Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.03.2010 at 12:04 #685686
Þegar ég las fyrirsögnina var ég að velta fyrir mér hvort þú ætlaðir að setja mæli á stöðina. 😀
Handstöð með útiloftneti getur verið nánast jafngóð og bílstöð sé loftnetið staðsett á góðum stað.
En að alvöru málsins, þegar maður verslar stöðvar að utan verður að gæta þess að þær séu innan þess tíðnisviðs sem við Íslendingar notum.
150-170MHz væri svona nokkurnveginn innan marka fyrir flest.
Svo verður að reikna dæmið algjörlega til enda, gera ráð fyrir flutningsgjöldum, aðflutningsgjöldum, vask og fleira.
Það er ekkert endilega víst að þú endir í miklum plús. Einnig má athuga með að versla frá Bretlandi, eða evrópu, þar sem það þarf ekki að vera dýrara þó evran sé hærri en dollarinn. Vegna verndartolla.
Þá er einnig nokkuð öruggt að enda á réttum tíðniböndum.Svo verður að passa að þeir einir sem hafa til þess leyfi mega flytja inn og nota Amatörstöðvar, og þær stöðvar virka að öllu jöfnu ekki á því tíðnibandi sem 4×4 tíðnirnar eru á.
Commercial stöð væri því eitthvað sem þú myndir vilja leita að.
Ég persónulega er mjög hrifinn af Icom, en verð að viðurkenna að Standard Horizon stöðvar eins og HX370 eru mjög verklegar. En það segir lítið um hvort allar stöðvar frá þessum framleiðendum séu endilega góðar. Ég mæli með að leita upplýsinga um hverja stöð og lesa vel umsagnir um þær. Það er leiðinlegt að panta rándýra stöð og enda með eitthvað drasl því ekki var farið nægilega ofan í saumana um ágæti þeirra.Ég myndi amk kanna vel verð á talstöðvum, gæði þeirra og aukabúnað áður en þú ferð að panta erlendis frá.
RSH/N1 og Hátækni eru með Yaesu, Vertex Standard og Standard Horizon.
Múlaradió er með Maxon handstöðvar,
Man ekki hvort Nesradió séu með TAIT handstöðvar (man ekki til þess að hafa séð það) en það getur vel verið, athuga það einnig.
Radíóraf hafa verið með Kenwood.Einnig að hafa í huga að sumir selja hleðslutækin sér, en aðrir eru með þau innifalin í verðinu. Því verður að kanna þetta allt saman vel.
Gangi þér vel.
kkv, Samúel Úlfr þór
E-1851
01.03.2010 at 02:19 #684554[quote="eirikursig":3hrrjm05]Ég er með 15" stálfelgur,12" breiðar,er að spá hvort ég fái ekki meira flot ef ég breikka þær í 14".Er með 38" mudder og bíl sem er c. 2,6 t.með öllu í ferð.[/quote:3hrrjm05]
Jú, þú ættir að fá meira flot af því, fer líka betur með dekkin.
Ég myndi athuga beadlock af t.d. summitracing.com eða ámóta. það breikkar felguna um 1,5" að mig minnir (eða rétt þar um bil)
Fyrir sennilega svipaðan pening og að láta breikka felgu. Annars er langt síðan ég breikkaði felgu og er svosem ekki alveg klár á því hvað það kostar. En ég myndi alvarlega íhuga beadlock.
Svo er líka renniverkstæði uppí Borgarnesi sem hefur verið í felgubreikkunum og ég get vottað fyrir ágæti smíða hans. Renniverkstæði Kristjáns minnir mig að það heiti.
.
01.03.2010 at 00:26 #685392Kæri Ofsi.
Ég vil byrja á því að leiðrétta einn misskilning, ég nota skó númer 48, en ekki 45, enda passa mínir viðurstyggilegu sveittu fætur ekki í skó númer 45, nema kannske þá helst með smá bútasögun, sem ég hef ekki treyst mér í að sinni.Ég ætlaði að skrifa eitthvað meira, en svo mundi ég ekki hvað það var, o jæja, ég hrauna þá bara yfir þig næst þegar minnið vaknar til vits.
