Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.07.2009 at 17:41 #650992
Hvaða væl er þetta… Þetta er fín síða, á eftir að fínísera hana en það er verið að vinna í því býst ég við.
Ég veit ekki hvort þið munið eftir gömlu síðunni… En ég held að aðal ástæðan fyrir að hún hafi verið orðin hraðvirkari í lokin, einfaldlega afþví fólk nennti ekki lengur inná hana. Aldrei nennti ég að setja inn myndir því það tók ár og aldir.Nafnlaust spjall? Það kemur væntanlega til að lagast, ekki get ég séð að það skipti máli hvort eð er. En ef fólk er svona fyrirmunað að vera með nöfn á þessu spjalli þá getur fólk bara skrifað sitt nafn fyrir neðan eða sett í sem undirskrift (minnir að sú virkni sé inní kerfinu, er allavegana orginal í joomla)
Ég allavegana hrósa vefnefnd fyrir að hafa komið þessari síðu loksins í loftið, og ef gamla síðan kemur aftur… Þá held ég að þetta verði mín síðustu skrif á vefsíðu 4×4.
kkv, Samúel Úlfr Þór
E-1851
01.07.2009 at 12:00 #65095670mm færsla gæti þurft snekkju úr LC70 (stutti litli krúser) en þessu má líkast til redda með stýrislengingum eða lengja stýristöngina en þá þarftu vottun fyrir suðunni á stönginni.
50mm færsla er alveg nóg fyrir 38"
Rennismiðurinn Árni Brynjólfs hefur verið að breyta þessum örmum, ég mæli ekki með því. Pantaðu frekar svona arm hjá K2 á akureyri, þeir eru töluvert sterkari.
Þessi sami Árni hefur smíðað stýrisarm á liðhúsið hægra megin til að geta fest togstöngina þar, þarft togstöng úr LC70 minnir mig í það. vænlegast að kaupa þann stýrisenda uppí umboði því þá fylgir stöng með…
Sjálfsagt er líka hægt að fá Stál og Stansa til að snitta vökvarör í rétta lengd fyrir þig.
Það var annsi góður þráður hér einhverstaðar á spjallinu um þessi mál.
kkv, Úlfr
E-1851
26.06.2009 at 14:45 #650582Er búið að síkka sektorsarminn en ekki þverstífuturninn?
ef hallinn er ekki sá sami á þverstífu og togstöng getur það valdið því að stöngin bogni þegar bíllinn fjaðrar eitthvað verulega. Yfirleitt beygir hann bara í aðra áttina en við mikil átök getur ýmislegt svignað örlítið til…kkv, Úlfr
23.06.2009 at 18:21 #650088Ég smíðaði fláns og rör oná hann, sem var með fláns oná. S.s. rör með fláns á hvorum enda, annan flánsin boltaði ég við gólfið og á hinn flánsinn boltaði ég ram kúlu, var svo með RAM arm og kúlu á móti, smíðaði svo bara borð úr álplötu fyrir tölvudrusluna. Það sennilega skemmir minnst (göt á gólfinu náttúrulega, en það hverfur í teppið ef þetta eru ekki einhverjir tudda boltar, ég held ég hafi notað M5 eða M6 mótorskrúfur hjá mér 8 svoleiðis stykki halda þessu fínt.)
Ég setti gúmmípúða á milli teppisins og gólfsins, þannig að þetta dúar aðeins, hjálpar aðeins til við að verja harðadiskinn.
Það eru líka til þrífótar og ég veit ekki hvað og hvað frá RAM, en þeir kosta.
