FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tryggvi R. Jónsson

Tryggvi R. Jónsson

Profile picture of Tryggvi R. Jónsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,341 through 1,360 (of 1,364 total)
← 1 … 67 68 69 →
  • Author
    Replies
  • 19.02.2006 at 00:08 #543314
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú satt, einhvers staðar á þessum vef datt ég niður á frasann "berðu virðingu fyrir framdrifinu þínu" í sambandi við LC80.
    Skál fyrir því 😉





    18.02.2006 at 23:35 #543328
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Já hvernig er það hvert ert hægt að fara í nágrenni Reykjavíkur til að prófa hvort dótið virki ekki alveg örugglega 😉





    18.02.2006 at 23:14 #543310
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég keypti mér svona LC 80 á 38" í síðustu viku þannig að kannski er ég ekki alveg hlutlaus. Ég á alveg eftir að komast eitthvað í fjörið á honum en fyrri eigandi var búinn að verða sér út um 44" kanta ef það segir eitthvað (já og ég fékk þá með…).
    Ég persónulega ætla að sjá til, sögurnar sem maður er að heyra er að 38" bílar séu bara að koma sér ágætlega áfram. Væntanlega mismunandi gæði á breytingum sem spila þar mikið inn í og auðvitað gæði ökumannsins.
    Ég gæti samt trúað því að smá afturhásingarfærsla geri mikið fyrir 38". Þetta er auðvitað engin léttavara en kannski ekki alveg í hlunkafélaginu?
    Bílanir og ending jú ef viðhaldið er í lagi þá á maður ekki að vera hræddur við 300.000km… En auðvitað bila allir bílar.





    17.02.2006 at 11:09 #543186
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það þarf ekki áratugina til. Ég fór á námskeið í fyrra og það er búið að breyta ýmsu, t.d. um forgangsröðun aðgerða og hjartahnoð/blástur-hlutföll. Svo bætast auðvitað við hlutir eins og AED sjálfvirku hjartastuðtækin sem er gott að nota.





    16.02.2006 at 22:13 #542950
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég er sammála með grein 14, hana mætti orða og afmarka betur. Það er hæpið að svona víðtækt afsal réttinda muni standast ef á reynir.

    Það væri etv hægt að útfæra þetta þannig að að með því að setja myndir inn í myndasafn f4x4.is gefi eigendur myndanna félaginu rétt til að nota myndirnar á einhvern takmarkaðan hátt. Dæmi um svona leyfi væri til dæmis [url=http://creativecommons.org/licenses/by-nc-nd/2.5/:2nuctgqo]CC:by-nc-nd[/url:2nuctgqo]. Þá gæti félagið til dæmis notað myndirnar óbreyttar, í kynningarskyni með því að eigna höfundi myndina.

    Kveðja
    Tryggvi A-898





    12.02.2006 at 11:43 #542322
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    …. hefuru rætt við Valgeir yngri um að fá drátt?





    31.01.2006 at 22:22 #540764
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Vel orðað, þetta er saga sem ég bókstaflega VERÐ að heyra báðar hliðarnar á 😉





    31.01.2006 at 22:05 #540760
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jæja þá tókst Klemma að nappa mig duglega 😉
    Það var auðvitað til of mikils ætlast að það sé hægt að finna notkunarreglur um allar gerðir ljósa á sama stað. Ég átti auðvitað að vita betur, biðst innilega afsökunar á því.

    Það var hins vegar merkilegt núna í kvöld á leiðinni RVK -AK að flestir "svuntuhnakkarnir" voru einmitt flutningabílarnir og í öðru sæti voru jepplingar og þriðja sæti Subaru 😉 Kannski einkennandi fyrir umferðina en látum það liggja milli hluta 😉

