Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.03.2007 at 21:42 #585328
You are going down!
XO
20.03.2007 at 21:10 #585324Definitions of trigger on the Web:
* gun trigger: lever that activates the firing mechanism of a gun
* a device that activates or releases or causes something to happen
* trip: put in motion or move to act; "trigger a reaction"; "actuate the circuits"
* an act that sets in motion some course of events
* release or pull the trigger on; "Trigger a gun"
20.03.2007 at 20:35 #585156Það er ekki fyrir fólk með valkvíðaröskun að kaupa Land Cruiser 😉
HDJ80 eigandi… (held ég…)
20.03.2007 at 20:10 #585320and you don’t want to know what happens when you pull … the trigger 😉
20.03.2007 at 20:01 #585316Ég kom með fullt af góðum hugmyndum áðan 😉 annars hefur ekkert gælunafn náð að festast við mig nema að góður vinur minn bthj (Björn Þór Jónsson) gaf mér notandanafnið trigger (með litlu t) þegar ég fékk fyrst aðgang að Internettengdri tölvu, sumir kalla mig trigger, aðrir kalla mig Tryggva… ég gegni báðum nöfnum.
Kv
T/t
20.03.2007 at 19:58 #585314– .- -.- -.- … — ..- .-.. . .. .. …
20.03.2007 at 19:50 #585308Mér finnst Strympa mjög viðeigandi nafn á Stefaníu… þetta með að vera gildur um miðjuna, ég ætla bara að túlka þetta á "besta veg" og ekki vera neitt að pæla í því meira 😉
Kv
Tryggvi Holmes
20.03.2007 at 19:37 #585304Genahvað! ég ætlaði einmitt að fara að bæta þvi við en ákvað að hætta við af því að ég hélt að þú værir vinur minn 😉
Kv
Genastrumpur
20.03.2007 at 19:34 #585298Endilega ekki… það ku víst vera óleyfilegt að nota þessi kallmerki á öðrum tíðniböndum en amatörar hafa 😉 þannig að Tryggvi, Mr T, Trigger, Da Triggah, Master Tryggvi, Meistari, T All Mightly er allt saman leyfilegt á 4×4 rásum 😉
Kv
Mr T
20.03.2007 at 17:57 #199964Eins og Snorri bendir á hér væri ekki úr vegi að setja kallmerki einhvers staðar inn á vefinn.
Ég var einmitt að fá mitt í dag frá Póst og fjar og það er TF3TW.Leiðbeiningar um umsóknina fyrir þá sme voru í prófinu má finna á námskeiðssíðu ÍRA.
16.03.2007 at 18:07 #582854Önnur skyldustörf sem ég get ekki hunsað urðu til þess að ég get ekki lagt þér lið á morgun Dabbi minn… þú átt bara inni hjá mér í vor!
16.03.2007 at 18:06 #584702Well eins og kemur fram hjá RHA þá er það Norðurvegur sem borgaði fyrir þetta "verk" svo skattpeningarnir eru hultir, amk í bili. Mér finnst samt alveg ótrúlega merkilegt að í þessari skýrslu (ekki búinn að lesa hana alla) er gert ráð fyrir [b:whkp6e75]ENGRI[/b:whkp6e75] gjaldtöku??? Það er eitthvað alveg nýtt. Held að Barbara hafi hitt naglann á höfuðið, þessi skýrsla er einmitt það sem vantaði 😉
16.03.2007 at 14:38 #584690Komið alvöru [url=http://www.rha.is/?mod=frettir&mod2=view&view=one&id=68:3lcylg71]lesmál[/url:3lcylg71]! Tek aftur allt sem ég sagði um að þetta væri ekki á síðu RHA 😉 Það hefur hér með verið lagað og fer ekki milli mála lengur og heldur ekki hver bað um hana og væntanlega greiddi fyrir 😉
Munum að rannsóknir styrktar af tóbaksframleiðendum um skaðsemi reykinga skal ekki taka hátíðlega.
Nú ætla ég að skella mér í lesturinn og snúa mér að því sem skiptir máli ([url=http://www.rha.is/skrar/File/Rannsoknir/2007/Nyr_Kjalvegur_mat_a_tjodhagslegri_ardsemi.pdf:3lcylg71]lesefni helgarinnar[/url:3lcylg71]).
16.03.2007 at 13:40 #584676Ég geri ráð fyrir Þorgeir að þú hafir einhverjar inside upplýsingar um samband RHA og HA sem aðrir hafa ekki? Eru þeir þá að ljúga á [url=http://www.rha.is/?mod=sidur&mod2=view&id=10:2bt7z5mx]sinni eigin vefsíðu[/url:2bt7z5mx]?
