Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.08.2009 at 17:54 #651872
[quote="olimag":2oo6ado6]Sammi, ég prófaði að taka loftnetið á VHF stöðinni úr sambandi og þá var talstöðin til friðs, sama hvað ég hamaðist á GPS tækinu. Hvað svo, líklega þarf ég að fá einhvern góðan snilling til að mæla loftnetið … eða ?
Kv. Óli[/quote:2oo6ado6]
Hmm, gæti verið lélegt groundplan á loftnetinu, eða ónýtur kapall eða tengi.
Myndi prófa að setja prufulampa á +12V og nota loftnetstengið sem jörð á móti og sjá hvort það logi ljós… Ef það virkar fínt er loftnetið amk að ná jörð einhverstaðar og ætti líklegast að vera í lagi.Hugsanlegt að GPS netið og VHF netið séu of nálægt hvoru öðru?
kkv, Úlfr
19.08.2009 at 17:50 #654550Lítið gagn í þessum hlekk. Enda búið að taka bréfið út.
kkv, Úlfr
17.08.2009 at 19:43 #653542[quote="olimag":3qiw7ma1]Úlfr, er það nýja prójektið að skella Kíu á 44 ?
Vantaði þig ekki einmitt eitthvað til að smíða?
Kv. Óli[/quote:3qiw7ma1]
Það var hugmyndin…
14.08.2009 at 15:19 #653828Nú? Síðan hvenær er það bannað?
Ég hef ekið þarna inneftir.. Þingvallamegin yfir og upp, það er stórgaman að keyra þarna upp, en ég fór ekki lengra en hálfa leið sökum hliðarhalla í fjallinu. Mér skilst þó að það sé lokað hinu megin hvort eð er, svo ég held þú komist ekki alla leið.
Slóðinn hverfur á smákafla þegar maður er kominn upp á heiðina, en það er útaf því að það er ekið uppeftir ánni…
Þetta er svolítið grýtt, mæli ekki með minna en 35" og ódýrum undirvagni.kkv, Úlfr
14.08.2009 at 14:46 #653948Hvar, nákvæmlega tekur þú hana úr sambandi? Við tankinn? Það gæti verið eitthvað vitlaust tengt inná mælaborðið. Hlítur eiginlega aðvera. Virkar snúningshraðamælirinn og hraðamælirinn og þetta ekki?
ég er næstum því sannfærður að það er eitthvað vitlaust tengt við mælaborðið sjálft.
14.08.2009 at 12:18 #653998Ég myndi ekki hafa það minna en 2mm og láta tankinn hanga í "upphengjum" frekar en að sjóða á hann eyru. Það er yfirleitt veikasti punkturinn…
En bara til að vera með smá óþarfa leiðindi, er ekki sniðugara að smíða bara úr boddýstáli og nota upphengjur fyrir þetta og vera með olíu/bensín reglulega í tankinum svo hann ryðgi ekki að innan?
Samanber að orginal tankarnir eru oft úr stáli og virðist duga og duga svo lengi sem þeir eru fylltir af og til…
Svo voru líka til plasttankar hjá RS en ég veit ekkert nánari deil á verði eða öðru. En þeir voru með dælu og mælistiku innbygðu þannig að það væri örugglega fýsilegur kostur…
kkv, Úlfr
E-1851
14.08.2009 at 12:13 #653940Nær alveg nógu góðri jörð í gegnum boddýboltana (búinn að prófa það oft..) Svo það ætti ekki að koma að sök nema einhverjir hafi farið hamförum á kítti eða mótorpúðum… Hehe.
Ef bensínmælirinn situr fastur í botni er einhverstaðar plús inná mæli vírinn eða mælistikann í tankinum ónýt. (auðvelt að mæla það svosem með ohm mælingu á vírana að mælistiku)
Getur verið að þú hafir gleymt einhverri jörð einhverstaðar eða tengin inná mælaborðið sé eitthvað skrítið? Ertu með 3Vezen víralúmið allt eða bara vélalúmið f. 3Vezen?
kkv, Úlfr
E-1851
14.08.2009 at 00:39 #651860Prófaðu að kippa loftnetinu aftan úr stöðinni, og settu hana á scan, og prófaðu svo gps tækið. Ef það lagast við það, gæti verið léleg jörð á loftnetinu fyrir VHF stöðina, eða kapallinn liggur of nálægt einhverjum straumköplum, eða hreinlega GPS tækið nær að trufla svona svaðalega frá sér og þá er ekkert annað að gera en að skella einhverjum filter og dóti á…
Svo mætti prófa að flétta straumkaplana að GPS tækinu og/eða VHF stöðinni.
kkv, Úlfr
07.08.2009 at 13:31 #653528Þetta er óþolandi. Það virðist vera alveg sama hvað gert er fyrir þessar 4Runner druslur þær komast ekkert áfram…
Ég er farinn að fá mér Kíu bara…
31.07.2009 at 17:23 #652742Þvottabretti myndast á vegum ef eitthvað ökutæki asnast inná þá. Bönnum umferð um hálendið bara.
