FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tryggvi R. Jónsson

Tryggvi R. Jónsson

Profile picture of Tryggvi R. Jónsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 1,364 total)
← 1 … 23 24 25 … 69 →
  • Author
    Replies
  • 23.10.2007 at 12:19 #600464
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þegar ég heimsótti PFS í síðustu viku sá ég háa bunka af óafgreiddum tilkynningum um bæði nýjar stöðvar og breytingar á eigendum stöðva. Ef söluaðilinn hefur staðið sig og sent þetta inn og þetta hefur ekki týnst og allar upplýsingar voru til staðar þá ætti þetta að koma einhvern tíma. Mín tilkynning t.d. stoppaði vegna þess að álfurinn ég hafði ekki sett félagsnúmerið mitt sem kallmerki á tilkynninguna.
    Ég gerði óformlega könnun á Landsfundinum um helgina og mér sýndist að það væri ekki nema svona um það bil helmingur fundarmanna sem hefðu fengið leyfisbréf frá PFS vegna sinna stöðva. Fyrir því geta auðvitað verið margar mismunandi ástæður, feill söluaðila að senda inn, gögn vantað, umsókn týnst hjá PFS, tilkynning gleymst við eigendaskipti og ýmislegt fleira.
    Það komst reyndar skriður á þetta mál aftur í síðustu viku eftir dálítið hlé og það gætu því dottið eitthvað inn af eldri tilkynningum.





    23.10.2007 at 12:03 #600696
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég man reyndar ekkert eftir þessum Ella þarna, rámar í einhvern annan Ella, en það gæti auðvitað verið allt önnur Ella.. nema Ella sé.
    Ég man hins vegar ekki eftir neinum vandræðum enda allt sem gerðist eftir klukkan hálf níu um kvöldið mér algerlega hulið.





    23.10.2007 at 10:16 #600460
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þeir sem eru skráðir í deild, t.d. Eyjafjarðardeild eru að greiða 75% af sínu gjaldi til deildar en 25% til "móðurfélagsins". Fyrir R-númer fer þetta allt á sama stað.

    Já það er rétt Kiddi, það stendur á Shell kortunum að þau renni út en samkvæmt (áreiðanlegum) heimildum frá Shell þá renna kortin/félagsskírteinin okkar ekki út þó það standi á þeim. Hins vegar ef kortin verða ónýt t.d. ef einhver á Wrangler með þotuhreyfil á toppnum skemmir kortið sitt þá er auðvelt að panta nýtt í gegnum skrifstofuna okkar.





    22.10.2007 at 18:51 #600450
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er víst búið að ganga frá þessu fyrir R-númerin en aðrir eru í vinnslu. Ég er einmitt ekki búinn að fá gleðina senda enda með A-númer 😉





    22.10.2007 at 18:48 #600446
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Kiddi, það kemur er það ekki bara þessi fíni límmiði til að smella á kortið? Það var svoleiðis í fyrra 😉
    En já… jújú Ofsa finnst allt skrítið sem kemur frá Póst- og fjarskiptastofnun, það er dálítið til í því hjá honum stundum. En þetta er auðvitað líka óstaðfest… og sérkennilegt líka. Það væri samt fróðlegt að sjá þessa rukkun fyrir 2.500kr er ekki eitthvað tekið fram fyrir hvað hún er ? Það hjálpar reyndar ekki ef þær skýringar eru jafn "góðar" og þær sem voru á leyfisgjaldareikningunum sem komu til klúbbsins.. sjísh!





    22.10.2007 at 18:39 #600684
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Benni Ak er LANGflottastur
    Árshátíðin var LANGflottust
    Akureyri er LANGflottust
    Danssveit Ofsans… LANGflottust





    22.10.2007 at 17:57 #600438
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þessar 2.500kr til PFS eru vegna útgáfu leyfisbréfs sem þú átt að fá fyrir stöðinni þinni og er svona "one time" gjald vegna útgáfu þess bréfs. Ég sá svona bréf um daginn og þetta er voðalega flottur pappír 😉





    22.10.2007 at 16:46 #600628
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Svona til að taka af allan vafa þá eru þetta stjórnarmenn Skagafjarðar Group:
    [img:laup8vuo]http://www.trigger.is/gallery2/d/177099-2/IMG_6338.jpg[/img:laup8vuo]





    22.10.2007 at 16:39 #600666
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég á svona 276 eða einhvern forvera þess. Þetta er að mínu mati mjög skemmtilegt tæki, hægt að hafa bæði í automotive og marine ham og þess eini galli í lífinu er lítill skjár. Það má auðvitað laga með því að hafa tölvu tengda við og MapSource. Það er í raun mín eina kvörtun með þetta tæki, frábært að hafa smá batterí til að geta kveikt á því inni við tölvu og dælt trökkum fram og til baka.





