Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.01.2011 at 10:03 #71611628.12.2010 at 01:42 #714226
Bassi:
Ef þú hefur tök á, rífðu mælaborðið í spað og kipptu hraðamælinum úr sambandi og vittu hvort eitthvað breytist.Getur líka prófað til að byrja með að kippa geymasambandinu af og sjá hvort mælirinn dettur niður. Ef hann dettur ekki niður er þetta væntanlega mælirinn. (þó það sé erfitt að segja fyrren honum er kippt úr sambandi sjálfum)
kkv, Samúel Úlfr.
16.12.2010 at 21:29 #713650LED er vissulega framtíðin.
Hinsvegar er mikið til af lélegum ljósum með LED.Það sem er helst að horfa í er lumensin sem þetta gefur frá sér og hvernig það er mælt, en það síðarnefnda er þó því miður ekki alltaf á lausu.
Það er á innkaupalistanum hjá mér að skipta vinnuljósunum út fyrir LED, einhverntíman man ég eftir að hafa séð auglýsingu þess efnis að til væru LED í h1 og h3 húsi. Veit ekki hversu gott það var.
kkv, Samúel Úlfr
03.12.2010 at 12:40 #216219Sælir félagar.
Þannig er mál með vexti að höfuðljósið mitt tapaðist í Kerlingafjöllum á Landsfundinum sem var í haust, líklegast við skálann.
Hinsvegar uppgötvaði ég það ekki fyrren nú um daginn þegar átti að fara að nota það!Þetta ljós er gult að lit með rafhlöðupakka að aftan og 1 halogen peru ásamt nokkrum LED.
Þess er sárt saknað og ef einhver skyldi hafa fundið það þarna yrði ég afar glaður!
kkv, Samúel Úlfr Þór
S: 848-2317
25.11.2010 at 12:34 #711056Sælir. Fékk svar frá Gunnari Grímssyni.
Númer: 5878[quote:2x7zpx8p]
BlessaðurÉg hef alveg misst af þessari spurningu ef ég hef fengið hana í pósti, reyndar hefur dunið á okkur frambjóðendum svo mikið póstmagn að það hálfa væri nóg. Rétt ég noti tækifærið og svari þér og sendi svo áfram, takk fyrir að benda mér á þetta.
1. Mér finnst hiklaust að við eigum öll að geta ferðast um Ísland án annara takmarkana en þeirra sem lúta að nátturuvernd eða nýtingarrétti eiganda.
2. Ég mun fyrst og fremst beita mér á Stjórnlagaþingi fyrir því að völdin séu hjá þjóðinni og hún eigi að geta tekið sér þau eins og hún vill. En þegar þetta mál kemur upp (sem það mun örugglega gera) þá mun ég augljóslega styðja það í samræmi við svar 1. Ef það kemur ekki upp frá öðrum þá treysti ég á að þú minnir mig á að bera það upp!
kk
gunnar [/quote:2x7zpx8p]kkv, Samúel Úlfr
23.11.2010 at 13:04 #711268Ég mæli frekar með snúrutengdu ljósi fremur en fjarstýrðu. Amk er reynsla mín af IPF fjarstýrðu ljósunum ekki alltof góð.
Ég viðurkenni þó að ég þekki ekki Golight ljósin nógu vel.kkv, Samúel Úlfr
13.11.2010 at 02:31 #709534Stendur þetta ekki í skyggninu hjá bílstjóranum? Minnir það amk.
Annars rámar mig líka í að patrol sé með "on the fly 4wd" eins og eðal toyotur. =)
Annars getur þú prófað þetta, án alvarlegra skemmda, ef að jeppinn byrjar að bursta tennur við að reyna að setja í 4wd þá er ráð að færa skiptinn tilbaka og hætta að rugla í kerfinu. 😀
brotkveðjur, Samúel
02.11.2010 at 19:16 #708786[quote="ólsarinn":3mpjus7h]Ég sá á vefnum að forráðamenn í Bláfjöllum kvarta yfir ágangi jeppamanna þar á skíðasvæðinu. Nú finnst mér heldur ólíklegt að félagsfólk í f4x4 sé þar á ferð, allavega vil ég ekki trúa því. En þegar svona kemur í fréttum þá eru allir jeppamenn/konur sett undir sama hatt. Ekki þar fyrir, maður skilur vel fólk sem er orðið óþreyjufullt að komast á snjó með sína bíla, en getum við ekki beitt okkur með einhverjum hætti í þá veru að svonalagað gerist ekki, t.d. jafnvel með því að skiptast á um að vera hreinlega með eftirlit á svæðinu?[/quote:3mpjus7h]
Ég fór einmitt að velta svipaðari hugmynd þegar ég heyrði af þessu…
kkv, Samúel
01.11.2010 at 00:13 #708458Sæll.
Satt er það að tíðnihafar borga gjöld til PFS en stöðvareigendur greiða einungis eitt skráningargjald, sem er að mig minnir rétt um 2.500kr og er eingöngu greitt í eitt sinn.
