FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tryggvi R. Jónsson

Tryggvi R. Jónsson

Profile picture of Tryggvi R. Jónsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 1,364 total)
← 1 … 26 27 28 … 69 →
  • Author
    Replies
  • 01.10.2007 at 22:33 #598218
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég tók nú einmitt BÍ sem dæmi sérstaklega fyrir þig 😉 Ég sá nefnilega ekki í siðareglunum að það væri hægt að reka neinn úr félaginu fyrir brot á reglunum. Ég held að einu svoleiðis dæmin séu læknar og lögfræðingar, sama "vandamál" er einmitt hjá kennurum, engin viðurlög og hver tekur svoleiðis alvarlega.
    En auðvitað komst punkturinn hjá þér til skila, og hann er mjög góður líka. Á sama hátt eiga þessar reglur auðvitað samsvörun í fjarskiptalögum og lögum um persónuvernd.

    Ég hef trú á að jafningaeftirlitið skili sínu með tímanum og að þetta sé skref í rétta átt, hænuskref kannski en skref þó. Held svo að reynslan af þessu í raun og veru færi okkur vitneskju um hvað sé næst í stöðunni.





    01.10.2007 at 16:54 #598374
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Mæli með að spjalla við hann félaga okkar Kidda B á Selfossi, [url=http://www.f4x4.is/new/ads/default.aspx?file=aukahlutir/20744:2wb2okks]hann á oft ýmislegt fyrir þessa bíla[/url:2wb2okks]. Það er spurning með rafþegarýmið, LC80 snorkelið er auðvitað á hitt brettið, það gæti verið hægt að græja eitthvað svona "just in case" en á nokkuð að fara að kafbátast ennþá meira?





    01.10.2007 at 16:44 #596944
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Heiðar ég treysti engum, enda grimm viðurlög við því að gera það þannig að ég setti mig bara alveg sjálfur í samband við hana Svölu hjá KEA (svala@keahotels.is) og við sömdum milliliðalaust… Enda eins gott því maður vill ekki lenda á borði með hverju sem er!





    01.10.2007 at 16:30 #596934
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Á maður að láta vaða og eiga á hættu að stjórnarsamstarfið leysist upp eða á maður að sanna enn og aftur að við Norðanmenn séum betur aldir upp en sunnlendingar?

    … bætist alltaf á listann yfir það sem verður spennandi að sjá á árshátíðinni: Hver er herbergisfélagi Dúkkunnar OG mun stjórnin sitja sátt við sama borð???





    01.10.2007 at 16:15 #596930
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þá latex? væntanlega gúmmíið alveg out nú til dags.





    01.10.2007 at 15:53 #596924
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    …. bíddu ertu að segja mér að Dúkkan sé búin að versla sér aðra dúkku til að deila herbergi með? Er það ekki fulllangt gengið í gúmmívæðingunni?





    01.10.2007 at 15:41 #598212
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Áhugamannafélög geta auðvitað ekki sektað einn eða neinn. Það ætti að vera hægt að vísa svona málum til opinbera aðilans sem ber ábyrgð á þessum málum. Það yrði væntanlega leiðin sem væri fyrst farin ef klúbburinn telur brotið á hagsmunum sínum með stórfeldum hætti. Það má hins vegar reyna að fara samningaleiðina en ef við höfum engin "spil á hendi" þá er alveg gefið mál að við höfum ekki erindi sem erfiði. Með því að setja reglur og kynna þær höfum við þó betri samningsstöðu en án þeirra.

    Það má nota sömu rök (engin viðurlög) til að skjóta niður langflest sem er verið að gera utan réttarkerfisins og sumt innan þess. T.d. siðareglur blaðamanna (hvar eru viðurlögin?), siðareglur kennara (hvar er hegningarákvæðið), persónuverndarlög (þar er ekki hægt að áfrýja frekar en hjá BÍ), húsreglur fjölbýlishúsa… og svo mætti lengi lengi telja. Okkar eigin Skálareglur til dæmis…

    Ég er ennþá svo ungur og bjartsýnn á mannlegt eðli að ég trúi ekki öðru en þeir sem hafi sameiginlegra hagsmuna að gæta geti komið sér saman um ákveðnar umgengnisreglur um sameiginlegar auðlindir án þess að það þurfi að vera refsivöndur yfir öllu saman.

