næstum því búinn að gleyma að líma mynd af djásninu við 44″ undirsetninguna!
    hér er mynd af honum stuðaralausum að vísu 😛





    01.03.2008 at 17:18 #615784
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    En ég mæli með því að þú setir hann á millibilsstöngina ef þú ert ekki með tjakk þar.
    Ástæðan er sú að þetta byrjar jú allt á millibilsstönginni, þeas víbringur og annað, eða það hefur mér alltaf skilst.
    .
    kkv, Úlfr
    E-1851





    28.02.2008 at 22:36 #615518
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hefur þú prófað að skoða fóðringalagerinn þeirra?
    Þeir eiga allan fjandann af stærðum og gerðum. Allt pólý fóðringar og eru þokkalega stífar held ég.
    Mæli amk með að athuga með þá.
    kkv, Úlfr
    E-1851





    28.02.2008 at 22:33 #615476
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Veit ekki betur en þessi stöð sé komin í lag og sé í fínu lagi núna. Heyrði amk ágætlega í henni á rás 45.
    😛
    kkv, Úlfr radíóvitleysingur.
    E-1851





    28.02.2008 at 19:27 #615514
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir, ég hef verið að velta þessu 4link fyrir mér um skeið.
    Varðandi pláss í hilux þá mæli ég ekki með 4link með A stífum að ofan (minnir að það heiti A stífur…)
    Einfaldlega útaf plássleysi ef mig misminnir ekki.
    Bazzi endaði á 3link held ég hjá sér, og ég veit ekki betur en að það sé ennþá undir þeim bíl, og að hann líki vel við, hann getur eflaust svarað betur um það ef hann les þetta.
    .
    4link með skástífu (Panhard rod) sem þú ert með teikningar af sem er sennilega það sama og ég er búinn að vera að pæla í, er einföld og þægileg smíði, en mun þvingaðara en t.d. 3link eða 4link með A stífu og án skástífu.
    .
    Mæli með að þú lítir undir Range rover eða t.d. Land rover Discovery (minnir að hann sé með 4link með A stífu að aftan)
    .
    Svo eru ágætis þræðir um þetta mál á síðunni, mæli með leitarvélinni.
    Samt sjaldnast nein endanleg niðurstaða, enda, mismunandi hvað fólk vill.
    .
    Ég er t.d. búinn að fara marga hringi varðandi þetta, ætlaði fyrst að smíða þetta hefðbundna 4link með þverstífu, en hætti eiginlega við það eftir að hafa pælt aðeins meira í 3link og 4link með A stífum.
    Ástæðan fyrir þessum fjöðrunarpælingum hjá mér er útaf dellu, ég er með þetta hefðbundna 4runner 4link að aftan hjá mér. Vill bara vera laus við þverstífur! og maxa út fjöðrunina hjá mér, sem væri sennilega meiri ef ég myndi leiðrétta bilið á milli fremri hluta stífanna og aftari, og einnig ef ég færði neðri stífurnar niður.
    .
    En, gleymum ekki að það er ástæða fyrir þverstífunni, hún er til að halda hásingunni kjurri fyrir hliðarhreyfingum þegar ekið er hraðar en c.a. 60km/h og eflaust eru fleiri ástæður sem ég ekki veit af. (enda aldrei verið skástífulaus að aftan, bara framan ;P )
    .
    Kristinn: það er mjög áhugavert að skoða fjöðrunarkerfið undir jeppanum þínum, en varðandi þennan lausleika að aftan, væri það ekki frekar of mjúkar fóðringar frekar en A stífan. Ég man t.d. ekki eftir að það hafi verið mjög leiðinlegt að keyra Range Rover, og engin þverstífa er þar á ferðinni að aftan.
    .
    kkv, Úlfr
    E-1851
    P.S. eflaust er ekki alveg að marka allt sem þarna stendur, þetta er bara það sem ég hef lesið hér og þar eða fengið að kynnast.





    28.02.2008 at 19:07 #615520
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Kannast við þetta vandamál, og það leysist ekki við það að sjóða í. Brotnar bara á ný.
    .
    Þetta kom fyrir hjá félaga mínum og við settum 4mm plötur sín hvorum megin á grindina þar sem snekkjan er boltuð í.
    S.s. stýrissnekkjan er lögð á plötu með götum f. boltana, svo á grindina, boltarnir ganga í gegn og í aðra plötu hinu megin, svo bara ró uppá.
    Vona að þetta skiljist.
    .
    Já, eitt enn, það er ágætt að punkta plötuna sem kemur á grindina að utanverðu. Ekki heilsjóða hana á grindina, bara tvær stuttar suður, svona til að halda þessu á þegar maður rífur snekkjuna á brott í "viðhaldi", en það þarf náttúrulega aldrei að gera við Togogýtur…
    .
    Baráttukveðjur, Úlfr.
    E-1851





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 741 through 760 (of 1,024 total)
← 1 … 37 38 39 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.