Þinn kæri (ó)vinur og göngugarpur, Samúel Úlfur.
26.02.2010 at 09:10 #685082Álagning er að mig minnir rétt um 130kr frá ríkinu á hverjum seldum líter…
kkv, Úlfr
22.02.2010 at 12:55 #679654Ég myndi tjekka á einhverjum radíóbúðum í Reykjavík hvort þær geti ekki sent þetta bara til þín.
Ég held að verðið á þessum CB netum sé um 5-7þús.
varðandi standbylgjumælingu, ef netið er rétt tjúnað (bara rétt CB net) og kaplar eru í lagi sem og staðsetning á þetta að vera vel innan marka.
kkv, Úlfr
08.02.2010 at 21:25 #682200Ekki ætla ég mér að gera lítið úr þessum hugmyndum með kaðalinn og allt þetta, en við skulum líka minnast þess að til að forðast sprungur er jú best, að vera á svæðum sem eru þekkt fyrir að vera minna sprungin en önnur.
Ég skil vel að svona búnaður sé æskilegur í björgunarsveitarbíla og þá bíla sem ferðast mikið á sprungusvæðum og á sprungnum jöklum, en væri þá ekki sprungugrind framan á bílinn og sónar eitthvað sem ætti að vera til staðar einnig? 😉
Persónulega, þá held ég að það sé nægilegt flestum, að vera einfaldlega vakandi fyrir því hvernig umhverfi þeirra liggur, og ana ekki útúr bílunum og þvælast um allar trissur ef bílar fara í sprungu.
Vil samt benda á að sigbelti og löng lína er mjög hentugt ef t.d. maður þarf að ganga á undan bíl uppá jökli eða í ámóta aðstæðum þar sem fallhætta er f. hendi…
Sjálfsagt er þó að ef fólk er viljugt að eyða smá pening í að hafa öruggan búnað um borð taki sig saman og reyni að finna hagstæðustu tilboðin að slíkum búnað. Enda er öryggið fyrir öllu því ferðalög eru hálf óskemmtileg ef þau enda með slysi…
En að sama skapi langar mig að spyrja, hve margir hérna kanna ástand fyrstu hjálpar töskunnar í jeppanum reglulega?
kkv, Úlfr
04.02.2010 at 20:24 #681536Það kemur sko engum við hvort ég sé að fara að beygja eða ekki!!
31.01.2010 at 20:39 #680406Þess má geta að það er fullkomlega löglegt að lengja þverstífuna.
Hinsvegar er mikið einfaldara og minna mál að færa turnana til. Þar sem þverstífan er gegnheill öxull.Það verður hinsvegar að passa að þó að gott sé að hafa þverstífuna sem láréttasta, þá verður togstöngin og þverstífan að hafa NÁKVÆMLEGA sama halla eða þar um bil. Annars fer bíllinn að beygja þegar hann fjaðrar að framan eða ef stýrissnekkjan er nægilega sterk, beygja stangir og annað góðgæti…
28.01.2010 at 15:55 #210282Sælir,
Ég er að fara á morgun (29.01.10) á Eskifjörð frá Akranesi með tóman bíl og kerru ef einhvern vantar að koma einhverju austur fyrir lítið má örugglega koma því fyrir.
Samúel Úlfr í síma 848-2317
27.01.2010 at 09:18 #677482Hef heyrt því fleygt að Múlaradió taki 1200kr fyrir forritun á talstöðvum fyrir 4×4 félaga.
Þeir eru víst aðalega með Maxon en skilst að þeir geti forritað einhverjar aðrar stöðvar líka…kkv, Úlfr
27.01.2010 at 00:38 #679106Jahá… Þú segir það…
Ég held þetta sé nú bara öfundssýki í þér Jón því ekki er að sjá að þú hafir jafnað þig eftir síðasta rúning og svo ertu líka skakklappa og getur vart gengið!Í minni sveit var nú bara eitt ráð við slíkum vandræðarollum, og skal ekki minnst á það hér í nærveru sála…
26.01.2010 at 18:03 #6792742faldan disk úr 60 cruiser eða Hilux (sama dótið) og svo vantar þig bremsudælur af samskonar bíl. Með því ertu með "bolt on" dót.