http://findarticles.com/p/articles/mi_m … n19492823/
Ég er ekki viss um að vegir sem rútur keyra um á verði meira að þvottabretti en aðrir.
kkv, Úlfr
E-1851
30.07.2009 at 21:23 #652624Bifreiðastillingar Björns B Steffenssen S: 587 4955
Græjaði fyrir mig vottorð og hjólastillti bílinn og var frekar sanngjarn í verði. Svo var honum líka alveg sama þó flakið væri á fjörutíu og fjórum tommum allan hringinn…kkv, úlfr
E-1851
24.07.2009 at 19:55 #652308[quote="RamLing":3u3flbrp]Já auðvitað notar maður bara venjulegt reylay á milli geymana. En spennufallið sem verður ef bíllinn hrekkur ekki strax í gang er vissulega áhyggjuefni. Spurning hvort það borgi sig hreinlega að takmarka flæðið milli geymana með því að hafa vírana á milli grennri. Nú man ég ekki hvaða sverleika rafvirkinn pantaði fyrir mig.
En ég er búinn að vera hugsa meira um bensínmælin, get samt ekki prófað þetta fyrr en í lok næstu viku þegar ég fæ hann til baka úr sprautun því þá kem ég við og set bensín á hann.
Mælir í mælaborði fær + og – frá bílnum. Síðan datt mér í hug að senda tengja + og þennan n/f við bensínmælin í tankinum og sjá hvort þetta virki þannig. En þarf mælirinn í tankinum – eða er merki einfaldlega sent í tank og fengið til baka, breyting á mótstöðu er þá mælingin á bensínmagninu?[/quote:3u3flbrp]
Rafgeymirinn mun ekkert hætta að draga sinn straum þó að vírinn minnki. Vírinn hitnar bara í staðinn og fuðrar upp…
Ég myndi ekki nota minna en 35q nema þú getir tengt þannig að tenging komi ekki á fyrren bíllinn er kominn í gang.Mig minnir að merkið frá sendinum sé mismunandi viðnám til jarðar. Er einn vír. Svo er annar vír sem er bensínljósið. Hann er bara "on/off" rofi. Það er samt eitthvað hægt að tengja þetta vitlaust því ég hef lent íþ ví ða fá ekki ljósið til að loga nema tankurinn sé í "fullur" stöðunni. En það var með 3ja víra mæli.
24.07.2009 at 19:23 #652024Eða eins og einn benti á, hækka bílprófsaldur uppí 40 ára og banna einstaklingum yfir 60 ára að keyra… Svo væri ekki vitlaust að banna allan akstur í suðurátt fyrir hádegi, og í norðurátt eftir hádegi… OG ALLS EKKI EFTIR KL 8 Á KVÖLDIN!!!
En svona að öllu gamni slepptu. Þá held ég að þroski heilans skipti minna máli en reynsla. Þið afsakið kannske "vísindalega afneitun" mína en ég á erfitt með að trúa þessu kjaftæði með þroska í árum talið vs. þroska í reynslu talið.
Ef það á að fara útí svona vitleysu, afhverju ekki bara að tækla þetta eins og með flugréttindi? Þú þarft að skila af þér x mörgum aksturstímum til að fá "leyfi" til að aka um á breyttri bifreið?
Nú vil ég spyrja ykkur 38" eigendurna, hversu oft hafið þið leyft börnum ykkar (undir 20) að aka um ein á 38" bíl án þess að hafa nokkra reynslu af slíku tæki? Ég lærði á 38" bíl. Fyrsta sinn sem ég ók bíl var ég á 38" bíl. Ég held að þegar ég hafi verið 17 ára hafi ég nokkuð fyllilega gert mér grein fyrir því hvað ég var með í höndunum þegar ég var að keyra um á þeim jeppa.
Og þið á 44"+ bílunum, keyra börnin ykkar um á þessum bílum án þess að hafa hlotið ásjár ykkar fyrst? Ég veit að það eru einungis þrír aðilar sem keyra minn bíl. Hann er á 44"
Svo væri líka gaman að sjá tölulegar upplýsingar um hve margir <20 ára krakkar valda slysum (athugið, eignatjón er ekki slys) á breyttum bifreiðum, og hvaða dekkjastærðum það er þá helst á.
Ég er sannfærður um að fólksbílarnir eigi þar yfirburði, enda ekki margir krakkar sem ég þekki sem fá að stökkva uppí næsta jeppa án þess að hafa hlotið einhverja reynslu í að aka slíku ökutæki. Sjálfsagt eru til dæmi til þess. En við erum ekki öll morðingjar þó einhver hafi myrt mann, ekki satt?kkv, Úlfr
E-1851
24.07.2009 at 19:10 #652304Að setja díóðu yfir á geymi er náttúrulega… nei, ég ætla ekki að klára þetta.
