Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.01.2013 at 16:32 #225496
Á sunnudag týndist stakur upphár brúnn Scarpa gönguskór rétt sunnan Meyjarsætis ! Finnandi – ef einhver – beðin að hringja í síma 848-7871
02.01.2013 at 10:00 #761997Utan byggðar, mest gegnu.
Yfir Köldukvísl við Hvanngilshnausa
Yfir Fremri Emstruá austan Markarfljóts
Yfir Skógá
Yfir Fúlukvísl við Þverbrekknamúla
(Brýrnar á Þingvöllum ?)Dýrustu
Yfir flekaskilin Reykjanes
Yfir Morsá í SkaftafelliÍ byggð
Miklabraut sunnan Hagkaupa
Miklabraut norðan Kringlu
Reykjanesbraut sunnan Elliðadals
Kringlumýrarbraut við FossvogDýrast
Miklabraut sunnan Hagkaupa
Miklabraut norðan Kringlu
01.11.2012 at 10:24 #760039Vegabætur, Þórsmörk – Goðaland, gæti það ekki jafnvel þrósast í hinar nýju Landmannalaugar. Hver vill það nema einhver sem fær pening í kassann.
06.12.2010 at 22:45 #712848Var í þessum sömu sporum fyrir ca þremur árum. Ætti ég að kaupa eitthvað annað en Warn ? Gerði það reyndar og keypti einhverja tegund hjá Arctic trucks sem ég man ekki alminnilega hvað hét- kannski Come Up eða eitthvað svoleiðins. Þegar ég tók spilið úr kassanum var það svona svipaður fílingur og að taka eitthvað upp úr kassanum keypt í Rúmfatalagernum. Svo ég skilaði spilinu og pantaði Warn 6000 spil hjá Benna. Á þessum tíma var hægt að fá tvö Arctic Trucks spil fyrir eitt Warn spil en frágangur virkar allur annar á mig á Warn spilunum og ég myndi gera þetta sama aftur þ.e. að kaupa Warn. Hef reyndar ekkert notað spilið svo ég hef svo sem ekki hugmynd um hvernig það kemur út.
06.12.2010 at 22:20 #216276Birtist fyrir stuttu lítið kort í Dabbanum sem sýnir sprungukerfi í Langjökli. Afrakstur vinnu sem hófst eftir slys í Langjökli á árinu. Hvar er hægt að nálgast kortið á skýrari hátt ? Vefsíða ?
20.08.2010 at 21:07 #700314Er með Spot og hefur reynst vel. Eina að hnettir eru fyrir sunnan land svo ef vantar sjónlínu suðurhimin er samband ekki tryggt en ekki svo að ég hafi orðið svo mikið var við það.
Á ekki von á öðru en að neyðarhjálparbeiðni yrði send áfram til Íslands. Þar að auki er aðrir fídusar á tækinu eins og ferilvöktun. Einnig helpfídus sem sendir hjálparbeiðnir sjálfvirkt með SMS í tvo valda síma sem eigandi tækisins velur fyrirfram. Svo aðaltakkinn sem krefst viðbragða starfsmanna Spot og áframbeiðni frá þeim til 112 í viðkomandi landi.
Held að þetta sé málið til að styðja GSM síma fyrir utan kannski gerfihnattasíma.
25.07.2010 at 21:38 #698390Það er glæsilegt að 4x4x félagið skuli vera búið að eignast svona flotta tunnu. Svo er það bara spurningun hvað á að gera við gripinn. Það mætti velta fram þeirri tillögu að halda kannski bókabrennu í henni á næsta fundi…
05.07.2010 at 23:07 #697580Hver getur eiginlega átt svona fína tunnu ? Er eitthvað á sveimi á hálsinum sem fóðrað er á svartagulli úr samsvarandi gljáfægðum tunnum.
16.06.2010 at 21:17 #213236Skemmtileg bók sem ég keypti í dag sem gaman er að fletta í. Var að koma í verslarnir – Fjallaskálar á Íslandi eftir Jón Snæland. Góð hugmynd að gefa slíka bók út.
20.05.2010 at 15:54 #694126Minnir að einn eldri vinnufélagi minn hafi einhvern tímann minnst á að willis eða eitthvað svoleiðins (kannski austantjalds) hafi fylgt stútur sem skrúfaður var inn á kertagat og notað sem loftpressa í dekk. Kannski hefur mig bara dreymt það. Allavega má nota pústið þegar annað er ekki í boði sem pressu enda mótor í bíl ekkert annað en risastór loftpressa.
