FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 1,024 total)
← 1 … 9 10 11 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 16.08.2011 at 02:52 #735233
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, EN, mín reynsla af ferðafélögum er að þetta getur víst komið fyrir 46" MT einnig.

    Mér skilst einnig, að gúmmí nærist á talkúmi og sé rosalega vel við lítið upphitað en þurrt geymslurými.
    Þetta er þó birt án ábyrgðar, mögulega geta einhverjir fróðir karlar af dekkjaverkstæðunum frætt þig um þetta?

    Ég veit þó fyrir víst að gúmmí er illa við raka.

    kkv, Samúel Ú.





    08.08.2011 at 12:01 #734929
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Utanvegaakstur vissulega, má þó velta fyrir sér hvert tjónið á landslaginu sé af þessum akstri.

    Það er þó tekið fram f. neðan myndbandið að þetta sé á einkajörð, sem væntanlega gerir þetta löglegt svo lengi sem landeigendum er sama.
    Nú er ég ekki lögfræðingur og hef svosem ekki velt lagalegri hlið utanvegaaksturs í eigin landi, en býst þó fastlega við að það sé fullkomlega löglegt séu landeigendur sáttir við það.

    kkv, Samúel





    04.08.2011 at 18:09 #734603
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Einu sem ég veit að selja VHF stöðvar þar er Brúin. Sjálfsagt einhverjir fleiri.

    kkv, Samúel Úlfr





    21.07.2011 at 15:41 #734087
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ekki kannske mikið gagn í þessu svari hjá mér, en ég læt það flakka.

    Eina leiðin til að komats að þessu er A) Mæla þetta. B) Skoða FSM og vonast til þess að upplýsingarnar liggi þar, C) Tala við umboðið.

    Til að lagfæra þetta getur þú notað tíðnibreyti, mögulega er hægt að fá slíkt útí Samrás.

    Síðan eru til nettir snúningshraðamælar sem fara á olíulögnina og gefa frá sér púls, mögulega er hægt að fá þannig sem eru með stillanlegum púls. :)

    kkv, Samúel Úlfr





    19.07.2011 at 10:20 #733767
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Mikið djö… er ég sammála þessu! Toyota hvað…

    Viva la súzúkí





    15.07.2011 at 14:58 #733701
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég hef notað talsvert af þeim og fengið þær hjá Stáli og stönsum.

    Er með þetta í öllum stífum og dempurum hjá mér. Það hefur reynst ágætlega. Hef amk ekki lent í neinu veseni með þetta í frosti, ekki ennþá amk. Þetta er búið að vera í bílnum í c.a. 3 ár.
    Ég er með 44" Toy 4runner.

    kkv, Samúel Úlfr





    18.05.2011 at 00:39 #728677
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Af hjálparsveit er eftirfarandi að frétta.

    Samúel Þór – Lýkur nefndarsetu.
    Stefán Baldvinsson – Gefur kost á sér áfram
    Pétur Friðrik Þórðarsson – Gefur kost á sér áfram
    Baldur Harðarsson – Gefur kost á sér áfram

    Kkv, Samúel Þór





    01.05.2011 at 20:53 #729429
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Mér þykir afar hæpið að N1 geti forritað þessar stöðvar þar sem þeir hafa verið með Yaesu/Vertex aðalega.Hinsvegar gætir þú án efa sent hana í pósti til Gumma í Nesradió og hann forritar hana örugglega fyrir þig og sendir til baka.

    Þú getur sjálfsagt líka lagt á þig þá vinnu að finna forrit og snúru og fá þá hjá N1 til að forrita hana fyrir þig, þar sem þeir hafa aðgang að réttum tíðnum.

    Nú þekki ég ekki ástandið á radíó verkstæðum þarna fyrir austan, en mögulega gæti eitthvert þeirra aðstoðað þig?

    kkv, Samúel





    24.04.2011 at 23:57 #727973
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég ætla að biðja menn um að vera með fastan lykil sem hefur amk 10ohm load en ekki bara 0-2ohm…
    Það má hæglega skemma þétta í tölvum með að skammhleypa þeim.

    kkv, Samúel





    24.04.2011 at 23:17 #728709
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Til lukku með að vera genginn í Land Rover sértrúðasöfnuðinn!

