Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.04.2007 at 19:06 #589300
Sammála Palli, það má jafnvel gera þetta í Öskjuhlíðinni og enda í keilu og bjór í keiluhöllinni svona til að þeir sem þora ekki út fyrir 101 sjái sér nú fært að mæta. Annars býð ég mig fram í undirbúningsnefnd.
… if you can’t beat them… beat them harder!
24.04.2007 at 21:20 #589270Já, kannski er óvissan og ævintýrin einmitt ekki það sem jeppamenn eru að sækjast eftir! Synd og skömm ég var búinn að liggja yfir íslands-bókunum og kortunum alla vikuna til að eiga séns 😉
En hvernig ferðir eru það þá sem fólk vill? Engar ferðir? eða bara rúnt eftir þjóðvegi eitt?
24.04.2007 at 18:33 #589266Svo er alltaf hægt að taka plan Bé (x-B!) á þetta og fela fullt af grænum bjórdósum á Miklatúni og það lið sem finnur flestar dósir vinnur. Verst að það er ekki farið að grænka alveg nóg til að þetta sé áskorun.
24.04.2007 at 11:15 #200184Sælir
Eftirfarandi var auglýst á póstlista ÍRA og kannski sérstaklega ætlað að ná til þeirra sem voru á námskeiðinu og annarra amatöra:
—
Vildi vekja athygli þeirra sem voru á ÍRA námskeiðinu að loftnetsbyggingarkynningin sem Andrés talaði um fer fram annað kvöld, miðvikudagskvöld í Kiwanishúsi Mosfellsbæjar kl 20:00.Hugmyndin er að setja upp V á hvolfi fyrir innanlandstíðnina. Loftnet sem getur nýst bæði heima við og á ferðalögum. Æskilegt er að taka með sér vír 0,75q margþættan ca 40 metra og coax kapal, RG58 ca 20 metra. Þeir sem vila útbúa balun er bent á að hafa með sér bút af 100mm sveru plaströri.
—
24.04.2007 at 09:42 #588992x-S í Ritnefnd!
Svo er um að gera að skjóta spurningum á frambjóðendur þar sem á annað borð er slagur, hlýtur að vera eitthvað í starfi klúbbsins sem fólki er ekki sama um og vill vita hvar fólk stendur. Vilja til dæmis einhverjir einka(vina)væða the heck out of it? Á að setja jafnaðargjöld á alla alltaf allsstaðar? Á að setja stórt STOPP merki við hringstigann upp í Risið? Þurfa allir félagsmenn að skipta yfir í tvinn-bíla eða fara að keyra á bio-diesel?
23.04.2007 at 21:44 #588962Áróðursmeistarar og textahöfundar hafa setið sveittir yfir að setja saman yfirlýsingu, vefhönnuðir og tæknideild sett upp áróðurshorn á veraldarvefnum. Það virðist vera sem einhverjir xB, xD, xF, xS, xV og xI gaurar séu búnir að bóka allt húsnæði sem hægt væri að nota sem kosningaskrifstofur og hafa engan skilning á að einhverjir aðrir þurfi að komast að!
Það verður fundað á næstu dögum til að reyna að finna lausn á húsnæðisvandanum en þangað til verður boðið upp á [url=http://4×4.trigger.is/:qglrrfz7]virtual-framboðsskrifstofu[/url:qglrrfz7], alltaf [url=http://www.kaffitar.is/:qglrrfz7]heitt á könnunni[/url:qglrrfz7].
Kveðja
Tryggvi R. Jónsson
23.04.2007 at 00:48 #588952Jú rétt skal vera rétt. Ég hef orðið var við ákveðinn þrýsting síðustu daga um að gefa kost á mér sem aðalmaður í stjórn F4x4. Formleg tilkynning um það var send stjórn kl. 00:24 í dag 23. apríl.
Fréttastofa 4×4 skúbbaði víst fréttum af framboðinu en það átti að tilkynnast með tilheyrandi stefnuræðu og kosningaáróðri. Er slíks að vænta eftir nokkra kaffibolla í fyrramálið.
Ég hef allavega ákveðið að taka áskoruninni og hlakka mikið til málefnalegrar og skemmtilegrar kosningabaráttu.
Með framboðskveðju
Tryggvi R. Jónsson (A-898)
22.04.2007 at 22:10 #589178Þá verður bara haldinn einn aðalfundur í ár 😉
Kv
Tryggvi Fundaskelfir
21.04.2007 at 20:49 #588604Það eru bara að verða kynslóðaskipti í þessu eins og svo mörgu öðru.
21.04.2007 at 02:02 #588600Þetta er allt mjög aumt klór í bakann. Verst að bakkinn er langt í burtu og neglurnar löngu búnar hjá sumum.
Úlfahópurinn hefur ákveðið að bjóða öðrum þátttakendum í (áhættu)mat og að því loknu ætti þeim að vera ljóst að það sé best að halda sig bara heima þessa helgi.