29.04.2010 at 20:20 #212445Einhver farið nýlega. Hef farið þetta áður og þekki leiðina og er að spá hvað klakinn nær langt inn á Jökul
25.04.2010 at 11:58 #212347Hvað má vera mikið kast á felgum þá bæði enda- og hliðarkast. Er að stilla upp og sjóða miðju í felgur og veit ekki alveg hvernig þetta á að vera. Byrjaði á því að setja bíllinn á búkka að aftan og skrúfaði felgu upp á. Festi vinkiljárn við fjöðrina og svo klukku eða penna við það sem kastmælir að felgu. Virkar bara fínt og lítið mál að stilla felgunni upp kastlítilli. En þegar settur eru festipunktar í felguna þá vill koma næstum 1 mm vitleysa í kastið þegar punktarnir draga sig saman. Vont að eiga við það. Kannski hægt að fá einhvern lélegan draglitlann vír til að setja punkta. Hvað er mikið kast látið sleppa í felgum, veit það einhver ? Líklega dempar hjólbarðinn eitthvað kast í akstri.
25.04.2010 at 11:43 #691198Gott að skrúfa kertin úr og smyrja upp eins og bent hefur verið á en allra best að láta þau ekki verða of gömul og ryðguð. Það brotnaði Motorcraft kerti hjá mér nýlega í Ranger 92 vegna þess að veggirnir voru orðnir mjög þunnir í kertinu vegna ryðs og líka vegna þess að kerti og hedd voru samangróin því að hörð ryðskán hafði myndast á milli kertisleggs og heddar. Samt var platínukertið ekki komið á tíma kílómetra séð. Kertið var frá 2003. Eftir að hafa skrapað í heilan klukkutíma með litlu skrúfjárni ryðskána burt meðfram kertinu og heddinu og startað vélinni til að skjóta postulíninu út (ekki vera í skotlínu) þá lamdi ég Torks topp inn í kertið og skrúfaði það úr. TORKið leyfir meira átak og heldur betur en öfuguggar.
18.04.2010 at 16:04 #212198Myndir teknar af gosinu af heiðinni fyrir ofan Fljótshlíð í 550m hæð ca 6-7 km fyrir austan Þríhyrning í gærkvöldi. Gengið frá Reynifelli fram í myrkur. Þetta er sko ekkert krútt gos eins og það fyrra á Fimmvörðuhálsi en fagurt í gífurlegum hrikaleik sínum fyrir áhorfanda hlémegin. Vildi ekki vera inni í þessum skít sem ryðst nú upp úr öskjunni í Eyjafjallajökli. Myndirnar ná ekki að sýna sjónarspilið sem fyrir augum bar sérstaklega þegar fór að rökkva. Viknin í gosinu er í hrinum. Oftast ryðst askan upp og lítið annað sést en svo koma miklar hrinur þar eldstrókarnir inni í mekkinum margfaldast í umfangi, lýsast upp og teygja sig fleiri hundruð metra í loft upp upp. Strókarnir eru ekki greinilegir nema í myrkri. Eldingar geysa stanslaust á meðan hryðjunum stendur sumar svo kraftmiklar að þær eru sjánlegar í umhverfinu þó snúið sé baki í eldstöðina.
18.04.2010 at 15:52 #691074Well yes…það er orðið brjálæði að reka t.d. bensínpalljeppann minn í dag þ.e. að fylla á tankinn og tómt hik við þann gjörning. Sem betur fer á ég líka dísil palljeppa sem hægt er að skrölta á eitthvað. Kemur sér líka vel þegar ég þarf að fá útrás fyrir kvenlegu kenndirnar mínar að eiga dísiljeppa.
12.04.2010 at 18:43 #690320[quote="ingi2bio":2j0itr4x]Ég skora á ykkur að skoða þessa bloggfærslu hér http://sigsig.blog.is/blog/sigsig/entry/1040556/
Það eru þá ekki jeppamenn landsins sem eru að eyðileggja landið heldur göngufólkið. Ég veit að þetta er svolítið verið að alhæfa en mér bara stór brá þegar ég sá þessar myndir. Þetta er ekkert grín og held ég að nær væri að umhverfisbattríðið allt byrjaði á að koma svona málum í lag áður en farið er að "friða" meira og banna aðra umferð en fótgangandi.
