Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.11.2009 at 17:01 #668050
Bara smá innlegg í þessa umræðu. 60 cruiser hásingin er 58" í sporvídd, orginal hilux er 55" í sporvídd.
Ég myndi velja 60 cruiser framyfir patrol, einfaldlega útaf breiddinni, eldri patrol hásingarnar eru þó einhverjum fáum tommum mjórri en yngri hásingarnar ef mig misminnir ekki.
Öxlarnir í Patrol eru örlítið sterkari að framan. Ef þú ert með heilfljótandi að aftan myndi ég ekki hafa áhyggjur af því en framöxlarnir í 60 cruiser eru veikur punktur. En það eru til öxlar í stað þeirra. Svo hafa kúluliðirnir átt það til að brotna en það eru til öxlar sem nota D60 hjöruliðskrossa til í þetta að mig minnir. Þetta fæst allt útí ameríku.
23.11.2009 at 12:10 #667994Rótor eða rafstilling gætu átt eitthvað svipað.
kkv, Úlfr
21.11.2009 at 19:21 #667388Ég er með 1kz-t (3l TD í 4runner) og þetta er svona svipað vesen hjá mér.
Það sem ég er nánast 90% viss um að gormurinn í einum spíss er eitthvað latur og hann gengur ekkert alveg á öllum alltaf. (ekki almennilega amk)
Ég á von að þetta lagist við upptekt á spíssum og ég myndi skoða það. Ég held að það kosti ekki morðfjár að láta athuga þetta hjá Framtak (minnir að þeir sjái um svona) eða Kistufelli eða einhverjum af þessum vélaverkstæðum. Ég er bara svo framtakssamur að ég hef ekki komist í að þrýstingsprófa þá ennþá.kkv, Úlfr
20.11.2009 at 16:40 #667556Sannleikurinn með svona spacera er sá að það skiptir engu máli um álag á legur eða annað UMFRAM felgu með minna backspace eða breikkun á hásingu… M.ö.o. þetta hefur sömu áhrif. Áhrif á stýrisgang eru ekki svo mikil, þar sem meira backspace = meira álag á stýrisgang eftir því sem ég best veit.
Ég ætla ekki að tjá mig mikið um traust svona búnaðar, 38" og minna er sjálfsagt í lagi á þessu. Persónulega myndi ég gera allt til að finna betri lausn en spacer.
Áður en þú ferð að panta svona apparöt að utan vittu hvað þetta kostar hjá N1 í fellsmúla eða k2/kliptrom á akureyri.
kkv, úlfr
15.11.2009 at 16:22 #666308[quote="Bragi":3q9ot8xh][quote="Óskar Dan":3q9ot8xh]Já er með 2stk 9" 225cm að framan á grind 4stk 17cm á topp og 6 vinnuljós allt HID[/quote:3q9ot8xh]
Vhóó 225cm, það er ekkert smá 😀
En ég hélt að þú værir að meina 12 framvísandi kastara (8-9"), þetta með vinnuljósin er aðeins annað og að öllum líkindum notar þú þetta ekki allt samtímis, þó það sé ekkert því til fyrirstöðu.
Það er gott að vera vel upplýstur 😉
ps. veit að þú meintir 22,5cm, ég bara varð … ;)[/quote:3q9ot8xh]
Eru menn farnir að bolta friðarsúluna framan á jeppana til að fá almennilegt ljós í myrkrinu? 😀
09.11.2009 at 12:13 #665708…ef að ég ætti að halda kjafti fyrir það sem ég póstaði. Þá þætti mér gaman að vita hvar þið lærðuð almenna skynsemi sem og kurteisi.
Hættið þessu skítkasti og farið nú að ferðast aðeins, það léttir á sálinni.
