Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.03.2006 at 19:57 #197541
Eins og kom fram á fundinum í gærkvöldið er verið að skipuleggja skyndihjálparnámskeið. Stórglæsilegt framtak og vonandi að það náist samstarf við aðila sem getur sérsniðið þetta dálítið að þörfum félagsmanna.
Er hægt að skrá sig einhversstaðar? Væri meira en til í að endurnýja þessa þekkingu, fór á 8 klst námskeið fyrir ári en vildi gjarnan rifja upp og vonandi bæta einhverju við.
14.03.2006 at 16:53 #546158Heyrðu þarna kom sér vel að spyrja allavega til að vera viss 😉 Þarna tókst mér að útrýma smá af heimskunni minni.
Bestu þakkir!
Tryggvi
14.03.2006 at 15:59 #546152Ætli maður byrji ekki á að setja nokkra lítra af sulli í hann, taka nokkrar beygjur og taka svo tappann úr og sjá hvað gerist. Svo þegar maður hefur tíma og skúr þá held ég að málið sé að taka þetta (ásamt mörgu öðru…) í frumeindir.
Er eitthvert sérstakt sull sem maður ætti að setja með díselnum þegar maður svo fyllir? Bara frostvara eins og á kælikerfið? Þá einhvern 1L á móti hverjum 50L af dísel?
14.03.2006 at 10:39 #546144Hvað segiði einhver viska til um málið ?
12.03.2006 at 09:04 #197522Datt í hug m.v. nokkra gps/tölvu-pælinga þræði að þetta gæti nýtst einhverjum.
Þegar ég var að taka morgun-nörda-fréttirnar þá rakst ég á þetta hér, Samsung Q1. Þetta er minna en s.k. TablePC, snertiskjár 7″ 800×480, innan við kíló að þyngd, 900Mhz CeleronM, 512Mb minni og 40Gb disk. Í Evrópu á að selja þetta í kringum 1.000 dollara en verðbilið fyrir UMPC (Ultra-Mobile PC) á að vera c.a. 500-1.000 dollarar.
Ég segi fyrir mig að þetta gæti verið lausn í tölvu/GPS málunum, gæti skjárinn verið í minni kantinum.
Sjá einnig hjá mbl.is.
11.03.2006 at 15:31 #197516Ég var að versla bíl með aukatank sem er að nálgast ferðafært ástand. Það má vera að hann hafi ekki verið notaðir (tankurinn þ.e.a.s.) í langan tíma.
Einhverjar aðgerðir sem ég ætti að leggja í áður en ég tek hann í notkun aftur til að forðast vandræði? Nóg að blanda einhverju í hann eftir fyllingu (þá hverju og í hvaða hlutföllum á móti hráolíuvibbanum)?
08.03.2006 at 20:14 #545960[url=http://www.arctictrails.is/:3e4i5qi7]http://www.arctictrails.is/[/url:3e4i5qi7]
08.03.2006 at 10:54 #545864Þekking er alltaf góð. Spurning hvort klúbburinn komi sér upp vinnuhóp/nefnd til að taka á fræðslumálum og námskeiðahaldi? Gæti orðið í talsverðu samstarfi t.d. við tækni- og vefnefndirnar (viðbót: og auðvitað hjálparsveitarinnar góðu).
Ég segi fyrir mig verandi nýgræðingur í þessu og hættulega heimskur (en veit samt af því sem er ákveðinn kostur) að ég væri til í að fræðast talsvert meira.
05.03.2006 at 13:13 #197474Dana farið í gjaldþrot:
The pain just keeps coming for the U.S. auto industry. This time, Toledo (Ohio) parts maker Dana (DCN) filed for Chapter 11 bankruptcy protection, raising fears that the company will be unable to pay its suppliers for parts and keep delivering axles, frame pieces, and other components to Ford Motor (F) and General Motors (GM).
04.03.2006 at 21:50 #545210Ég ætlaði einmitt að fara að benda á þessa síðu sem stebbi benti á 😉 Svona er að vera slow.
Ég rakst reyndar á í umfjöllun um eitthvað af svona búnaði að hann virkaði ekki ef það væru margir ventlar á felgunni eða annar "aukabúnaður" ? Það er væntanlega ekki vandamál með fína íslenska búnaðinn ?
04.03.2006 at 20:10 #545596Þar sem maður er nú nýgenginn í klúbbinn þá finnst mér alveg óþarfi að gefa færi á því að reka mann úr honum! Mæta á að minnsta kosti einn fund og svo má reka mann út 😉
Setjast þeir á steypustól.
þetta verður ekkert slor.
Eiginkonur og kærustur
uppá fjöllum með taKómur.Biðst fyrirfram afsökunar á illri meðferð á forminu 😉
Skál!
