Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.11.2007 at 08:22 #602294
Vegna þess hve stutt var á milli ráðgerðs félagsfundar og árshátíðar þá var ákveðið að fresta félagsfundi um viku. Svona til að þeir sem allra hressastir voru gætu jafnað sig og til að hetjurnar sem fóru hálendið til baka (respect 😉 gætu nú örugglega komist til byggða fyrir fundinn.
En þar sem við erum öll orðin gleymin þá er reglan að auglýsa allt sem oftast og sem fyrst.. stundum gerist það bara örlítið seinna en áætlað er 😉
[b:2v99qvh8]Viðbót[/b:2v99qvh8]: Hm, einhverra hluta vegna var frétt um félagsfundinn á forsíðu ekki sýnileg, núna ætti hún að vera sýnileg…
06.11.2007 at 08:16 #601918Hvaða hvaða… ekki þar með sagt að allt fjör sé úr þessu, ef einhver getur fundið vandræði við hæfi þá er það Jón Ofsi Snæland.
Gjald er kr 4.200 per mann frítt fyrir 12 ára og yngri.
Innifalið í verði er gisting 1 nótt í Hólaskóg og sameiginleg máltíð á laugardagskvöldi.
05.11.2007 at 23:01 #601908[img:puqfw9bk]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5508/45726.jpg[/img:puqfw9bk]
[img:puqfw9bk]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5508/45727.jpg[/img:puqfw9bk]
05.11.2007 at 17:45 #602054Tek mér bessaleyfi að taka texta EIK af eldri þræði og setja hér inn til upplýsingar:
—
Helgina 24-25 nóvember verður farin nýliðaferð í [url=http://www.utivist.is/skalar/?ew_news_onlyarea=content1&ew_news_onlyposition=0&cat_id=1129&ew_0_a_id=138:3onjcg4t]Strútsskála á Mælifellssandi.[/url:3onjcg4t] Fararstjórar verða Einar Kjartansson og [url=http://www.f4x4.is/new/profile/default.aspx?file=3710:3onjcg4t]Bessi Aðalsteinsson.[/url:3onjcg4t]. Skráningar eyðublað verður sett á vefinn fljótlega eftir helgi. Þátttökugjald verður líklega kr. 4000 á mann auk 1000 krónu staðfestingargjalds á hvern bíl. Fjöldi þátttakenda takmarkast við 10 bíla.Ef veður og færi leyfa, verður farið yfir Mýrdalsjökul. Kröfur um bíla og búnað verða svipaðar og var í [url=http://um44.klaki.net/setur04:3onjcg4t]þessari ferð í Setrið.[/url:3onjcg4t]
[img:3onjcg4t]http://www.utivist.is/utivist/upload/images/skalar_utivistar/strutur01.jpg[/img:3onjcg4t]
-Einar
—
05.11.2007 at 10:09 #601712… ertu að koma með pantanir um veitingar í kaffihléinu á næsta fundi ;)?
04.11.2007 at 21:23 #601708Tek undir það! Þetta var frábær skemmtun. Dagskráin svona passlega þétt og hæfilega löng.
Bestu þakkir til allra sem komu að þessu, þ.m.t. myndbandið og powerpointið ónafngreinda, spurning hvort stjórn áskotnist eintak til að sýna á félagsfundi 12. nóv til að sýna þeim sem ekki þorðu norður?
04.11.2007 at 00:47 #601840Ég man ekki eftir að það hafi verið haldin nein árshátíð þessa helgi… hlýtur að vera einhver misskilningur á ferðinni hérna.
03.11.2007 at 16:05 #601698Það var glæsilegur hópur, alls 16 bílar, sem lagði af stað í stutta fjallaferð frá Leirunesti í dag. [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5700:tji8ldui]Myndir[/url:tji8ldui] í tilefni af því…
02.11.2007 at 18:47 #601764… í flug, þeir redda þessu.
