Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.04.2008 at 11:28 #620564
Ég hef lengi amast yfir þessum lögnum OR hér og þar meðfram vegum og annarstaðar.
Virðist lítið vera spáð í það ef t.d. bíll færi útaf við nesjavallarveg í hálku og skylli á rörinu, færi rörið í sundur við þetta þyrfti ekki að spyrja að leikslokum…
.
Þarf alltaf alvarlegt slys áður en hlutir eru endurbættir?
.
kkv, Úlfr
E-1851
11.04.2008 at 15:12 #619514Ég er ekki viss um að það sé rétt að hleypa Sólmundi inn fyrir dyr! *hvísl* hann verður svo vitlaus í víni, fer að tala um að toyotu druslan hans drífi eitthvað! ;P
En ég mæti pottþétt í kveld!
kkv, Úlfr
E-1851
06.04.2008 at 21:54 #619678Kjartan, toyota, ford, fiat og fleiri framleiðendur hafa kært GVM fyrir hönnunarstuld.
.
Dolli, ef þú berð saman 4runner og Safe, þá sérðu strax að afturrúðan t.d. er klippt útúr 4runner, sama má segja með allt skottið. Lúkkið á hliðinni á bílnum er nákvæmlega eins og 4runner. En framendinn er eitthvað, já skoda octavia jafnvel.
.
kkv, Úlfr
E-1851
06.04.2008 at 20:33 #202261Sælir félagar, rak augun í nýjan kínverskan bíl, sem mér þótti minna mig eitthvað á fákinn úti áður en ég reif hann í spað og tróð undir hann stærri blöðrum…
.
Þessi bíll
Get ekki betur séð en að þetta sé bara hreint og beint afrit af 4hlauparanum. Það er að segja 89-97 módelinu.
Afturhlerinn er alveg nákvæmlega eins, aftur hliðin, allt nema framgrillið. Augljóslega stolið því af Lexus eða BMW. 😀
.
Ætli Toyota séu ekki sveittir við að skrifa hundruða blaðsíðna lögsókn. :þ
.
Bílkveðjur, Úlfr.
E-1851
05.04.2008 at 22:05 #619558[url=http://www.fordf150.net/diesel/:u9xfq8n4]Ég nota líka ff og get samt sett inn linka :D[/url:u9xfq8n4]
.
Allavegana hljómar þetta "spennandi" (fyrir utan að ég er ekki mikill fordmaður, hvað þá dísel).
En þeir eru samt enn á klöfunum að framan :/
.
kkv, Úlfr.
05.04.2008 at 01:36 #619484Mikið þykir mér RÚV hafa versnað. Þetta er eins og 5 ára krakki hafi skrifað greinina þarna. Augljóslega ruglast á félagsgjaldinu og félagatalinu, ásamt ýmsum öðrum villum…
.
Hvaðan fá þeir þessa upphæð um að líterinn kosti 154 í þjónustu? Ég keypti áðan olíu og borgaði tæpar 160 kr fyrir… Þeir hljóta að vera með vitlausa dagsetningu, þetta var verðið í síðustu viku eða þarseinustu…..
kkv, Úlfr.
05.04.2008 at 00:53 #619438Er ríkisvaldið farið að telja hausana í f4x4? Nei maður bara spyr sig…
kkv, Úlfr.
04.04.2008 at 23:33 #619172Þetta er þá sennilega einhver misskilningur. Meirihluti f4x4 meðlima (ekki klúbburinn sem slíkur, tek það skýrt fram) virðist hafa haft þann háttinn á að rífa kjaft á netinu (afsakið orðbragðið) og gera lítið í málunum, svona eins og hinn almenni smáborgari.
.
Við hinir sem vildum gera eitthvað og láta heyrast í okkur, erum fordæmdir af þessum mönnum.
.
Ég sé ekki frammá að f4x4 sé sá klúbbur sem ég kýs að vera hluti af.
Eða er eitthvað sem mælir gegn því?
Þetta er komið útí rugl og þvælu.
.
kkv, Úlfr.
04.04.2008 at 12:22 #619138Allir að drífa sig niður eftir sem mega við því!
Ég því miður er að vinna, en Undanfari II stendur vaktina við eystra hliðið!
.
Alls ekki láta hræða ykkur með hræðsluáróðri um 6ára fangelsisvist og kjaftæði, löggan gerir ekkert!
.
Baráttukveðjur, Úlfr á Undanfara II 1/2 mótmælandi.
E-1851
29.03.2008 at 19:54 #618826Nota bara stöng eða jafnvel vagn. Þá máttu fara uppí 60km/h eða 80km/h með vagni.
