Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.10.2013 at 18:45 #379164
Gott að heyra að það fannst út úr þessu. :>
06.10.2013 at 16:57 #379173Allt gott að frétta bara.
Allir komust í Setrið, fyrir utan olíukálfinn okkar, sem ákvað að sprengja loftpúða í erg og gríð.
Fundurinn fór vel fram, þrátt fyrir að fámennt væri og ég held að allir hafi verið ánægðir með niðurstöður fundarins sem verða væntanlega gerðar opinberar einhverntíman eftir helgi.Sjálfur renndi ég í bæinn eftir matinn, Kjalvegur dásamlega rennisléttur eins og alltaf! Enginn snjór fyrir utan smá föl og svo fann ég mér einn skafl til að festa mig í á leiðinni heim svona til að hafa fŕa einhverju að sega, ef festu skyldi kalla.
Geri ráð fyrir að menn fari að tínast til byggða hvað á hverju ef flestir eru ekki þá þegar komnir.
Þakka fyrir góðan fund!
04.10.2013 at 10:41 #379162Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga við svona bilanaleit.
Fyrsta atriði: Finndu rafmagnsteikningar, hvort sem er á netinu eða fáðu lánaðan service manual.
TTORA eru með eitthvað af rafmagnsteikningum: http://www.ttora.com/Hver er spenna á rafgeymi (eins og áður hefur verið bent á)
Hleður bíllinn þegar hann er í gangi?
Eru jarðsambönd frá geymum í lagi? Sama með jarðsambönd útí boddí inní bíl?
Er spansgræna í öryggjaboxinu í kickpanelnum bílstjóramegin?
Eru öll öryggi í lagi?Heyrist klikk í startara? Ef ekki, ertu búinn að leggjast undir bílinn og mæla spennu niður á startpung þegar bílnum er startað? Næsta skref væri síðan að rífa undan stýrinu og mæla hvort þú fáir startspennu útúr svissbotn.
Ef það klikkar í startara, ertu búinn að prófa að banka í hann?
25.09.2013 at 13:03 #226599Samkvæmt frétt á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytis hafa lög um Náttúruvernd sem samþykkt voru síðastliðið vor verið afturkölluð, og stendur til að endurskoða þau.
Sjá frétt Umhverfis- og Auðlindaráðuneytis:
http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/2482Frétt á DV.is um málið:
http://www.dv.is/frettir/2013/9/25/aetlar-ad-fresta-gildistoku-natturuverndarlaga-GNDF3G/Vísir:
http://visir.is/afturkallar-ny-log-um-natturuvernd/article/2013130929534MBL.is
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/09/24/log_um_natturuvernd_afturkollud/
23.09.2013 at 17:27 #379023Þessar slár eru skömminni skárri en keðjurnar sem voru settar upp í fyrra. Ef maður veit af þessu er hættan svo sem ekkert gríðarleg, ef maður sér þetta ekki almennilega ætti maður sennilega að fara hægar yfir. 😛
Væri gott að fá endurskin beggja vegna og eins á slánna sjálfa.
23.09.2013 at 16:57 #379068Hljómar eins og gírinn sé fastur, eða öxullinn í gegnum tromluna. Þú getur prófað að kippa gírnum af (nokkrir hexboltar sem halda því á) og skoða hvernig innvolsið er, ef það er allt ryðgað og ógeðslegt er málið að tæta það í sundur, þrífa og smyrja uppá nýtt með einhverri rándýrri ofurfeiti (prolong er sagt vera mjög gott í þessum efnum).
Hér er linkur á troubleshooting á Warn spilum.
http://www.jeepforum.com/forum/f27/troubleshooting-warn-winches-faq-488547/
Hér er svo mynd af því hvernig testa á mótorinn sjálfan. Vertu samt alveg 100% á því hvað þú ert að tengja áður en þú tengir þetta, og ef þetta snýst ekki strax við að fá straum taktu það þá strax úr sambandi, annars gæti mótorinn breyst í hitaelement… (nema hann sé ekki að draga neinn straum, þá gætu kolin verið tæp eða föst)
http://d3d71ba2asa5oz.cloudfront.net/13000024/images/winch%203%20post%20motor%20test%20diagram.jpg
23.09.2013 at 15:30 #379066Sæll.