Hin framkvæmdin með millilegg og hjólnöf af IFS hilux/4runner er aðeins meira mix.
Gættu þín samt, ef þú ferð IFS leiðina, þá eru tvær mismunandi breiddir á bremsudiskunum.
Þær eru 20mm sem er fyrir 92 (breytist um mitt sumar 91 ef ég man rétt) og eftir 92 sem er 25mm og þá þarf öðruvísi millilegg og eitthvað meira mix, sennilega nær því að vera 20mm að þykkt í stað 16,5mm á hinum. Dælurnar eru einnig mismunandi. Þó held ég að 25mm dælurnar passi án nokkurra vandkvæða (eins og að klossar séu að detta úr þegar þeir slitna og þess háttar).
Ég veit fyrir víst reyndar að það passar (átti nýuppteknar dælur af 25mm en bara 20mm diska 😀 )Bætt við: Ég gleymdi einu, LC60 diskarnir passa EKKI á þennna millilegg sem er vanalega rendur, heldur þarf að gera það öðruvísi (ég hef ekki gert það, en verið með svona disk í höndunum og borið saman við IFS disk) Bazzi ætti að vita meira um það þar sem hann gerði þetta hjá sér.
Í 60 cruiser ganga felguboltarnir í gegnum bremsudiskinn en á IFS dótinu er þetta boltað á eftir að felguboltarnir fara í gegnum nafið.
Það er til kit frá ameríku frá framleiðanda sem nefnist Sky sem passar beint á milli 60 cruiser diska og IFS nafs.Þessir 10mm skipta sáralitlu máli því á orginal disknum vantar 5-7mm á að þeir passi alveg!!!!
Ég þurfti btw að taka kantinn af pakkdósinni fyrir aftan nafstút sem og slípa 1,5mm innan af brúninni á bremsudisknum.
Lokurnar passa heldur ekki af IFS dótinu yfir á hásinguna.
kkv, Úlfr
24.01.2010 at 14:48 #679124oyota ? túni?
Er þetta ekki spurning um að nota réttan browser bara? Chrome eða firefox…
24.01.2010 at 14:34 #679100Það er nú lágmark að vera með kveikt á símanum þegar maður hringir Atli. 😉
Annars er ég nú bara undir "hjálparsveit" eins og Stefanía benti réttilega á…
í síma 848-2317.
20.01.2010 at 21:00 #677962Mér líst vel á þetta. Ertu búinn að græja fláns á rörið?
Ég hef enn ekkert komist í að spá í þetta og smíða…P.s. ég þarf að fara að kíkja í kaffi og skila þér öxlinum =)
15.01.2010 at 22:58 #677118Varðandi þessa öryggislínu (sem gerir lítið gagn ef hún er bundin í lykkjuna sjálfa nema í undantekningartilfellum)
Afhverju ekki að smella línu sem er bara einfaldlega hnýtt með grönnum þræði utan um teygjuspottann með 4-5m millibili með góðum slaka fyrir teygjuna?Ok svolítið óþjált og leiðinlegt að vinda saman en öruggara gerist það varla.
Annars eru til 4-6mm teygjuspottar líka.kkv, Úlfr
P.s. svo gleymdi ég að minnast á að hafa hana læsta við bílinn líka og með smá slaka þar.
28.12.2009 at 19:23 #673268Ég myndi aldrei versla hjá öðrum en björgunarsveitunum, þessir menn vinna einstaklega gott og óeigingjarnt starf. Eiga það fyllilega skilið að fá minn stuðning!
kkv, Úlfr
25.12.2009 at 21:37 #673012Ein forvitnisspurning. Hvað eru Xenon perur og spennarnir farin að endast í dag? Það er nefninlega orðið virkilega erfitt að fá gular h4 perur á viðráðanlegu verði og tæpur 13þús kr fyrir par af xenon dóti virðist ekki vera mikið ef þetta endist eitthvað.
