FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 1,024 total)
← 1 … 11 12 13 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 15.07.2010 at 18:57 #698088
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    dimmerinn hefur að vísu ekki áhrif á perurnar í viðvörunarljósunum. En hefur náttúrulega áhrif á baklýsinguna.

    Getur verið að það sé bara rofið prentið aftan á mælaborðinu?





    15.07.2010 at 18:03 #698084
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef þú hefur möguleikann á að prófa annað mælaborð myndi ég mæla með því.

    Ertu búinn að prófa að setja prufulampa á perusætin og sjá hvort það sé almennileg 12V þangað upp?

    kkv, Úlfr





    14.07.2010 at 20:12 #698360
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég legg til að við söfnum liðveislu og leggjum á gang uppá Fimmvörðuháls hinn nýja, með hóp málmleitartækja og leitum þessa tappa. Hygg ég að það gæti gefið einhverja vísbendingu um málsatvik.
    Eðli tappa er að rata ekki langt frá heimkynnum sínum, en sama má víst segja um olíutunnur, þó var ein týnd og tröllum gefin (eða þar til göngumaður gekk á hana svo af hlutu sár og illindi).

    Kveðja, Úlfr tunnubjörgunarmaður.

    E.s. Tunnugarmurinn var c.a. 30-50m austan af beinni línu milli skálanna sem eru á svæðinu myndi ég halda, en ég var frekar áttaviltur þarna, enda bara aska þarna. :(

    Ég styð einnig þá kenningu Stefáns að tunnan sé búin að lifa og hrærast í þessu umhverfi amk löngu fyrir gos. Síðan hefur hún verið færð þegar einhver áhugasamur hefur verið að kanna innihaldið, misst tappann og týnt honum. Nema hann hafi einmitt verið með tunnu sem vantaði í tappann og ákveðið að nappa þessum. Sem mér finnst vera stjarnfræðilega ólíklegt.
    Skemmtilegt samt hvað það varð mikið mál úr einni tunnu, og mætti segja að annað eins klofningsmál hafi ekki komið upp í klúbbnum síðan á síðasta fundi eða svo. 😉





    14.07.2010 at 08:52 #695638
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    [quote="AgnarBen":3i4xf66c]Takk fyrir svarið.

    Mig misminnti, þetta er 6210, var klassasími á sínum tíma en þykir ekki merkilegur í dag.
    Hvar er hægt að versla íhluti fyrir þetta (símatengi, FMT tengi og loftnet), Hátækni, Íhlutir, Radíóraf …. ?

    kv
    AB[/quote:3i4xf66c]

    íhlutir eiga allskyns loftnetsefni sem og við í Múlaradió, þú getur líka kíkt hingað til okkar og fengið GSM topp eða GSM net. Veit að Nesradió eiga líka eitthvað sem og N1 radíódeild.

    Þú ættir að geta notað lögnina fyrir NMT en það er spurning hvort loftnetsbotninn passi.

    kkv, Úlfr





    13.07.2010 at 21:56 #695630
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    [quote="Izan":1xh2bti0]Sælir
    Ég fæ ekki betur séð en að Ísland sé nokkurnvegin landsdekkað bæði af GSM og Tetra en bæði kerfin eiga þann djöful að draga að vera á of hárri tíðni til að höndla mishæðir. GSM er mun skárra að því leyti.

    Þetta er nokkurnvegin það sem ég hef upplifað s.s. að mishæðótt landslag sé helsti óvinurinn og þessvegna hef ég efasemdir um að ný notkun á sömu tíðni komi ekki til með að leysa neitt. Auðvitað er ekki annað hægt en að fagna því að menn reyni nýjar leiðir. Ég verð reyndar að viðurkenna það líka að útbreiðsla GSM er alveg að verða ásættanleg á hálendinu. Það er búið að raða Tetrasendum út um allt hálendið og þeir þurfa rafmagn sem símafyrirtækin hafa nýtt sér til uppsetningar GSM senda. Það eina sem mér finnst mig vanti er smekkegur sími sem ég get sett fastann í jeppann og tengt við loftnetið og fast rafmagn.

    Kv Jón Garðar[/quote:1xh2bti0]

    Hvernig færðu út að GSM virkar betur í hæðóttu landslagi ef það er tíðniháð? :)
    Smbr. TETRA er á 380-420MHz og GSM er að mig minnir á 900MHz og þar yfir.

    Mín reynsla er sú að GSM virkar skárr en TETRA, nema ef maður er með útiloftnet. Þá virkar TETRA betur. Nema náttúrulega þar sem það eru ekki TETRA sendar, eða öfugt.

