Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.05.2008 at 13:19 #623318
Sama eða samskonar aðferð sem runar lýsir hefur virkað, allavega hjá mér. Annars er aðalmálið að fá dekkið að tolla það vel á innri kantinum að það hrökkvi ekki af þegar dekkið er togað út í ytri kantinn. Ef það gengur illa að fá dekkið til að tolla á innri kantinum þá reddaði ég mér einhvern tímann þannig að þrífa dekkið með að nudda þynnir með tusku í kantinn á dekkinu. Við það verður gúmmíið mun stamara og grípur fastar í felguna og hrekkur síður til baka.
16.05.2008 at 13:51 #202442Er að spá hvort það mæli eitthvað mikið á móti því að nota 10″ breiðar felgur undir 38″ GH dekk eða Mudder fyrir utan það að vera dálítið ljótt og eitthvað minna flot. Hef allavega séð einn Hilux og einn Trooper með svona binda sína bagga ekki sömu hnútum og samferðamennirnir útgáfu. Einhverjar reynslusögur ?
06.05.2008 at 10:18 #622534Ég veit ekki hvar þessi sprunga var en myndi giska á að hún sé niður í gígnum austan megin við Goðastein/Guðnasteinn nyðri ef ég hef lesið myndina sem fylgdi fréttinni rétt. Þar er svona skemmtileg jaðarspruga meðal annara sprungna eins og vitað er. Annars var það lán í óláni að sú sem datt ofan í skyldi renna eftir hallandi jaðarsprungu niður á hillu frekar en hátt frjálst fall.
Annars er þetta þriðja tilfellið sem ég veit um að gangandi maður hafi farið niður í sprungu á þessu vori í Eyjafjallajökli. Að vísu voru hin tvö tilfellinn ekki eins alvarleg og ekki farið niður lengra en að mitti og öxlum og báðir viðkomandi í línu. Þetta var í jaðarsprungu á leiðnni upp á Hámund vestan megin og svo aftur sama sprungan mitt á milli Hámunds og Goðasteinns/Guðnasteins syðri.
29.04.2008 at 11:48 #621776Dekkið sett upp á opna tunnu svo hlið dekkjar liggi á tunnubrúninni. Eitthvað sett í miðju felgu til að þétta. Loft sett í dekkið gegnum ventilinn nátturulega ( tuuuunnnuna þá um leið) og fengið sér kaffi á meðan loftþrýstingurinn þenur dekkið eins og blöðru út í felgukantinn sem snýr niður.
28.04.2008 at 23:42 #202364Var að skoða myndir frá Jóni G. Guðmundssyni þar sem verið er að setja dekk upp á felgur með að nota tunnu og lok í miðju felgu. Afsakaðu forvitnina Jón ef þú lest þetta en hefur þetta verið lengi gert á þennan hátt svo þú vitir til ? Veit að þetta svínvirkar.
25.04.2008 at 11:00 #202353Það hafa ansi margir í þjóðfélaginu orðið sér og öðrum til skammar við svokölluð olíuverðsmótmæli eins og dæmin sanna. Þó ekki lögreglan. Hún hefur sýnt af sér fagmennsku, mikla yfirvegun og þolinmæði og er eiginlega eini aðilinn sem kemur úr þessari dramatík með reisn. Óska þeim lögreglumönnum sem slösuðust eftir fólskulegar árásir góðs bata.
Kveðja Tómas
09.04.2008 at 09:02 #619990Hætt við að þú sitir upp með skaðann. Sérstaklega erfitt að sækja eitthvað fyrir dómstólum með svona gamlan bíl eftir því sem ég hef heyrt. Það eitt af því fáa sem ég hef lært af bílakaupum mínum í gegnum tíðina er að góð kaup (eftirá) á gömlum bíl af einhverjum mönnum út í bæ er oft happadrætti þegar maður þekkir ekki til sögu bílsins eða fyrri eiganda.
08.04.2008 at 12:04 #619964Ef aftari lega er innri legan (stærri legan) þá er ekki hægt að skifta henni út nema að taka kökkul frá og drifið úr. Ytri legu er fræðilega hægt að skifta um án að taka drif út og pinjón (sjóða inn í slífina miðja svo hún herpist saman og "detti út" en samt aldrei gert þannig án þess að rífa meira). Athuga t.d. hjöruliði í öxlum frekar mundi ég halda eða tennur í drifi.
04.04.2008 at 13:38 #619216Það er vegur sunnanmegin langleiðina að jökli frá Stapafelli eins og þú veist líklega. Hef ekki farið þarna upp nema í þoku og á skíðum og þekki því lítið jeppaleiðir þarna upp og get því lítið ráðlagt en þú getur líklega fylgt förum (að því gefnu að þeir sem undan fóru hafi farið rétta leið sem engin leið er nátturulega að vita) ef það er gott skyggni sérstaklega ef þú hefur punkt á toppnum. En eitt get ég ráðlagt þér að fara varlega við toppinn ef það skyldi vera lítið skyggni. Bratt niður vestanmegin. Einnig geta jeppar runnið til baka í brattasta kaflanum á leið upp ef hart færi og ekki á nöglum.
Góða ferð.
02.04.2008 at 11:43 #618910Hvað er númerið á bílnum hjá Andrési Önd ? Ef þetta er of flókið fyrir einhverja þá er það runa af óhappatölum. ooooh.
(Ekkert í vinning)
02.04.2008 at 09:36 #618886Var ekki farin að skoða jeppaferlana sem ég fékk senda og var núna áðan að eyða þeim fyrir utan gönguleiðaferilinn sem Þórhallur á persónulega. Honum held ég og þarf heldur ekki annan í raun.