    Svona til að árétta, þá bila Toyotur alveg, svona stundum.

    en eðlilegt að LR eigendum þyki óeðlilegt að stýrisnekkjur bili, enda var land rover aldrei gerður til að beygja.

    Móðgunarkveðjur, Samúel (sem á ekki bilaða toyotu, heldur bara toyotu sem þarfnast endurnýjunar á slitfletum)





    13.04.2011 at 18:23 #727265
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Takk fyrir þetta.

    Fór þarna upp í dag og vegurinn var bara fínn og engar lokanir eða annað vesen.

    kkv, Úlfr





    12.04.2011 at 22:30 #207636
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir félagar.
    Ég er að velta fyrir mér hvort einhver viti hvert ástandið er á veginum upp á Þorbjörn á suðurnesjunum?

    kkv, Samúel





    29.03.2011 at 10:58 #546378
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Svona til að segja smá af mínum rönner, sem er á 44" blöðrum þá hef ég ekki orðið var við neitt hitavesen eftir að það fór stærri vatnskassi í. Vindgöngin reyndar brotnuðu af fyrir nokkrum mánuðum en hef lent í þónokkrum átökum síðan þá og ekki orðið var við neitt hitavesen. Held að ég sé með svipaðan kassa og bazzi, c.a. 80mm hærri.

    kkv, Samúel Úlfr





    28.03.2011 at 23:14 #725063
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Fer svolítið eftir skynjurum. Á eldri týpunum var stundum hægt að mæla viðnámið á þeim og sjá breytingu eftir því sem spjaldið hreyfðist í þeim ef þeir voru þess lags.
    Ertu búinn að skoða hvort þú finnir einhverjar upplýsingar um þennan tiltekna skynjara t.d. á netinu?

    Sennilega er hægt að sjá það í tölvuaflestri. Það kostar náttúrulega sitt líka.

    kkv, Samúel Úlfr





    28.03.2011 at 23:00 #724466
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ágætt að búið sé að finna arftaka gömlu vélarinnar og bestu þakkir til skálanefndarinnar fyrir vel unnin störf.

    Hitt er svo annað mál að 12V kerfi er náttúrulega hentug lausn til að spara olíu, en það er ekki víst að það svari endilega kostnaði. Fyrir 12V kerfi sem á að hafa lýsingu ofl þá þarf annsi margar geyma, ef geymarnir eiga að endast eitthvað, það má ekki gleyma því að t.d. 100Ah geymir má alls ekki fara niður fyrir 50% hleðslu og helst ekki niður fyrir 75-80% hleðslu. Þá þyrfti væntanlega að hlaða með rafstöð í samblandi við sólarsellur, sem eru afar kostnaðarsamar. Svona kerfi þarf að hugsa vel út og byggja upp á einhverjum tíma.
    Best væri að þetta væri sjálfvirkt móniterað þannig að þegar spennan á rafgeymunum er komin niðurfyrir viðunandi mörk fari rafstöðin í gang og hlaði þá.

    Mér finnst líka að fólk megi spara orðin örlítið í umræðunni, leiðindi borga sig sjaldnast. Ef okkur þykir eitthvað athugavert við hvernig skálanefndin vinnur, er bara um að gera að bjóða sig fram og taka þátt!
    Við megum ekki gleyma því að fólk er að vinna að þessu í sínum frítíma (t.d. með vinnuferðirnar) og er algjörlega í sjálfboðaliðastarfi fyrir klúbbinn og meðlimi hans. =)

    Eins og einhver sagði, lífið er of stutt fyrir leiðindi!

    kkv, Samúel Úlfr





    16.03.2011 at 01:12 #723112
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ljómandi góður þráður, og þarft umræðuefni.