    Persónulega, treysti ég hvorki GSM né TETRA. Ég ætla mér að halda áfram að vona að ég geti kallað á aðstoð í gegnum endurvarpakerfið hjá 4×4… og ef ekki það, þá er kannske einhver að hlusta á HF-ið (þegar og ef stöðin nær einhverntíman að fara í jeppann)

    Til eru einhverjir Nokia símar. Hátækni áttu amk einhverja síma síðast þegar ég fór þangað og keypti gsm síma.
    Ég veit ekki alveg hvernig virknin af þessu er en það er sjálfsagt skárri drægnin á því en venjulegum gsm síma.

    kkv, Úlfr





    13.07.2010 at 21:46 #693348
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það er eiginlega í hina áttina. Ef þú átt gamalt gufunesloftnet er hægt að nota það fyrir HF samskipti á Amatör tíðnum, eða ég á von á að þú sért að meina það.

    Að vísu þarf aðeins að "tjúna" netið til en það er svosem ekkert stórmál m.v. verð á nýju neti.

    Gömlu Yaesu stöðvarnar eru jú mögulega nothæfar sem amatör stöðvar, en það þarf annsi miklar pælingar og vinnu í það.
    Ef einhver er tilbúinn að aðstoða mig við að smíða í þessar stöðvar rásir þá er það alveg hægt. En í það þarf mikla yfirlegu og pælingar sem, ekki endilega borga sig, þegar maður getur fengið amatör hf stöð á undir 100þús hingað komin…

    Gamla Yaesu FT-180A var til með VFO (til að skipta á milli tíðna…) en ég veit ekki hvar í ósköpunum maður finnur það í dag.
    Þessar stöðvar sem voru í okkar jeppum voru kristalstýrðar, og að fá rétta kristala í þessar stöðvar er ekkert grín. Kannske mætti láta smíða kristala sem passa, og gera einhverja hóppöntun fyrir innanlandstíðnir IRA.
    Það myndi kannske henta jeppamönnum lang best, enda liggja FT-180A útum allt eins og hráviði, og ekki kannske endilega sá kostnaður m.v. nýja stöð os.f.v.
    Afturámóti er stærðarmunurinn nokkurnveginn eins og 54" dodge vs suzuki jimny, á nýjum og gömlum stöðum, án þess að drægnin sé eitthvað betri hjá gömlu stöðvunum, ef þið skiljið. (sem ég reyndar er ekkert svo viss um lengur, enda þessi pistill orðinn frekar ruglingslegur…..)

    En það kostar samt radíóamatör próf, en mögulega er hægt að gráta út eitt stykki námskeiði ef áhuginn hjá f4x4 meðlimum er nægilegur.





    13.07.2010 at 18:55 #698080
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Skortur á jörðum, pfft…

    Kviknuðu ljósin í mælaborðinu þegar þið mælduð spennuna? Getur verið að það sé farin í sundur leiðslur í öryggjaboxinu frammí húddi eða á leiðinni inní bíl?

    Mæli með að nota prufulampa á allar 12V spennur sem eiga að vera til staðar.

    Annars skil ég ekki alveg hvernig öll ljós getað virkað í mælaborðinu en samt virka engin ljós. Hljómar eins og þversögn, og annað: Stefnuljósin og túrbóljósið virkar en ekkert annað? …. Hvað nákvæmlega er bilað, og hvað er í lagi?

    Eru einhver merki um raka í mælaborðinu? Stundum getur komið fyrir að það leki með framrúðu og setjist raki fyrir aftan mælaborð og þá spanar allt í spað og verður hálf ruglað eftir því…

    Einnig að mæla spennur að og frá svissbotninum.
    í 4runner diesel eru 3 svissar og það getur verið að einn þeirra vanti. Hljómar samt ekki alveg rökrétt, en það gerir rafmagn yfirleitt ekki…
    Virka glóðarkertin eðlilega?

    Hvar eruð þið staddir á landinu?

    kkv, Úlfr





    13.07.2010 at 18:44 #695962
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    [quote="olimag":325tpw0b]Það fer nú líka eftir því hversu stór mótorinn er í hjólinu ……[/quote:325tpw0b]

    Nei, það fer alltaf eftir því hve hratt menn ætla sér. Ég geri ráð fyrir að með mótorhjóli ætti maður að vera svipaðan tíma og meðalbíll. Nema þú miðir þig við Trabant eða Volgu.

