Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.03.2007 at 16:25 #586468
Örugglega best að kaupa loftnet og stöð hjá sama aðila, láta klippa loftnetið til fyrir rétta tíðni og standbylgjumæla þannig að allt passi saman.
29.03.2007 at 11:35 #586456Þær stöðvar sem eru "bara" marine virka auðvitað ekki en margar stöðvar geta örugglega dekkað bæði.
Flestar þessar marine stöðvar sem menn hafa verið að spyrja um hér hingað til hafa ekki heldur getað sent frá sér sítóna (t.d. [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/9472:334cld8l]hér[/url:334cld8l]) og virðast ekki ná nógu hárri tíðni fyrir sumar rásir 4×4. Auðvitað best að kíkja á speca fyrir hvert og eitt tæki (Frequency Range) en almennt séð þá virðist þetta vera svona þegar hlutirnir eru kallaðir "marine" eitthvað og eru þ.a.l. ódýrari sem er sennilega það sem menn eru að sækjast eftir.Ætli þessi VX stöð sé ekki bara ágæt undantekning. Hún er líka ekki hvít sem er mikill kostur 😉
29.03.2007 at 08:45 #586452VHF stöðvar þurfa að vera forritanlegar, geta sent frá sér sítóna (CTCSS) og geta sent og tekið á móti á tíðnisviðinu 153 – 164Mhz með FM mótun. Ekki er hægt að nota "Marine" stöðvar. Óleyfilegt að flytja inn stöðvar til Íslands sem eru ekki með CE merkingu. Einnig geta Evrópureglur um magnð óæskilegra efna í tækinu komið í veg fyrir innflutning.
Rásir 4×4 félagsins eru 14 og þarf að vera minni fyrir hverja þeirra til að geta notað þær. Söluaðili sér í langflestum tilfellum um að forrita rásirnar inn í minnin.
Nokkrir velþekktir framleiðendur:
Kenwood, söluaðili Radíóraf, týpur: TK-7080, TK-7060 og TK-7062
Yaesu, söluaðili, RSigmunds, týpur: VX-4xxx og VX-2xxx
ICOM, söluaðili Aukraf, t.d. IC-F110.Núna er t.d. VX-2xxx á tilboði hjá RSigmundssyni á 33.900kr til 4. apríl (samkv. auglýsingu).
Varðandi "dreifikerfi" þá ertu hugsanlega að vísa til endurvarpanna sem er bara hluti af notkuninni, VHF er oftast notað beint á milli bíla og dregur þá um það bil í sjónlínu. Endurvarpa má nota til að ná sambandi við bíl sem sér endurvarpann annars staðar frá. Sjá [url=http://www.f4x4.is/new/misc/default.aspx?file=31/25:1hc1xnpk]drægni endurvarpa[/url:1hc1xnpk].
28.03.2007 at 12:44 #586388Fyrst einhver var að forvitnast um veskið mitt þá nei… en það hins vegar rifnaði í sundur seðlahólfið um daginn og er ég því að leita að nýju og þolnara veski. Fílspungur er kannski rétta efnið 😉 Takk fyrir ábendinguna.
28.03.2007 at 10:07 #586374Bara staðdeyfa veskið og hafa gaman af þessu 😉
28.03.2007 at 09:50 #586368Sko ég ætla ekkert að skemma neitt fyrir þér Einar en bíllinn minn er sko ekkert keyrður HÁLFA leiðina neitt til tunglsins! Hann er sko bara alveg að smella í aðflug í þessum töluðu orðum 😉 og svo kemur hann til baka.
28.03.2007 at 09:15 #586360Ég keypti 15 ára gamlan bíl fyrir ári síðan og er kominn langleiðina með lista eins og sá Skuggalegi… enda örugglega í einhverju harla svipuðu. Fyrir mína parta er þetta búið að vera bæði fróðlegt og skemmtilegt. Þar sem þetta var nú líka fyrsti breytti bíllinn minn var dálítið gaman að prófa hvaða áhrif hitt og þetta hefur og það er lærdómsríkt. Svo fylgir þessu nú líka þegar það er á annað borð verið að rífa sig upp úr 38" í 44" að gera hitt og þetta "í leiðinni" 😉 Það er amk búið að vera mjög vinsælt hjá mér.
Eftirstendur að maður er með bíl í höndunum sem maður veit stöðuna á og það hvetur mann frekar til að halda í hann í einhver ár í viðbót í staðinn fyrir að kaupa aftur og eiga þá á hættu að þurfa að gera þetta allt aftur. Sumum finnst það auðvitað líka gaman og maður hefur alveg húmor fyrir svoleiðis fólk 😉
27.03.2007 at 21:48 #586266Iss!! Hver þarf dempara!
27.03.2007 at 21:22 #586262Nei fjandinn fjarri manni að hlusta á eitt eða neitt! Það er samt eitt sem ég vil HEYRA og það er hvenær ofurgræjan kemst út úr skúrnum og ekkert helvítis BULL!
