Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.12.2005 at 18:02 #536228
Jú takk Ásgeir fyrir upplýsingarnar.
Samkvæmt upplýsingum framleiðenda stendur 5.8L Bronco í 2.216kg (lægsta tala sem ég fann var 2.081 en mér fannst hún út í hött). Það er talsvert meira en Grandinn sem segist vera 1.919kg (’98 5.9L Limited).
Ef maður fer í 38" er þá ekki hætt við að það þurfi að skipta TTB-dótinu að framan út? Kannski eitthvað fleira sem væri þá komið á innkaupalistann? Svona fyrir utan það sem fylgir bara hækkandi dótastuðli 😉
17.12.2005 at 16:40 #196875Ég er aðeins búinn að vera að vega og meta tvo bíla, með möguleg kaup á fyrstu mánuðum næsta árs í huga.
Þeir tveir sem hafa verið að koma upp aftur og aftur eru Grand Cherokee Limited 5.9L 1998 og Ford Bronco Eddie Bauer 5.8L 1996. Ástæðurnar að baki því má að hluta til sjá hér.Ég ætlaði samt að fá að leita í visku ykkar á þessum vef hvað varðar breytingar og kannski eitthvað fleira.
Planið hjá mér væri að eiga þennan bíl í a.m.k. 1,5 – 2,0 ár sem eina bíl og mig langar því ekkert rosalega til að fara í fulla-jöklaferða-breytingu, a.m.k. ekki strax … Þarf s.s. að vera „daily-driver“ líka. Hins vegar væri alveg inn í myndinni að reyna að gera eitthvað „smotterí“ ef það er eitthvað sem er hagstætt og maður græðir meira notagildi á í þá svona „léttari“ sumarferðir, til að byrja með.Það eru aðalega þrjú atriði sem ég er að velta fyrir mér:
1) Er einhver teljandi munur á hversu erfiðir/auðveldir þessir tveir mismunandi bílar væru í endursölu?
2) Væri mikill verðmunur á að breyta þessum tveimur bílum? Þá bæði einhverjar lágmarksbreytingar eða þá í „all-out“ breytingu? Hvað er til að mynda mikið mál að koma einhverju eins og 35″ dekkjunum undir þessa tvo? Samkvæmt töflum frá USA þarf 6 inch á Bronco til að koma 35″ undir hann, 4 inch ef maður færir eða lagar aðeins til framstuðarann. Þeir væntanlega skera ekkert úr brettum? Hvað myndi þurfa mikið m.v. skurð?
3) Eru einhverjir sérstakir veikleikar sem gætu orðið til þess að þessir bílar væru til vandræða í breytingum? Væntanlega yfirstíganleg vandamál að Bronco-inn er með TTB að framan og grindarleysið á Grand virðist ekki stoppa þá mikið.Ég persónulega hallast að Bronco-num, sennilega vegna þess að það angrar mig dálítið í Cherokee hvað hann er þröngur m.a. um axlirnar í framsætunum og höfuðið í aftursætunum. Báðir eyða náttúrulega skíthlassi af bensíni en ég geri mér grein fyrir því. Ég viðurkenni fúslega þekkingarleysi mig og þið verðið bara að fyrirgefa fyrirfram ef ég fer að spyrja eins og alger asni.
28.11.2005 at 11:57 #534096Það voru myndasöfnin sem fengu mig til að byrja að kíkja á vefinn. Margt skemmtilegt en ég tek undir að það mætti etv bæta myndatexta sem gerir þetta margfalt skemmtilegra. Það væri jafnvel hægt að bjóða upp á viðmót eins og er í "Captions" í Gallery hugbúnaðinum (gallery.sf.net) ? Hafa jafnvel möguleika á skrá í sér-box ökumann, ökutæki, staðsetningu eða lýsingu til að hvetja fólk til að setja meiri upplýsingar. Það þarf fyrst og fremst að vera aðgengilegt að setja textann inn, annars nennir því enginn. Nú hef ég aldrei sett inn mynd hér þannig að kannski er þetta einmitt svona aðgengilegt ef svo er bið ég vefnefnd forláts 😉
Hitt með myndasöfn annarra, það væri etv hægt að gera það af undirflokk undir Tenglum? Þ.e. ef fólki finnst það ekki óþarflega mikil innrás í einkalífið. Hafa þá beinan tengil á myndasöfn annarsstaðar.
Ég vil samt þakka þeim sem setja inn myndir hér, þær eru margar gríðarlega flottar og aðrar sem hafa mikið skemmtanagildi meira að segja fyrir þá sem eru ekki í þessu sporti.
15.11.2005 at 18:06 #519756Er kannski einhver góða ástæða fyrir að maður sér lítið af 1992-1996 fullsize Bronco á Íslandi? Vandræðagripir? Erfitt/dýrt að breyta?
Rakst á einn á þeim aldri á sölu um daginn en hann hvarf um leið. Það jaðrar við að maður gæti hugsað sér að eiga einn svona 94-96 árgerð en meira að segja á eBay er ekkert rosalegt úrval af þeim.
Á maður kannski að afskrifa þessa hugmynd bara strax ;)?
-
AuthorReplies