Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.09.2009 at 17:59 #658024
Mér hefir alltaf þótt furðulegt, hvað umferð hestamanna er einhvernveginn alltaf mun meira í náðinni hjá hinu opinbera.
Mér þætti eðlilegra að allir áhugamenn um ferðalög um landið sitji við sama borð. En það er kannske bara einhver ranghugsun hjá mér…
Þetta er allt hið versta mál, og ef við eigum að halda áfram að fá að ferðast um landið, þá þurfum við að taka til róttækra aðgerða sem fyrst.Ef þetta fer í gegn, þá óttast ég að það sé bara tímaspursmál hvenær akstur á snjó utan mældra vega verður alfarið bannaður. Við erum að horfa á virkilega afturför í þessum málum.
kkv, Samúel Úlfr Þór.
22.09.2009 at 09:05 #658362Ég var að möndla svona í bílinn hjá mér um daginn.
Fékk mín ljós hjá Bílar og Dekk uppá Akranesi. Þeir eiga úrval af díóðuljósum fyrir ekki svo mikið fé.Ég tengdi þetta bara inná parkljósin hjá mér. setti þó öryggi svona til öryggis. 😉
ef þetta eru díóðuljós þá er nóg að setja eitthvað um 3-5A öryggi fyrir þau.[img:2jecxkw9]http://photos-f.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs252.snc1/9933_1214755205268_1120462847_30691581_225708_n.jpg[/img:2jecxkw9]
kkv, Úlfr
15.09.2009 at 00:24 #657406Sæll.
Ég tek það strax fram að ég er ekki allra manna fróðastur um ’07 hilux.
Mig rámar í að 15" passi undir ef þú ert með "spes" felgur. Annars er hægt að nota 5-6mm spacera til að sleppa við dæluna. Einnig er hægt að slípa úr dælunni en ég er ekki alveg svo viss um hvað má vera grófur á því. Málið er að felgumiðjan á það til að rekast í dæluna. ATH felguboltarnir í þessum bílum eru í styttri kantinum, svo að ég veit ekki hversu gáfulegt það er að setja of breiða spacera heldur.
En kannsk veit einhver um felgubolta sem eru lengri og passa þarna í?Mig minnir að ég hafi séð svona bíl með orginal köntunum á 33". En væntanlega á mjórri felgu. Það var eitthvað búið að hækka lítillega eða skera úr.
Ég held að best væri að fá 33" á felgum lánað einhverstaðar og bara hreinlega máta!
Svo gæti verið að þeir í AT gætu ráðlagt þér eitthvað.kkv, Úlfr
E-1851
15.09.2009 at 00:20 #656126Það er ekki víst að vefnefnd viti af því. =)
Best að spyrja þá bara, þeir væntanlega kippa þessu í liðinn fyrir þig.
14.09.2009 at 23:57 #656898Frábært! Bestu þakkir fyrir þetta.
En kannast einhver við "svörtu slæðuna" úr keflavík að mér skilst?
Er vitað hverjir meðlimir þess gengis voru eða upphafsmenn?Listinn af þessum gengjum er ótæmandi að mér skilst, svo ef einhverjir kannast við einhver löngu grafinn og gleymd gengi eða ný og fersk er ekki seinna en vænna að lista þau hér! (helst með einhverjum tengilið til þeirra af möguleiki er, eða senda á mig ES)
kkv, Úlfr
E-1851
10.09.2009 at 19:12 #206408Sælir félagar.
Ég fékk mér nýtt áhugamál, að safna gengjum nefninlega. Nú vantar mig einhverjar skemmtilegar upplýsingar um hin og þessi gengi sem prýtt hafa ferðasöguna í gegnum tíðina.
Helst tengiliði eða stofn-endur eða einhverjar aðrar endur bara úr þessum gengjum.
Nú, ef einhverjar stofn-endur lesa þennan þráð þá mega þeir hiklaust hafa samband og gefa sig fram, svo ég geti bætt þeim í safnið mitt…Getið haft samband gegnum þetta spjall (bara með að ýta á „svara“ hérna fyrir neðan, ekki vera hræddir/hræddar, þetta er ekkert hættulegt) eða sent mér einn Emil á samuel hjá ulfr.net, sent mér einkapóst hér f4x4.is eða hringt ef þið eruð of feimin til að senda emil. Síminn hjá mér er 848-2317
Tek vel á móti öllum upplýsingum og engin hætta á að klagað verði í Sér-Stakan Ríkissaksóknara eða aðra saksóknara..Þakka fyrirfram fyrir mig hér, svo ég þurfi nú ekki að ausa þökkum í allar áttir hér eftir…
kkv, Samúel Úlfr „safnari“
04.09.2009 at 00:19 #656118Nú er´eg svosem ekki klár á þessu, en getur verið að vefnefnd vanti félagsnúmerið þitt?