    22.10.2007 at 15:57 #600432
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    kíkti á síðurnar hjá þessum aðilum:
    FÍB 4.560
    FÍ 4.600
    Útivist 4.500

    Munar s.s. 1.500kr að hámarki, semer nú ekki stórpeningur á ársgrundvelli, 125kr/mánuði sem munar. Svo ef maður vill í alvöru fá sjokk þá gengur maður í gólfklúbb, t.d. GR og borgar (ef maður er karlmaður á bilinu 21-66 ára) 64.000kr/ári! Það er bara rúmlega eitt alvöru dekk!

    Mórall sögunnar: Það er ódýrast að eiga fólksbíl og labba á fjöllum. Það er örlítið dýrara að eiga jeppa og keyra á fjöllum en að eiga golfsett og slá bolta er eiginlega bara dýrt!

    Kveðja
    Tryggvi, sem gekk úr FÍB eftir að þeir siguðu á mig tryggingasölumanni sem ég er ekki enn alveg laus við 8 árum síðar…





    22.10.2007 at 12:32 #600428
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Vaninn er sá að þeir sem skrá sig á síðari hluta árs (félagsgjöld ef mig misminnir ekki miðast við 1.1 – 31.12) hafa verið að greiða hluta af gjaldinu vegna þess árs (2007 er með "gamla gjaldið"). Það gæti þó verið að einhverjir sem hafi skráð sig fyrir alllögnu séu ekki að fá greiðsluseðil fyrr en núna nýlega. Þetta miðast s.s. við skráningardag í klúbbinn. Þetta mætti alveg vera skýrara og í fastari skorðum og því mjög vert að benda á þetta. Svo er alltaf spurning hvenær sé heppilegt að fá svona reikning inn um lúguna, jafnvel gott að vera búinn með þetta fyrir jólavertíðina.

    Til gamans má geta að nú er verið að rukka mig um gjöld í annað áhugamannafélag þessa dagana þar sem ég fæ talsvert minna fyrir minn snúð (eiginlega ekkert, jú aðgang að póstlista sem er hýstur á yahoo…) en greiði litlu minna en í F4x4, auk þess sem seðilgjöld þar eru hærri. Það er síðan spurning hvort með aukinni samkeppni í innheimtu hvort þessi seðilgjöld muni minnka eða hverfa með öllu. Það eru að koma inn minni og grimmari aðilar á þann markað sem vert er að skoða og það verður gert. Ég veit amk um einn aðila sem nýlega feldi niður seðilgjöld en það var bara að koma til núna á síðustu dögum. Innheimtukostnaður (hver svo sem greiðir hann) er verulegur þegar um svona marga greiðsluseðla er að ræða og því gott að smala þessu saman og reyna í krafti stærðarinnar að krefjast betri kjara í þeim málum eins og öðrum.

    Annars sýnist mér nú fara talsvert hærri upphæð en blessað félagsgjaldið í viðgerðir hjá mér og fleirum eftir helgina. Verður maður einhvern tíma "dofinn" í veskinu eftir að maður er búinn að reka svona bíla nógu lengi ;)?