    Glýju-Kveðja
    Tryggvi Hin laga-ó-fróði…





    31.01.2006 at 11:32 #540754
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég gerði aðra tilraun til að lesa þetta og ég á í vandræðum með að flokka svuntukastarana á fólksbílnum mínum sem dæmi. Þau eru klárlega tengd stöðuljósum (án gaumljóss) en hafa ekki eins og svo mörg ljós af sambærilegum svuntu-toga "greinileg lágrétt birtumörk" eins og þokuljós samkv. skilgreingu [b:5o3msxn6]eiga[/b:5o3msxn6] að hafa. Ég prófaði þetta með að vera 3 metra frá vegg og hafa kveikt á lágu ljósunum og bæta svo svuntudraslinu við og ljósið frá svuntunni lýsti ofar á vegginn en aðalljósin, mjög ófullkomin athugun en gæti gefið hugmynd.
    Fyrst svo er eru þetta þá ekki (samkv. skilgreiningu reglugerðar) ljóskastarar? Og gildir þá um notkun:
    "í ófærð á vegum utan þéttbýlis þegar aðalljós koma að takmörkuðum notum vegna snjólags eða skafrennings".
    Þó seljendur kalli þetta "þokuljós" er það ekki í ósamræmi við skilgreininguna í reglugerðinni? Það gæti skýrt hluta af misskilningnum? Því það virðast ekki vera neinar notkunarreglur (a.m.k. ekki í reglugerðinni…) um þokuljós.
    Til dæmis stóru hringlóttu svuntuljósin á Impreza eru klárlega ekki með nein efri mörk á ljósgeislanum. Ljóskastarar eða þokuljós?





    30.01.2006 at 17:00 #540692
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Tækniþjónusta bifreiða er með svona mælingar sjá [url=http://www.bifreid.is/verkstaedi.htm?http://www.bifreid.is/aflprofun.htm:7adtvlu1]hér[/url:7adtvlu1]. Kostar um 7.000kr skilst mér (ekki kannað málið sjálfur).





    30.01.2006 at 11:26 #540720
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég (eins og fleiri hér) keyri mikið utan þéttbýlis og verð að vera sammála um þetta kastarafetish! Þessi "svuntuljós" valda glýju enda virðist geislinn ekki mótaður eins og t.d. lági geislinn. Ég er með svona og einu tilfelli sem ég nota þetta er á holóttum vegi til að fá fram betri (lengri) skugga í holurnar til að sjá þær betur. Í mínu tilfelli hjálpar þetta nákvæmlega ekki neitt þegar maður er á löglegum hámarkshraða t.d. í myrkri.

    Svo reyndi ég að lesa reglugerð um búnað bifreiða, var auðvitað engu nær eftir það en…. þokuljós má hafa og ætli þessi svuntuljós fari ekki í þann flokk? Þau eiga samt að fara af þegar háu ljósin eru sett á. Þannig er það ekki t.d. á mínum bíl (útbúnaður frá verksmiðju og fékk skoðun). Auka-há-ljós eru svo annað sem má einmitt bara vera kveikt þegar hái geislinn er á (og skýrar reglur um notkun hans). Þokuljós má hins vegar ekki nota innanbæjar (samkv. reglugerðinni skilst mér!). Svo er spurning hvort það sé hægt að þræta fyrir að þetta séu einhvers konar dagljós? Þegar ég var kominn út í þann hluta reglugerðarinnar þá var ég orðinn endanlega ruglaður! Ég er ekki lögfræðingur þannig að skilningur minn á þessari reglugerð gæti verið kolrangur en gaman væri að heyra ef einhver hefur náð að vinna sig í gegnum torfið!

    Tvö tilfelli heyrði ég samt um svona notkun sem eru "spaugileg". Annað er BMW eigandi sem sagðist nota þetta innanbæjar til að láta bílinn sinn líta út fyrir að vera "lægri" og hitt var RAM eigandi sem sagðist nota þetta til viðbótar ökuljósum utanbæjar af því að ljósin á bílnum hans væru svo slöpp.

    Svo er náttúrulega alltaf hópurinn sem fattar ekki að taka háu ljósin af þegar þeir mæta öðrum bílum…





    19.01.2006 at 13:52 #539498
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Kannski spurning um að félagið taki að sér vitundarvakningu og safni upplýsingum t.d. á vefnum um þessa hluti? Hver reynsla manna sé af því að búa þær til og/eða hvar sé hægt að fá góðar grindur fyrir ákveðnar gerðir o.s.frv. ?
    Leit í "Fróðleikur" á vefnum eftir veltibúr og veltigrind skilaði a.m.k. engum niðurstöðum en slatti hér og þar á spjallinu en mætti jafnvel taka það betur saman.





    19.01.2006 at 11:20 #539492
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Varðandi loftpúðana þá eru þeir með mjög nákvæmlega skilgreint "reponse". Það þarf að vera að lágmarki ákveðinn kraftur af ákveðinni stefnu til að þeir fari út. Þegar bíll hreyfist svona þá veit érg ekki hvort þessi búnaður sé að mæla rétt. Í einhverjum nýjum bílum er gyroscope sem ætti að hjálpa til svona aðstæður.
    Fram- og hliðarpúðar hefðu (by design) líklega ekki átt að springa við högg af þessari gerð (högg sem kemur niður á bílinn). Þær loftpúðar sem kannski hefðu átt að springa eru loftpúðagardínur (IC). Ég veit ekki hvort að svoleiðis sé í LC100. Annars efast ég um að nokkur loftpúði hefði gert gagn við þessar aðstæður, þeir eiga að taka mikið högg í stuttan tíma.

