FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tryggvi R. Jónsson

Tryggvi R. Jónsson

Profile picture of Tryggvi R. Jónsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 1,364 total)
← 1 … 22 23 24 … 69 →
  • Author
    Replies
  • 29.10.2007 at 18:48 #601256
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Já, maður á að taka sér svona til fyrirmyndar og bið ég alla þá sem ég hef hraunað yfir fyrr og nú afsökunar, taki þeir til sín sem eiga!
    Það verður hins vegar fróðlegt hvort Ofsa tekst að komast í náðina hjá norðamönnum aftur… en það er nú önnur ella.





    29.10.2007 at 15:25 #601428
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Er svona um það bil C12H23, eða frá C10H20 til C15H28.
    [url=http://en.wikipedia.org/wiki/Diesel#Chemical_composition:oy0ag7eo]Heimild[/url:oy0ag7eo].





    29.10.2007 at 12:21 #601302
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Hurru Ella… ég veit um góðan skjávarpa sem hangir í loftinu hjá Hótel KEA sem er e.t.v. með hærri standard ;)?





    29.10.2007 at 12:12 #601334
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er spurning, ég hef aðeins verið að liggja yfir því sem menn voru að segja á landsfundinum og verið að reyna að vinna upp úr því punkta fyrir stjórn til að setja "kúrsinn" eftir og ég var einhvern veginn ekki búinn að sjá "litla klíku" eða "low profile" út úr því sem þar kom fram. M.v. núverandi félagafjölda held ég að það sé of seint í rassinn gripið að ætla þessu félagi að verða lítið og sætt. Þau skilaboð sem þaðan komu voru kannski meira að fá "góðan prófíl" en ekki endilega liggja í felum af ótta við að fá á sig slæmt orðspor.

    Hvað varðar hin "sívinsælu" starfsmannamál þá er búið að ræða það út og suður á öllum mögulegum vettvöngum. Ég veit a.m.k. fyrir mína parta að ef það væri ekki starfsmaður í fullu starfi hjá klúbbnum þá væri ennþá meira að gera hjá mér og það myndi trufla mína "alvöru vinnu" miklu meira en nú er. Það eru ekki allir sem hafa 100% sveigjanleika í sinni vinnu til að sinna svona málum, hve góður sem málstaðurinn er. Það hefur komið fyrir æoftar núna að þeir sem þarf að vinna með/hitta eru ekkert á því að hitta okkur utan almenns skrifstofutíma, þeir eru bara í sinni vinnu og vilja komast heim til að sinna fjölskyldu og áhugamálum þegar þeirra vinnudegi er lokið. Það er því mín niðurstaða eftir þó stuttan tíma að klúbburinn ÞARF og Á að hafa einhvern sem getur verið málsvari hans á vinnutíma án þess að vera að svíkjast undan einhverjum öðrum skyldum og það er eiginlega ekki hægt nema með að hafa einhvern í starfi hjá klúbbnum.

    Svo þess utan þá eru innri mál eins og skráningar í klúbbinn og ýmis þjónusta við félagsmenn dálítið stór þáttur og ef það væru bara sjálfboðaliðar sem væru í því að skrá í klúbbinn og sinna slíku þá er hættara við að hlutir myndu ekki skila sér en ef einhver er með þetta á sinni könnu.

    Mín "framtíðarsýn" fyrir klúbbinn er að hann verði [b:1fq3wbqc]öflugur hagsmunagæsluaðili fyrir þá sem vilja ferðast um hálendi Íslands[/b:1fq3wbqc] (ok og stundum á láglendi líka…) og sé aðili sem tekið er mark á og leitað til í þeim málaflokkum sem snerta á starfssemi hans, þ.m.t. umhverfismál, reglur um búnað bifreiða, fjarskiptamál o.s.frv. Það gerist ekki með því að liggja út í horni með "low profile" … Hvernig verðum við öflug? Jú með því að vera sýnileg, vera þekkt fyrir góða hluti, hafa marga félagsmenn og vera "inni" á réttum stöðum. Lítil klíka á bara ekki roð við þeim aðilum sem nú eru farnir að leggjast á sveif á móti því sem Ferðaklúbburinn 4×4 stendur fyrir. Bæði er opinbera báknið orðið stærra og "mótvægisaðilar" okkar eru sífelt að verða stærri og fleiri og einhvern veginn hefur þeim tekist að komast inn á öllum réttu stöðunum meðan á a.m.k. sumum sviðum sitjum við enn úti í kuldanum og fáum hvert regluverkið á fætur öðru "í bakið". Þessu þarf að breyta og ég efast um að sjálfboðastarfið eitt og sér dugi til þess sama hversu gott það er, reyndu að fá fjarskiptanefnd alþingis til að funda kl 19:00 – 21:00 að kvöldi svo að maður geti klárað vinnudaginn sinn áður en maður mætir á fund hjá þeim… 😉