    22.10.2007 at 10:43 #600614
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú heyrðu landsfundur fór bara alveg ágætlega fram að mínu mati. Ég bar víst ábyrgð á fundarritun og vélritaði einhverjar 10-11 bls sem ég á eftir að setjast yfir og reyna að vinna upp úr, taka saman og finna þessi "hot" atriði.
    Dagskráin var kannski með óhefðbundnu sniði, rétt eins og staðurinn, enda ágætt að prófa nýja hluti og sjá hvort þeiri skili einhverju.
    Það voru um það bil 55 þátttakendur, meirihlutinn frá deildunum um allt land og ég held að það hafi verið fulltrúar allra deilda nema Suðurnesja (forföll á síðustu mínútu) svo dekkunin var góð hvað landssvæði varðaði.
    Uppsetningin var þannig að lögð voru inn tvö meginmálefni, annað fyrir hádegi og hitt eftir hádegi. Hópnum var skipt niður í 5 minni einingar og í hverjum var (fyrirframákveðinn) ritari sem svo kynnti niðurstöður umræðna í hópnum fyrir öllum.
    Efnin voru annars vegar framtíð og stefna klúbbsins og hins vegar samskipti og hlutverk deilda. Náttúrulega mjög breið efni en gaman að sjá samt að efnistök hópanna voru svipuð og það var nokkuð mikill samhljómur í hugmyndunum sem fram komu.
    Það er svo ábyrgð stjórnar að gera eitthvað með allt þetta góða input sem kom frá fundinum og náttúrulega fyrsta skrefið í því er auðvitað að setja þetta fram á skýran hátt.
    Svo voru að hefð bilanir í bílum og þetta hefðbundna landsfundarbrölt en það telst nú varla fréttnæmt 😉
    Ég vil þakka öllum sem komu og lögðu fram skoðanir sínar og afstöðu á málunum. Það er dýrmætt að geta fengið svona stóran og góðan hóp til að hjálpa til við hvernig eigi að taka á málum næstu misserin. Auðvitað voru ekki allir alveg sammála um allt en í stórum dráttum sýndust mér fundarmenn (og konur…) vera á einu um í hvaða átt ætti að fara. Nú er bara að stika út leiðina og komast svo af stað.





    19.10.2007 at 08:41 #600368
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Hvað á það að þýða Ofsi að drulla svona yfir okkur karlana sem eru að vinna í sjálfboðavinnu fyrir klúbbinn? Segja að við séum sviplausir, alltof margir og setjum ekki okkar mark á klúbbinn? Og að gefa í skyn að við séum eitthvað verri og höfum engar skoðanir?!?!! Fnuss!

    Annars þarf maður að fara að koma sér í láglendistúrinn, óþarfi að taka neitt nema bara sandalana með í svona bullferð.





    19.10.2007 at 01:31 #600320
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég lít svo á sem að réttast sé að það sé aðalfundur sem eigi að fá þessar upplýsingar á endanum enda er hann yfir formann, stjórn og allt annað skipulag klúbbsins settur. Þetta fyrirkomulag er þó bara tveggja mánaða gamalt svo það er auðvitað enn verið að slípa þetta til.





    19.10.2007 at 01:12 #600316
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég vil endilega hvetja þá sem hafa einhvern grun um slíkan hagsmunaárekstur að hafa samband við mig, hvort heldur sem er í email (trigger@pjus.is) eða í síma (897-3221). Stjórn ákvað fyrr á starfsárinu að vegna þessara sérstöku aðstæðna og til að hafa þessi mál á hreinu var ákveðið að hafa "tengilið" stjórnar og framkvæmdastjóra (sem er ég) þar sem framkvæmdastjóri og formaður eru sami einstaklingurinn. Það hefur m.a. orðið til að reglulega er farið yfir vinnutíma, helstu verkefni (mánaðarlega) og ýmis önnur starfsmannatengd mál. Þetta hefur m.a. þann tilgang að klúbburinn fái sem mest út úr því að hafa starfsmann í fullu starfi og líka rækta skyldur klúbbsins sem atvinnuveitanda við stafsmanninn.





    19.10.2007 at 00:45 #600312
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég vona að þú hafir fundið svör við flestu í þessu hjá mér við þínum vangaveltum, ef ekki þá endilega rukkaðu mig um það ef ég hef skotist undan að svara einhverju ákveðnu atriði.

    Án ábyrgðar þá held ég að þetta mat hjá þér sé rétt, starfsmannakostnaður sé um það bil tífaldur reikningur PFS. Svo má deila um hvað maður sé að fá fyrir gjöld PFS, sumir segja að þetta sé bara fyrir loftið tómt en það er allt önnur umræða 😉





    19.10.2007 at 00:36 #578638
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég held svei mér þá að þetta hafi bara verið dulin sýniþörf hjá Ofsanum sem réði flokkuninni. Annars er þarft mál að minna á þetta verkefni, ég var síðast að hugsa um félagatal á vefnum í morgun og þetta er eitthvað sem er að verða meira og meira nauðsynlegt.
    Eins og Siggi bendir á er ekki hætta á "sjálfvirkri" söfnun netfanga, eins og þetta er í dag þá er búið svona um netfangið undir "Mínar upplýsingar" og t.d. ef maður gúgglar einhvern félagsmann af handahófi þá er mjög líklegt að maður detti inn á prófíl viðkomandi á f4x4.is og þar er netfang ef viðkomandi hefur skráð það. Formlega félagatalið inniheldur auðvitað bara grunnupplýsingar og það sem er bætt við á vefinn er fólki auðvitað í sjálfsvald sett hvort það bætir við eða ekki.
    Annars fæ ég orðið svo mikið af spampósi á netfangið mitt að ég er hættur að reyna að fela það. Ég einbeiti mér bara að því að vera með sem besta síun til að losa mig við þetta áður en það lendir í inboxinu mínu.