Þessi aðgerð var ekki svo dýr, á sínum tíma. Töluvert ódýrari en heilt bracket frá RAM. Svo finnst mér tölvuborðin þaðan ekki vera uppá marga fiska, stór og klunnaleg. Betra að sníða eitt utan um tölvuna sem nota á.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.
kkv, Úlfr
23.06.2009 at 15:22 #650328Ég á workshop manual. Sendu á mig póst og ég sendi þér slóð á hann um hæl.
ulfr.thor hjá ulfr.netkkv, Úlfr
20.06.2009 at 21:12 #649974Er verið að ræða um hreint acetone? eða 40-60% aceonte? eða þetta "venjulega" 10% acetone (sem er held ég ekki nema einhver margfalt færri prósenta í raun) sem fæst sem naglalakkshreinsir?
Eða skiptir það kannske engu, bara nóg af acetone og sjálfskiptivökva…Annars er ATF algjör snilld á allt sem heitir véla eða bara fast. Gírkassar, drif, 2gengis mótora og ég veit ekki hvað og hvað…
16.06.2009 at 03:34 #649450Demparinn ætti að fara á millibilstöngina. En ef þú ert með tjakk settu hann frekar þar. Ef þú ert á 44" og ekki með tjakk. Gerðu sjálfum þér og okkur öllum þá þann greiða að púsla þér saman tjakk og troða undir þetta… 38" ætti samt alveg að lifa án tjakks. Ekki illa meint, en ég hef alveg prófað að keyra 44" án tjakks þó að ég sé búinn að gera ýmislegt annað, þá hefur hann alveg rosaleg áhrif. Líka bara hvað það verður auðveldara að hafa stjórn á kvikindinu.
En fyrir 44" með hásingu undan LC70, þá er alveg nauðsynlegt að vera með:
Stýristjakk.
Auka flæðið og stækka forðabúrið fyrir hjálparátakið á stýrið.
Þverstífufóðringu úr HZJ80 (og renna innan úr henni uppí 20mm við hásingu)
Restin bætir bara keyrsluhæfileikana.
Ég hef t.d. keyrt í vetur með gjörsamlega algjörlega svoleiðis handónýta spindillegu að það hálfa væri nóg, og eina sem ég fann að bíllinn var "skrítinn" í stýri. (rásaði óvenjumikið um vegina)Vona að þetta komi að gagni.
kkv, Samúel Úlfr semnáðiaðútrýmajeppaveikinniloksins…
10.06.2009 at 11:08 #648830Er ekki fljótlegast að smíða bara búkka?
Myndi halda að tveir prófílar og voldugar lappir ættu að duga í svona verknað.
Annars hef ég líka oft notað bara hellur undir búkkana til að lyfta þeim hærra. Það hefur ekki klikkað hingað til. Möndlaði fram- og afturhásinguna undir svona.
Annars á gamli karlinn einhverstaðar svona búkka og gæti eflaust ljáð þér þá um tíma.kkv, Úlfr
E-1851
10.06.2009 at 11:05 #648954ég get ekki annað en mælst til þess að þú skiptir um gorminn, fremur en að sjóða hann. Fjaðrastál er einstaklega viðkvæmt fyrir svona aðgerðum. Ég myndi amk frekar skipta um hann og geta treyst á nýjan (gamlan) gorm heldur en soðinn gorm…
Annars voru vörubílaverkstæði í því að sjóða fjaðrablöð, sennilega einvherjir þarna úti sem vita hvar þekking og græjur til slíkra verka eru.En eins og ég segi, ef þú vilt treysta á gorminn, skiptu honum út.
kkv, Úlfr
E-1851
02.06.2009 at 12:20 #648288Er hann þá að nota metan sem myndast af ferðaklósetti? hehe…
Ég sé ekki hvað í bílnum framleiðir metan, auk þess held ég að það geti engan veginn borgað sig að láta bílinn framleiða metan til að brenna á… Ef það kæmi útí +… Þá held ég að einhver hafi fundið upp eilífðarvélina…
.
Gallinn við Metan er helst kúturinn. En það hlítur nú að vera hægt að smíða kút sem þolir 250b, hef ekki mikla trú á öðru.
