FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Profile picture of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 184 total)
← 1 … 7 8 9 10 →
  • Author
    Replies
  • 07.11.2007 at 22:02 #602432
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Get lítið svarað þessu að viti því ég var á Kili (eða næstum því) fyrir tíu dögum og það hefur verið rysjótt veður síðan. Svo fór ég fór ekki lengra en að Bláfellshálsi frá Gullfossi á jeppa en síðan gangandi upp á Bláfell. Lítið sem ekkert mál að keyra að Bláfellshálsi. U.þ.b. 10 cm lag og dregið sumstaðar í skafla En ég get sagt að það er jafnfallið lag á hálendinu þarna fyrir rúmri viku eftir því sem ég best sá. Hæpið að fara Kjöl einbíla við þessar aðstæður, ef það stendur til, nema þá fyrir einhverja nagla.





    05.11.2007 at 08:49 #601878
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Tek undir það sem áður er komið fram. Mikill munur á 35 og 36. Meðalþungur bíll fer flestallt á 36 og getur elt bíla á 38 og jafnvel farið það sama ef lunkinn ökumaður. Einn helsti gallinn er að 36 bíll fer hægar yfir. Einn helsti kosturinn er minni breyting, lægri bíll og reynir minna á undirvagninn en frambærilegur snjóbíll samt. Er sjálfur á 36 Ground Hawk. Frábær dekk í snjó og gott flot ef maður passar að spóla sig ekki niður. Var áður á Dick Cepek. Sambærilegt flot en allt að því gagnlaus í blautu færi og brekkum þegar þau eru orðin hálfslitin. Henti mínum gömlu hálfslitnum.





    31.10.2007 at 17:59 #601598
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Ef maður gefur sér að startari snúi vél á fullum hraða, hafa þá öruggulega réttu glóðarkertin farið í bílinn ? Er tímarelayið að vinna rétt og senda straum á kertin í þann tíma sem það á að gera og rétta spennu við for- og eftirhitun ?





    24.10.2007 at 08:50 #600598
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Erfitt að giska. Sjálfskipting er flókið apparat. Þekki ekki uppbyggingu á þessari skiftingu. En eitt er næstum víst, skiftingin er að leka með frampakkdós. Af hverju er nú spurningin ! Venjulega vegna að diskarnir séu að snuða vegna slits og ofhita olíuna sem þá þrengir sér út um pakkdósina þó svo að pakkdósin sé í lagi í sjálfu sér. En ef skiftingin sé nýleg þá er eitthvað annað að. Pínusmá möguleiki að frampakkdósin sé handónýt og skiftingin ná ekki upp þrýsting þess vegna. Kannski að stimpar sem þrýsta á bönd í skiftingunni séu lekir og nái ekki nógu miklu afli ? Það sama gæti verið að stimpilpakkdósum við diska ? Eitthvað að stýrikerfi ?





    22.10.2007 at 22:17 #600646
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Ef ég hef skilið það rétt þá er álímdi dúkurinn til að taka hljóð frá boddíinu sjálfu nið,söng og víbring sem það framleiðir að einhverju leyti sjálft við akstur. Millilagið er svo til að dempa hljóð sem fer í gegnum boddíið. Sem sagt vélar- dekkjahljóð og svoleiðins. Þar sem LR er ekki með boddípúða þó er mikilvægara að líma dúkinn á heldur en að setja frauð eða fillt sem millilag. Sem er ágætt því efni sem hljóðeinangrar vel og dregur ekki í sig raka er vandfundið og líklega betra að leggja minni áherslu á milllagið nema nálægt vélinni. Það eru lausar plötur á gólfinu á Land Rover sem ekki má líma yfir þannig að ekki sé hægt að taka þær úr með góðu móti ef þarf að komast að gírkassa seinna meir. Líma bara á hverja plötu fyrir sig.





    22.10.2007 at 14:42 #600636
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það er hægt að fá einangrunarmottur í í Bílasmiðnum til að bræða á með hita. Síðan teppafrauð yfir og að lokum teppi. Landroverinn lekur ekki svo mikið ef þéttikantar eru ennþá í . Frekar að það skafi snjór inn í þá. Myndi ekki hafa svo miklar áhyggjur þó það liggi raki í teppum því bíllinn er úr áli og ryðgar ekki nema þá grindin og hvalbakurinn. Ágætis verkefni til að dunda sér í.





