Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.06.2007 at 09:56 #592338
og þetta virkar líka svona ljómandi ljúft! Takk.
11.06.2007 at 07:21 #592332góðar breytingar en gerðist eitthvað afbrigðilegt við myndirnar í myndasafninu eða er ég bara byrjaður að tremma eftir helgina?
11.06.2007 at 05:01 #591624Var í þessum orðum skrifuðum að detta inn í Vesturbæinn. Þakka kærlega fyrir gott kvöld og bróðurpart úr nótt. Þetta eru alvöru menn og ánægjulegt að aðstoða þá.
Þakka fyrir mig!
Komnar nokkrar [url=http://www.trigger.is/gallery2/trips/hekla-20070710:37wfhya9]myndir[/url:37wfhya9] úr leiðangrinum.
10.06.2007 at 16:05 #591618Já það leynist oft fróðleikur í pósthólfinu hjá manni.. sjáumst í kvöld.
10.06.2007 at 15:13 #591614Valur, fékkstu ekki póstinn frá Sverri (kl 13:08)? Víst öruggara að setja þetta hér líka… góð ábending.
Planið er amk núna að vera við Landvegamót kl 21:00 í kvöld og gæti ferðin dregist fram á nóttina.
Úr pósti Sverris:
Frá Vegamótum að Heklu eru um 50 km., gangan tekur ekki minna en 3-4 klst. og heim á höfuðborgarsvæðið verður því varla komið fyrr en um kl. 3-4 í nótt. Ekki er víst að þið getið öll verið svo seint á ferð og því bið ég þau ykkar sem kynnuð að sjá ykkur tilneydd að hætta við ferðina, að láta mig vita. Æskilegt væri að ekki yrðu færri en 3-4 vel búnir bílar í ferðinni.
—
09.06.2007 at 19:04 #592248Tja, eins og sum kortinu eru þá mun nýi vegurinn fara yfir þann gamla á nokkrum stöðum.
Það er samt ekki alltaf nauðsynlegt að vera í meirihluta bara hafa [url=http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1274062:1599epki]ákveðna aðila í sínu liði[/url:1599epki].
06.06.2007 at 10:08 #510678Benni greinilega með sólsting eftir veruna á þakinu (var eins og köttur á heitu tinþaki…) í sólinni á Akureyri 😉
05.06.2007 at 00:48 #591550Bættu mér endilega á þennan lista, skal leggja til Toyotuna mína í þetta.
04.06.2007 at 23:34 #2003914. júní – Sal FÍ Mörkinni
1) Innanfélagsmál
1a) Starf stjórnar
Agnes sagði frá starfi stjórnar frá aðalfundi. Áberandi hafa verið heimsóknir á aðalfundi landsbyggðardeilda. Ýmsar deildir koma að Sumarhátíð og síðan ætla Suðurnesjamenn að bjóða í dagsferð um Reykjanesið í október.
Náðst hafa samningar um fjármögnun eldri jeppa við SP og verður það kynnt í haust en hægt er að fá nánari upplýsingar hjá SP.
Regatta búðin bíður upp á merkta jakka á 7400kr, hægt er að fá merkingu (F4x4 merki og nafn og jafnvel félagsnúmer) í MERKT sem er við hliðina á Regatta búðinni.1b) Umhverfisnefnd
Skúli sagði frá útfærslu á aðkomu SAMÚT að Vatnajökulsþjóðgarði. SAMÚT fær áheyrnarfulltrúa í stjórn og einn mann í hvert svæðisráð. F4x4 á einn af þeim og FÍ þrjá. Ýmislegt annað hefur komið á borð umhverfisnefndar m.a. enn einn nefnd um vegi á hálendinu…1c) Sumardagskráin
Tryggvi fór yfir sumardagskrána:
* Landgræðsluferð 22. – 24 júní í Mörkina, mjög líklega síðasta ferð f4x4 þangað enda góðra verka þörf víðar.
* Sumarhátíð 20. – 22. júlí í nágrenni Víkur.
* Veiðiferð (dagsferð) 12. ágúst
* Stikuferð verður í lok ágúst eða sept eftir verði og leyfum
* Fjölskylduferð í Setur 30. ágúst – 1. sept.
Einnig var uppljóstrað um að ljósmyndakeppni væri í farvatninu og því um að gera fyrir félagsmenn að munda myndavélar í sumar!
Árshátíð F4x4 verður 3. nóvember og að haldin þetta árið á hinum margrómaða höfuðstað Norðurlands, Akureyri.