    Hvort lofpúðar séu falskt öryggi veit ég ekki, þeir hafa sannað gildi sig við þær aðstæður þar sem þeir eiga að virka. Hitt er svo hvort bílaframleiðendur séu frekar að bæta hönnun (m.t.t. til öryggis) og öryggisbúnað bara til að fá fleiri stjörnur í árekstrarprófum?

    Ég hef lent í mjög hefðbundnum fram-árekstri án þess að loftpúði færi af stað. Í mínu tilfelli hefði það verið óþarfi því höggið sem ég fékk á mig var absorberað í yfirbygginguna og meira að segja taskan í farþegasætinu hjá mér fór ekki niður á gólf.

    Það er ekki eina lausnin að vera [url=http://www.bridger.us/2002/12/16/CrashTestingMINICooperVsFordF150:3cedz6jy]stór og sterkur[/url:3cedz6jy] og svo verður maður líta að [url=http://www.leftlanenews.com/2006/01/11/todays-drivers-suffer-without-high-tech-systems/:3cedz6jy]vita hvernig dótið virkar[/url:3cedz6jy].





    16.01.2006 at 14:48 #539176
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég ætti kannski að uppfæra, var að brasa við þetta í FC3 í janúar í fyrra, rosalega sem tíminn flýgur áfram! 😉
    Takk Einar.





    16.01.2006 at 14:26 #539172
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég prófaði Garmin 18 USB móttakara hjá RS. Virkar ef maður heldur sig við staðlað settup, þ.e. Windows og þann hugbúnað sem manni er ætlað að nota. Það var hins vegar bölvað basl að fá það til að virka með Linux en gekk þó eftir nokkurra talsvert bras.
    12 tungla og WAAS/EGNOS hæft þannig að þetta er ágætis græja þegar hún virkar og 9.900kr m.VSK án hugbúnaðar en 20.900kr með hugbúnaði.
    Ég fékk samt aldrei NMEA frá tækinu sjálfu heldur þurfti ég að gera upp sérstakan driver til að fá staðlað NMEA output. Þá græja má finna [url=http://sourceforge.net/projects/garmin-gps/:3ehwxonu]hér[/url:3ehwxonu].





    21.12.2005 at 09:11 #536700
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þau segja sjálf:
    "Þó er ekki hægt að draga þá ályktun að t.d. jeppar séu betri eða verri en fólksbílar eða jeppllingar þar sem notkun þessara ökutækja er ólík. Auk þess er lítill hluti allra slysa skoðaður og ber að taka tillit til þess."

    Tímabilið sem þeir skoða er 01.01.98 – 01.01.04 samtals 3.039 óhöp. Þar sem er talað um maí og ágúst þá er verið að tala um þessa talningu sem Landbjörg gerði en ekki skýrsluna. Hún tekur að ég fæ best séð til 98 – 04.

    Nokkrir gallar:
    * flokkun í viðauka er ábótavant. Það er þó tekið fram í 3.1 að "jeppar" með drifi á einum öxli séu ekki með, þá væntanlega detta stock Econoline út, flokkunin er samt skrítin.
    * ekki er gerð nægjanleg tilraun til að tengja saman notkunarmynstur og slysatíðni. Það hefði t.d. verið hægt að taka úrtak úr bifreiðaskrá, senda viðhorfskönnun á eigandann þar sem hann gefur upp gerð bifreiðar og svarar spurningum um notkun, sbr. Orion könnunina sem var send út og svo mætti spyrja: Við hvaða aðstæður notar þú ökutækið: 1) aðeins við bestu aðstæður 2) oftast við bestu aðstæður, 3) jafnt við allar aðstæður 4) oftast við verstu aðstæður 5) aðeins við verstu aðstæður. Og eitthvað fleira í þeim dúr.
    * lítið er gert til að vinna úr þó þeim upplýsingum sem til eru. Það hefði t.d. verið hægt að nota dreifigreiningu til að meta hvort aðstæður, akstursmagn eða drifbúnaður hefði meiri áhrif á heildarfjöldann. Þessi leikfimi með gröf í Excel er að mér finnst ekki nægjanleg
    * eins og með alla fylgni þá er ekkert sagt um orsakir og skýringar heldur er þetta aðeins lýsandi tölfræði. Sem slíkt svo gott sem það nær.
    * lítill munur gerður að einhverju. Mér finnst óviðeigandi og samræmist ekki þeim rannsóknarhefðum sem ég er alinn upp í að tala um mun sem er upp á 1-3% á milli hópa. Nema annað sé sérstaklega reiknað út finnst mér líklegra að þarna sé um algera tilviljun að ræða.
    …. það er af nógu að taka, bara svona nokkur dæmi.