Getur verið að það sé þetta gjald sem þú ert að tala um og rukkun hafi einfaldlega eitthvað seinkað?
kkv, Samúel Ú. Þór.
23.10.2010 at 04:04 #7062461. Hvaða módel af Patrol er þetta?
2. Ekki taka mælaborðið úr sambandi og svissa á eða vera með geymana tengda ef þetta er nýrri bíll en c.a. 90.
Það getur valdið þér ómældum vandræðum.Ef parkljósaröryggið/öryggin fara, þá er best að byrja að skoða kerrutengilinn, því næst skaltu skoða samtenginguna á ljósum sem er hægra megin bakvið stuðarann að aftan eða upp við grind hægra megin að aftan.
Svo er hægt að rekja kaplana frammí og skoða hvort þeir hafi orðið fyrir áberandi skemmdum t.d. losnað og dottið á pústið og bráðnað eða skorist á einhverju.
Svo má athuga með að taka mælaborð úr sambandi og rannsaka hvort eitthvað sé laust eða skemmt sem og undir mælaborðinu.
Það er líka algengt vandamál í bílum að neðri hluti taflnanna frammí húddi eiga til að týna vírum og þess háttar fjör.Ef aðalöryggið er að fara færir vandamálið út anga sína.
Þá gæti t.d. verið vandamál með víralúm undir mælaborði, inniljós eða eiginlega allur fjandinn.Þú minnist á að vandamálið sé horfið í bili, veistu afhverju það er eða gerðist það bara?
Ef það hvarf bara jafn skyndilega og það birtist, myndi ég fyrst byrja að hafa áhyggjur.
kkv, Samúel Úlfr.
23.10.2010 at 03:48 #707558Ef ég kemst frá þá mæti ég.
Líst vel á þessa hugmynd.kkv, Samúel Úlfr
10.10.2010 at 22:56 #706026Ódýrast væri væntanlega Múlaradió. Myndi samt prófa að hringja á sem flesta staði og bera stöðvarnar vel saman. Það er ekkert gaman að kaupa stöð sem maður er ekki ánægður með.
Eftirtaldir aðilar selja VHF stöðvar:
Múlaradió
Nesradió
Radióraf
N1 bíldshöfða.
Hátækni
minnir að vélasalan hafi líka verið með stöðvarkkv, Samúel
07.10.2010 at 22:58 #695644ég verð að vera sammála.
Ég treysti ekki símum fyrir neyðarfjarskiptum, og mun sjálfsagt aldrei gera. VHF, TETRA og HF fjarskipti eru það sem munu koma til með að vera í jeppanum hjá mér í framtíðinni.Ég ætla ekkert að tuða yfir TETRA, enda er það efni í annan þráð.
VHF kerfið er með ágætum gott en vantar meiri "vöktun" á það ásamt því að það eru alltaf einhverjar holur.Hinsvegar, HF fjarskipti, ekki endilega á 2790kHz (enda sú tíðni hálf óheppileg) er annsi öflugt neyðartæki, séu einhverjir að hlusta. Amatörarnir sem eru á innanlandstíðninni eru þó oft velvakandi yfir þeirri tíðni og oftast hægt að ná sambandi við einhvern í neyð.
Þess má geta að fyrir því eru fordæmi að amatörar hafa fengið heimild til að nota búnað sinn á 2790kHz og gætu því haft samband við þá sem eru ekki með leyfi. Hvernig þessum málum er háttað í dag skal ég ekki segja.Vandamálið með HF fjarskipti eru náttúrulega þessi gríðarstóru loftnet sem til þarf og ekkert alltof ódýr búnaður.
Einnig þau utanaðkomandi áhrif sem geta haft á sambandið, svosem hvernig undirlandið er þar sem maður er staddur og í hvernig skapi Sólin er og svo mætti lengi telja.En ekki svo dýr lausn heldur, sé miðað við gervihnattasíma eða allt sullið í kringum langdrægt GSM, þó GSM sé sjálfsagt örlítið ódýrari.
Hægt er að fá sæmilega stöð fyrir undir 50þús kr frá ameríkuhrepp sem nota má í þessi fjarskipti, og eru þær töluvert minni en Yaesu 180A hlunkarnir sem hvíla sig uppí hillu hjá mörgum jeppamanni. Þar er ekki öll sagan sögð, því loftnet, og "tuner" ef þörf þykir koma líka inní þetta. Með því að nota gamalt gufunesnet og tjúner er hægt að ná fram annsi góðu merki frá stöð. Sé loftnetið rétt staðsett, en það er efni í aðra grein.Svo er nú annað áhugavert varðandi amatör leyfi og HF fjarskipti, að fyrir hendi er sá möguleiki að senda út staðsetningu sína og skilaboð í textaformi gegnum HF stöðina og það eru skilaboð sem gæti drifið einhverja hundruðu kílómetra. Þetta kerfi nefnist APRS og er notað undir heitinu AIS fyrir tilkynningaskyldu báta, þá á VHF tíðnisviðinu að vísu. En það er einnig til þar fyrir amatöra.