02.11.2007 at 15:49 #601678Svaðalegt! minnir dálítið á þráðinn um tækni- og verkfræðingaferðina sem ég rakst á í gær…
01.11.2007 at 11:19 #601662Þegar jeppinn manns stendur hreyfingalaus á Akureyri þá auðvitað snjóar 😉 gaman af því.
Það er spurning Ella.. kemst þú og vinurinn í handfarangur í flugi ;)?
01.11.2007 at 09:03 #601644Er s.s. bíllinn hans Sidda fyrir norðan til sölu ;)?
31.10.2007 at 15:38 #601582Jeppi er ekki jeppi nema á honum standi jeep.
Þá hlýtur að gilda að ef á honum stendur jeep þá er hann jeppi.Í næsta þætti:
Öll epli eru ávextir
Allir ávextir eru epli.
31.10.2007 at 09:15 #598920Mig rámar í svipaða umræðu fyrir um ári vegna talstöðva í báta og flugvélar, við þessar sömu breytingar voru slíkar stöðvar feldar undir leyfisskyldan búnað og því farið að rukka þetta gjald af þeim. Því var ekki hnikað þó "öryggistækja" rökin væru notuð.
Það er ekkert grín að eiga við stofnun sem hefur verðskrána sína bundna í [url=http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003069.html:2rn3spwy]lög[/url:2rn3spwy] 😐
30.10.2007 at 21:23 #601458Þetta er allt að komast í lag…. vona að þið skemmtið ykkur vel á leiðinni samt… ég ætla að vera bölvuð gunga og fara með flugi á föstudagsmorguninn til að vera þrællinn hans Benna í heilan dag 😉 Hvað gerir maður ekki fyrir málstaðinn?
30.10.2007 at 10:50 #598916Veistu miðað við hve háir bunkarnir voru hjá þeim þá kæmi mér ekki á óvart að það væri dót þarna frá síðustu 😉
30.10.2007 at 10:30 #598912Tja, nú verð ég að segja eitthvað sem ég er ekki alveg 100% viss um en ég held að þessi leyfisbréf fyrir talstöðvar sé ekki nýtt, s.s. kom ekki inn þegar tíðnigjöldin fóru frá talstöðvareiganda til rétthafa. Það er mikið af óafgreiddum tilkynningum hjá PFS sem þeir eru byrjaðir að vinna í núna og því gæti eldri tilkynningar dottið inn, t.d. gæti hugsanlega mín frá feb 2006 farið í gegn… tími kraftaverkanna er ekki alveg liðinn.
Svo ef ég þekki reikningana frá PFS rétt þá er ekki mikið að græða á skýringatextanum á honum 😉
30.10.2007 at 09:41 #598908Eins og ég fékk skýringarnar frá PFS þá þarf nýtt leyfisbréf þegar:
* Eigendaskipti verða á stöð,
* breyting verður á stöð hjá eiganda (t.d. ef ég hendi Yaesu draslinu mínu og kaupi Kenwood) eða
* ef ég fæ leyfi fyrir rásum nýs rétthafa
Meðan ég er bara að endurforrita rásir F4x4 er það ekki breyting (t.d. ef F4x4 fjölgar rásum sínum), en ef ég fæ t.d. til viðbótar rásir Landsbjargar þá er það nýtt bréf og þ.a.l. nýtt gjald.
Hvort svo þetta verður virkt kerfi nema við kaup og eigendaskipti er svo óljóst ennþá.
29.10.2007 at 20:30 #601268Gleðilegt að vita að auglýsingarnar hérna virka, ég einmitt auglýsti haug af kösturum um daginn og góssið bara seldist á innan við sólarhring. Vona að pressan góða hafi það gott á nýju heimili sínu…
Já og Benni… þú ert snillingur, segi og skrifa það.
29.10.2007 at 19:06 #601260það er löngu dautt…. en takk samt siggi minn 😉
-
AuthorReplies