    Það getur nú samt verið gaman að rýna í þetta og sjá t.d. að afturdrifnir fólksbílar eiga fleiri slys í þéttbýli bæði m.v. heildarfjölda slysa og fyrir hver 1000 skráð ökutæki.

    En jæja, best að fara að keyra framhjóladrifinn fólksbíl í hálku norður í land. Sem er tölfræðilega alveg snarklikkuð hugmynd 😀





    20.12.2005 at 13:42 #536686
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa skýrsluna þá er hún [url=http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/2004_RANNUM_Drifbunadur/$file/tegund_drifbunadar_og_slysatidni_lokaskyrsla_skil.pdf:1jyrvahi]hér[/url:1jyrvahi] á PDF-formi. Þó ekki væri nema fyrir hluta 8.4 (Ökutæki og flokkun þeirra) þá er þetta hressandi lesning.
    Merkilegt samt hvað mbl.is eru snöggir með þetta, þetta kom út í janúar !
    Ég renndi yfir þetta fyrir nokkrum mánuðum og jú þeir tala tillit til ekinna kílómetra og ástandi vega en það vantar gríðarlega mikið upp á að þetta sé fullnægjandi skýrslugerð að mínu mati. Segir mér í raun mjög lítið nema samantekt á tíðni ákveðinna óhappa.
    Sambærilegt en víðtækara er að finna erlendis á vef: http://www.hwysafety.org/srpdfs/sr4003.pdf en þessi linkur virkar því miður ekki lengur :(
    Ég hefði persónulega viljað smá miklu meiri og betri úrvinslu úr gögnunum en væntanlega er þetta fólk að bíða eftir öðrum styrk til að gera það 😉





    19.12.2005 at 08:40 #536242
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Já þetta er ekkert nema mannvonska að gera svona 😉
    Er [url=http://www.gorancho.com/products/suspensions/ford_F150_bronco.stm:3gdt96re]þetta[/url:3gdt96re] Rancho kittið sem þú ert að meina?
    Ég sá annars í þessari leit [url=http://broncograveyard.com/products/fabritech/fabritech.html:3gdt96re]Solid Axle Conversion Kit frá Fabritech[/url:3gdt96re] en þarna er maður nú kominn í groddalegri aðferðir en Rancho-kittið.
    Er eitthvað vit í að kaupa svona "pakka" frá útlandinu eða gerum við Íslendingarnir þetta (eins og allt annað :D) miklu betur sjálfir?





    18.12.2005 at 18:47 #536236
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú það er einmitt málið, ég er með annan bíl fram í maí og það er spurning hvað á að ganga langt þangað til. Eftir það yrði þetta svo eini bíllinn í 1,5-2 ár (en hvað veit maður hvað gerist…)

    Þess vegna er einmitt pælingin hvað maður ætlar að fara langt. Það virðist mestlítið þurfa til að fara upp á 33", 35" gæti jafnvel gengið með smáköntum og skurði, 38" þá er maður kominn í kant+skurð og mögulega 3" hækkun á body. Það er spurning ef maður fer í það hvort sú aðgerð nýtist ef maður ætlar svo upp í 44" síðar meir?
    Svo þarf maður væntanlega að fara að hugsa um gírun ef maður fer í 35" eða meira er það ekki?

    Er einhver sem hefur tekið yngri en 1992 (eða 1987 virðist vera mjög svipað) og sett á 38" ?





    17.12.2005 at 19:22 #536232
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú það væri nú æskilegt að eiga hann lengur en 2 ár, en maður veit aldrei. En planið væri að eiga hann lengur en fara kannski ekki í stórfeldar breytingar fyrr en eftir eitt og hálft eða tvö ár.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,341 through 1,360 (of 1,364 total)
← 1 … 67 68 69 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.