    Ég myndi í það minnsta ekki treysta mér til að starfa í stjórn án starfsmannsins í launuðu starfi, svo einfalt er það nú bara og ég tel það vera lykilatriði í eflingu klúbbsins að hafa fasta "auðlind" í þeim tíma sem varið er til starfsins. Því aðstæður nefnda- og stjórnarmanna geta breyst og það myndi skapa enn meiri áhættu fyrir klúbbinn ef ekki væri til staðar þessi vinnutími sem klúbburinn er að tryggja sér með að hafa fastan starfsmann.

    Auk þess sem Benni sér sem "framtíðarsýn" klúbbsins myndi ég líka vilja sjá hann eiga fastan sess sem umsagnaraðili að lagafrumvörpum og reglugerðum sem varða starfssemina. Það krefst hins vegar stöðugrar aðgátar og það að hafa slíkt sem þriðja, fjórða eða jafnvel fimmta hlutverk einhvers sjálfboðaliða út í bæ (sama hve fær og velviljaður hann er) þá eru þetta bara hlutir sem eiga það á hættu að sitja á hakanum hjá okkur. Og það er akkúrat þá sem starfsmaður á launum sparkar í okkur og heldur okkur við efnið 😉

    Húrra fyrir launaða starfsmanninum sem sparkar reglulega í rassinn á mér þegar ég er að klikka á einhverju sem ég er búinn að lofa!





    29.10.2007 at 11:12 #601296
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég var reyndar yfir hálendinu í gær og guðminnalmáttur hvað þetta var fallegt!!!!

    Tryggvi REKINN!

    PS: Væla minna – ferðast meira (C) Hlynur Snæland 2007





    28.10.2007 at 22:33 #599114
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er nú hefð fyrir að ákveðinn meistarakokkur grilli á laugardagskvöldinu. Ég var annars að skoða [url=http://trigger.is/gallery2/trips/gemlingar-20061117/:2f59lh5a]myndir frá því síðast[/url:2f59lh5a] og mikið rosalega sem var gaman…





    28.10.2007 at 22:15 #597150
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Sko "gott veður" er hugarfar og þó svo að lognið sé að flýta sér allt í sömu áttina stundum… þá er það ekkert minna logn fyrir það.
    Annars eru til margar góðar sögur um "veðurlýsingum" Akureyringa. Held að besta reglan sé: Trúa því sem maður sér!





    28.10.2007 at 21:51 #597146
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er alltaf gott veður á Akureyri, logn og blíða og ekki orð um það meir.





    28.10.2007 at 19:32 #601232
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég hefði haldið að verðið ætti að lækka svona þegar það kom svona mikið framboð en það er sama verð á öllum auglýsingunum 😉 ó jæja þá. Spurning um að bjóða einn Yaris upp í ?





    28.10.2007 at 19:07 #600482
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Hmm, var ferð mín til Dublin um daginn ekki dálítið dularfull ;)? Guinness er samt ferlega góður.





    28.10.2007 at 18:33 #601212
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Fjórhjóladreifsbifreið hlýtur að innihalda bæði fjórhjóladrifsfólksbifreið og fjórhjóladreifsvörubifreið 😉 en auðvitað er 6×6 != 4×4 😉 Það er t.d. sitt hvað um vörubifreiðar í reglugerð um búnað bifreiða svo það má alveg hártoga þetta í allar áttir… samt ekki í einu það er svo sárt.