Alveg makalaust hvað þeir sem með stjórn þessara mála fara hverju sinni byrja alltaf á vitlausum enda.[/quote:2j0itr4x]Ég tel mig hafa nokkuð yfirgripsmikla yfirsýn á landinu almennt sem mjög virkur göngumaður í mörg ár og einnig sem jeppamaður í enn fleiri ár. Hef séð þá ófáa slóðana og vegi hvort sem það eru slóðar eftir jeppa, mótorhjól, göngufólk eða hestamenn. Auðvitað hef ég líka séð til þessa hópa á ferð um landið og veit svona nokkurn veginn um hvað umhverfisverndartal um ágang á landið snýst um. Ég verð að segja að Björn Ingi hefur hættulega rétt fyrir sér. Göngufólk virðist hafa tekið við sem aðalumhverfisböðlarnir í nágrenni höfuðborgarinnar af mótorhjólafólkinu sem fékk þann titil í meintu nýliðnu góðæri. Það hafa myndast ljótir slóðar eftir göngufólk á liðnum árum á mörgum svæðum sem hafa ekki þolað aukna umgengni. Gífurleg breyting þar á til hins verra. Þetta hefur verið sérstaklega áberandi á þessu ári og því síðasta. Af hverju – jú það hefur orðið sprenging í fjölda göngufólks arkandi um fjöll og firnindi á öllum árstímum, líka á þeim tíma þegar bleyta og snjóleysi magnar upp viðkvæmi landsins. Einnig hafa mjóg stórir gönguhópar frá Ferðafélagi Íslands, Fjallaleiðsögumönnum og Fjallafélaginu, svo einhverjir séu nefndir, sprottið upp á þessu ári og þeim nýliðnu. Ferðafélagið með Eitt fjall á viku verkefnið sem telur um 150 manns sem er skipt í 3 hópa. Fjallaleiðsögumenn í samstarfi við 66N með um 150 manna hóp sem ekki hefur verið skipt upp til að dreifa álginu. Fjallafélagið með eitthvað um 140 manns sem hefur heldur ekki verið skipt upp. Ferðafélagið Útivist hefur ekki farið með stóra hópa eitt né neitt, hvernig sem nú stendur á því, nema eina árvissa ferð um Fimmvörðuháls. Mikið álag hefur verið á umhverfið eftir stóra hópa og hafa þeir skilið eftir sig í nokkrum tilfellum ljót sár í landinu eftir hverja ferð sem jafnast á við skemmdir frá mótorhjólum eða jeppum á viðkvæmu landi. T.d. er leiðin frá Stóra-Botni upp á Botnsúlur með svöðusár í grassvörðin á túninu við gamla bæinn vegna, meðal annars eftir ferðir Fjallaleiðsögumanna 66N og Fjallafélagsins á Botnsúlur sem fóru þar um nýlega í aurbleytu. Slóðinn norðan við Botnsá í gegnum skóginn eitt drullusvað eftir göngumenn. Þarna var farið með um 150 manns í einu í hvort skifti. Ef einhver hópur telst vera til fyrirmyndar ef í heildina er litið í umgengni við landið í dag þá eru það jeppamenn. Það er hinn nakti sannleikur þó svo að jeppamenn séu taldir vera ljóti kallinn af svo mörgum og virðast svo oft vera undir smásjá fjölmiðla og Umhverfisstofnunar og gönguhópar næstum stikkfríir sem þeir eru alls ekki lengur. Það bætir svo sem ekki athæfi neinna að réttlæta sjálfan sig með að benda á að aðrir séu verri en maður sjálfur en nú orðið er orðin lenska í þessum málum að hengja bakara fyrir smið og mættu stóru göngufélögin og göngufólk almennt verulega taka sig á í umhverfisvernd og ekki ganga um í stórum hópum á þeim tíma þegar landið er hvað viðkvæmast fyrir. Mættu taka jeppamenn til fyrirmyndar sem lítið skemma landið í heildina litið og eru almennt meðvitaðir um góða umgengni. Engin vafi um það. Það er bara þannig en samt þurfa jeppamenn ennþá að taka einna mesta þungann af gagnrýni vegna slæmnar umgengni við landið og að vera á nálum svo þeir verði ekki teknir fyrir og haldi haus fyrir litlar sakir. Gagnrýni á jeppamenn og afhausun mest af gömlum vana sýnist mér. Ósanngjarnt -YES.