Ég man að á gamla vefnum var 2 falt kerfi í rauninni fyrir almenna notendur.
Þeir sem voru búnir að tengja "nickið sitt" við félagsnúmer, og gátu þar af leiðandi séð innanfélagsmál.
Og svo þeir sem voru ekki búnir að því en voru með "nick" og nafn og ég veit ekki hvað og hvað, en gátu ekkert skoðað innanfélagsmál.Sennilega best að garga á vefnefndina í þessum efnum.
kkv, Úlfr
03.09.2009 at 23:04 #639692Já, ég gerði mér nú grein fyrir að þessir koppar kosta sitt. Enda allt sem tengist Benz RÁÁÁÁÁÁNDÝRT. Þekki það dæmi bara úr minni vinnu…
En mér finnst þessi póstur, einmitt bráðfyndinn, og það að koppurinn skuli finnast hálfu ári seinna er enn fyndnara.
En veit einhver þá hvað er að frétta af naglaklippunum, hafa þær ekkert látið í sér heyra. Maður ætti kannske að fara að grennslast fyrir um það…kkv, Úlfr
03.09.2009 at 20:51 #639686…fannstu hjólkoppinn rúmlega hálfu ári eftir að þú týndir honum, eða er eitthvað rugl í gangi í spjallborðinu?
*nuddaraugunígríðogerg*
Til hamingju allavegana með þennan skrítna fund!
kkv, Úlfr
03.09.2009 at 12:46 #655940Ég man ekki til þess að þetta hafi ratað á lýðnetið.
Hugsanlega mætti bæta því á óendanlega langa lista vefnefndar. 😉
En annars voru til derhúfur með eyrum, límmiðar í glugga, og eitthvað fleira dót sem er að ég held til sýnis uppí félagsheimili í Reykjavík. Rámar eitthvað í að límmiðarnir hafi verið búnir, sel það þó ei dýrara en ég stal því.
kkv, Úlfr
28.08.2009 at 13:30 #655604Mæli með að skoða mælaborðið eða tengin að því. Þetta hljómar eins og það sé að koma föst spenna inná mælinn sem veldur því að hann festist þarna.
Fer hann niður í 0rpm þegar þú svissar af eða situr hann enn fastur þar?
Gæti líka verið að mælirinn sjálfur sé fastur hreinlega.kkv, Úlfr
26.08.2009 at 17:23 #655376Ef mig misminnir ekki, þá áttu að geta skipt á milli. Ég man amk ekki betur en að til hafi verið spes "kit" til að breyta barka mæli yfir í rafmagns og öfugt.
Ef þú gerir það þarftu hinsvegar að skipta út mælaborðinu…
Einfaldara væri sjálfsagt að beygja sig og kaupa barkadótið. En, tja, við erum Íslendingar, erum við ekki meistarar í að fara fjallabaksleiðir í öllu 😀
kkv, Úlfr
26.08.2009 at 09:01 #655372Samrás á líka til hraðamælabreyta fyrir rafstýrðan skynjara.
Svo fæst hitt hjá ökumælum minnir mig, AT og sjálfsagt einhverjum fleiri.
kkv, Úlfr
24.08.2009 at 23:20 #655280Prófa þú að skipta út "EFI" segulrofanum. Hann gæti verið með einhver leiðindi.
Annars gæti verið eitthvað vesen á svissbotninum kannske, finnst það samt svolítið langsótt. Mæli amk með að skoða segulrofann (relay) fyrst.breytt: Ég fattaði allt í einu að EFI relayið þarf ekki endilega að heita EFI relay í þessum bíl, gæti líka bara verið "fuel pump" eða eitthvað ámóta… Það er amk relay sem stýrir þessu. Ein aðferð til að finna rétt relay er að svissa á hann svo þú heyrir í dælunni og prófa að pikka út segulrofana sem þér þykir líklegastir…
kkv, Úlfr
24.08.2009 at 12:46 #654740Það sem mér finnst oft svo fyndið með svona skattlagningar, og er kannske ekki endilega fyndið heldur meira sorglegt og lýsandi fyrir ríkið hérna, er að skattlagning á ákveðinn flokk til uppbyggingar eða viðhalds innan þess flokks, fer oft í eitthvað allt annað.
T.d. má nefna bifreiðagjöldin öll sem eru lögð á hitt og þetta í tengslum við bíla, svosem olíu- og bensíngjaldið sem eru sennilega besta dæmið um þetta.