.
Annars er þetta ágætis hugmynd svosem…
.
kkv, Úlfr.
E-1851
25.03.2008 at 12:20 #61842293,5" segir google mér.
Ég þori ekki að hengja mig uppá það.
"Willys CJ-7 wheelbase" var það sem ég sló inn.
[url=http://www.ajeepthing.com/jeep-cj-willys-history.html:2cy2s2vo]hér er slóðin[/url:2cy2s2vo]
.
kkv, Úlfr
E-1851
25.03.2008 at 12:17 #618232Svo ég vitni nú í þann gamla góða bíl, þá var svaðalega góð fjöðrun í þeim bílum (í minningunni allavegana…) og ef ég man rétt þá var ekki mjög slaglöng fjöðrun í þeim.
Kannske 25cm? Ef einhver getur leiðrétt mig með þetta væri það frábært.
Uppstilling stífa ræður að ég held lang mestu máli og svo réttir gormar við rétta dempara.
Hægt er að fá fína gorma uppí BSA eftir þyngd bíls og þeir fást í flestum lengdum. OME demparar hafa reynst mér ágætlega (allavegana fara Rancho ekki undir jeppann næst þegar ég fæ mér dempara…) svo er Poulsen með einhverjar dempara sem ég mig langar að líta betur á.
.
kkv, Úlfr.
E-1851
25.03.2008 at 01:07 #618228Ég held að 35cm slaglengd sé alveg ásættanlegt.
Í rauninni er bara best að gera sem lengsta slaglengd m.v. hve löngum dempurum hægt er að koma fyrir.
Það var amk mér efst í huga þegar ég breytti mínum. (Hann er að vísu enn í breytingu, og verður það næstu árin, hah!)
.
Saman fer bíllinn um 8cm að aftan með samsláttarpúða.
Ég man ekki nákvæmlega hvað hann fer í sundur, en það er sennilega um 35-50cm. (ég er ekki alveg viss….)
Hann misfjaðrar alveg ágætlega en mætti svosem vera meira.
Eins og þetta er hjá mér þá er ég með LC80 gorma framan og aftan, og vigtar bíllinn 1250kg á hvorn ás á vigt. Mér finnst hann þokkalega mjúkur þannig. Svo skiptir demparaval mjög miklu máli líka. En hjá mér halla dempararnir nánast ekkert, eru bara lóðréttir þannig að virkni þeirra ætti að nálgast 100%. Eflaust er eitthvað hægt að leika sér með það líka með því að halla dempurunum.
.
Á hvernig bíl ertu? Þyngd ofl.
Svo eru líka ballanstangir bara til vandræða ef maður er að leita eftir því að bíldruslan fjaðri eitthvað eða hefur ekki mjög gaman af því að velta…
.
kkv, Úlfr.
E-1851
25.03.2008 at 00:55 #618348Var það nokkuð miðjuspegillinn?
Annars þekki ég lítið til YJ, (þó mig dauðlangi í einn slíkan) bara smá ágiskun…
.
kkv, Úlfr.
23.03.2008 at 19:18 #618276Ég veit nú ekki með aðra staði á landinu, en það var ekkert rosalega þungt færi á langjökli á föstudaginn langa, meðalhraðinn var um 30km/h (enginn þjóðvegahraði en maður komst vel áfram)
Ég reyndar veit ekkert hvað ég eyddi miklu þarna því olíumælirinn er bilaður og ég hef ekki enn fyllt á bílinn síðan ég var þarna uppfrá.Myndi samt skjóta á að ég hafi farið með um 30l í snjónum bara.
.
En það er alveg satt að þessir bílar hjá þeim eru vélsleðar á hjólum, en það breytir engu um það að mér finnst þessir bílar ekki vera vel breyttir. Alltof háir og ýmislegt annað sem mér finnst athugavert.
.
Góð og fjörug umræða, gaman að þessu.
.
Lýsiskveðjur, Úlfr
E-1851
23.03.2008 at 17:37 #618250Held þú sért eitthvað að misskilja þetta "almenn rás".
Því þetta stendur fyrir "almenn f4x4".Ekki þanni að þetta sé opið almenningi…
.
Mætti samt gjarnan setja þennan lista undir fróðleik hérna á síðunni…
.
kkv, Úlfr.
E-1851
23.03.2008 at 15:35 #202164Sælir félagar, ég er að velta fyrir mér að setja A/C dælu í 4hlauparann minn. Hann er TD með 1kz-t mótornum og er þetta fína pláss fyrir A/C dælu hægra megin á mótornum. Ég er bara að velta fyrir mér hvort þið vitið hvaða dælur passa á og hvernig er að möndla þetta í.