    Hamfarir á Íslandi, og nágrannalöndum er eitthvað sem ég tel að þurfi alltaf að hugsa útí, og að vera reiðubúinn undir. Við þurfum ekki að horfa lengra en til komandi sólgosatímabils (solar maximum) til að sjá að það gætu verið miklar hörmungar í uppsiglingu. Ég ætla ekki að fara að vera með heimsendaspár, en í tengslum við neyðarfjarskipti þurfum við alltaf að horfa til "þess versta mögulega sem getur gerst". Ólíklegt er að þessar aðstæður skapist en betra er að vera undirbúinn en í algjöru "fokki" þegar til kemur.

    Setjum upp lítið dæmi. Sólgos valda slíkum truflunum í GPS kerfinu að klukkurnar í GSM og TETRA sendum verða rangar, þar sem þetta kerfi byggist uppá mjög nákvæmari klukku til að geta starfað eðlilega þá fer allt úr skorðum við þetta. Hvaða fjarskiptakerfi gagnast til að koma nauðsynlegum skilaboðum og neyðarskilaboðum til skila? VHF kerfið!

    Sama má segja verði hér alvarlegt eldgos í grend við höfuðborgarsvæðið. Þarna gæti hæglega GSM og TETRA kerfið dottið út. Þó að TETRA hafi verið að sanna sig sem afbragðs viðbragðskerfi í hamförum (smbr. suðurlandsskjálftann þar sem GSM og landlínan hrundi á hliðina)

    Það hefur komið fyrir að TETRA hefur verið gáttað í gegnum VHF kerfi til að fúnkera eðlilega við neyðarstörf.
    Þó að TETRA og GSM séu ágætis kerfi per se þá standast þau ekki þá kröfur sem gera þarf til ALVÖRU neyðarfjarskipta í einhverjum meiriháttar hamförum.
    Með skynsemi og smá þjálfun og fræðslu/vitund félagsmanna getur VHF kerfið okkar þjónað mikilvægum þjónustum í hamförum, og þar geta allir félagsmenn leikið hlutverk í að koma skilaboðum til skila.

    Þess má þó geta að uppbygging fjarskiptakerfis björgunarsveitanna er mjög fullkomin einnig, og mun koma til með að spila stóran þátt í neyðarfjarskiptum komi til þeirra aðstæðna.

    Það er í raun alveg spurning hvort ekki eigi að koma á fót einhverskonar nefnd eða hóp þar sem farið verður yfir þessi mál.

    En að öðru, Morse er án efa eitt besta samskiptaform yfir langar vegalengdir og hægt er að nota Morse allstaðar, án efa einn besti samskiptaháttur í neyð sem mögulegur er, og hvet ég alla félagsmenn sem áhuga hafa á neyðarfjarskiptum og að vera vel til búnir þegar hlutirnir fara á versta veg að leggja sig fram við að læra morse.

    Til er fjöldinn allur að forritum til að læra Morse, meðal þess má nefna JustLearnMorse eftir frænda okkar í Noregi. Þetta forrit er kjörið til að þjálfa morse kunnáttu! Einnig er til forrit eftir G4FON sem er mjög ágætt til að þjálfa kunnáttuna.

    Ég hvet alla sem hafa áhuga á fjarskiptum að skella sér á komandi námskeið til Radíóamatörs og ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við mig í síma 848-2317 eða á samuel hjá ulfr.net og ekki vera hræddir við að skella ykkur í prófið, þetta er minna mál en margur heldur og alls ekki bara fyrir einhverja rafmagnsverkfræðinga eða rafeindavirkja. Þetta geta allir lært!

    kkv, Samúel – TF2SUT





    15.03.2011 at 18:59 #722936
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    [quote="sing":3mtg4xa5]Þetta er ágætis pæling Samúel og ágætt að fara yfir ástæðurnar fyrir þessu.
    Ég geri hér smá tilraun til þess:

    Ég verð að byrja á að gera athugsasemd við þetta:
    [quote:3mtg4xa5]Samkvæmt fjarskiptalögum er nú öllum tíðnihöfum heimilt að vita sínar tíðnir.
    [/quote:3mtg4xa5]
    Tíðnihafar F4x4 rásanna eru félagið sjálft og félaginu er frjálst að fara með þær eins og félagið ákveður hverju sinni.
    Fjarskiptalögin heimila ekki sjálfkrafa öllum félögum í F4x4 að vita sínar tíðnir.
    [/quote:3mtg4xa5]