03.03.2006 at 13:17 #538348Já það er auðvitað ákveðin "vörn" í því að vera með kerfi sem ekki er þekkt. Ef maður er að keyra standard stöffið eins og t.d. phpBB þá þarf maður að vera duglegur að uppfæra. Það var held ég bara í fyrra sem haugur af íslenskum phpBB vefum lenti illa í því t.d. [url=http://www.islandrover.is/:3qvyzhht]ÍslandRover[/url:3qvyzhht]. Þetta verður ennþá meira tricky ef maður er búinn að gera einhverja heimagerðar viðbætur á kerfið.
Auðvitað er bara langbest að sleppa þessu bara og nota bréfdúfur! Nei annars… fuglaflensaHelgar-skál!
Tryggvi
03.03.2006 at 12:46 #538344Þarna held ég að við séum einmitt komnir að lykilatriðinu í umræðunni. Ef vefurinn er notendavænn og aðgengilegur fyrir almenna notendur kemur meira af góðu efni inn á hann og þannig eflist vefurinn, þ.e. fleiri skrifa, efnið er betra (vonandi…) og hægt að nota það meira.
Þetta er þróun sem maður sér í [url=http://sourceforge.net/projects/phpbb/:2ahcvau5]phpBB[/url:2ahcvau5], [url=http://gallery.sf.net/:2ahcvau5]Gallery[/url:2ahcvau5], [url=http://www.mediawiki.org/wiki/MediaWiki:2ahcvau5]Wiki[/url:2ahcvau5] og vefumsjónarkerfum eins og [url=http://www.mamboserver.com/:2ahcvau5]Mambo[/url:2ahcvau5].
Stjarnan er einmitt gott dæmi, [url=http://blyfotur.is/:2ahcvau5]Blýfótur[/url:2ahcvau5] er annað, [url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/:2ahcvau5]BMW Kraftur[/url:2ahcvau5] og svo áðurnefndur [url=http://geirinn.is/:2ahcvau5]Geirinn[/url:2ahcvau5] og [url=http://www.ljosmyndakeppni.is/:2ahcvau5]LMK[/url:2ahcvau5] og fleiri. Fínt að leita uppi góðar fyrirmyndir og velja það sem manni líkar frá þeim.
03.03.2006 at 11:28 #538338Lítið mál, ég sá það þegar ég ræsti IE að það að sækja slóð í mynd er bara talsvert langur process þar.
Ertu þá að spá í að færa gömlu færslurnar inn í nýja grunninn (sem yrði þá að hætti phpBB)?
Það yrði nú væntanlega yfirstíganlegt að skrifa script til að gera svoleiðis "conversion" það sem ég held að yrði erfiðara er að fella viðbótarupplýsingar (t.d. myndasöfnin) að notendaupplýsingunum.
Ég þekki mjög vel gaurinn sem er að sjá um LMK og þetta er talsverð vinna við að samþætta t.d. phpBB notendagrunninn og [url=http://gallery.sf.net/:1906y3px]Gallery[/url:1906y3px]. Nýjasta gæluverkefnið er svo [url=http://www.mediawiki.org/wiki/MediaWiki:1906y3px]Wiki[/url:1906y3px] en ég játa að ég sé alveg geðveika möguleika fyrir F4x4 í notkun á Wiki til dæmis í núverandi "Fróðleikur" flokki. Ég, verandi alveg nýr í þessum jeppaheimi, sæi alveg ótrúlega mikla kosti við að hafa öflugan "þekkingargrunn" og mín reynsla af Wiki-notkun er að það er auðvelt í notkun (engin þörf á að kunna urrr, ping, bufff o.fl…) og aðgengilegt.Ég hef einmitt unnið með aðilum (sjálfboðaliðum, félagasamtökum o.fl.) sem eru að heimasmíða frá grunni og öðrum sem eru að nota staðlaðar lausnir og bæta við þær. Bæði er gríðarlega mikil vinna en til lengri tíma litið er það mín reynsla að það sem er byggt á stöðluðum lausnum kemur betur út, stenst betur tímans tönn og það er auðveldara að fá nýja aðila til að sjá um þau (tæknilega séð).
03.03.2006 at 11:07 #538334Eitt sem ég rakst á með slóð í mynd dæmi hér að ofan. Þegar það er verið að skoða mynd af vefsíðu í myndasafni félagsins þá er ekki hægt að nota slóðina sem er sjáanleg í vafranum heldur slóðina beint á myndina.
Dæmi:
Til að nota þessa mynd:
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/1487/9347:5m9yy8jd]https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/1487/9347[/url:5m9yy8jd]
þarf að hægri smella (í IE og fleirum vöfrum) og velja "Copy Image Location" (í Firefox) eða fara í Properties (í IE) og afrita strenginn sem er í Location (URL) eða sambærilegt sem myndi þá líta svona út:
https://old.f4x4.is/new/files/photo/?fil … 7/9347.jpg
þennan streng má nota inn í img þar sem þetta er bein vísun á myndina (endar í þessu tilfelli á .jpg).Ég persónulega er hrifinn af því að nota "staðlaða" pakka, í það minnsta í grunninn og eru mjög mörg spjallsvæði á netinu að nota t.d. [url=http://sourceforge.net/projects/phpbb/:5m9yy8jd]phpBB[/url:5m9yy8jd] annað hvort óbreytt eða sérsmíða ofan á það kerfi eins og [url=http://www.ljosmyndakeppni.is/:5m9yy8jd]Ljósmyndakeppni.is[/url:5m9yy8jd] er að gera.