GSM er ekki endilega mátturinn og dýrðin.
En svo má aftur á móti segja, tilhvers að standa í öllu þessu umstangi, að sækja námskeið, kaupa fokdýra stöð, brasa við að tjúna til net svo sæmilegt sé og eiga svo kannske enga möguleika að ná sambandi sökum utanaðkomandi áhrifa og treysta fremur á að GSM samband sé á staðnum, eða einhver að hlusta á VHF í grendinni.
Ég er kannske kominn svolítið langt út fyrir efnið með þessum þræði, en mögulega hafa einhverjir hér áhuga á þessu.
Kær kveðja, Samúel Þór.
04.10.2010 at 01:04 #701154Ef þú ert að spá í litla 5 í 6 mm typpinu þá á ég svona stykki fyrir þig. Kíktu bara við niðrí Múlaradió þar sem ég vinn og við græjum þetta.
Erum í fellsmúla 28.
Viðbót: Ég mislas þetta eitthvað hrikalega! Fattaði ekki að þú ert á Akureyri, en ég gæti sent þér svona stykki eða þú gætir látið einhvern sækja þetta til mín ef hann á leið á akureyri.
Einnig gæti verið að Brúin á Akureyri ætti svona stykki.
Getur bjallað á mig í síma 848-2317 ef það eru einhverjar spurningar.
01.10.2010 at 00:01 #704576Vil einnig minna á að ef félagsmenn geta haldið samskiptum í gegnum endurvarpa 44 og 46, sem og rás 54 (beinni rás) í lágmarki, og notast við aðrar rásir (Endurvarpi 58 er mögulega inni þarna) væri það alveg frábært.
Sé þörf á að nota endurvarpana er góður siður að hafa samskipti stutt og hnitmiðuð.
Einnig má á það minna að sé nauðsyn að ná sambandi við Hjálparsveit Ferðaklúbbsins 4×4 er hægt að ná í okkur á fyrrnefndum rásum.Með kærri þökk, Samúel Ú. Þór meðstjórnandi HSF4x4.
30.09.2010 at 18:24 #214899Daginn félagar,
Hjálparsveit óskar eftir aðstoð vegna jarðafarar næstu helgi.
Fundur þar sem nánar verður farið yfir málin verður haldinn 19:30 í kvöld uppí klúbbhúsi.
Allir eru velkomnir og eina skilyrðið er að hafa VHF stöð í bílnum og viljann til að hjálpa.Þeir sem hafa áhuga en geta ekki mætt í kvöld er bent á að hafa samband við hjalparsveit@f4x4.is eða beint við mig í síma 848-2317.
Með kveðju, Samúel Þór, meðstjórnandi Hjálparsveitar.
30.07.2010 at 00:21 #698944Væri ágætt að fá upplýsingar um snekkjutegund.
Ef þetta er stýrissnekkja úr toyotu þá er hægt að bora í "D-ið" á Toyota merkinu á snekkjunni, og hitt í botninn á henni (að framan).
Passa sig að bora ekki of langt því þá er hætt við skemmdum, en það þarf töluvert mikið að bora langt til þess…Ætli patrolinn sé ekki svipaður, án þess að ég hafi þó hugmynd um það. 😛
kkv, Úlfr
28.07.2010 at 12:57 #698936Með að koma kúlunum fyrir, mér var bent á það snjallræði að setja örlítið af koppafeiti á þær til að koma þeim á sinn stað. Þá haldast þær fastar rétt á meðan verið er að púsla þessu saman…
kkv, Úlfr
17.07.2010 at 13:31 #698380[quote="Óskar – Einfari":16r48yq2]jahérna hér… er þetta ekki sama tunnan séð frá öðru sjónarhorni… þ.e.a.s getur ekki verið að ein hliðin hafi verið meira riðguð? Plastpokin og grjótið ofan á tunnuni passar við lýsinguna á blogginu hjá Páli Ásgeiri.[/quote:16r48yq2]
Jújú, mikið rétt. 😉
En hvar er tappinn?
16.07.2010 at 21:37 #698374[quote="SkuliH":2y6vgxgf]Strákar er möguleiki að þið hafið tekið vitlausa tunnu? Spurning hvort er betra brúnn eða rauður en miðað við myndirnar er þetta ekki sama tunnan og á myndinni hjá Palla, þetta er myndin á blogginu hans:
[img]http://blog.eyjan.is/pallasgeir/files/2010/06/Copy-of-Fimmvörðuháls-027-300×225.jpg[/img]
Kv – Skúli[/quote:2y6vgxgf]AAAAAARRRGGG!!!
Ertu að segja mér Skúli að það sé [b:2y6vgxgf]ÖNNUR[/b:2y6vgxgf] tunna þarna uppi!?
Jahérna hér…kkv, Úlfr ráðvilti…
-
AuthorReplies