Ég hef aðeins verið að dunda mér í þessu þegar tími gefst til, hvað er að angra spilið hjá þér?Það eru líka fínar leiðbeiningar á heimasíðu Warn hvernig á að taka þetta í sundur og setja saman.
Einhverjir þræðir um bilanagreiningu eru líka til á vefnum. Kostar smá yfirlegu en ekkert sem er ekki hægt að finna útúr.
13.09.2013 at 09:48 #378947Tjöruhreinsir er kannski ekki besta efnið, betra að nota einhvern mildan olíuhreinsi.
ég hef gert það alloft og man ekki til þess að hafa lent í veseni með það.Úða þessu yfir vélasalinn, láta standa í smá stund og svo spúla vel. Endurtaka eftir þörfum og skrúbba með bursta verstu blettina.
Kannski fara sparlega með vatn og hreinsi þar sem er mikið af rafmagnstengingum og þess háttar.
02.09.2013 at 11:09 #767241Atburðardagatalið er af einhverjum orsökum óvirkt sem stendur, lítum á það.
30.08.2013 at 01:48 #767203Töff. Þetta verður glæsileg sýning!
29.08.2013 at 19:40 #226458Sælir félagar.
Mig langaði að henda í einn mánudagsþráð (þó það sé nú reyndar fimmtudagur).
Hugmyndabanki þar sem við getum kastað fram hugmyndum um hvað við sem félagsmenn (og næstum félagsmenn) viljum sjá á mánudagsfundum. Hugmyndir að opnum húsum mega einnig fljóta með, og er reyndar hvatt til þess.
Ég er með nokkrar hugmyndir, sem gætu hent opnu húsi eða félagsfundi:
Kynning á ljósum fyrir veturinn.
Kynning á stöðu ferðafrelsismála, stöðu friðlanda, þjóðgarða os.f.v.
Kynning á skúringum félagsmanna (Dagskrárliðurinn Jeppinn minn)
Tæknimál?
Skemmtilegar ferðasögur?
11.08.2013 at 23:22 #226388Haustferð Hústrukkahópsins verður farin 6-8 september n.k..
Dagskrá með fyrirvara er eftirfarandi:Hópurinn hittist á tjaldsvæðinu á Laugalandi, Holtum, föstudagskvöldið 6. sept.
Lagt verður af stað frá Laugalandi kl. 9:00 laugardagsmorgun og ekið um Dómadal inná Fjallabak nyrðra.
Farið inná Breiðbak og svæðið milli Langasjávar og Tungnaár skoðað. Náttstaður í Botnaveri og þess freistað að aka yfir Tungnaá sunnudagsmorgun. Farið í Jökulheima, e.t.v. ekið inn að jökli. Haldið heim á leið með viðkomu í Veiðivötnum. Allir áhugasamir á bílum við hæfi velkomnir.
Gott væri ef áhugasamir leggi nafn sitt við þráðinn svo hægt sé að áætla hve margir hafa hug á að mæta.
Hústrukkanefndin:
-
Grétar Hrafn Harðarson s: 892 1480
Trausti Kári Hansson s: 894 9529
Viggó Vilbogason s: 892 3245.
02.08.2013 at 10:35 #479686Mér datt þetta einmitt einhverntíman í hug, en minnir að vandamálið við að koma þessu í dekkið sé talsvert.
Gúmmí grær ekki eins og skinnið á dýrunum. :/
Hinsvegar er örugglega hægt að leysa það einhvernveginn.Nú er bara spurning hvern langar að tækla þetta?
26.07.2013 at 21:18 #766939Þú prófað stöðina með því að lykla t.d. Rás 46 eða rás 58. 58 næst t.d. uppá höfða leikandi.
Ef það virkar ekki, mæli ég með því að láta fagmenn mæla hjá þér loftnetið, getur prófað fyrst að kippa stöðinni úr og athuga hvort kapallinn sé slitinn.
Einnig getur loftnetsbotninn brotnað innan frá, sem og tenging við hann. Er loftnetstoppurinn örugglega á?