Ótrúlegt að fólk skuli geta snúið heilu og hálfu þráðunum uppí eitthvað kjaftæði í stað þess að reyna að koma með einhver skilaboð af viti.Af öllum þessum svörum sé ég eitt af viti, frá Heiðari. Enda augljóslega maður sem hefur ferðast á fjöll og hefur smá reynslu af þessum dekkjum.
kkv, Úlfr
p.s. þið sem ekki náðuð hæðninni með 2tonninn… tja…
08.11.2009 at 04:26 #665694Veit ekki betur en þetta hafi verið að virka. Ég sé amk annan hvern jeppa sem er ekki á 46" eða stærra á DC.
Ekki eins og það sé mikill munur nema þyngdin held ég.Svo er stál svo lítill hluti af þessum radíal dekkjum hvort eð er að ég get ekki séð að þetta skipti nokkru máli.
MT virðast amk selja slatta af þessu.
Eini gallinn sem mér persónulega finnst við DC er að það er ónýtt á þessu munstrið frá framleiðanda.
Ef ég neyddist ekki til að vera á 44" sökum þyngdar (jeppinn er nánast rúmlega 2 tonn) þá væri ég á 38" mödder, ATZ eða MTZ.
Munstrin eru töluvert betri í þeim.En cepekinn er ágætur.
kkv, Úlfr
08.11.2009 at 03:55 #665442Er nýliði ekki bara einhver sem hefur ekki "grunnvit" á því verkfæri eða verkefni sem hann hefur að hverju sinni?
t.d. þeir sem vanir eru fjallaferðum ættu ekki að vera nýliðar þó þeir séu á minni dekkjum en geta þó verið nýliðar séu þeir að ferðast í fyrsta sinn á minni dekkjum. Þeir hinsvegar geta gert nýliðamistök. Eins og allir, hehe.
kkv, Úlfr
08.11.2009 at 03:49 #665392Fyndið. Ætlaði að kaupa neyðarkallinn í dag, en fann engann sölumann (lesist: Björgunarsveitarmann)
Þetta minnir mig á eitthvað… ekki klár hvað það er…En annars um að gera að styrkja björgunarsveitirnar, úr einhverju verða þessi grey að moða til að viðhalda tækjakosti sínum sem virðist bara verða dýrari og dýrari eftir því sem okkar leiktæki verða stærri (og dýrari)
Alveg hrikalega óeigingjarnt starf sem þetta fólk leggur á sig.kkv, Úlfr sem langar í kall með hund.
06.11.2009 at 20:18 #664158Eina sem ég hef við þessi lög að athuga, er að aukafélagi virðist ekki geta komið inn sem staðgengil aðalfélaga (svosem ef veikindi eða vinna eða annað ber að) og tekið ákvarðanir í hans nafni svosem með kosningu eða öðru.
Svo mætti vera opinn sá möguleiki að aukafélagar geti borgað helming félagsgjalds og fengið atkvæðisrétt.
Mín rök fyrir því að afnema atkvæðisrétt aukafélaga eru að mér þykir það fáránlegt að bakvið eitt númer (eitt félagsgjald) geti verið 2 atkvæði en borgar sama gjald og ég. Eins og minnst var á hér framar í þræðinum.
Ég get ekki annað en verið meðfylgjandi lagabreytingunni, þó það þurfi að kosta það að tveir meðlimir klúbbsins sjái sér ekki fært að starfa áfram fyrir hann.
kkv, Úlfr
06.11.2009 at 11:17 #665338Því miður er í raun eina leiðin til að koma í veg fyrir ryðmyndun inní þessu að hafa eitthvað í þeim. Í rauninni er nóg að hafa alltaf "glögg" í þeim því þá er síður hætta á að raki setjist í botninn á þessu. Svo er bara að setja ísvara á þetta reglulega til að eyða rakanum og leyfa þessu ekki að standa í einhverja mánuði hreyfingalausu.
Öll efni sem menn ætla sér að setja inní tankinn til að verja fyrir ryði leysast upp í olíu og bensíni.
kkv, Úlfr
05.11.2009 at 19:31 #665332Þú gætir líka komist af með að nota leitina hérna.