Fáðu þér 80A relay (eða stærra) til að tengja á milli geymanna. Getur notað "motor active" frá alternator eða bara svissstraum til að virkja relayið og þá hleður hann seinni geyminn. Að tengja þetta með svisstraum er samt svolítið slæmt ef neyslugeymirinn er tómur og reynt er að starta, þá getur neyslugeymirinn étið upp hleðsluna á startgeyminum frekar hratt.Ég man nú ekki alveg hvernig bensínmælir í hilux virkar, en eru ekki bara 2 vírar sem tengjast í mælinn og svo er + og – inná mælinn?
kkv, Úlfr
E-1851
23.07.2009 at 17:29 #652298Ég var inná Kili í morgun og það var nú varla upp í nös á ketti af snjó þar. Skrúfaði bara niðrí 3pundin og gat keyrt alveg bærilega í gegnum þetta. Ég veit svosem ekki með 38" bílana, þeir ættu nú að hafa þetta í lólóinu, en þeir eiga heldur ekkert erindi á fjöll á þessum tíma.
kkv, Úlfr
E-1851
20.07.2009 at 12:21 #205320Sælir félagar. Rak augun í þessa frétt á mbl.is og þar sem enginn hefur vakið athygli á þessu máli langaði mig til þess.
Fréttin: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/07/20/bilprofsaldur_haekkadur_i_18_ar/?ref=fphelstHvað finnst ykkur um að breyttar bifreiðar megi þeir aka einungis sem hafa náð 20 ára aldri? Ég persónulega er ekki alveg sammála því. Vil ég benda á að 33″ bíll er breytt bifreið.
Svo er hitt að banna ökumönnum undir tvítugt að aka með fleiri en einn farþega milli kl 23 og 9 á föstudögum og laugardögum. HVAÐ ER Í GANGI? forræðishyggjan að fara með þetta fólk? Mér þætti gaman að vita hver rökin á bakvið þetta eru.
Aftur á móti hrósa ég því að hámarkshraði á vegum verði samræmdur í 90km/h en ekki 90km/h f. minni bíla en 80 f. vörubíla og bíla með eftirvagna.
Hvað finnst ykkur um þetta?
kkv, Samúel Úlfr Þór
E-1851
20.07.2009 at 12:05 #651972Þarf ekki bara að vera slökkt á miðstöðinni? Annars hafa þeir í Nesradió verið með Viper þjófavarnir, gætir prófað að tala við Gumma í Nes og sjá hvort hann geti leiðbeint þér með það?
Þegar þetta er tengt er þetta yfirleitt tengt framhjá sviss og beint inná miðstöðina. Í sumum tilfellum þarf miðstöðin að vera með blásturinn í stillingu 0. Nema þetta sé algjörlega tölvustýrð miðstöð, þá vandast hlutirnir…
kkv, Samúel Úlfr
E-1851
17.07.2009 at 12:33 #651544Ég velti fyrir mér hvar allt þetta fólk væri ef vefnefnd væri ekki til staðar. Fyrst brjáluðust allir yfir gömlu síðunni og voru brjálaðir yfir hve hægvirk hún væri og svo framvegis.
Síðan kom nýja síðan sem er mun hraðvirkari, en þá fann fólk allt annað að henni…Merkilegt.
Mér finnst þessi síða fín. Loksins haldast þræðir á lífi í staðinn fyrir að drepast bara strax, layoutið er ágætt og þetta hreinlega bara virkar… Auðvitað vantar efni inná hana, en það væntanlega lagast með tímanum.
Einhvernveginn get ég ekki ímyndað mér að nokkur maður vilji gömlu síðuna aftur…
Annars er þetta að verða meiri saumaklúbburinn. Eina sem maður sér hér alla daga er röfl yfir vefsíðunni… *sigh*kkv, Samúel Úlfr Þór
E-1851
17.07.2009 at 12:22 #651834Það er nú búin að vera annsi fjörug umræða um þessi mál með jöfnu millibili…
Ég geri mér grein fyrir að regluverk ESB mun ekki koma til með að ganga frá jeppabreytingum. Hinsvegar, megum við búast við, eða réttara sagt, ég óttast, að þeir háu herrar sem ríkja hér, nýti sér tækifærið í "ESB aðild" og hreinlega setji einhverjar brjálæðislega strangar reglur um breytingar og akstur jeppa. T.d. með að banna alla bíla sem eru á stærri dekkjum en 27" að aka innan þéttbýlis eða eitthvað ámóta fáránlegt…
kkv, Samúel Úlfr Þór.
E-1851
08.07.2009 at 12:18 #651270Magnað!
En svona fyrst við erum að skoða svona _svalt_ dót þá er tilvalið að pósta einum öðrum tengli hingað..
http://www.ktuu.com/Global/story.asp?S=10652983
Alvöru toyotu stál. 😉
-
AuthorReplies