11.07.2013 at 12:15 #766785Líkast til ekki (Gæti þó verið). Díselbílarnir komu vanalega með 1:4,3 eða 1:4,1 (sú fyrra var miikið algengari að ég held).
Bensínbílarnir voru reyndar til á öllum skalanum, allt frá 1:4,1 niðrí 1:4,56. Eina leiðin til að vera viss er að tjekka á því. Annars er þetta tæplega svo langt frá hvoru öðru að það skipti gríðarlegu máli, svo er ekkert gríðarlegur hausverkur að færa þetta á milli heldur.
05.07.2013 at 01:07 #766709[quote="erlingur":1atw1oqx][quote="bjarni95":1atw1oqx] en ef það er ennþá á kerfinu hjá þér skaltu fara varlega í að opna kerfið og gera það í vel loftræstu rými.
-Bjarni[/quote:1atw1oqx]
Hvað er að, þú sleppir ekki þessu út í loftir maður, þvílíkt bull. "Í vel loftræstu rými". Í fyrsta lagi þá eyðileggur maður ekki loftkælingu í bíl. Hverskonar ráðu eru við höfð hér. SBS, hvar ert þú núna?
Annars fínar myndir og hvernig skal gera þetta en þú mátt ekki viðhafa svona ráð með freon![/quote:1atw1oqx]Verð að vera sammála Erlingi með freon, það má aldrei undir neinum kringustæðum sleppa útí andrúmsloftið.
Fyrir það fyrsta er það eitrað, 11% exposure við freoni getur valdið alvarlegri eitrun.
Í öðru lagi étur það upp ózón lagið, og án ózón lags verður afar lítið líf á jörðinni (ekki það að eitt skipti geri herslumunin, en dropinn holar steininn)
Um þetta má finna helling af lesningu á internetinu.Hitt er svo annað mál að loftkæling á heima á Florida, ekki á Íslandi að mínu mati, og finnst mér ekkert að því að eyðileggja loftkælingu fyrir loftdælu, nema ætlunin sé að fara með bílinn suður á bóginn. 😉
05.07.2013 at 00:55 #766707Töff. Þetta lúkkar vel hjá þér og flottur "how-to" þráður!
Ein spurning, græjaðir þú einhverja aflestun á pressuna? Þeas að hún fari ekki í gang með fullan þrýsting á "út" hlið?Það er mjög mikilvægt uppá endingu pressunnar að hún fái að fara í gang undir litlum þrýstingi. Á hefðbundnum pressum sér pressostatið sjálft um aflestunina en á svona mixi er náttúrulega engin aflestun.
Hjá mér gerði ég rétt tæplega millimetra svert gat á slönguna rétt út af pressunni minnir mig, það dugar til að fella þrýstingin á milli þess sem hún fer af og á. En ég er reyndar ekki með neina olíuskilju á minni pressu. (Enda er hún með smurpönnu)
Svo getur verið ágætt að setja einhverskonar hitavörn á pressuna.
04.07.2013 at 12:58 #22626911.06.2013 at 16:54 #766495velkominn í hópinn! Súkkur eru fínustu bílar, hef sjálfur átt þær nokkrar.
08.06.2013 at 12:51 #766455[quote="kjartanbj":uvn6s6q4]Annars finnst mér rás 45 ekkert vera skárra að nota í svona atvinnutengt, bara fá sér rás undir svona starfsemi[/quote:uvn6s6q4]
Mikið er ég sammála þér, ekkert eðlilegra en að rekstraraðilar séu með sínar einkarásir. Enda ekki neinn gríðarlegur kostnaður við það á ári. Man ekki hvort tíðnigjöldin eru 15 eða 25þús kr fyrir rás með sítón.
Hitt er svo annað mál að ég er því fylgjandi að ferðaþjónustuaðilar séu með f4x4 rásirnar inni stöðvunum sínum, svo lengi sem þeir kunna að nota þær sparlega. Því það getur skipt sköpum í neyð að sem flestir hafi þessar tíðnir inni.
Um að gera ef þið heyrið í svona túristafyrirtækjum á okka rrásum að tilkynna þetta til fjarskiptanefndar og reyna að ná því hvaða ferðaþjónustuaðilar þetta eru.
-
AuthorReplies