Mér finnst vera nóg komið af skattlagningu. Frekar mætti fara að taka til í þessum málum og láta þann skatt renna til þeirra hluta sem hann er ætlaður, en ekki í að borga upp sendiráð útum víða veröld sem enginn sér tilgang í nema til að geyma gamla ráðherra og flokksgæðinga…
Það má vel vera að tekið sé glápgjald af ýmsum stöðum í BNA. Það þarf þó ekki endilega að lýsa skynseminni í því. Ólíkt bandaríkjunum (eftir því sem ég best veit) hefur annsi margt í tengslum við náttúruperlur sem unnið hefur verið að bæta stíga og þess háttar, verið gert í sjálfboðavinnu hér á landi.
kkv, Samúel Úlfr.
22.08.2009 at 15:51 #654956Er ekki hægt að setja einhver lög um að ráðherrar megi ekki tjá sig opinberlega eftir að stjórnarsetu lýkur?…
Mér finnst þetta vera óþarfi hjá henni Kolbrúnu. En það hefur svosem verið vitað mál í gegnum tíðina að margir, og annsi margir í stjórnmálum hafa haft horn í síðu þeirra sem vilja ferðast um landið… Mér þætti gaman að vita hvort Kolbrún hafi gengið um landið í grófum gönguskóm eða stígvélum? Voru mikil ummerki eftir hana? Það að það séu för á árbakkanum, sem ég vænti þess að sé sandur, er svolítið "hypað" held ég.
kkv, Samúel úlfr
21.08.2009 at 16:42 #653652Fyrst landsbyggðarfólkið er að kvarta undan því að reykvíkingarnir taki uppá einhverju slíku, ættu landsbyggðardeildirnar þá ekki að íhuga slíka verkfæraleigu ef áhugi er fyrir því hjá viðkomandi deild?
Mér finnst ekki sanngjarnt að tuða yfir því sem gert er í rvk sem væri alveg hægt að gera útá landi fyndi fólk grundvöll fyrir því.
N.b. ég er hluti af þessu landsbyggðarpakki, áður en þið tuðið yfir að "reykjavíkurliðið" (betur þekkt sem SAS-gengið…) sé með einhvern derring.
að öðru leiti þykir mér þetta stórsniðug hugmynd. Borgi verkfærin sig upp á nokkrum leiguskiptum er ekkert því til fyrirstöðu að endurnýja þau reglulega.
Spurningin er hverjir eru tilbúnir að standa í þessu?
21.08.2009 at 12:13 #653966Ekki man ég til þess að vélartölvan fylgist nokkuð með mælaborðinu af viti, held að meiraðsegja olíuþrýstismælarnir, og eldsneytismælirinn tengist tölvunni ekkert.
Fékkstu tölvu til prófana og kom eitthvað útúr þessu?
kkv, Úlfr
21.08.2009 at 00:18 #654772[quote="gisli83":zx9k7llz]Takk fyrir svörin….
Eru einhverjir sem hreinsa svona kæla eða á ég að kaupa nýjan ?
Ef þið mælið með nýjum kælir veit einhver hér hver er að smíða svona……?
Er ekki málið að stækka þennan kælir þegar það er á annaðborð verið að skipta um þetta ?
Hvernig get ég sannreynt að kælirinn sé stíflaður ?
Kv Gísli[/quote:zx9k7llz]
Taka retour lögnina frá kælinum, setja þrýstimæli á milli kælis og lagnar og mæla þrýstinginn væri ein leið. Svo má kippa kælinum úr og tæma hann og einfaldlega setja þrýsting (vatn með hreinsiefni eða hreinsiefni bara og sjá hvort það losi eitthvað um) og sjá hver þrýstingurinn úr er… Það er svona ein leið.
Nú man ég ekki hvernig þetta er í HZJ80 en er ssk kælir og vélarkælirinn sambyggður eða í sínu hvoru lagi? ef þetta er sambyggt myndi ég athuga vélarhitann líka. Ef hann hitar sig ekkert á vél er þetta sennilega bara ssk kælirinn.
Svo gæti verið stífla annarstaðar í kerfinu, eða sían í skiptingunni orðin stífluð? Er langt síðan skipt bar um hana?Svona smá hugdettur, en ég er enginn sérfræðingur í ssk.
Kkv, Úlfr
E-1851
19.08.2009 at 21:10 #654632Miðað við yfirlýsingarnar þá myndi ekki veita af landsbyggðarpakkinu líka á þessa árshátíð. En ég held að Lella ráði þessu enda sér hún um þetta OfsaLega árshátíðarteiti eða eitthvað.
Ég ætla allavegana að taka þessa dagsetningu frá, mér skilst að leynigestur verði á svæðinu og verði með sögustund.
kkv, Úlfr LandsByggðarPakk númer E-1851
-
AuthorReplies