    19.10.2007 at 00:31 #599588
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jón hinn Ofsalegi hefur nú annað slagið skrifað inn stöðuna, sagt frá fjölda ferla og samanlögðum kílómetrafjölda, það vill nú bara oft vera þannig á þessum blessaða vef okkar að hlutirnir hverfa oft í "hávaðanum" sem oft er í kringum það sem minna máli skiptir en t.d. þetta sem er eitt af því sem skiptir okkar möguleika á að ferðast einna mestu máli.

    Þessi pæling um birtingu þessara upplýsinga (þ.e. ferlunarverkefnnið) á vefnum er auðvitað upp á borðinu og oft verið rædd. Það tekur bara tíma og þarf að búa til eitthvert nothæft vefviðmót til að gera þetta aðgengilegt. Það er engum til gagns að hrúga þessu bara inn á óskipulagðan hátt þar sem ekki er hægt að finna neitt.

    Það er spurning hvort klúbburinn þurfi ekki að fara að ráða sér forritara í hluta úr starfi líka bara… 😉 Skilst að það sé hægt að fá þá fyrir lítið á Indlandi þessa dagana…





    19.10.2007 at 00:26 #600308
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Hér á eftir koma svör við þeim spurningum sem Ella varpar fram í upphafi þessarar umræðu og eru þær skáletraðar. Þessi svör eru mín og endurspegla eingöngu mína upplifun og eru byggð á þeim upplýsingum sem ég hef aðgang að á þessum tímapunkti.

    [i:1u85ikvn]Er þörf á því að klúbburinn hafi starfsmann í fullu starfi?[/i:1u85ikvn]
    Aukinn fjöldi félagsmanna, þ.m.t. nýskráningar, meiri þjónusta við þá, tilfærsla á verkefnum frá gjaldkerum landsbyggðardeilda til skrifstofu ásamt ýmsu öðru gerir það að verkum að það er ekki vanþörf á starfsmanni í fullt starf hjá klúbbnum. Ég leyfi mér jafnvel að halda að það væri full þörf á hálfu stöðugildi til viðbótar, a.m.k. yfir hluta ársins. Þetta er algerlega óháð ferðum, uppákomum og öðru slíku enda er slíkt að mestu á herðum nefnda eða annarra sem eru að vinna í sjálfboðavinnu. Það er því miður eðli þessara starfa sem fara fram á skrifstofunni að þau eru mjög lítið sýnileg og það má e.t.v. bæta úr t.d. er gaman að kíkja á bloggsíður sumra stjórnarmanna en hugmyndin um "á döfinni/mál í vinnslu" er mjög góð. En það auðvitað kallar á meiri vinnu, þarf F4x4 að ráða sér almannatengslafulltrúa í hálft starf til að segja frá því hvað framkvæmdastjóri, stjórn og nefndir eru að gera? Annars hefur verið reynt að gera þessu einhver skil á félagsfundunum í Mörkinni en það er auðvitað ekki varanleg heimild. Ein af stóru ástæðunum fyrir þessari breytingu eins og talað var um í vor er að sífelt oftar eru fundir og önnur vinna með samstarfsaðilum, yfirvöldum, þjónustuaðilum, hagsmunahópum og öðrum slíkum sem sinna þarf á vinnutíma, þ.e. hagsmunamál okkar t.d. afslættir, sjálfsaflafé, tengsl við yfirvöld o.fl. Það er ekki alltaf öruggt að einn eða fleiri af sjálfboðaliðunum geti hlaupið til og staðið vaktina heilu og hálfu dagana í fundasetu og öðrum störfum í vinnutíma, maður þarf jú að vera í 100% vinnu og vel það stundum til að standa straum af þessu frekar kostnaðarsama áhugamáli sínu. Það eru gríðarlega mörg erindi og verkefni sem eingöngu er hægt að sinna á vinnutíma, þegar að við sjálfboðafólkið erum (oftast og flest) bundin við að sinna öðrum skyldum. Það eru einfaldlega staðreyndir, við fáum t.d. ekki starfsmenn samstarfsaðila (Landsbankans, Shell,o.fl.) til að vinna yfirvinnu til að hitta okkur utan almenns vinnutíma.