27.03.2007 at 18:59 #586256Ég kem á NA-landið núna á föstudaginn, er bókaður í mat á föstudaginn langa en annars er allt wide-open og crazy-in-the-left-brain 😉 Skilst reyndar að Indjáninn hans Dodda sé eitthvað veikur á afturlöpp… verður maður þá ekki bara að leyfa Patrol að kippa í sig 😉 ?
27.03.2007 at 18:43 #586250Segi það Elli! Hvernig er það á ekkert að jeppast um Páskana fyrir norðan? Er enginn snjór? Er allt á floti? Er Patrol í skúrnum? Kemst hann ekki inn í hann fyrir Fordinum? Er búið að skrúfa fyrir bjórframleiðsluna á Árskógsströnd (Kaldi Rulez!)? …. Maður spyr sig!
26.03.2007 at 08:37 #586112Reyndar er sendistyrkur ekki vandamál á þessari tilteknu handstöð sem gummij var að tala um, hún er gefin upp fyrir 2,5W en er í raun minna. Ef menn ætla að kaupa þetta er mælt með (sjá linkinn hér fyrir ofan) að kaupa headset eða bora út mic-inn (ójá… there’s no replacement for displacement!).
Annars held ég að menn séu best settir með alvöru commercial stöð (þá í kaupum á VHF bílastöðvum). Einhversstaðar heyrði ég (án ábyrgðar) að þær væru vandaðari smíð. Amatörbúnaðurinn er ætlaður til notkunar á ákveðnu tíðnisviði sem liggur nokkuð langt frá 4×4 (c.a. 10Mhz) á VHF. Það má örugglega breyta þeim til að virka og vera með bandbreitt loftnet nú eða tuner. Fyrir mína parta þætti mér það of mikið vesen m.v. ávinninginn. Ef mann dauðlangar að nota eitt tæki þá er leyfilegt fyrir amtöra að láta forrita inn í commercial stöðina sína tíðnir t.d. endurvarpa á amtörtíðnibilinu á VHF. Held samt að það sé ekki "ideal" uppsetningin.
Basically… keep it simple s***** er reglan sem ég lifi eftir 😉
25.03.2007 at 22:10 #586100fær bara ágætis [url=http://www.g4ilo.com/jingtong.html:6089go7g]dóma[/url:6089go7g].
DingDongKveðja
Tryggvi
25.03.2007 at 21:43 #586096Þarf að vera hægt að forrita inn í minni á bilinu 153-164Mhz, þarf að vera hægt að nota CTCSS sítóna. Þetta útilokar t.d. "Marine" stöðvar.
Ávinningurinn af amatörstöð er auðvitað að geta notað tíðnibil amatöra, sem er t.d. 144-146MHz á VHF.
Ég veit ekki hvort að amatörleyfi hafi neitt að gera með þessa "skannera" þar sem það leyfi er bundið við ákveðin [url=http://ira.is/tidnisvid.html:3gu8rf8i]tíðnisvið[/url:3gu8rf8i].
Og nei Löggan ætti að vera safe þar sem þeir eru auðvitað farnir að nota Tetra 😉
23.03.2007 at 19:14 #585856Bílasmiðurinn, Bíldshöfða er með ódýr og ágæt vinnuljós. Hef séð svona tveggja peru græjur og þær lýsa vel.
23.03.2007 at 18:14 #585632Sama palllengd og allt? Nú þá finnst mér allt í lagi að þeir bjóði Powerwagon bara í 2500 en ekki 3500 😉 Magnað.
Hvernig kaupir maður bíl "óvart" ? Bara svona dettur um "bid" takkann á eBay? Eða hrasar inn fyrir þröskuldinn á bílasölunni og reynir að stoppa fallið með að grípa í penna sem er óvart ofan á "Kaupandi" línunni á samningnum? Nei bara spögúlera…
23.03.2007 at 17:44 #585628Þetta verður mjög áhugavert, en má maður spyrja af hverju 2500 en ekki 3500?
22.03.2007 at 08:55 #585364Maður lætur ekki einhverja schoolyard bullies ráða því hvað maður gerir og gerir ekki 😉
21.03.2007 at 18:33 #585360Þetta er allt saman sett í nefnd innan LC-gengisins sem hefur auðvitað fyrsta og síðasta orð um svona málefni.
Úrskurðar er að vænta á næstu vikum.
Vil svo óska félaga TF3QQ (aka Kúkú) til hamingju með leyfið 😉
Kv
Triple Whiskey (on the rocks please)
21.03.2007 at 00:00 #585346Aldrei hefur þráður á þessum vef tekið aðra eins beygju á jafn stuttum tíma! Ég vil óska öllum sem tóku þátt í "gjörningnum" til hamingju. Þið eruð öll snillingar! 😉
Kv
T
-
AuthorReplies