18.04.2007 at 21:22 #588564Spurning um hvort maður þurfi að taka Xenonperurnar fyrir helgina til að eiga séns í ratleikinn? EÐA hvort það sé ekki bara málið að taka Ofsann í gíslingu og hafa í tengdamömmuboxi til að tryggja yfirburðasigur?
18.04.2007 at 20:52 #588558Ég hélt að það væru bara bjöllusauðir og bjölluspurningar í þessum ratleik ekki bölvaðar brelluspurningar. Það er greinilega verið að búa sig undir hvernig á að afsaka ósigurinn. Hið rétta svar er þarna eins og svo oft áður: "Já".
[url=http://en.wikipedia.org/wiki/All_your_base_are_belong_to_us:1k1oca7h]AYB[/url:1k1oca7h]
18.04.2007 at 20:35 #588552Þetta er sigrað game, þarf ekkert að fara neitt nánar út í það.
18.04.2007 at 20:14 #588548Sætið er laust ef þú vilt það. Gæti jafnvel verið leynivopn með í för!
Kv
Tryggvi HowlingCrazy Jónsson
17.04.2007 at 15:30 #587960Alveg snilldar [url=http://phx.corporate-ir.net/phoenix.zhtml?c=86334&p=irol-newsArticle&ID=984606&highlight=:zrw5s2hn]fréttatilkynning[/url:zrw5s2hn] frá Magna inc:
—
Magna confirms involvement in potential sale of Chrysler GroupAURORA, ON, April 13 /PRNewswire-FirstCall/ – Magna International Inc. (TSX: MG.A, MG.B; NYSE: MGA) today confirmed that it continues to review potential alternatives regarding the future of the Chrysler Group. Magna has previously commented that, as DaimlerChrysler is one of its largest customers, Magna is seeking a full understanding of the situation regarding the future of the Chrysler Group, and any constructive role Magna may play in a potential transaction.
There is no assurance that any transaction will result from Magna’s current involvement.
—Talandi um að segja ekkert í mörgum orðum 😉
17.04.2007 at 10:40 #588422Ágúst, hvernig er með sjálfskiptinguna hjá þér (ert með A440F ?) og þessi dekk. Er hitinn ekkert að plaga þig? Er dótið frá Ástralíu að virka vel?
13.04.2007 at 12:34 #587838Ég spáði í þetta með fólksbíl fyrir nokkrum árum, sennilega stuttu eftir verðlagsbreytingar á díselolíu, því það átti nú að vera svo umhverfisvænt. M.v. listaverð á nýjum fólksbíl og uppgefinn mun á eyðslu í prósentum hefði það tekið mig m.v. 25-30 þúsund kílómetra keyrslu á ári [b:czxnrjfv]sjö ár[/b:czxnrjfv] að fara að finna fyrir einhverjum hagnaði af díselolíubílnum. Ég ætlaði að skoða þetta aftur núna nýlega en þá var ekki lengur til díseltýpa af viðkomandi fólksbíl. Það hefur nú hingað til gengið illa að fá einhverjar eyðslutölur sem mark er á takandi svo sennilega þarf þetta að vera áfram "huglægt" mat hvers og eins 😉
En svarið er samt eins og Hjörtur benti á alveg augljóslega [url=http://www.42.is/:czxnrjfv]42![/url:czxnrjfv]
10.04.2007 at 18:28 #587544… þarf maður ekki að mæta á réttum dekkjum í breytingaskoðun?
Kv
Tryggvi SemÁEkki44"ennþá…
10.04.2007 at 09:58 #587524Ég lét splæsa minn Ísfells-spotta (nú lengst út í Hfj) báðu megin, sumir sem ég þekki hafa látið setja einhverjar nælonhulsur innan í (Ísfell græjar það líka) áður en splæst er. Ef það er vandamál að koma spottanum í þá er ég með nokkra lása (líka frá Ísfell) og hingað til hef ég getað fest saman nokkurn veginn allt sem mig langar með þessu "combo"-i. Ég set oft lásinn í festingu á bíl (t.d. fólksbíla-size festingu) og læt teygjuspottann í C hlutann af lásnum til að fá ekki hvassar brúnir sem geta skemmt kaðalinn í átaki. Fyrir tvo lása (6t) og 18m af 28mm kaðli splæstum í báða borgaði ég tæplega 12.000kr og finnst þetta alveg peninganna virði.
Ég er hrifinn af systeminu hjá Lalla, svona ef maður man eftir að festa það í eitthvað gáfulegt 😉
29.03.2007 at 18:13 #586472Ég sagði þetta nú aðallega vegna þess að ég vantreysti sölumönnum (upp til hópa) og finnst voðalega gott að hafa verslað allan "pakkann" á sama stað. Ef eitthvað virkar þá ekki er ekki hægt að senda mann á milli aðila og vísa á einhvern annan. Svona ef maður er á annað borð að kaupa en ekki smíða sjálfur 😉
-
AuthorReplies