    [i:1u85ikvn]Hvað kostar það klúbbinn á ársgrundvelli að vera með fastann starfsmann í fullu starfi?[/i:1u85ikvn]
    [i:1u85ikvn]Hve margir greiða félagsgjöld til klúbbsins og hve stór hluti félagsgjalda fer í launagreiðslur?[/i:1u85ikvn]
    [i:1u85ikvn]Hvaða störfum sinnir starfsmaður klúbbsins, eru þau störf kostnaðarins virði?[/i:1u85ikvn]
    Laun- og launatengdur kostnaður er auðvitað bara hluti af kostnaði við starfsmann, vinnuaðstaða og slíkt telur hvort sem viðkomandi er í 50% eða 100%. Það er því þekkt staðreynd að stafsmaður í hlutastarfi er dýrari per klukkustund en starfsmaður í fullu stafi (m.v. "eðlilegan" vinnutíma). Þessi viðbót er því með minna "marginal cost" ef ég man hugtökin úr hagfræðinni rétt 😉 Það er ekki hægt að nema áætla þessa tölu núna enda ekki liðið ár frá því að þessum málum var breytt en þetta verður að sjálfsögðu skilmerkilega tilgreind í næsta ársreikningi ásamt öðrum fjárhagslegum stærðum sem tengjast starfi klúbbsins. Þessar áætluðu tölur eru samt allar vel innan þeirra marka sem sett eru og ætti rekstur klúbbsins ekki að vera í hættu vegna þessa.

    Að ég best veit hefur ekki verið gert sex mánaða uppgjör hjá klúbbnum hingað til og myndi ég telja það óþarft. Það lág auðvitað fyrir aðalfundi síðast hversu margir borguðu þá en auðvitað er nýtt ár og því eðlilegt að bíða eftir heimtum næstu félagsgjalda til að fá töluna til að svara þér um fjöldann. Sérstaklega ef tekið er tillit til þess að upphæð félagsgjalda var breytt á síðasta aðalfundi sem er ákveðinn "óvissuþáttur". Ég get þó fullyrt að launakostnaður er "fastur" sem er mjög hagstætt fyrir klúbbinn, hvort það sé jafn hagstætt fyrir hinn samningsaðilann er svo ekki ljóst. Það auðveldar líka allar fjárhagsáætlanir enda klúbburinn ekki stór og allar sveiflur í útgjöldum (t.d. mörghundruðþúsundkróna reikningur frá PFS) hafa mikil áhrif.

    Hvort þau störf séu kostnaðarins virði er erfitt að meta, mætti kannski spyrja hvernig væri staðan ef þessi störf væru ekki unnin? Ég vinn hjá endurskoðunarskrifstofu og meira að segja í þeim krónu og aura bransa er erfitt að vega og meta hvort ákveðin störf séu að skila arði. Er t.d. tengslamyndun og kynningarstarf eitthvað sem skilar arði? Nei ekki þennan mánuðinn en langtíma fjárfesting er það. Ég hef komið að margskonar verkefnum þar sem reynt er að leggja mat á arðsemi starfa og það er meira en að segja það og vandamál sem mörg fyrirtæki eru að glíma við og enn erfiðara fyrir starfssemi eins og áhugamannafélag um ferðamennsku að leggja mat á slíkt. Auðvitað er það samt hollt og gott að gera það og klárlega er þetta mál sem er upp á borðum og ofarlega í hugum okkar sem erum að kljást við þessi mál frá degi til dags fyrir klúbbinn. Við gætum auðvitað ráðið verktaka sem er sérfræðingur í mannauðsstjórnunarmálum og fengið hann til að hanna kerfi til að meta arðsemi þeirra starfa sem við erum að láta vinna fyrir klúbbinn… en ég óttast að kostnaðurinn við slíkt verkefni yrði meiri en allur launakostnaður á ársgrundvelli 😉

    [i:1u85ikvn]Að hvaða hagsmunamálum félagsmanna er starfsmaðurinn að vinna núna?[/i:1u85ikvn]
    Síðustu dagar hafa verið að mestu undirlagðir af fjarskiptamálum þ.m.t. VHF gjöld og leyfismál sem eru náttúrulega mikið öryggisatriði fyrir félagsmenn, þ.e. að við höfum okkar rásir, truflanalausar og séum að greiða þau leyfi sem okkur ber. Einnig hefur mikill tími framkvæmdastjóra farið í landsfundinn um næst helgi, þó hann sé ekki beint hagsmunamál til skamms tíma er það von okkar að hann skili ákveðnum upplýsingum inn í starfið til að reyna að komast upp úr hjólförunum án þess að affelga eða velta.