2mm er algjört lágmark, en 1mm stál er sterkara en það. Gamli tankurinn sem ég átti var úr 4mm. Ég persónulega myndi velja 3-4mm upp á að halda styrknum nægum.
05.11.2009 at 11:50 #665328Held að 4mm ætti að vera alveg yfirdrifið nóg.
Ál hefur mér fundist eiga það til að springa á suðunum oftar en stálið eða ryðfría. Ég hef amk séð fleiri sprungna áltanka en stál. (Þó svo ég ætti kannske ekki að vera að segja mikið því stáltankurinn undir jeppanum mínum var að rifna í sundur við áfyllingarstútinn, en það er orginal tankur og held ég að megi rekja til misgáfulegra vinnubragða við boddíhækkun á sínum tíma hjá fyrri eiganda frekar en tanksins sjálfs)En annars, afhverju að smíða þetta úr áli?
Aðal tankarnir eru yfirleitt smíðaðir úr stáli eða plasti, og þeir endast jú fjandans nóg.
Persónulega myndi ég frekar smíða þetta úr boddístáli og hengja þetta bara upp á upphengjum og ryðverja þetta vel að utan.Svo er trixið að hafa þetta fullt af olíu/bensíni og passa að setja ísvara reglulega útí svo þetta ryðgi ekki að innan.
kkv, Úlfr
03.11.2009 at 17:23 #665046pitstop held ég að þeir heiti þarna í súðavogi eða hvar þetta nú er. Þeir rukkuðu ekkert voðalega mikið fyrir bjafnvægisstillingu og flipaskurð sem þeir gerðu ekki. Ég veit ekki hvort það var afþví að þeir voru svo miður sín yfir að geta ekki komið 18" dekkjunum í míkróskurðarvélina að ég fékk ballenserínguna á fínu verði eða hvað. En ódýrir voru þeir.
Svo er eitthvað umfelgunarfyrirtæki rétt hjá þar sem við vorum með verkstæðið okkar þarna í hafnarfirðinum, veit ekki hvað þeir taka fyrir svona en það mætti athuga það.
15þús fyrir þetta finnst mér samt full gróft. Tilhvers samt að ballansera? Ég er með 44" ójafnvægisstillt og það bara virkar ágætlega. (það er aðsegja, ég fann engan mun þegar 600gr af blýinu duttu úr felgunni) 38" er líka ójafnvægisstillt og það pirrar mig ekkert heldur… Ég myndi amk prófa að keyra þetta ójafnvægisstillt og sjá hvort þetta sé til friðs. =)
Á samt ekki að vera einfaldast í heimi að setja dekk á felgu með kantlás?
kkv, Úlfr
P.s. Þýðingar: Jafnvægisstilling = Ballansering
Flipaskurður = Microskurður
Kantlás = beadlock
😀
03.11.2009 at 17:17 #664886Þessi fræði er kölluð Ackerman’s angle.
Það er ágætis umræða á þeim þræði er ég vísaði í á fyrstu síðunni.
Það eru að vísu nokkrir sem láta þessi fræði sig lítið varða og virðast komast upp með það…Aftur að 8" reverse. Það eru stærri legurnar (4 pinion) í því drifi. Til samanburðar má nefna að einungis ein tegund af legusetti er til í þetta (eftir minni bestu vitund) og LSD lásar voru stundum settir í þessi drif, og þá tekin úr V6 bílunum sem voru með LSD…
kkv, Úlfr
P.s. gaman að sjá að það er nóg af fólki í pælingum þarna úti og það sárvantar "toyotu tækniþráð" eða wiki á þessa síðu.
03.11.2009 at 16:06 #664882Man ekki betur en að það hafi bara komið eitt reverse cut drif frá Herra Toyoda.