    18.10.2007 at 10:36 #600232
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Spurt um húsráð ! Missti loft úr dekki allslaus out of nowhere um sumar fyrir mörgum árum. Ekki með loftdælu, kút, slöngu eða ekki neitt annað en vinnuvettlingar og eitt skrúfjárn, felgulykill og tjakkur. Kom lofti í dekkið með þessum fjórum hlutum. Tók aðra miðstöðvarhosuna úr bílnum og losaði annan endann á hinni slöngunni frá elementinu og festi hana við vélarnippilinn sem slangan sem fór úr var tengd í. (Tengdi framhjá). Losaði loftlausa dekkið frá og setti það nálægt pústenda. Notaði miðstöðvarhosuna sem loftslöngu sem ég setti í pústendan og tróð vettlingi meðfram. Setti í gang og náði nógum miklu þrýstingi í dekk til að koma mér í byggð.





    16.10.2007 at 22:56 #600070
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Búinn að lesa þessa grein. Hún er ósköp hógvær og er þetta er stormur í vatnsglasi og engin ástæða að fara á límingunum út af henni og stefna að því að "taka viðtalsmann VDO af lífi" fyrir skoðarnir sínar. Hvernig á að taka félagsmenn eða félag alvarlega ef það á að hóta engum viðskiptum við viðkomandi fyrirtæki þegar skoðarnir félagsmanna eða hagsmunir eru á skjön við skoðarnir fyrirtækja eða einstaklinga innan þeirra. Það þjónar ekki hagsmunum jeppaeiganda að bregðast með slíkum hætti á gagnrýni á breytta jeppa. Þar að auki var flest eða allt rétt hjá VDO manninum. Jeppar á mjög stórum dekkjum eru varasamari á flestan hátt en óbreyttir bílar. Alveg sama hvaða tegund það er. T.d. út af auknu álagi á stýris og hjólabúnað og hærri veltipunkt. Það vita allir sem vilja vita. Reyndar var nýlega viðtal í Fréttablaðinu eða Morgunblaðinu við Benna í Bílabúð Benna. Þar kom fram viðhorf um mikið breytta bíla sem ég hefði ekki átt von á frá Benna sjálfum.





    16.10.2007 at 12:04 #599994
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Kannski gefur nýtt hedd aukin kraft og þrýsting í brunahólfi og þar af leiðandi meiri blástur niður í pönnu ? Næsta skref er að þjöppumæla. Segir mikið um ástand vélar.





    16.10.2007 at 09:26 #599986
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Kannast við þetta dæmi. Þegar ég lenti í svipuðu með Hilux sem ég átti í stuttan tíma þá voru sótfylltir og fastir stimpilhringir orsökin og olía að sogast upp með stimplum. Vélin var ekki ýkja slitin samt. Það var eins og það væri komin heimsstyrjöld þegar vélin fór á snúning við álag þegar hún var orðin heit. Fór rúmlega einn líter af smurolíu af pönnu í hvert skifti. Skifti um hringi og allt í goodí eftir það í mínu tilviki en þessi lýsing gæti líka átt við mikið slitna vél. Í þessum MMC eru líklega tveir samverkandi þættir. Skift um hedd sem er líklega notað og meira slitið en það fyrra og svo yfirþrýstingur í blokk sem hefur verið áður til staðar og útkoman er…….





    11.10.2007 at 09:16 #599544
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Hef keypt þrjú sett af Rancho 9000 fyrir blaðfjaðrir í gegnum tíðina. Þeir hafa svona gegnumsneitt verið með eðlilegan endingartíma. Hef ekki haft stjórnborð inni í bíl en mjög þægilegt að fikra sig áfram með stífleika með stillitakkanum á þeim sjálfum. Að vísu hafa stillitjakkarnir hjá mér fest sig fljótlega á flestum dempurunum og ekki verið hægt að snúa þeim. En það hefur ekki skipt svo miklu máli því ég hef ekki nennt að vera stilla þá fyrir hverja ferð heldur hef stillt þá í byrjun með eina stillingu sem hentar í flestar aðstæður. Er með gang númer tvö af Koni að framan fyrir gorma og ekki eins þægilegt að stilla þá upp en ágætis demparar. En þeir demparar sem hafa komið best út hjá mér allavega í denn voru sverir stillanlegir Gabriel demparar. Virtust vera ódrepandi. Keyrði þá yfir 200 þús. Voru í Hilux fjaðrabíl að framan og aftan.





    08.10.2007 at 22:15 #598936
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Vatn er undirstaða.

    Vatnsdæla af einhverri nýrri útgáfu á sínum tíma.