    [i:1u85ikvn]Er stjórnin að vinna að sömu málum í sjálfboðastarfi?[/i:1u85ikvn]
    Já, t.d. í dag sat ég fundi hjá Póst- og fjarskiptastofnun í rúmlega tvær klukkustundir í vinnutíma (s.s. fjarvera frá mínu starfi) á sama tíma og Agnes var að sinna þessum málum í sínum vinnutíma. Ég var m.a. viðstaddur þegar að upplýsingar bárust til starfsmanns PFS frá Agnesi sem stofnunin var að óska eftir, skemmtileg tilviljun. Það að hafa þetta bakland sem er í starfsmanni í fullu starfi er gríðarlega dýrmætt fyrir okkur sem eru að sinna þessu með öðrum skyldum. Það heldur okkur líka við efnið og tryggir að skriðþunginn dettur ekki alveg niður þegar að skyldur okkar á öðrum sviðum ná yfirhöndinni og minnkar því líkurnar á að verkefni dagi uppi og gleymist.

    [i:1u85ikvn]Hvar liggja mörkin á milli sjálfboðastarfs formannsins og starfa starfsmannsins?[/i:1u85ikvn]
    Erfitt að meta, það mætti e.t.v. segja að átta tíma á dag sé þetta "störf starfsmanns" (þ.e. það sem borgað er fyrir) og hina tímana á dag sé það sjálfboðastarf formanns. Það er nú samt ekki þannig að það séu tveir hattar á skrifstofu klúbbsins í Mörkinni og svo klukkan 17:00 sé skipt um hatt… Þar sem ég var skipaður tengiliður stjórnar við framkvæmdastjórann þá hef ég haft dálítla innsýn í þessu mál og get fullyrt að hlutur "sjálfboðastarfs formanns" er umtalsverður ef notað er þetta viðmið. Ef maður fer að telja þá tíma saman þá er það örugglega ekki minna sem er til hreinnar viðbótar við vinnuskyldu 100% stöðugildis en maður sjálfur er að leggja til í sjálfboðavinnu. Það er því mitt mat byggt á þeim upplýsingum að klúbburinn sé að fá fyllilega "fyrir sinn snúð" út úr formanninum þó maður dragi 8 klst á dag frá, t.d. mest öll samskipti stjórnar og nefnda fara fram utan almenns vinnutíma.

    [i:1u85ikvn]Er eðlilegt að formaður sé jafnframt starfsmaður?[/i:1u85ikvn]
    Eðlilegt? Æskilegt? Gott? Það er líka góð spurning, ég tel að ekki sé um hagsmunaárekstur að ræða en auðvitað væri gott að hafa tvær Agnesir, þá fengi maður 2x24klst á dag 😉

    …
    Í stuttu máli fyrir þá sem ekki nenna (eða hafa ekki áhuga á staðreyndum) að lesa langlokuna hér fyrir ofan þá er það mín skoðun byggt á samstarfi mínu við starfsmann klúbbsins undanfarna mánuði og hvernig staða mála er í dag að aukning starfshlutfalls úr 50% í 100% hafi verið nauðsynleg og hefði ekki mátt gerast seinna. Ég tel að þeim fjármunum sem í þetta fara sé því vel varið. Ég gaf kost á mér í stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 til að starfa af heilindum og heiðarleika að því sem ég tel vera klúbbnum og félagsmönnum hans til hagsbóta og tel ég ofangreint vera í fullu samræmi við þau markmið mín.

    Með bestu kveðju
    Tryggvi R. Jónsson, A-898
    Meðstjórnandi





    17.10.2007 at 10:59 #597132
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Já það er spurning, en er ekki betra að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessu eins og öðru ;)?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 461 through 480 (of 1,364 total)
← 1 … 23 24 25 … 69 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.