    28.10.2007 at 17:57 #600478
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er gott mál að setja þetta í fastari skorður. Það þarf líka að taka tillit til þess að virkni er ekki jöfn yfir árið, t.d. eru sumarhátíð (í júlí) og árshátíð (í nóv) alltaf mikið niðurgreiddir atburðir svo það gæti þurft að taka tillit til slíkt þegar gjöld fyrir hluta úr ári eru ákveðin. Væri áhugavert að fá dæmi t.d. um hvernig þetta er gert í öðrum félögum. Ég t.d. fór á námskeið hjá ÍRA í byrjun árs og fékk svona "fyrsta árið frítt" og svo full rukkun á næsta (námskeiðið kostaði reyndar tæplega þrefalt árgjaldið… en var hverrar krónu virði).

    Og góður punktur Grímur, ég er held ég ekki með neinar upplýsingar um gamalt bensínverð en það væri gaman að bera þetta tvennt saman. Hins vegar skoðaði ég um daginn vísitölu neysluverð (af vef Hagstofu) og félagsgjöld og það hefur ekki orðið raunhækkun á þessum gjöldum á þessari öld. Reyndar… er undirtala í neysluvísitölu t.d. fyrir dísel og bensín, væri kannski hægt að grafa sig í gegnum einhverja útreikninga fyrir það þegar maður er í stuði, góður punktur.





    28.10.2007 at 17:45 #601208
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er dálítið til í þessu hjá Gundi, e.t.v. er ekki staður í dag innan núverandi hjólamenningu fyrir "ferðalög" en ef við skoðum lögin hjá F4x4:
    Ferðaklúbburinn 4×4 er félag áhugamanna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifsbifreiða

    S.s. ekki sagt beinum orðum að það sé eingöngu um ferðalög á fjórhjóladrifsbifreiðum að ræða. Í 2. gr. er hins vegar orðið fjórhjóladrifsbifreið notað í 3 af 6 atriðum. Orðið "deild" notum hins vegar eingöngu um það sem er undir IV. kafla (Landsbyggðardeildir). Þannig að m.v. lög og markmið klúbbsins eins og þau standa í dag er þetta nokkuð greinilega utan rammans.

    Það er mjög viðkvæmt mál að mér sýnist að breyta lögum í þessum klúbb eins og sést hefur en auðvitað gæti Gundur lagt fram einhverja skemmtilega lagabreytingatillögu á næsta aðalfundi (eins og allir félagsmenn hafa fullan rétt til) þar sem væri t.d. talað um "vélknúin ökutæki og ferðamennsku á hálendi Íslands…" eða eitthvað í þeim dúr. Ef það er átt sem félagsmenn vilja að félagið þróist út í þá yrði meirihluti á aðalfundi auðvitað að samþykkja og þá væru það skýr skilaboð. Þetta orðalag er örugglega líka hátt í 25 ára gamalt og með nýrri tækni og nýjum tækjum þarf að endurskoða alla hluti. Stundum þvælast samt lög og formfesta fyrir framþróun en þá er nauðsynlegt bara að vinna í þeim málum þó lausnin komi ekki alveg samstundis.

    Það hefur orðið mikil "hjóla"vakning og veit ég t.d. að á mörgum stöðum þar sem eru litlar deildir innan 4×4 hefur virkni minnkað til muna við þessa þróun. Hvort félagið eigi að "elta" þessa þróun eða halda sig við þá kjarnastarfssemi sem það er í og reyna að gera það betur er auðvitað góð spurning.

    S.s. góðar vangaveltur í gangi… maður spyr sig svo í framhaldinu hvar eiga 6×6 bílarnir eins og þessi æðisgengni Volvo sem er á öðrum þræði hér inni heima?!!??





    28.10.2007 at 17:44 #601206
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er dálítið til í þessu hjá Gundi, e.t.v. er ekki staður í dag innan núverandi hjólamenningu fyrir "ferðalög" en ef við skoðum lögin hjá F4x4:
    Ferðaklúbburinn 4×4 er félag áhugamanna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifsbifreiða

    S.s. ekki sagt beinum orðum að það sé eingöngu um ferðalög á fjórhjóladrifsbifreiðum að ræða. Í 2. gr. er hins vegar orðið fjórhjóladrifsbifreið notað í 3 af 6 atriðum. Orðið "deild" notum hins vegar eingöngu um það sem er undir IV. kafla (Landsbyggðardeildir). Þannig að m.v. lög og markmið klúbbsins eins og þau standa í dag er þetta nokkuð greinilega utan rammans.