Kostnaðarsamt já, en vandinn er líka að um leið og fólk fer að brenna metani í einhverju magni þá hækka bara olíufélögin verðmiðann…
Við sáum nú eina fáránlegustu hækkun allra tíma þegar metanið hækkaði útaf því að þeir byggðu "svo flotta þjónustustöð" fyrir metanbílana…
.
Það væri samt gaman að smíða metanbíl. =)
kkv, Úlfr
27.05.2009 at 16:55 #648186Þetta eru bara rafmagnstruflanir.
Þú leysir þetta með að setja fílter á stöðina.
Helstu rafeindaverkstæði bæjarins geta reddað þessu..
.
kkv, Úlfr
26.05.2009 at 12:13 #648170Mér finnst furðulegt að fólk hafi meiri áhyggjur af stafsetningu Jóns en því sem hann hefur frá að segja.
.
Mér þykir þetta grafalvarlegt mál því nú eru í gangi fleiri og fleiri mál sem krefjast þess að við sem höfum einhvern áhuga á að ferðast um þessa eyju okkar séum með galopin augu og verjum frelsið okkar með kjafti og klóm.
Í raun ótrúlegt hvað þessi möppudýr geta leyft sér að setja reglur um allan fjárann, en geta svo ekki gert nokkuð skapaðan hlut í einu né neinu sem skiptir þjóðina muuun meira máli.
.
kkv, Úlfr, sem styður ferðafrelsið heilshugar!
P.s. fyndið að ég skuli hafa gert innsláttarvillu í "kartabla" =/
20.05.2009 at 00:13 #647940Það er nú minnsta mál að renna eða fræsa eitt stykki stýringu í diskinn… Mjög þægilegt að henda þessu á og svo er diskurinn fjær millikassanum með því móti og einfaldara að koma dælu fyrir.
.
Veit ekki til þess að subaru hafi verið með handbremsunni að framan eftir ’90. En það svosem geta hafa verið einhver eintök. Hef ekki skrúfað bremsusystemið úr öllum subaru-um…
.
kkv, Úlfr
19.05.2009 at 12:20 #647924Í hvaða nýjum súbarúum er handbremsan innbyggð í dæluna?
.
Svoleiðis útbúnaður (sem er vondur, því hann frýs eins og allt sem heitir barka eitthvað út við hjól) er á t.d. Ford Mondeo, VW transporter, einhverjum Kia, Mazda 626 ’92-96 og 323 sporttýpunni, og fullt af öðrum bílum. Málið er hinsvegar að finna þetta dót.
.
[url=http://www.facebook.com/album.php?aid=2024552&id=1120462847&l=48b4386b55:h1qrnjz4]hér er myndagalleríið með smíðinni.[/url:h1qrnjz4]
.
Svo á bara eftir að koma í ljós hvaða vandamálum maður lendir í, í kringum þetta.
.
kkv, Úlfr
19.05.2009 at 10:35 #647830Er rosalega þægilegt að kenna um svona.
Mér finnst líklegra að það sé einhver leiðindar samsláttur í tengjum. Ég myndi t.d. kanna öll öryggjabox (skoða hvort það sé spansgræna í tengjum).
Það að framljósin kvikni við að stíga á bremsuna myndi benda til að vandamálið væri í húddinu eða undir mælaborðinu.
hugsanlega tölva en ég dreg það í efa að tölvan stýri ljósunum í þessum bíl.
Ég myndi amk fara að skoða öll tengi undir mælaborðinu og frammí húddi.
.
kkv, Úlfr
19.05.2009 at 00:47 #647916Sæll Lalli, þú átt ennþá dælu hjá mér. 😉
.
Anyways, ég er í þessu sama, og búinn að pæla og pæla og pæla… Og niðurstaðan var afturbremsudæla úr 2003 corollu eða avensis (man ekki hvort) og kúplingsdæla sem skaft virkjar.
Ef þeir setja útá þetta í skoðun, well. Þá vísa ég bara í það að það eru margir bílar með RAFRÆNA handbremsu. Hversu traustvekjandi sem það er. Einnig rámar mig í að einhver toyotutegund sé með vökvahandbremsu á afturdælurnar.