Sá eitt sinn drif úr 80 við hliðiná minni 70 og gat ekki betur séð en að þau væru nákvæmlega eins.kkv, úlfr
03.11.2009 at 08:38 #664876Reverse köggullinn er í raun nákvæmlega eins og v6 drifið í uppbyggingu. Eini munurinn er "reverse cut" drifið sjálft…
Læsingar úr 4cyl passa ekki í 8" reverse eftir því sem ég best veit.
sjá nánar: http://home.4x4wire.com/erik/diffs/
kkv, Úlfr
03.11.2009 at 00:42 #659202Þess má geta að einn hestur mengar meira en einn jeppi á ári.
Ætli þessir stjórnmálasnillingar viti af því? Nei. Þeir nota þær "staðreyndir" (þó svo að það þurfi að sveigja þær aðeins til) sem hentar þeim. Ekki annað.Það má ekki minnast orði á mengun alls þess dýraflota sem er í heiminum, hvað þá alla þá mengun sem eitt geimskot hefur af sér.
Að halda að íslendingar geti breytt heiminum er ein af ranghugmyndum 2007 sem enn lifir. Við erum bara tæplega osló að stærð. Og eigum síst skilið alla þá athygli sem við fáum…
kkv, Úlfr sem er orðinn hundpirraður á að þurfa sífellt að ströggla um áhrif bíla á "mengun" og "gróðurhúsaáhrif" sem standast engin vísindaleg rök…
03.11.2009 at 00:21 #664060….
Ég er hættur að skilja sumt sem kemur hérna fram.
Þessvegna ætla ég að bæta mér í hóp mannvitsbrekkanna hérna og gefa þér litla ráðleggingu frá mínu hjarta. Ég geri mér grein fyrir að ég gæti orsakað fjörugar umræður…Ekki tengja þig neitt inná "12V kerfi geymana" raðtenging með töfradíóðum svo að báðir geymarnir "afhlaðist" rétt eða fleh, það virkar ekki nema til að skemma góða geyma.
Þeir sem bentu á að "best væri að afhlaða geymana ….": Ef þú afhleður sýrugeymir, þá er hætt við að það megi henda honum bara með það sama.Kauptu þér 24V perur í þessa kastar sem þú átt eða raðtengdu tvo og tvo saman. N.b. þá detta út BÁÐIR KASTARAR EF PERAN FER Í ÖÐRUM. Mæli frekar með 24V perum.
Öll ljós sem framleidd eru eftir evrópustöðlum þola upp að 32V spennu eða hærra. Svo að 24V er ekkert mál og ég mæli með því. Sparar þér grennri lagnir að þessu og svona flottheit.Fáðu þér spennubreyti annahvort hjá íhlutum, Miðbæjarradió, Múlaradió eða öðrum góðum stað sem selur góða spennubreyta. Passaðu samt að spennubreytarnir séu gerðir þanni að þeir hleypi ekki í gegnum sig eyðileggist þeir. Þá er fjandinn laus nefninlega.
Passaðu að lesa SWL töluna (ekki þessa sem er merkt "peak") og velja spennubreyti sem hentar því.
Eitt enn. Ódýrir spennubreytar þýða yfirleitt einn hlut. Skemmri ending og þegar þeir fara þá hleypa þeir 24V í gegnum sig og þú getur kvatt allar þessar 12V græjur þínar….Útvörp fást í 24V en það er mun minna úrval. Aftur er spennubreytir betra val.
Ég læt þessu lokið að sinni.
Gef skotleyfið til næsta viðmælanda. 😉kkv, Úlfr
02.11.2009 at 23:36 #664872Ég gæti líka bara notað leitina og vísað á þráðinn.
https://old.f4x4.is/index.php?option=com … C70#p98348
Varúð. Það eru misgáfulega upplýsingar þarna inni og ber öllu bullinu í þessum mönnum að taka með varúð.
-
AuthorReplies