Eins líka hvernig er að fá varaperur í þetta og verð á þeim?
kkv, Úlfr
07.12.2009 at 22:41 #670668Tek undir það að jafnvægisstangir eru ekki skoðunaratriði, nema þær séu til staðar og séu með slitnar fóðringar eða á annan hátt bilaðar.
En ég ætla að kasta því fram að jafnvægisstangir og jeppar eru eitthvað sem eiga enga samleið nema vitlaust fjöðrunarkerfi hafi verið valið undir jeppann.
Breytingarkveðjur, Úlfr
05.12.2009 at 21:08 #670006[quote="SaebTheMan":2145u012][quote="HaffiTopp":2145u012][quote="SaebTheMan":2145u012]Ég sé hvergi að það komi fram að maður þurfi að hafa driflæsingu á þeim ás sem spilið er sett á?
Ég hefði nefnilega haldið að þegar svona mikið vogarátak kemur á annað hjól ássins sem hefur opið mismunadrif, myndi hjólið einfaldlega stöðvast og hjólið hinum megin farið að snúast á tvöföldum hraða og þar með yrði bíllinn stopp.
En þetta lýtur vel út á myndbandi…[/quote:2145u012]
Þarna eru menn að hugsa þetta vitlaust. Þannig er það nefninlega að ef annað framhjólið missir grip (takið eftir, missir grip en ekki snúninginn) þá er það náttúrulega það dekk sem á auðvedara að snúast í gegnum opið mismunadrif. Hitt dekkið að framan er hins vegar stopp. Þá setur maður einmitt þá hreifingu í dekkið þar fyrir aftan (með svona spilbúnaði) og aftara dekkið snýst svo lengi sem framdekkið snýst líka. Það getur vel verið að "spillausa" dekkið að aftan sé það sem sé aðveldara að snúa frá vél (átakslausara og þar með léttar að snúa) og einmitt við þær aðstæður myndu bæði afturdekkin snúast svipað og um driflæsingu væri að ræða og átakið myndi jafnast út til fleyri dekkja og bíllinn myndi komast eitthvað meira áfram.
Ég held samt að það sé of heitt í Ástralíu til að þeir þar séu með einhverjar krapapælingar eins og við hér heima. Þess vegna segir það sig sjálft að hefðbundnar læsingar myndu gera meira gagn við flestar aðstæður, hvar sem er í heiminum heldur en svona búnaður. Að mínu mati er samt besta aðferðin að komast í gegnum nánast hvaða torfæru sem er svokallaðar forvarnir. Ef þú ert nógu flinkur að keyra þá ferðu þar yfir, sama þótt bíllinn sé lítið af aukahlutum búinn. Og ef þú sért framá að komast ekki, þá einfaldlega ferðu ekki af stað hehe.
Svo má kannski benda á að venjulegt spil geri miklu meira gagn en svona dótarí, og ef maður er ekki með tré eða steina þá er bara að nota ankerið góða eða járnkallinn.
Kannski vert að minnast á að ég kláraði ekki að horfa á allt myndbandið þannig að ég veit ekki alveg hvernig þetta endaði.Kv. Haffi[/quote:2145u012]
Ég á við þegar virkilega fer að reyna á þetta, mikil öfl í gangi, þá segir það sig sjálft að aflið leitar frekar á hitt hjólið, þó svo að hjólið sem spilið er á sé í lausu lofti. Og þá hættir spilið að draga bílinn, afturhjólin spóla, og annað framhjólið spólar á tvöföldum hraða.
kv. Sævar[/quote:2145u012]
Ef afturhjólin spóla dregur bíllinn sig upp svo lengi sem "spilvírinn" hefur festu…
Annars er þetta kannske ekki svo vitlaus búnaður, en þetta má gera á mun einfaldari máta og með mun minni tilkostnaði…
-
AuthorReplies