    Ég ætla að byrja á smá "disclaimer", ég er ekki að reyna að hvetja til leiðinda eða neitt slíkt, en ég tel að þessi umræða sé þörf.
    Ég er sjálfsagt að fara útá hálann ís hérna, en félagið er ekkert annað en félagsmenn þess, hvorki stjórn né nefndir "eiga" klúbbinn. Ef við erum farin að aðskilja félagsmenn frá félaginu erum við farin að tala um mjög furðulega sjórnskipan, eðlilegt væri að aðalfundur tæki ákvörðun um hvort tíðnir eigi að vera opinberar eða leyndarmál fyrir meðlimum. Hefur þetta verið rætt á aðalfundi?
    Staðhæfing mín um að tíðnihöfum sé leyft að vita sína tíðni stendur. Þó að tíðnihafinn sé ferðaklúbburinn og félagsmenn hafi afnot af þeim, þá eru félagsmenn ekki tíðnihafar.

    [quote="sing":3mtg4xa5]
    Ég vorkenni engum sem hefur þörf fyrir VHF rásir F4x4 að ganga í félagið og greiða félagsgjöld með þeim miklu fríðindum sem því fylgja.
    Bendi öðrum á að rás 45 er öllum opin og F4x4 hefur enga lögsögu yfir henni.
    [/quote:3mtg4xa5]
    Ég er hjartanlega sammála þessu.
    En þetta breytir því ekki að þú ert alltaf bundinn við þjónustuaðila hvað forritun á talstöðvum snertir.
    En það er jafnframt spurning hvort það þurfi að auka fjöldann á óleyfisskyldum rásum? 45 er eina rásin sem ég man eftir sem er alla jafnan eitthvað "cluster" á, á restinni af rásunum er að öllu jöfnu þögn.

    [quote="sing":3mtg4xa5]
    Til þess að forrita VHF stöð þarf sérstaka tengisnúru og forrit sem er sérstaklega gert fyrir hverja talstöðvargerð fyrir sig.
    Einungis þjónustuaðilar fá slíkar snúrur frá framleiðendum venjulegra (eða svokallaðra "commercial") talstöðva.

    Aðrar stöðvar eru svokallaðar amatörstöðvar og hægt er að kaupa snúru+forrit með þeim. Samkvæmt fjarskiptalögum þarf að hafa amtörréttindi til að mega nota slíkar stöðvar. Við getum ekki staðið fyrir lögbrotum með því að afhenda tíðnir til að setja inn í ólöglegar stöðvar.
    [/quote:3mtg4xa5]

    Það fyrrnefnda er einfaldlega rangt, ég ætla ekkert að diskótera það frekar.
    Síðarnefnda getur varla talist sem svo að við séum að ýta undir lögbrot fremur en þeir sem selja sælgæti séu að ýta undir sykursýki og dauða.

    Auðvitað er lang best fyrir alla að fara til þjónustuaðila og láta forrita stöðvar fyrir sig. En það er engu að síður staðreynd að þessir þjónustuaðilar eru flestir á höfuðborgarsvæðinu. Til að forrita stöð utan af landi þarf ýmist að senda þær til Reykjavíkur eða fara sér ferð.

    [quote="sing":3mtg4xa5]
    Auk þess vil ég benda mönnum á að það er miklu þægilegra að nota commercial stöð heldur en amatörstöð og mín reynsla er að þeir sem hafa amatörstöðvar eru alltaf í einhverju basli með þær nema þeir hafi nennt að eyða nokkurm kvöldum í að læra á takkana og séu sífellt að halda sér við. Smá "sparnaður" við að smygla amatörstöð í staðinn fyrir að kaupa hér commercial stöð hefnir sín yfirleitt á viðkomandi með ýmsum vandamálum.
    [/quote:3mtg4xa5]

    Þarna er ég fyllilega sammála, en við erum ekki að tala um amatörstöðvar. Við erum að ræða um tíðnir og forritun á stöðvum. Það er hægt að forrita fleiri stöðvar en amatörstöðvar.
    Fyrir hefðbundinn notanda eru amatörstöðvar algjört "overkill" og geta valdið allskyns vandamálum. Það er mun bettra að vera með einfalda stöð sem lítið er hægt að klúðra heldur en flókna stöð þar sem öllu er hægt að klúðra. Lögmál Murphy’s á vel við þessu tilfelli.