.
Eitt sem ég er líka að velta fyrir mér, hvort A/C dælurnar af t.d. 5VZ-FE eða 3VZ-E, jafnvel 22RE mótorunum passi á. Virðast vera svipaðar festingar svona af myndum að sjá.
.
Öll svör vel þegin.
kkv, Úlfr
E-1851
.
P.S. ein einn spurning, ég ætla að breyta afturhásingunni í heilfjótandi, veit að bazzi nokkur vitringur hefur gert þetta hjá sér, en ég er að pæla, hver er munurinn á hilux SFA röri og 4runner röri undan IFS? Er afturrörið sjálft 3″ breiðara eða er breiddin að hluta í öxlunum sjálfum, þeas breiðari skálar og þess háttar… Vona að einhver skilji það sem ég á við. :S
23.03.2008 at 15:00 #618268Vissulega er þetta í þróun hjá þeim og í raun gaman að fylgjast með þessu. Hleypa úr? Það hefur nú ekki verið vandamál hjá þeim hingað til miðað við það sem ég þekki til, þeir hleypa oft úr í klettaklifrinu til að ná meira gripi á erfiðum stöðum og skríða betur oná lausamöl og grjóti. Gallinn við þetta hjá þeim er samt sá að þeir eru að nota of stíf dekk að mínu mati. Það er samt staðreynd þarna að þeir eru að fara að mestu í för eftir snjóbíla.
Þætti gaman að fara þarna út og prófa jeppann minn t.d. í svona ferð með þeim. Sýna þeim örlítið af okkar þekkingu og jafnframt, læra örlítið af þeim, enda eflaust margt sem við eigum sameiginlegt og getum lært af hvorum öðrum.
.
Jeppakveðjur, Úlfr
E-1851
23.03.2008 at 13:25 #618260Það er ágætt að þessir andskotar geti skemmt sér. En þetta eru samt upp til hópa viðbjóðslega ljótir (og illa breyttir imho) bílar.
Sést vel hvernig fallegir bílar geta orðið í höndum rangra aðila.
.
Frábært líka með hrokann í þeim, engin minni dekk en 40". Og svo var þetta troðið af snjóbíl þannig að, þetta er ekki alveg jafn mikið ekta og það sýnist.
Gott samt að fólk skemmti sér og hefur sjálftraustið í lagi. 😉
.
kkv, Úlfr
E-1851
22.03.2008 at 14:42 #618242Þú færð f4x4 rásirnar ef þú ert í f4x4, húsbílarásirnar ef þú ert í húsbílafélaginu, björgunarsveitarrásirnar ef þú ert á björgunarsveitar bíl eða með góð sambönd innan einhverrar björgunarsveitar, osfrv.
.
Húsbílafélagið er ekki með endurvarpa, bara beinar rásir. Hægt er að sækja um tíðnileyfi hjá pfs fyrir t.d. beinum rásum.
.
F4x4 rásirnar eru eins og stendur:42 (endurvarpi FÍ minnir mig)
43
44 (Endurvarpi f4x4)
45 (veiðimannarásin/Almenn rás)
46 (endurvarpi 4×4)
47 (Almenn rás f4x4)
48 (Almenn rás f4x4)
49 (Almenn rás f4x4)
50 (Almenn rás f4x4 Suðurland?)
51 (Almenn rás f4x4 einhver deild?)
52 (Almenn rás f4x4 hvaða deild?)
53 (Almenn rás f4x4 Suðurnes?)
54 (Almenn rás f4x4 hvaða deild?)
55 (Almenn rás f4x4 hvaða deild?)
56 (Almenn rás f4x4, Vesturlandsdeild)
57 (Almenn rás f4x4)
58 (Endurvarpi hlöðufell)
.
82 (Öfugur endurvarpi 42)
86 (Öfugur endurvarpi 46)
88 (Öfugur endurvarpi 44)
.
Mig minnir að listinn sé nokkurnveginn svona. Annars er ég ekki með þetta fyrir framan mig akkúrat núna.
.
Ég vil einnig skora á vefnefnd að þrykkja þessum lista (Þegar ég verð búinn að leiðrétta hann :S) og einhverjum upplýsingum um VHF hérna í fróðleik á síðunni. Glaður skal ég skrifa niður einhver vel valin orð til að geyma þar. Þessar spurningar um VHF koma mjög oft upp hérna og ættu heima í FAQ frekar en á þráðum.
.
Fjarskiptakveðja, Úlfr
E-1851
-
AuthorReplies