Á vef NV segir:
[i:2bt7z5mx]Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur lagt mat á þjóðhagslega arðsemi og samfélagsleg áhrif af lagningu vegar yfir Kjöl.[/i:2bt7z5mx]
Klárlega verið að tala um RHA! Í linkunum í glærurnar er reyndar talað um Háskólann á Akureyri (ósamræmi? já það væri ekki það fyrsta slíkt sem kemur frá NV!). Í glærunum sjálfum (sem eru á vefþjóni NV ekki RHA né HA!) stendur skýrt og greinilega RHA. Tvennt af þrennu vísar á RHA. Eftir stendur að efnið sem vísað er til (glærurnar) er rækilega merkt "(C) RHA 2007" á hverri einustu slæðu. Hvernig NV ákveður að "spinna" þetta er alfarið þeirra mál og kemur HA í sjálfu sér ekkert við. Það er ekkert nýtt að menn slái um sig hálfsannleika til að auka trúverðugleikann, en það þýðir samt ekki að það sé góð aðferð.Það er enginn vafi hver er höfundur þessara glærupakka, að reyna að draga fleiri niður í svaðið er óþarft og ódrengilegt.
Ég er alveg jafn hneykslaður á vinnubrögðunum og þið félagar Þorgeir og Jón en ég líka er á móti því að láta saklausa gjalda fyrir syndir annarra. Slíkt á ekki erindi á fjöllesinn opinberan vef opins klúbbs og er ekki til framdráttar.
16.03.2007 at 12:00 #584672Þetta er skýrsla frá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri sem er [b:2ferej1o]sjálfstæð eining[/b:2ferej1o] innan Háskólans á Akureyri. Upp á hana skrifar [url=http://www.rha.is/?mod=starfsmenn&view=one&id=52:2ferej1o]einn fræðimaður[/url:2ferej1o] sem jú er starfsmaður þessarar stofnunar. Þetta tvennt kemur skýrt fram á glærunum. Eftirtekt vekur að þetta er ekki á [url=http://www.rha.is/?mod=sidur&mod2=view&id=3:2ferej1o]verkefnalista[/url:2ferej1o] stofnunarinnar samkv. heimasíðu þeirra í dag. Hvorki í yfirstandandi né loknum verkerfnum.
Gerum ekki sömu mistök [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=umhverfismal/8708:2ferej1o]og við erum að gagnrýna aðra fyrir að gera[/url:2ferej1o].ES: timeoutið á síðunni er orðið stutt… eða ég farinn að skrifa of langt 😉 þið ráðið hvort það er.
16.03.2007 at 10:00 #584664Þetta hér angrar mig ennþá: "vegfarendur hafa greiðsluvilja". Ein af grundvallarforsendum hagfræðinnar er hinn skynsami maður (hæpin forsenda en svona er þetta víst bara…). Hinn skynsami maður situr í Reykjavík á sólríkum sumardegi (svo veðrið sé ekki vandamál) og hugsar: "Á ég að keyra 388km til Akureyrar í dag eða 341km og borga 2.000kr fyrir seinni kostinn?" Gefum okkur að þetta sé velakandi maður á stórum bensín fólksbíl sem eyðir 12L á hundraðið og kaupi bensín t.d. á Orkunni (110kr án orkukorts) þá sparast 640kr á þessari styttingu (ALLRI! ekkert verið að breyta hringveginum hér!). Eftir standa 1.360kr af veggjaldinu sem þarf að borga "fórnarkostnaðinn" þ.e. tímann sem færi annars til spillis. Á löglegum hámarkshraða er ég rétt rúmlega hálftíma að keyra 47km. Tímakaupið við aksturinn þarf því að vera um 2.720kr til að standa á sléttu (hagfræðilega *hóst). Hversu mikils virði er frítími manns? Er hægt að verðleggja frítíma eins og vinnutíma? Ég geri það ekki.
Svipaðir útreikningar sýndu að Hvalfjarðargöng myndu ekki vera notuð en raunin var önnur. Af hverju? Jú inn í göngunum er alltaf gott veður og uppistaðan í viðskiptavinum Spalar er að taka magn-afsláttarkjör (ég borga 253kr/ferð) og uppistaða viðskiptavina Spalar er að spara sér hlutfallslega meira af leiðinni (Vesturland – Rvk) en hlutfallið sem sparast á Ak – Rvk eða Self – Ak með tilkomu NV. Kostur ganganna framyfir þetta er líka að EF mann langar ekki til að borga í göngin er vegurinn um fjörðinn nálægur valkostur.
