Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.03.2008 at 12:16 #616648
Come Up 6000S er 22kg með sætisskúffu sem fylgir með.
Come Up DV9000 er 33kg + skúffa = tæplega 40kg
Come Up DV9000I er 36kg + skúffa = um 40kg.
06.03.2008 at 09:34 #202031Ætla að fá mér spil á jeppann. Festingar framan og að aftan og allt það. Finnst 9000 spil vera full þungt í meðförum. Það er til létt Come Up 6000 spil hjá Artic trucks. Er það eitthvað sem mun virka í 2200 kg. jeppa ? Reynslusögur ? Geri mér grein fyrir að það mun varla ráða við sírius krapafestur en ætti varla að vera verra að hafa það ef maður notar blakkir.
25.02.2008 at 15:45 #615290svarið.
25.02.2008 at 13:56 #201950Hvernig er færið inn að Jökulheimum ? Túngnaá lokuð ? Frost í kortunun því varla krapi um næstu helgi er það eina sem ég veit.
21.02.2008 at 09:23 #614822Hef skift um neðra brettið fyrir aftan og framan hjólskál í Hilux að mig minnir. Smíðaði bara plötuna fyrir framan hjólskál og er það lítið mál en á aftari er flóknari smíði og borgar sig að kaupa nýja t.d hjá umboðinu.
20.02.2008 at 16:29 #614674Hef "lent" í því að slíta spotta við að draga 4 tonna E350 með umtalsverðu tjóni á báðum bílum. Sýnu meira á 350 bílnum. Ég átti ekki spottann og veit ekki um aldur hans eða fyrri störf en hann virkaði grár og gugginn á mig. Ég bauðst til að fyrra bragði að það yrði gerð tjónaskýrsla því kannski hef ég gefið 2-kall of mikið inn miðað við aðstæður svona eftir á að hyggja. Varð það langbesta lendinginn a.m.k. í þessu máli. Tryggingafélag mitt greiddi tjónið á hinum bílnum orðalaust og varð tjónið mér að kostnaðarlausu að mestu leyti fyrir utan skemmdir á mínum bíl því flest eða öll tryggingafélög hafa hætt við gamla bónuskerfið og það orðið minna mál að koma með tjón inn á borð til þeirra.
05.02.2008 at 11:51 #612386Það mætti nátturulega fara hægt og rólega í að setja út á nýbretta bíla þar sem hefur verið lagður metnaður í að breyta vel og faglega.. En ég er ekki búin að gleyma því þegar ég var barn þegar bekkjarbróðir minn varð undir vörubíl, sem var að manuera að mér skildist, og átti aldrei möguleika gegn þungum bíl. Full ástæða að fara varlega.
04.02.2008 at 14:19 #612362Flottur bíll og ætti að drífa alveg helling. Bara það að setja burðarmiklar Unimog hásingar undir er snilld og mætti þess vegna vera gert meira af því og það á minni dekkjum en þetta. Þetta er tæki sem á heima á fjöllum en varla innanbæjar í almennri umferð því yfirleitt eruvörubílar og rútur ekki æskilegar inni í íbúðarhverfum svo ekki sé talað um í nágrenni skóla, dagheimila og svo framvegis. Það var allavega lagt tölverð áhersla á það þegar ég tók meirapróf þó ekki nema bara fyrir það að það getur maður eða barn staðið fyrir aftan svona stóran bíl og útilokað að sjá viðkomandi svo eitt dæmi sé tekið. Mér finnst þeir sem eru á risatrukkum séu að misnota og kunna ekki að fara með það frelsi sem jeppamenn búa við hér á landi sem birtist meðal annars í því að fólk er almennt hrætt við risatrukkana. Jeppamönnum var sýnt traust á sínum tíma þegar breytingar á jeppum voru lögleyfðar. Ef öfgabreytingar sem þessar þykja sjálfsagðar hjá jeppamönnum og fara að verða almennar þá hafa þeir brugðist því trausti að mínu mati með ófyrirsjánlegum afleiðingum eins og kannski skertu áðursögðu frelsi í framtíðinni.