Með því að nota staðlaða pakka er líklegra að notendur kunni á kerfið, t.d. virðist notkun BBcode vera aðgengilegri og útbreiddari en að nota HTML (þó HTML sé okkur vef/tölvu/tækni-nördunum mjög eðlislægt).
21.02.2006 at 21:12 #543850Flest tryggingafélög endurnýjuðu skilmála sína núna um áramótin vegna nýrra laga sem tóku gildi um starfssemi tryggingafélaga.
Stebbi, ég tók svona utanvegaviðbót á al-kaskó hjá VÍS og það eina sem það gerir er að það afnemur skilyrði í skilmálunum (BK10) sem eru í kafla 3.3. Ég fékk svohlljóðandi blað: [i:g6loz1l7]"Þrátt fyrir ákvæði 3. gr skilamál Al-kaskó gildir vátryggingin í akstri yfir óbrúaðar ár og læki, fjörur, forvaða og aðrar vegleysur"[/i:g6loz1l7] Um tjón af þessu tagi gildir önnur eigin áhætta.
Ég rakst líka á að í kafla 3.3 er sagt að tryggingin gildi þó (án utanvegabreytinganna) um akstur torfærutækja og dráttarvéla um fjörur, forvaða og aðrar vegleysur. Þetta hafði ekki vakið áhuga minn fyrr en ég sá að í skráningarskírteinu sem ég fékk í dag sent heim stendur "Torfærubifreið" er það sami hlutur og torfærutæki? Er maður þá í raun bara að græða tryggingu í óbrúuðum ám og lækjum?
Ef þetta á að vera peningaplokk þá er þetta rosalega lélegt peningaplokk því upphæðin sem þeir eru að plokka af manni er frekar lítil á ári. Verðmatið og bætur fyrir lausa hluti er eitthvað sem mér finnst meiri óvissa um og væri gaman að heyra hvort tryggingafélögin séu að taka á mismunandi hætti á þessu, t.d. með GPS-tæki og þess háttar.
21.02.2006 at 19:00 #543842Í stíl við torfið hans Ofsa þá var ég búinn að klamra saman þessum texta annarsstaðar sem á að endurspegla skilning minn á afstöðu tryggingarfélagsins míns til svona mála:
—-
[klipp]
Þar sem bíllinn er breyttur þurfti ég að fara í þjónustumiðstöð og láta taka myndir og þá spurði ég sérstaklega um hvaða verðmat væri notað ef bíllinn myndi t.d. gereyðileggjast (að þessu spurði ég merkilegt nokk á föstudaginn síðasta…) og þá var mér sagt að miðað væri við markaðsverð, þ.e. nokkrar bílasölur gæfu mat á bílnum (3-4 sem VÍS er með á sínum snærum varðandi svona mál). Ég double-checkaði þann skilning með að spyrja hvort þarna væri átt við viðmiðunarverð BGS og svo var sagt að væri ekki.
[klipp]
—-
Kannski aðallega þetta með markaðsverð en ekki viðmiðunarverð. Heimildamenn mínir í þessu eru starfsmenn VÍS (Sirrý J. og Sigrún P. mér til minnis…) og voru þær báðar mér mjög liðlegar að ganga úr skugga um vafaatriði. Ég hef reyndar ekki reynt að sækja bætur til VÍS ennþá en vonandi verður það í stíl við þjónustuna hingað til (óskhyggja…).PS: Ég er ekki á neinn hátt tengdur VÍS fjárhagslega 😉
20.02.2006 at 21:28 #543734Ég fór í smá leit á spjallinu fyrir nokkru og fann a.m.k. þrjá aðila sem hafði verið bent á sem gætu tekið að sér svona. Þeir voru Tryggvi hjá [url=styri.is]Stýrisvélaþjónustunni[/url], [url=http://www.ke.is/:3d3ezujc]KE málmsmíði[/url:3d3ezujc] og Prófílstál (Smiðshöfða, 5878999).
19.02.2006 at 11:17 #543322Er [url=http://www.f4x4.is/new/ads/?file=bilar/5013:5eiai2v4]þetta[/url:5eiai2v4] ekki bara sami bíllinn og á Bílasölur.is ?
19.02.2006 at 00:47 #543320Jú það er ein lausnin svo er ýmislegt að finna um þetta hjá [url=http://kliptrom.is/spurtogsvarad.htm:1vtluhkj]Kliptrom.is[/url:1vtluhkj], leita að "Jóhann spyr:".
-
AuthorReplies