Þó ég sé ekki sérfróður um flutninga á landi þá væri gaman að sjá hvernig þessi tala fyrir hvern viðbótar kílómetra er reiknuð. Væntanlega er það eins með flutningabíla og aðra bíla að stórhluti kostnaðar er fastur en ekki breytilegur. Önnur spurning sem vaknar þarna er þetta kostnaður þess sem kaupir flutninginn eða þess sem flytur? Munu flutningaaðilar lækka sínar verðskrár til neytenda að fullu svo þessum sparnaði nemur eða gera eins og mörg veitingahús núna þegar VSK lækkaði stinga ágóðanum í eigin vasa?
Túrisminn er síðan enn loðnara fyrirbæri en ég vona að það verði meira af honum en er trukkaumferð rosalega túristavænt? Krítíski punktur held ég hefði verið að búa til passlega dagsferð. Kannski tekst einhverjum hugmyndaríkum aðilum að gera það með þessu en ég hef ekki séð annað en að [url=http://www.saf.is/saf/is/leit/frettir/Default.asp?ew_0_a_id=264709:11qd4dn1]SAF sé á móti[/url:11qd4dn1] framkvæmdinni svo eitthvað hafa þeir til síns máls, væntanlega eins og NV og aðrir hagsmunaaðilar.
Sú staðreynd að það eigi ekki að vera nein "þjónusta" á leiðinni er líka vafasamt. Yrði langt í næsta síma (mun GSM virka?) og næstu bensínstöð ef fólk verður bensínlaust (slíkt gerist). Það verður langt að bíða eftir aðstoð ef engin verður með fasta viðveru einhversstaðar á leiðinni t.d. ef veður er vont og fólk fer út af og festir sig. Ætlar lögreglan að [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=carmembers/4212/41042:11qd4dn1]aðstoða[/url:11qd4dn1] eða ætla Norðurvegur eða jafnvel við (aka Vegagerðin) að hafa aðila þarna á ferðinni eða á að treysta á hjálpsemi náungans sem er nýbúinn að borga 2.000kr fyrir að "spara sér tíma" með að keyra þarna yfir?
Ég hefði nú líka viljað sjá einhverja alvöru skýrslu með röksemdafærslum og nánari skýringum á punktunum á þessum glærum en ekki bara einhverja yfirborðskennda kynningu þar sem ekki er tekið á forsendum málsins. Merkilegt líka að þetta verk er ekki á [url=http://www.rha.is/?mod=sidur&mod2=view&id=18#2007:11qd4dn1]lista yfir verkefni hjá RHA[/url:11qd4dn1]. RHA og HA hafa unnið ágætlega hluti í gegnum tíðina, HA hefur haft gríðarlega góð áhrif á Akureyrarsvæðinu og RHA er viðleitni til að hafa verkefni af þessum toga víðar en bara í Reykjavík 101. [i:11qd4dn1]Alhæfingar um skólann og þessa stofnun innan hans út af frá þessu eina verki eru ekki til framdráttar fyrir málefnalega umræðu![/i:11qd4dn1] Hitt er rétt að í þessu tilfelli hefði verkkaupi átt að krefjast betra verks.
Auðvitað er hægt að smíða skemmtilega samsæriskenningu um þetta allt saman en hún á ekki heima á opnum vef og bíður því betri tíma.
Kveðja
Tryggvi R. Jónsson A-898
(sem er jú með eina prófgráðu frá Háskólanum á Akureyri… og fer 2-3 í mánuði Rvk-Ak-Rvk og ætti því að sjá hag í styttingu en [url=http://www.trigger.is/blog/archives/2007/02/07/11.30.00/:11qd4dn1]gerir það ekki út frá sínum forsendum[/url:11qd4dn1])
16.03.2007 at 00:22 #584172jæja nú er kominn háttatími á ykkur, svefngalsi og allt bara.
15.03.2007 at 11:01 #584158Nú eru ÍRA með [url=http://www.echolink.org/:3pv0g5uf]Echolink[/url:3pv0g5uf] á einum af sínum VHF endurvörpum til prufu. Það er dálítið snjallt consept sem væri gaman að skoða betur. Ætti í raun að vera lítið (*hóst*) mál að endurvarpa HF móttöku með tölvu yfir IP.
Alltof mikið af spennandi mögulegum í þessu dóti hvað svo sem það heitir HF eða VHF 😉
15.03.2007 at 10:55 #583840Goggi, ef ég man rétt (Siggi tæknó getur staðfest þetta) þá má fara á original skurðarskífunum í viktun fyrir breytingaskoðun. Það er verið að meta fjaðraða þyngd en ekki ófjaðraða til að draga frá burðargetunni. Stærri dekk og felgur (nokkur 100kg þar…) ættu því ekki að telja.
15.03.2007 at 09:52 #584152Svo eru [url=http://www.kenwood.com/i/products/info/amateur/ts_480/index.html:1a2kxqjv]þessar[/url:1a2kxqjv] dálítið djúsí. Reyndar fer þessi ekki upp á VHF sem er ákveðinn galli.
-
AuthorReplies