    Hlutverk reglna á ekki að vera að leita tækifæra til að refsa fólki heldur reyna að stýra hegðun þannig að sem flestir geti notið þessara sameiginlegu auðlinda í sátt og samlyndi. Það má auðvitað kalla slíkar leiðbeiningar leiðbeiningar eða skilmála ef fólki líður betur með það en mér finnst alltaf best að kalla hlutina því nafni sem er mest lýsandi.





    01.10.2007 at 11:46 #598296
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er spurning hvort söluaðilar myndu geta notað listann ef hann væri aðgengilegur félagsmönnum eingöngu? Það eru auðvitað aðilar sem vinna hjá flestum fyrirtækjum landsins sem eru í félaginu, þ.m.t. Brimborg.

    En þessi hópur er helv.. harður, ef það kæmi ein svona fjöldasending á félagsmenn þá væri orðspor þess fyrirtækis DAUTT og enginn jeppamaður myndi versla aftur við það. Látum ekkert vaða yfir okkur á skítugum inniskónum.





    01.10.2007 at 10:58 #598346
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Undir Fróðleikur -> Hjálparsveit er [url=http://www.f4x4.is/new/files/archive/gatlisti_farid.pdf:3o7o66f6]Gátlisti úr Farinu[/url:3o7o66f6]. Síðan var á sveimi listi frá Freysa sem var … "alvöru" held að hann sé [url=http://slydda.a47.net/article.php?story=20050930122030331:3o7o66f6]hér[/url:3o7o66f6].





    01.10.2007 at 10:22 #598202
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég játa að ég er dálítið sammála EIK núna (úf nú vantar mig eitthvað sterkara en kaffi!). Spurningar Einars Elí eru hins vegar góðar og ég ætla að taka þær fyrir sem tengjast ekki breytingatillögu Dags/Ofsa á 1. greininni. Ég ætla að leyfa þeim að svara fyrir sínar hugmyndir. Ég skal hins vegar taka það sem er í núverandi útgáfu laga. Auk þess, byggt á góðum ábendingum hafa komið fram hér eru komin drög að endurbættum reglum. Ég vil samt endilega fá fram sem flest sjónarmið og skoðanir svo að sú útgáfa geti orðið betri.

    -Hvar falla amatörstöðvar undir reglugerðina? Eru þær samþykktar?

    Amatör stöðvar má eingöngu nota á amatörtíðnum svo þær eru samkv. reglugerð um radíóamatöra ekki leyfilegar á VHF rásum F4x4.

    -Liggja viðurlög gegn því að nota ekki viðeigandi kallmerki?

    Í drögum að endurbættum reglum sem er byrjað að vinna er ákvæði um hvert skuli tilkynna brot (fjarskiptanefnd). Hvort viðurlög verði höfð gagnvart félagsmönnum fyrir "léttvægileg"brot er óvíst. Held jafnvel að þarna gæti smá jafningaþrýstingur verið öflugra tól eins og EIK segir heldur en formleg viðurlögæ. Aðaltilgangur þessara regla var að gera okkur mögulegt að verja hagsmuni félagsmanna gagnvart sjóræningjanotkun þeirra sem eru að nota kerfið í leyfisleysi í atvinnuskyni.

    -Hver eru þau viðurlög og hver sér um að framfylgja þeim?

    … sjá að ofan. Viðurlög beinast aðallega að ytri aðilum. T.d. með því að senda þeim sem misnota kerfið í atvinnuskyni reikning fyrir notkuninni.

    -Er kærunefnd, eða sambærilegt batterí, til staðar til að kæra úrskurði eftirlitsaðila?

    Í áðurnefndum drögum er vísað til fjarskiptanefndar sem þess aðila sem á að framfylgja. Skipurit klúbbsins myndi benda til að hægt væri að kæra úrskurð til stjórnar og síðan til aðalfundar.

    ….

    Gleymum samt ekki að fyrst og fremst er tilgangur með því að setja þessar reglur að verja það kerfi sem félagsmenn hafa borgað fyrir uppbygginguna á með félagsgjöldum sínum fyrir stórfeldri misnotkun. Til að klúbburinn geti varist slíkri misnotkun þarf hann að hafa eitthvað í höndunum.

    Það er mín skoðun (og þarf ekki að endurspegla skoðun þjóðarinnar) að reglur eigi að vera einfaldar og framfylgjanlegar eins og kostur er hverju sinni. Þær eiga heldur ekki að vera íþyngjandi og skapa meiri kostnað en mögulegur sparnaður af þeim kann að vera.