    Það er mjög viðkvæmt mál að mér sýnist að breyta lögum í þessum klúbb eins og sést hefur en auðvitað gæti Gundur lagt fram einhverja skemmtilega lagabreytingatillögu á næsta aðalfundi (eins og allir félagsmenn hafa fullan rétt til) þar sem væri t.d. talað um "vélknúin ökutæki og ferðamennsku á hálendi Íslands…" eða eitthvað í þeim dúr. Ef það er átt sem félagsmenn vilja að félagið þróist út í þá yrði meirihluti á aðalfundi auðvitað að samþykkja og þá væru það skýr skilaboð. Þetta orðalag er örugglega líka hátt í 25 ára gamalt og með nýrri tækni og nýjum tækjum þarf að endurskoða alla hluti. Stundum þvælast samt lög og formfesta fyrir framþróun en þá er nauðsynlegt bara að vinna í þeim málum þó lausnin komi ekki alveg samstundis.

    Það hefur orðið mikil "hjóla"vakning og veit ég t.d. að á mörgum stöðum þar sem eru litlar deildir innan 4×4 hefur virkni minnkað til muna við þessa þróun. Hvort félagið eigi að "elta" þessa þróun eða halda sig við þá kjarnastarfssemi sem það er í og reyna að gera það betur er auðvitað góð spurning.

    S.s. góðar vangaveltur í gangi… maður spyr sig svo í framhaldinu hvar eiga 6×6 bílarnir eins og þessi æðisgengni Volvo sem er á öðrum þræði hér inni heima?!!??





    28.10.2007 at 13:33 #597140
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ég er búinn að vera á Akureyri þessa helgina og m.a. kíkti á KEA og get alveg staðfest að það verður allt gersamlega kolvitlaust. Skráðir til leiks eru u.þ.b. 140, helmingur í gistingu á Hótel KEA og það var allt orðið fullt svo við erum líka með tvö herbergi á Hótel Hörpu (sem er samvaxið KEA).

    Sýnist nú ekki einu sinni þurfa að fara til fjalla til að komast í vandræði hér í bæ svo að ég myndi ekki hafa neinar áhyggjur, held að vandræðin verði aðallega í því að halda vandræðunum í passlegu magni svo það mæti einhver á árshátíðina stundvíslega 18:30 !





    26.10.2007 at 21:03 #601098
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það vill einmitt svo skemmtilega til að myndin er tekin 4. nóv 2005… spurning hvort það verði orðið jafnflott að sjá eftir viku?





    26.10.2007 at 20:47 #601094
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Fletti hvernig? Skil ekki alveg en kannski vefnefndin sé skilningsríkari 😉
    Svo eru nú vonandi allir búnir að átta sig á hvar myndin er tekin?





    26.10.2007 at 00:56 #600834
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Vá… þetta er snilld, skilst að þetta hafi komið inn í morgunþáttinn á Rás 2 í morgun. Skemmtilegt uppátæki og vonandi að það virki jafnvel og auglýsingin mín í dag 😉





    25.10.2007 at 08:24 #600780
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er stundum hluti af því að átta sig á hvað maður vill að svara eigin spurningum 😉 Hringdu bara í Glannann hans RAM er að koma ágætlega til, held að það sé lítið hús en langur pallur á hans 46" græju og ég veit að hann hefur pælt þetta út og suður… já og settu svo niðurstöðurnar á vefinn 😉 Svo auðvitað þeir Gunni og Siddi fyrir norðan, þeir eru held ég báðir á stuttum með litlu húsi er það ekki?





    23.10.2007 at 14:38 #600746
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    En rosalega sem þetta mun hafa jákvæð áhrif á verðin, ekki bara er þetta orðið klassískt heldur ófáanlegt í þokkabót… alltaf sagt að þessi Toyota hafi verið langtímafjárfesting og engin áhætta… bíddu eða var það REI?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 441 through 460 (of 1,364 total)
← 1 … 22 23 24 … 69 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.