31.03.2008 at 16:36 #202214Hver er besta (skásta) leiðin að Hásteinum í Hofsjökli eða hvaða leið er algeng að brölta þarna upp. Slatti af sprungum skillst mér á jöklinum. Er eitthver með mynd á korti af mögulegum leiðum eða vísun í trakk.
31.03.2008 at 10:23 #618308Ansi líklegt að bremsuvökvi skemmi dekk. Allavega eyðileggur bremsuvökvi öll venjuleg gúmmí. Gúimmíþéttingar í bremsukerfum eru úr einhverju spes efnum sem þola bremuvökva.
27.03.2008 at 14:38 #202194Hver er aftur formúlan yfir hvað þarf marga kvaðrata kapal miðað við straumnotkun og lengd kapals. er að fara leggja kapal í afturstuðara fyrir spil.
Strumnotkun:
12V DC PERFORMANCE SPECS
Line Pull
Lbs.(Kgs.) Line Speed
FT./min(M/min.) Motor
Current Pull by layer
layer/Lbs(Kgs.)
0 48.5(14.78) 85 amps 1/6000(2722)
2000(907) 23.7(7.22) 175 amps 2/5460(2477)
4000(1814) 12.9(3.93) 360 amps 3/5000(2268)
6000(2722) 10.0(3.05) 465 amps 4/4670(2118)
26.03.2008 at 08:41 #618406Það er hægt að fá út í næstu bókabúð kortadisk af öllu landinu í 1.100.000 frá Landmælingum. Eldri 50.000 kortin eru svo sannarlega orðin dálítið gömul. Sum merkt frá 1948 og 1950. En virka samt utanvega en þó ekki við jaðra jökla.
25.03.2008 at 16:22 #618396Það hafa verið gefin út eitthvað fleiri 1:50.000 pappírskort en sýnd er á skyggða svæðinu hér fyrir ofan. Var allavega með eitt í höndunum um helgina á Drangajökli hvaðan sem kortið (lánað)kemur nú. 50.000 kortin eru frábær til að rata eftir en mér finnst samt alltaf gömlu 1:100.000 kortin vera laaaaangbest því þar eru sýndir klettar og hamrar í landslaginu en það sýna önnur kort ekki hvort sem þau séu á pappír eða tölvu. Hef aðgang af nokkrum gömlum eintökum af 1:50.000 kortum. Athuga með Kollumúla í kvöld og læt vita ef eitthvað finnst.
19.03.2008 at 09:29 #617984Loksins almennilegur þráður. Meira af þessu. Umræðan var að verða tilbreytingalítil.
14.03.2008 at 09:41 #617632Lengi vel voru margir vörubílar smurðir með svo kallaðri fljótandi smurningu þ.e. höfð vélarolía í nöfum að framan en gírolía að aftan ef nafdrif. Þetta var skotheldur búnaður sem gaf mun lengri endingu hjólalegna miðað við koppafeitina. Yfirleitt dugðu hjólalegurnar bíllinn ef olíusmurt sem er hátt í milljón km. Pakkdósir fyrir olíusmurt virkuðu "massífari" á mig. En olíusmurt breytir því ekki að það er mun meira áreiti á jeppahjólegur. Vatn að þrengja sér inn í nöfin sem skemmir hvort sem olía eða feiti er í legum. Sandur og aur að eyðileggja pakkdósir osfr. Því verður bara ekki hjá því komist að þrífa legur reglulega, smyrja upp og skifta um pakkdósir.
12.03.2008 at 12:03 #616658Takk fyrir greinargóð svör. Fékk mér 6000 spil. Þó svo að stærra spil sé mun eigulegra þá samsvarar þessi stærð spils bílnum betur og ætti að vera nóg fyrir hann sjálfan svona oftast. Einnig er ég með bensínvél og þar af leiðandi bara einn rafgeymir.
07.03.2008 at 11:23 #615874Ekki eina dæmið um skálavesen þessa helgina. Fórum fimm á tveimur bílum í Jökulheima síðastliðið
föstudagskvöld með 20 þús. kr. greiðslukvittun upp á vasann frá Jörfa um gistingu í litla skálanum. Þegar við greiddum gistinguna þá var okkur sagt að það hafi verið 18 manna hópur að vera falast eftir skálanum en verið neitað því við höfðum pantað áður. Hefði þeir því fengið 10 rúmpláss. En viti menn þegar við renndum í hlað í Jökulheimum um miðnætti þá var þessi sami hópur búinn að koma sér fyrir í skálanum og nú um 20 manns. Þeir byrjuðu á að segja okkur að það væri 1 rúmstæði laust og þeir ætluðu að "reyna hliðra til" svo við gætum sofið á gólfinu. Ég brást reiður við en sagði svo sem ekkert dónalegt eða eitthvað sem lítur illa út á prenti. Þó svo að einn þeirra hafi boðist til að sofa í bílnum fórum við í stóra skálann upp á von og óvon því von var á hópi þangað. Kom hann stuttu seinna, viðgerðarhópur frá Jörfa sem var boðinn og búinn að hliðra til svo allir gætu lagst á sitt græna eyra þó svo það væri á gólfinu eða út í bíl. Ég hef svo sem lent í ýmsu í skálum en þetta er nú mesta frekjan og yfirgangurinn. Auðvitað geta skálar fyllst við vond veður, bilarnir og þess háttar en þetta var bara planað fyrirfram.
-
AuthorReplies