Einnig eiga félagsmenn að taka frá helgarnar í kringum 10. mars 2008 en þá verður klúbburinn 25 ára!2) Shell
Fulltrúi Shell ræddi um afslætti og ýmislegt eldsneytistengt. Vegna tæknilegra vandræða komst hann þó ekki með kynninguna sína en verður vonandi hægt að taka þann hluta í haust. Nokkuð var spurt út í afslætti og einhver tæknileg vandræði eru í kringum þá sem eru ekki að nota kassakerfið og sjálfsala. Þeir sem vilja vera vissir um að geta nýtt sér kjörin geta sótt um viðskiptakort Shell. Gefur það einnig afslátt af smurningu og vörum hjá Stillingu. Spunnust upp ágætis umræður um þróun dísel vs. bensín notkunar og þrátt fyrir slappt gengi Ferrari þá var V-Power hampað…3) Kaffihlé … prins póló í tilefni sumars
4) Myndasýning
Sýnd voru tvö myndbönd, svo nýklippt að þau voru ennþá volg. Það má segja að það hafi tekist að fanga ágætlega stemmingu síðasta árs í myndum, hreyfimyndum, tónlist og tali…
25.05.2007 at 16:05 #591524Getum reddað þessu með að hafa bara gamla símann beint í rafmagn, algerlega gagnslaus nema lýsingin í tökkunum 😉
25.05.2007 at 15:58 #591520Nei það þarf víst að endurnýja græjurnar, nýr staðall o.s.frv. Finnst nú lágmark að maður fái að skila gamla NMT og fá einhverjar krónur upp í nýja græju 😉
23.05.2007 at 20:47 #591098Jú verður maður ekki að viðra hann aðeins um helgina 😉
23.05.2007 at 20:30 #591094Nei… UR-ið er ekki selt og er ekki til sölu 😉 Enda þarf maður að klára þau verkefni sem maður tekur að sér.
23.05.2007 at 19:38 #591088Ætli það endi ekki þannig að maður kíkir á föstudagskvöldið. Það er víst búið að tví og þríbóka mann en auðvitað reynir maður að klóna sig.. síðustu forvöð.
Maður verður nú samt að bruna á nýja bílnum til að prófa 😉
22.05.2007 at 00:53 #591416Sæll
Þeir félagar hjá [url=http://kliptrom.is/nyjungar.htm:65wqoou9]Kliptrom[/url:65wqoou9] á Akureyri eru með svona græjur, myndi hringja í þá og kanna hvort þetta sé bara ekki alveg málið: 466-2111
21.05.2007 at 23:35 #591366Manni var nú ekki vor í huga í morgun en hvað um það. Hvað þykir mönnum nú um [url=http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1270613:1f4covol]undanþágu vegna hreindýraveiða[/url:1f4covol]? Gefur ákveðið fordæmi er það ekki þar sem þarna er vísað til "Leiðsögumaður metur það svo að ekki sé hætta á náttúruspjöllum." ?
21.05.2007 at 12:40 #591410Það gæti verið að þeir geri eitthvað svipað fyrir drægnina í þessu eins og þeir hafa verið að prófa með Tetra. Minnir að það hafi einmitt tvöfaldan drægni.
Stefnan er að ná CDMA-mönnum með kynningu á félagsfund í haust þegar þeir hafa náð sér í meiri hands-on reynslu af kerfinu.
21.05.2007 at 11:33 #200344Úr frétt:
Kostir þessa nýja kerfis eru talsvert fleiri en gamla NMT kerfisins og munar helst um aukinn hraða í gagnaflutningum. Nýja kerfið mun hafa sömu langdrægni og NMT eða vel yfir 100 km við góðar aðstæður. Gagnaflutningshraði verður hinsvegar 100 sinnum meiri en í NMT kerfinu eða allt að 2Mbs sem gerir fólki kleift að tengjast internetinu á mjög hraðvirkan hátt. Þetta mun hafa gífurleg breytingu í för með sér fyrir fjallafólk, sumarbústaðaeigendur sem eru fjarri GSM og internetsambandi og býli sem staðsett eru utan alfararleiðar. Einnig mun kerfið ná út á miðin í kringum landið með sömu útbreiðslu og NMT gerir í dag.
19.05.2007 at 14:32 #591048Til hagsbóta fyrir alla þá held ég að það sé best að þau Ha og Hm ræði þetta mál bara yfir varðeldinum einhvern tíma í sumar 😉
Það er bara fínt mál að vera í samfloti eða í humáttinni frægu til að vera á svipuðum slóðum á tjaldstæðinu. Held að það hafi nú upphaflegi punkturinn með þessu var það ekki? Leiðinlegt að fara saman í hóp sem hefur svo tjaldað út um allt.Ég er annars að spá í að kíkja á laugardaginn og rúnta með og jafnvel skella einhverjum lufsum á grillið. Blessunarlega er ég ennþá myndavélarlaus þannig að það verða engin sönnunargögn til 😉
Kveðja
Tryggvi
16.05.2007 at 23:49 #591196Já hér með staðfestist að það var súludans, hreyfimyndir (með ógurlegum hljóðum) og margt fleira skemmtilegt á bjórkvöldi Eyjafjarðardeildar. Þakka kærlega fyrir mig og ég lofa hér með að mæta í 13. ferðina á næsta ári!
-
AuthorReplies