    Annars sýnist mér þetta hjólhýsi sem ýktur bendir á ágætlega til þess fallið að hjóla með fyrir fjörð, nema það verði hvasst, þá er betra að fara kjósarskarðið…





    13.07.2010 at 14:56 #695956
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Óskar, þú ert c.a. 8-12 tíma að hjóla þetta í rólegheitunum. (minnir að þetta séu rétt um 80 km, óstaðfest og mælt með reglustiku)
    Aðeins lengur ef þú tekur hjólhýsið með þér. 😉





    03.06.2010 at 12:06 #694904
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Atli, ertu að spá í að halda uppá Leguna? Er þetta ekki 4runner orginal öxull? Ef svo er þá á ég örugglega heilan eða hálfan lager hér útum allt land.
    1 hjá þér, annna hjá Ofsa og eitthvað fleira einhverstaðar…

    Annars mæli ég með Wurth límkítti. Það heldur öllu.





    24.04.2010 at 19:42 #691638
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Nokkuð til í því…





    24.04.2010 at 18:58 #691698
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Eru komnir margir? Ég ætla að mæta. En ég veit ekki hversu marga ég tek með, fer svolítið eftir já-unum sem ég fæ.

    kkv, Samúel Úlfr
    Hjálparsveit f4x4.
    E-1851





    21.04.2010 at 16:32 #690684
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég legg til að við stofnum nefnd innan 4×4 sem heitir "nöldur og niðurrifsnefnd" og þar geta menn með jafn málefnalegar skoðanir og sumir hér inni eru með, setið í og spjallað saman, þeir fengu einnig sér spjall fyrir sína nefnd og gætu tjáð sig þar og kannske verið faldir umheiminum, svo þeir þurfi ekki endalaust að vera með þetta fyrir augunum. Það gæti jafnvel laðað að nýliða að fýlupúkarnir séu í einangrun og angri þá ekki.
    Þetta væri sjálfsagt eina nefndin innan 4×4 sem ekki sárvantaði meðlimi eða þyrfti að ýta fólki í nefndina…

    Ég vil taka það fram að ég, ætti sennilega greiðan aðgang inní þessa nefnd fyrir þennan tiltekna póst.

    Takk fyrir mig.
    Samúel Úlfr
    E-1851

    P.s. ég vil taka það fram að ég tek enga ábyrgð á því að þessi póstur særi blygðunarkennd einhvers. Ef einhver reynir að sanna annað mun ég vísa til bankaleyndar, nafnleyndar eða einhverrar annarrar leyndar. Einnig mun ég þvertaka fyrir það að segja mig úr hverri þeirri nefnd sem ég mun sitja í á gefnum tíma eftir útgáfu þessa pósts. Ég mun einnig þverneita fyrir að hafa skrifað þennan póst.





    21.04.2010 at 16:20 #690928
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Atli þarf ekki GPS, hann notar bara smiðsaugað…





    20.04.2010 at 12:48 #691060
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það var áhugavert að fylgjast með þessum tilraunum. Það heyrðist einmitt oft á tíðum mjög vel í ykkur.

    En fyrst að lítið mál er að setja upp hlustun á einhverjum 4×4 tíðnunum, hversvegna er ekki farið út í þann pakka?
    Vantar tækjabúnað eða aðstöðu eða eitthvað annað?

    kkv, Samúel Úlfr
    E-1851 og TF2SUT





    20.04.2010 at 12:38 #690900
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Getur kíkt með þetta til dæmis til strákanna niðrí Múlaradió. Þeir geta örugglega lóðað þetta upp fyrir þig.





    03.04.2010 at 16:43 #211858
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir félagar, ég er að leita að eiganda að gráum cherokee á 38 með sílsatanka, sem saknar boltakassans síns eftir aðw hafa ljáð mér hann við skálann við rætur myrdalsjökuls. Ef eigandinn sér þetta má hann hafa samband við mig í sima 8482317 eða 6900446. Kv samúel úlfr á 4runner.





    17.03.2010 at 19:59 #687190
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    N1, Hátækni og Múlaradió forrita Yaesu/vertex standard

    Að bæta inn 4×4 rásum er um 1000kr minnir mig en ef þetta er eitthvað sér forritun sem tekur lengri tíma getur það verið eitthvað hærra.

    kkv, Úlfr





    04.03.2010 at 08:50 #685934
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef að GSM kerfið, sem er lásaopnunarkerfi í gegnum gsm, hefur það væntanlega eitthvað með lása og lykla að gera.

    kkv, úlfr





    04.03.2010 at 00:46 #685930
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta er sölutrix hjá Skálanefnd. Þeir eru að reyna að fá sem flesta til að kíkja uppeftir. ;P

    kkv, Úlfr

    P.s. það verða væntanlega fleiri tilkynningar frá þeim á næstunni sem skýra málið örlítið betur.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 221 through 240 (of 1,024 total)
← 1 … 11 12 13 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.