    [quote="sing":3mtg4xa5]
    Ef svo ólíklega vill til að einhver félagi í F4x4 á "commercial" stöð með snúru og forriti en hefur ekki fjármuni til að láta viðkomandi þjónustuaðila forrita rásirnar inn fyrir sig, þá bið ég viðkomandi að hafa samband við fjarskiptanefnd og við munum leysa málið beint.[/quote:3mtg4xa5]

    Gott að vita að það sé hægt að treysta á fjarskiptanefndina. :)





    14.03.2011 at 01:05 #722926
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Samkvæmt fjarskiptalögum er nú öllum tíðnihöfum heimilt að vita sínar tíðnir.
    Í sjálfu sér er ekkert sem segir að maður neyðist til að tala við viðurkennda þjónustuaðila talstöðva til forritunar og í rauninni ættu notendur að hafa aðgang að þessum upplýsingum eins og öðru að mínu mati. Það er ekkert sem bannar manni að forrita sína eigin stöð. Enda eru forrit til þess lags brúks til á lýðnetinu.

    Hitt er svo annað mál að til að aðrir en þeir sem hafa til þess tilskilin leyfi séu ekki að senda út á okkar tíðnum er best að halda þeim huldum.

    Má samt velta fyrir sér hver sé gagnsemi þess að halda þessum upplýsingum huldum, ekki er nú vandamálið að vhf kerfið sé stappað af fólki að blaðra. Helst ber á góma að félagsmenn eru að misnota endurvarpakerfið ef eitthvað er.

    Er það ekki allra manna hagsmunamál að sem flestir séu að hlusta? Því, samkvæmt fjarskiptalögum er mér heimilt að hlusta á þá tíðni sem mér hentar þó svo að ég megi hvorki senda út né notfæra upplýsingar sem sendar eru út né koma þeim til þriðja aðila nema brýn nauðsyn (Neyð) sé til staðar.

    Ég tel að opnara VHF kerfi og meiri fræðsla sé málið frekar en boð og bönn. En svo er þetta náttúrulega peningaelítan sem ræður. Við félagsmenn greiðum fyrir kerfið og ættum að sjálfsögðu að hafa það [b:2ste5mrm]einir[/b:2ste5mrm] fyrir okkur af því við borgum það, er það ekki? Hljómar þetta kunnuglega ef við setjum þetta i samhengi við ákveðið ferðafrelsis mál sem borið hefur mikið á undanfarið?

    umhugsunarkveðja, Samúel Úlfr.





    27.02.2011 at 16:50 #719174
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ekki skil ég nú alveg hvað varð um póstinn minn sem ég skrifaði í gær en ojæja.

    Við í hópnum Úlfunum getum tekið við fleiri ferðafélö-gum ef einhverjir munaðarleysingjar eru enn á ferð. :)

    kkv, Samúel Úlfr





    21.02.2011 at 17:34 #720348
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Án þess að vita mikið um muninn á að aka á 16" vs 15" felgum. Þá sýnist mér á þróun dekkjastærða í Ameríkuhrepp að Mickey Thompson sé allur að færast í 16".

    Ég hef heyrt því fleygt að dekk fyrir 15" felgur séu hætt í framleiðslu þar ytra. Ég sel það ekki dýrara en ég stal því.
    En hvað sem því líður hljótum við að þurfa að spyrja okkur þegar verið er að breyta felgum í dag, hvort 16" sé ekki hreinlega farin að verða umhugsunarverð þar sem þróunin er jú í þá áttina.

    Ég þykist vera viss um að ég fari í 16" felgu næst þegar ég þarf að endurnýja draslið undir bílnum, hreinlega sökum dekkjaúrvals.

    kkv, Samúel Úlfr





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 181 through 200 (of 1,024 total)
← 1 … 9 10 11 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.