12.04.2010 at 00:15 #689850Það sem ég hef heyrt af akstrinum á hrauninu í fjölmiðlun er að jeppa hafi verið ekið yfir nýja hraunið. Annað gæti svo sem hafa komið fram í fjölmiðlun þó svo að það hafi farið fram hjá mér. Hér á vefnum er sagt að einungis framdekkjunum hafi verið tillt upp á hraunið sem breytir líklega einhverju eða hvað. Veit ekki. Ef ég hefði ekki lesið um aksturinn hérna á vefnum þá myndi ég halda að aksturinn hefði verið mun yfirgripsmeiri. Sú mynd gæti blasið við fleirum sem ekki hanga hér á vefnum, jafnvel að ekið hafi verið yfir hraunið þvers og kruss. Það er möguleiki en allavega var aksturinn í óleyfi Almannavarna og Lögreglu og það hljómar illa. Það hefur skaðað að einhverju leyti brothætta ímynd jeppafólks eina ferðina enn. Ég hef tvisvar verið spurður að því í vikunni hvað mér finnst um það að aka á nýja hrauninu í þeim ásökunartón sem maður hefur svo sem heyrt áður og þurft stundum að svara fyrir gjörðir annarra fyrir það eitt að eiga jeppa. Samskipti og afstaða Umhverfisstofnunar í garð jeppamanna virðast vera stirð og eldfim og fara vernandi ef eitthvað er. Kannski hanga þeir hérna á vefnum og lesa póstana þar sem deilumálin við stofnunina eru stundum persónugerð við starfsmenn hennar á dónalegan og óbilgjarnan hátt. Mér finnst það orka tvímælis að réttlæta þennan akstur á hrauninu í ljósi kringumstæðna .
10.04.2010 at 13:07 #690186huuuhu… ég er á næstum tuttugu ára gömlum verðlausum útlifuðum Ford Ranger eknum á fjórða hundrað þús.km. en komst samt báðar leiðir fram og til baka til gosstöðvana án þess að taka upp lykil eða framhjólalegu. Eini bíllinn sem ég sá dauðastopp á jökli var Willis – auðvitað eldgamall. Þrír bílar voru líka stopp í einni kös í einhverju havaríi rétt fyrir ofan skálann en ég sá ekki hvaða bílar þetta voru eða hvað gamlir, vegna skafrennings. Ábyggilega einhverjar gamlar druslur.
En afhverju er Patrol hvítur ? Er ekki hvítur litur uppgjafar samanber hvíti fáninn ! Það kannast flestir við bogna menn, áfengis- eða spilafíkla. En Patrol eigendur – þar eru sko brotnir menn…. ég heiti Jón Jónsson og ég á Patrol.
08.04.2010 at 23:01 #689792Mér finnst þetta ekkert sérstaklega sniðugt þó svo að þetta sé kannski góð landkynning eins og Vígdís Finnbogadóttir í gamla daga. Gosið þarna uppfrá er farið að verða eins og sirkus að sumu leyti. Ríkisstarfsmenn í vinnunni að leika sér við að labba yfir hraunið – víst í þágu vísindina og misstu það svo úr að þeir voru ekki fyrstir yfir heldur einhverjir tveir útlendingar áður. Eldgosafræðingur í för með Topgear enda dugar nátturulega ekkert minna. Og svo koma menn á eftir þessum hetjum og segja – þeir máttu og ég þá líka – ég líka – þeir máttu.
04.04.2010 at 23:34 #689008Dæla klaka í blóðið og láta björgunarsveitarmenn fá vinnufrið. Það hefur ekki verið vanþörf á nærveru þeirra beggja vegna á hálsinum. Sá það best á föstudeginum langa á gönguleiðinni um Kattarhryggi til Morrisheiðar. Eftir að myrkur skall á var sko nóg að gera hjá þeim. Voru bókstaflega á hlaupum upp og niður gönguleiðina með kaðla og börur við að sinna ráðviltu, meiddu eða slösuðu fólki og drösla þeim á staði þar sem þyrlur gátu tekið við þeim. Þetta virkaði á mig eins og stríðsástand á tímabili – eins og in Nam. Þyrlur á sveimi upp og niður eftir gönguleiðinni í myrkrinu, blikkandi ljós, sterkir kastarar og alles.
-
AuthorReplies