.
Ég veit einnig um nokkra bíla (sem eru allir skoðaðir) sem eru með vökvahandbremsu, og þeir komast allir í gegnum skoðun.
.
Ég er í þessari viku að leggja lokahönd á þetta margumpælda verk (ég smíðaði fyrst barkadót en fékk það aldrei til að verða nógu traust, stundum sat hann bara fastur í handbremsu >.< ) og bremsaði eiginlega aldrei nóg að mér fannst. En ég vil geta stöðvað vélina með handbremsunni, þá veit ég að þetta heldur bílnum við allar aðstæður.
Ég veit ég er sérvitur, en erum við það ekki allir? 😉
.
Hvernig er handbremsan virkjuð í LC70? Er hún með fólksbílaskafti eða svona "pick-up" skafti undir mælaborðinu hægra megin?
Ef þú ert með pick-up skaftinu er ég sennilega með lausnina á þessu fyrir þig (ef þetta þá virkar almennilega hjá mér) en með fólksbíladæminu ertu í raun betur staddur til að möndla það við.
.
Ég hendi myndum af þessu inná netið á morgun og þér er jafnvel velkomið að skoða þetta í næstu viku þegar druslan fer í bæinn í endurskoðun. =)
.
Baráttu kveðjur, Úlfr
E-1851
.
P.s. Það má einnig benda á að handbremsunit undan patrol passar ekki. Flánsinn úr millikassanum stendur lengra aftur úr heldur en á toyotudraslinu og þar af leiðandi kemst svona skálabremsudót fyrir. Einfaldari leið er að renna bara disk í þetta sem kemur á milli flánsana á drifskaftinu og millikassanum.
.
P.P.S. Þess má einnig geta að margir rallybílar eru með vökvahandbremsum. Þá er forðabúr á handbremsuskaftinu sjálfu uppí bíl. Það er væntanlega rándýr búnaður, en eftir því sem ég best veit þurfa þessir rallýbílar að vera skoðaðir. Endilega leiðrétti einhver mig ef ég fer með fleipur, en ég man ekki betur en að hafa séð rallýbílana á númerum.
18.05.2009 at 12:33 #647796Man eftir að hafa séð svona, en ég áttaði mig aldrei á því hvernig þetta virkaði.
.
Förum aðeins yfir þetta:
Það er vökvagír sem situr aftan á útgangsskaftinu úr millikassanum (þeas skaftinu sem síðan snýr fram og afturskaftinu)
.
Svo er notuð vökvadæla bílsins til að knýja þetta dót áfram?
Þannig að í raun er bíllinn bara vökvaknúinn og hraðanum stýrt með flæði.
.
Áhugavert. En mér þætti gaman að geta skoðað þetta nánar einhverstaðar…
.
kkv, Úlfr sempælirofmikið
15.05.2009 at 08:05 #644120Ertu alveg 100% viss um að þú sért með allt rétt?
Þetta hljómar eins og eitthvað sé hreinlega bara rangt í setupinu, ekki eins og það sé hægt að bolta dæluna vitlaust á… >.<
.
kkv, Úlfr
14.05.2009 at 11:45 #647552Ég hef oft farið til Pústþjónustunnar Ásinn á gatnamótum borgartúns og Nóatúns. Þeir hafa alltaf verið sanngjarnir og bara flott vinnubrögð. Ég myndi mæla með að bjalla á þá..
.
kkv, Úlfr
14.05.2009 at 10:23 #647436Ég á nú eitthvað af skynjurum úr svona mótor, sem ég gæti lánað til prufu og jafnvel selt ef sá rétti finnst. Þetta dót á allt að vera í lagi.
En ég mæli með að lesa góðan fsm um vélina og framkvæma þær mælingar sem koma þar fram. Oft hægt að finna þessa leiðindarbilanir bara í gegnum mælingar…
.
kkv, Úlfr
-
AuthorReplies