25.01.2008 at 14:58 #611486Yfirleitt breyta menn jeppum til að drífa meira í snjó hér á landi. Þá eru sett stærri og belgmeiri dekk undir sem ryðja meira frá sér og fljóta því frekar ofan á snjónum frekar en að fara í gegnum hann. Það má líkja þessu við bát. Því meira sem dekkin (báturinn) ryður frá sér því meira flot. Mesta flotið næst síðan með að minnka loftþrýstinginn í dekkjunum því þá fletjast dekkin út eins og pönnukaka og flotið stóreykst. Til að koma stærri dekkjum t.d. 38" í þvermál undir þarf að hækka bílana. T.d. með að lyfta boddí frá grind og setja klossa þar á milli. Einnig með að setja klossa undir gorma eða fjaðrir til að hækka bílinn á fjöðrunarkerfi. Oft best að sameina þessar tvær hækkarnir í einum bíl. Svo þarf brettakanta til að skerma stærri hjól af. Við stærri dekk verður bíllinn hærra gíraður og tog vélar nýtist ekki eins og áður. Þá verður fyrsti gírinn jafnvel eins hár og annar gír var áður en stóru dekkin voru sett undir sem er slæmt því jeppar þurfa að vera lágt gíraðir til að hafa kraft (tog) í þungu færi. Þá eru sett svokölluð lægri hlutföll í hásingar bílsins sem eru meira niðurgíruð en þau hlutföll sem voru fyrir í hásingunni og bíllinn verður eins eða svipað hátt gíraður og fyrir breytingu. Það er hægt að skrattast út um allt þegar þessar breytingar eru komnar en það er hægt að bæta endalaust við búnað en þetta er grunnurinn.
25.01.2008 at 12:29 #611480Erfitt að greina frá sögu og tilurð jeppabreytinga hér á landi í stuttu máli. Efni í heila bók. Bókin Farið sem 4×4 klúbburinn gaf út er nokkuð ágæt útlistun á jeppabreytingum og þróun snjójeppana hér á landi. Líklega hægt að nálgast hana einhversstaðar fyrir lítin pening?
24.01.2008 at 11:06 #611412felgurær
22.01.2008 at 09:57 #611126Dana 30 7,2" Dana 35 7,6" Það er almennt álitið að reverse framdrif séu sterkari þegar ekið er áfram (en ekki sterkara afturábak nota bene). Talað um 30% sterkari. Ef svo er veit einhver affurru það er ? Veit svo sem að þau taka á kúptri áframtönn en ekki íhvolfri bakktönn þegar ekið er áfram en afhverju er það sterkara ?
21.01.2008 at 13:26 #611116Mér þætti það líklegt. Ég er með næstu stærð fyrir ofan Dana 35 reverse sem hefur ekki látið undan eftir tæplega 300.000 km á tveggja tonna 35-36 tommu Ranger með 160 hö. En ef hægt væri þá er betra að fara í eitthvað sterkara en Dana 30 (skaftið vm/hm?) ef á leggja vinnu í að skifta um hásingu á annað borð. Það leyfir ekkert mikið af styrkinum.
17.01.2008 at 14:09 #610518Munar slatta á milli 33 og 35. Þú kemst flest allt síðla vetrar við góðar aðstæður á 35 ef ekki er krapi. (ef 33 er ekki nóg þá er 35 ekki það heldur !) BF Goodrich eru góð dekk.