    Og já, hárrétt hjá Klakanum. Það eru almenn trúnaðarákvæði í fjarskiptalögum en mér finnst góð ýsa aldrei of oft freðin 😉

    Vona Einar að þetta hafi svarað einhverjum af þínum spurningum á fullnægjandi hátt.





    01.10.2007 at 09:42 #598282
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú jú en þarna er bara verið að taka um "dautt" eintak af félagsnr og nafni. Til viðbótar þarf að hugsa til framtíðar, viljum við hafa þetta á vefnum, prentvænt, hvað á að vera, hver uppfærir, o.s.frv… Til að vita hvað félagsmenn vilja og þurfa þarf að skapa umræðu og það er eitthvað sem vefurinn hentar mjög vel í 😉





    30.09.2007 at 20:54 #598186
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    … mjög góð spurning, verður gaman að heyra hvað þeir Dagur og Ofsi höfðu í huga 😉





    30.09.2007 at 18:19 #598276
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þessi "spáing" var einmitt inni frá upphafi, ég sagði: "Þessu mætti mæta með því að menn gætu beðið um "bannmerki" eins og í símaskrá að þeirra upplýsingar séu ekki birtar". Það er einhvern veginn mín tilfinning að þetta séu fáir og því "opt-out" ásættanlegt. En hversu langt vilja hörðustu menn (og nú verða þeir að láta í sér heyra…) ganga? Vilja þeir ekki að nafn sitt komi fram á listanum heldur eða snýst þetta bara um símanúmer?

    En það þarf greinilega að gera tvennt, vefútgáfu sem er hægt að sía og flokka eftir deildum (og jafnvel fleiri hlutum) og svo "prentvæna" útgáfu með félagsnr, nafni og (helstu) númerum.





    30.09.2007 at 16:21 #598260
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég er búinn að vera að pæla í þessu [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/8241:20hjexbh]dálitið lengi[/url:20hjexbh], byrjaði á að vera spenntur fyrir Lightforce en núna er IPF 930 að koma sterkir inn, held að ég hafi svei mér þá séð þá á tilboði hjá Bílabúð Benna á 11-12þ kr stykkið (gæti verið misminni eða skynvilla). Sem er bara ágætis verð fyrir allt þetta ljós. Hvað ætli maður komi mörgum framan á bílinn hjá sér?

    Nú er farið að dimma aftur svo ég þarf víst að fara að fara að gera eitthvað í þessu.





    30.09.2007 at 14:26 #596908
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Sýnist 72 vera skráðir eins og staðan er eftir síðustu uppfærslu.
    Nú fara heimamenn að taka við sér sýnist mér.. hver ætlar að vera nr 100??





    30.09.2007 at 14:11 #598324
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Væntanlega er skýringin að þetta er tekið úr skráningunni í klúbbinn, ef þetta er ekki rétt þá endilega hafðu samband við skrifstofuna: f4x4@f4x4.is.
    En auðvitað ætti að vera möguleiki fyrir félagsmenn að hafa þetta rétt, hvort sem það er með því að uppfæra sjálfir eða sækja úr þjóðskrá.
    Kemur á réttum tíma þegar það er verið að pæla í félagatali á vefinn 😉





    30.09.2007 at 14:02 #598268
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Vefurinn undir innanfélagsmál, gott það. Hvað svo? Ég bjó mér til blað einhvern tíma með helstu númerunum sem ég gæti þurft að nota hjá vinum og vandræðamönnum, plastaði og er með úti í bíl. Ég á nú bara blessunarlega svo fáa vini að þetta komst á eina síðu (prentað báðu megin að vísu…). Gæti það verið eitthvað sem væri bara hægt að búa til á vefnum? Sía t.d. niður á sína deild og segja: "Prenta" ?