    Vatnsdæla og vatnsveitur eru til í ýmsum útfærlum – skóflu – spaða – membru – snígils og þess háttar og drifið á ýmsan hátt . Er líklega ekki að skjóta á rétt svar.





    08.10.2007 at 21:32 #598942
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Var á gangandi á Langjökli frá Jaka að Hafrafelli (á broddum) fyrir viku. Snjólaust og klaki í það minnsta að 1000 metra hæð. Komu þrír jeppar að jökulbrún meðan verið var að ferðbúast við Jaka og reyndu við jökulinn en skautuðu bara niður og sneru við. Galopnir svelgir. Sá einn myndarlegan á leiðinni, alveg hringlóttur eins og boraður með risastórum borkjarna rúmir 2 metrar í þvermál og svo djúpur að engin leið að sjá til botns.





    08.10.2007 at 17:10 #598926
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Undirstaða ? kannski hjól > dekk > felga > loft – loftdæla ?

    Loftdæla úr fjórum hlutum: 1. stútur í pústenda, 2. nippill í stútinn, 3. klemma, 4.slanga.

    Neiiii,ég segi bara svona !





    08.10.2007 at 10:40 #598776
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Varðandi slífaskifti í vél með lausum slífum þá þarf að skifta bæði um slíf og stimpil ef slíf er rifin.

    Ef heddið er komið af og ekki lengur hægt að þjöppumæla þá þarf að skoða slífaveggina mjög vel. Þarf ekki að sjá mikið á þeim þó svo stimpill sé rifin og með brotna hringi. Mun harðara efni í slífinni en stimplinum. Og með heddið af er hægt að leita að fleiri vísbendingum áður em meira er gert t.d. er mæld hæð á 1.-4. stimpli og 2.-3. stimpli frá blokkarplani og borið saman hvort hæðin sé jöfn á þeim sýlendrum. Ef einhver er lægri en aðrir þá líklega úrbræddur á þeirri stöng.





    05.10.2007 at 18:08 #598764
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Ef vélin blæs hressilega út um tappann þá er líklega rifin slíf og stimpil svo gott sem fastur við slífina. Þjöppumæla. Einnig gæti vélin verið úrbrætt á stangarlegu en það skýrir ekki mikin blástur.





    27.09.2007 at 15:59 #598032
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Almennt séð er æskilegt að breyta loftinntaki af augljósri ástæðu ef það er neðarlega eða fremst á bílnum ef þú ert að spyrja um það. Flestir bílar í dag taka loft inn fyrir utan vélarrýmis. Líklega vegna þess að það er kaldara þar en í vélarrýminu sjálfu. Flestir einfaldari breytingar á loftinntaki eru að taka þessa barka úr sambandi og láta vélina soga loft í vélarrýminu. Vélin tekur þá inn loft á þann hátt sem framleiðandinn taldi ekki æskilegt. Veit ekki hvort það skiftir miklu máli. Hef ekki tekið eftir neinum breytingum á þeim bílum sem ég hef gert þetta á.





    21.09.2007 at 11:47 #597516
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Ef gengið er út frá því að allt sé heilagur sannleikur sem hægt er að lesa hér á vefnum þá eru drifin ekkert allt of sterk fyrir 38" dekk í þessum bílum. 8" virkaði ágætlega í gamla daga með L og 2L vélarnar en síður fyrir 200+ hestafla vél.





    17.09.2007 at 09:57 #597256
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Var fínt jafnfallið ca 15 sm púðurlag á laugardag frá Þóristind langleiðina í Jökulheima en þegar nær dró þangað var næstum engin snjór. Á sunnudag á bakaleiðinni var snjórinn mun minni en þéttari það sem eftir var.





    05.09.2007 at 12:14 #595930
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Þetta voru nokkuð litríkar breytingar á þó nokkuð mörgum Hiluxum á þegar líða tók að tímabilið þegar þeir voru upp á sitt besta bæði á fjöllum og breytingaverkstæðum. Menn voru farnir að vilja meira afl og þægindi sem aftur leiddi af sér vélarskifti og þá oft 4,3 Chervolet eða jafnvel átta sílendra rokk. Nátturulega sjálfskiptingu með og ekki þótti verra í framhaldinu að skifta út kökklinum að aftan og settja ammrískst járn í staðinn. Einnig var blaðfjöðrun oft skift út fyrir gorma. Þeir alhörðustu sem gengu lengst lengdu svo bílana á grind.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 184 total)
← 1 … 7 8 9 10 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.