17.01.2008 at 11:33 #201643.Ég fór í gær gærkvöldi upp í Bláfjöll að athuga með skíðafæri um níuleytið.Þar mætti mér ótrúleg sjón við eina mest notuðu skíðabrekkuna í Bláfjöllum norðanmegin við stærsta skálann. Brekka sem greinilega er búið að leggja milkla vinnu í að gera nothæfa fyrir skíðafólk með snjótroðurum. Þar var fólk á jeppa að leika sér við að keyra ítekað upp í brekkuna. Jeppinn tók löng tilhlaup og komst nokkuð langt upp. Hann keyrði frá brekkunni upp að stærsta skálanum og sneri þar við. Síðan var allt gefið í botn niður að skemmunum. Framhjá þeim og upp í brekkuna. Skrautlegt. Þessir menn voru þarna á amk. 2 bílum. Annar breyttur en hinn ekkert enda var hann ekki notaður í brekkuna. Ég keyrði að skálanum til skoða bílana og þegar þeir sáu mig þá keyrðu þeir að mér skrúfuðu niður rúðu og hrópuðu einhverju að mér. „Ert þú vörður hér“ heyrðist mér þeir segja og svo brunuðu þeir upp í brekku aftur. Þetta voru engin börn ef marka mátti bílakostinn. 3-4 milljóna kr. jeppar hvor.
07.01.2008 at 11:10 #201546Undarlegt hvað þróun á jeppabreytingum hefur verið á verri veg á einstaka þáttum þrátt fyrir stórbætt vinnubrögð að flestu leyti. Var að skoða undirvagn í nýlega breyttum bíl með litla breytingu sem gerð var hjá nokkuð þekktu breytingaverkstæði. Allavega er bíllinn merktur sem slíkur. Þessi bíll er með klafafjöðrun sem bókstaflega er skrúfuð upp í botn til að koma stærri dekkjum fyrir. Slík hækkun getur ekki verið holl fyrir öxulliði eða stíyrisenda þar sem átakshorn aflagast og skekkjast svo ekki sé talað um skerta fjöðrunaeiginleika og minna fjöðrunarsvið. Hérna virðast menn vera að spara sér vinnu við boddíhækkun.
03.01.2008 at 15:46 #608860Mudder er fín dekk í snjó með góðan orðstír en eru gróf og eru því ekki eins góð akstursdekk í hálku eins og dekkin þarna frá Artic trucks sem heita AT405 ef ég man rétt.
03.01.2008 at 08:54 #608790Mmmm…. já. Gúdd luck við að fá símann í lag. MOTOROLLA NMT bílasíminn minn bilaði fyrir nokkrum árum enda orðin gamall. Dettur út eftir að hafa náð tengingu. Þó svo að ég hafi farið með hann á öll helstu verkstæði bæjarins og sett í hann nokkra 5 þús. kalla þá var hann alltaf eins. Mér skiltist í mínu tilviki að það væru ekki til teikningar af símanum sem flækir málið. Myndi ekki aftur leggja eins mikla fyrirhöfn í símann minn aftur.
20.12.2007 at 11:26 #607376Hef ekki skoðað slóðina en þetta var frábær mynd a.m.k á sínum tíma. Land Roverinn Anti Krist var aðalnúmerið. Alveg kostulegt. Lifir í minningunni en ég myndi samt varla þora að sjá myndina aftur ef vera skyldi að hafi ekki elst vel.
18.12.2007 at 12:05 #607188það eru nátturulega þessir sígildu gömlu.
Við Kverkfjöll. Er nátturulega erfitt aðgengi á þessum tíma. Ágætis hellir amk í júlí í sumar.
Hraftinnusker. Ansi hrunin og eitthvað að minnka fyrir 2 mán.
Flosaskarð í Langjökli. Einhver sagði hér á síðunni að hann væri hrunin. Veit ekki meir.
Svo íshellir í risaísskafli en ekki þó eiginlegur jökull innst í Kjós norðan við Skaftafellsfjöll. Heillegur í sumar. Kannski nothæfur ef annað bregst og menn nenna að labba heilan dag. En varasamt svæði í janúar. Klaki í giljum og jafnvel snjóflóðahætta.
-
AuthorReplies