    30.09.2007 at 12:42 #200888
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þetta er eitthvað sem er búið að vera í umræðunni lengi og margar mismunandi skoðanir á þessu.
    Nýjar fjarskiptareglur koma inn á þetta og til að það gangi upp þarf að vera til einhver leið fyrir almenna félagsmenn að vita hver er félagsmaður og hver ekki.
    Deildirnar okkar hafa þetta einfaldlega á vefnum hjá sér, félagsnúmer, nafn, símar og allt.
    Það er til skjal með grunnupplýsingum, númer, nafn, kennitala, heimilisfang. Útprentað svona 64 – 148 A4 blöð eftir því hvernig maður reynir að troða á síðurnar. Þarna vantar alveg öll símanúmerin og sumir hafa mörg. Félagsmenn eru orðnir margir og það setur ákveðnar skorður á hvað er hægt að gera með svona „doðrant“.

    Hverjir eiga að vera í félagatalinu?
    Svo er annað sjónarmið að vilja ekki að neinar upplýsingar um sig séu aðgengilegar t.d. á vefnum. Þessu mætti mæta með því að menn gætu beðið um „bannmerki“ eins og í símaskrá að þeirra upplýsingar séu ekki birtar.

    Hvað þarf að vera í félagatalinu?
    Félagsnúmer, nafn og upplýsingar um símanúmer sérstaklega farsíma (gsm,nmt,tetra,etc). Hver á að sjá um að þetta sé uppfært og rétt? Félagatalið sjálft er bara númer, nafn, heimilisfang og kennitala. Væri jafnvel ein lausnin að hafa bara félagsnúmer og nafn og svo pláss fyrir aftan hvert nafn til að menn gætu fært sjálfir inn á sitt eintak þau símanúmer fyrir þá aðila sem þeir vildu hafa upplýsingar um af vefnum?

    Svo mætti líka setja á lokað svæði bara lista um hvað séu gild félagsnúmer:
    A-1 til A-xxx
    X-1 til X-xxx
    R-1 til R-xxxx
    o.s.frv.





    30.09.2007 at 12:05 #598170
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég er rosalega hrifinn af tillögu Dags um 9. greinina, viss um að ég á eftir að stela henni "in broad daylight" frá honum við tækifæri 😉

    Varðandi hverjir eru gildir og ekki… þá kallar þetta á félagatal í einhverju formi í einhverri útfærslu og er það alveg önnur umræða. Þessar reglur búa samt til pressu á klúbbinn að hafa slíkt, sem er bara gott mál. Sú umræða er hins vegar að öðru leyti ótengd þessum reglum og ætla ég að starta öðrum þræði um það.





    30.09.2007 at 09:54 #598158
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Kallmerkin:
    Það má etv segja að þetta sé svona "light" útgáfa af radíóamatöra reglunum. Þar sem fjarskiptin eru nú meira secondary hlutur hjá jeppamönnum þó nauðsynlegur sé þá er þetta aðeins léttari krafa. E.t.v. væri mjög sniðugt að taka sérstaklega fram í samskiptum milli hópa eins og Laugi nefnir. Kannski verður raunin sú að það er best að fara alla leið út í byrjun, með reglulegu millibili í löngum samskiptum og í enda þeirra. Þar sem engin notkun kallmerkja er í dag er þetta eitthvað sem mér finnst eðlilegt að þróist og alveg klárt að reglurnar verða bættar þegar reynsla er komin á hvernig þetta er í raun að virka. Félagatal, jú það er mál sem er í vinnslu en auðvitað ekki allir á eitt sáttir um hvernig eigi að tækla þau mál (meira um það seinna samt).

    Varðandi upptökur þá kom þetta inn sem almenn (etv óþörf) krafa til að verja einkalíf fólks. Upptökur sem beinast ekki að kerfinu sjálfu myndi ég ekki túlka sem svo að færu undir þessar reglur, t.d. ef það er verið að taka upp videó í bíl. Það mætti s.s. ef talstöðvasamskiptin þjóna engum tilgangi skipta hljóðrásinni út fyrir einhverja góða tónlist. Það sem þessi grein beinist hins vegar að er t.d. ef einhver er með stöð á okkar rásum og upptökubúnað tengdan við og tekur upp öll samskipti sem eiga sér stað, nú eða ef það væri upptökutæki tengt á endurvarpa eða slíkt. Það sem ég vil kalla tilfallandi upptökur eins og myndskeið þar sem tilgangur upptökunnar er annar en að safna samskiptum saman er varla hægt að setja reglur um. Ég hins vegar hefði gjarnan viljað koma betri orðum að þessu til að akkúrat þessa gerð af misskilningi. Allar tillögur eru velkomnar að sjálfsögðu.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 1,364 total)
← 1 … 26 27 28 … 69 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.