FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Profile picture of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 184 total)
← 1 … 3 4 5 … 10 →
  • Author
    Replies
  • 31.03.2009 at 20:44 #204148
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það var einhver að hrósa jeppadekkjaverkstæðinu hjá Artictrucks hérna á vefnum fyrir stuttu svo ég ákvað að prófa þjónustana í dag eftir hálfgert vesen hjá mér hjá tveimur öðrum jeppadekkjaverkstæðum fyrr í vetur. Í öðru tilvikinu þar sem naglar voru reknir of langt inn svo þeir gerðu minna gagn en þeir eiga að gera og bíllinn of laus í hálku. Einnig voru dekkin með litlar sprungur þétt upp við naglana einhverja hluta vegna. Svo hinu verkstæðinu þar sem jafnvægislóð hreinlega brotnuðu af eða voru laus á felgukantinum, sömu viku og þau voru sett á, og snerust með í hring í felgunni ef ýtt var fast á eftir þeim. Bíllinn ókeyrandi eftir eina ferð vegna dekkjakasts. Ástæðan tel ég að notuð voru gömul lóð þar sem festikrókarnir voru orðnir eitthvað slappir og útteigðir. Svona smáatriði sem skipta máli í jeppa sem fer út fyrir malbikið. Þetta hefði svo sem líklega dugað í venjulegum aðstæðum en ekki í klakasvelli eða krapa. En ágætis vinnubrögð voru síðan hjá Articktruck. Notuðu ný lóð sem munu ekki losna frá eða snúast í felgunni svo glatt. Bættu við nöglum sem voru reknir mátulega langt inn og greinilega passað samviskusamlega upp á að þeir lentu ekki í sömu línu og naglarnir sem fyrir voru. Engar sprungur við naglana. Finnst að svona megi koma fram hér á síðunni því það stuðlar að jeppakallar hitti frekar á góða þjónustu. Það er allavega min reynsla tvisvar eða þrisvar.





    03.03.2009 at 19:01 #642138
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Lappi og Lappi er víst ekki það sama. C202 er hógvær almenningsútgáfa af L3314 herlappa sem aldrei kom hingað til lands amk ekki þegar lappinn var upp á sitt besta, eða þannig, hér á landi. Þeir gætu verið með niðurgíraðan háa í millikassanum, læsanleg drif og svo framvegis.

    En hlutföllin í Rocky millikassa eru 1,297 í háa og 2,370 í lága. Eftir bíla framleidda eftir okt 1991 veit ég ekki hvort hlutföllin séu sú sömu en líklegt.





    02.03.2009 at 20:31 #642134
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það er sömu millikassar FD51 í C202 seinni kynslóðar og C303 bílunum.

    Hlutföllin í C202 seinni kynslóðar og C303 millikassa eru í háa 1:1. Lága: 2,39. C202 hefur 3,71 í fyrsta og 6,17 drifhlutfall sem gefur heildarniðurgírun 54,7:1. Ansi gott fyrir utan hámarkshraða rétt rúmlega 80 km með góðu móti.

    Veit ekki um hlutföll í fyrri kynslóðar C202. Af þeim bílum komu örfáir hér til lands.

    C303 almenningsútgáfa er með 3,78 í fyrsta,millikassi 2,39,drif 2,91,niðurgírun í hjól 2,06 sem gefur 54.1:1. Hernaðarútgáfa er með
    allt niður í 3,67 hlutfall í drifi sem gefur hásingunni 7,65:1. Sem þýðir 68,3:1 í lægsta gír. Nafdrif með drifkúlu ofar miðju felgna er toppurinn í torfærujeppa. Hátt undir og tekur mjúkt á og lítið sem ekkert hnökur í átökum í lágum gír. Slíkir torfæru trukkar hljóta að drífa heilling í þungu færi en vantar líklega lipurð og léttleika þegar færi er sæmilegt eða gott vegna þyngdar á krami. Líklega heldur ekki bestu bílarnir til að skreppa austur fyrir fjall og fá sér ís í Eden eða parkera í Kringlunni.





    01.03.2009 at 13:19 #642124
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Kassinn er úr stáli. Eina álið í honum er í lokinu. Ekki þungur finnst mér en það er bara tilfinning frekar en staðreynd. Held að Lappamillikassarnir séu alveg ágætir. Þeir dugðu vel á stórum dekkjum, en nátturulega litlar vélar, í seinni kynslóðar Löppunum á sínum tíma (1978 -1980) fyrir utan að það þurfti að skifta um legur í þeim nokkrum. Það var aðallega og nær eingöngu út af því ef minnkaði olía á þeim vegna leka. Þær legur sem stóðu hæst í kassanum voru viðkvæmar fyrir því. Það er reyndar að auki frekar skrýtinn rafstýrður vacum búnaður fyrir framdrifstenginguna sem ekki alltaf var í lagi. Sett í fjórhjóladrifið með takka inn í bíl en í lága með stöng. Þessir kassar voru hannaðir og framleiddir af Volvo eftir því sem ég best man. Fyrri kynslóðar Lappinn hér á landi fyrir 1970 var með einhvern annan millikassa minnir mig. Ég er að tala um minni Lappann. C202. Stærri bíllinn heitir C303. Þeir eru bara alvöru með niðurgíraðar hásingar út í hjól og alles.





    19.02.2009 at 20:08 #203856
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Hvað er algeng heildarniðurgírun eða hvað kemur best út í fyrir 2 tonna 38″ jeppa, beinskiptan eða sjálfskiptan ?

    Veit einhver heildarniðurgírun í L200.

    Oftast er gengið útfrá hlutföllum í drifum til að meta hversu jeppar eru lágt gíraðir sem segir þó ekki nema rúmlega hálfa söguna eins og vitað er. Þó svo að tvær tegundir jeppa séu með sama drifhlutfall í hásingu t.d 4,88 þá getur heildarniðurgírunin út í hjól frá vél verið mjög svo mismunandi vegna gír- og millikassa.

    Svo ég komi með svaka dæmi Sjálfskiptur Ranger 1992. fyrstagírshlutfall 1:2,47, millikassi 1:2,48, drif 1:3,73. Heildarniðurgírun orginal er 1:22,8 (2,47×2,48×3,73 = 22,8) sem er hljómar býsna hátt en virkar samt ágætlega að 36″ því skiptingartúrbínan gírar niður skiptinguna (snuðar) á lágsnúning og gefur þannig séð aukagír. Þarf samt að fylgjast vel með hitamyndum þegar túrbína er látin snuða að ráði. Með 1:4,56 drifhlutfalli er heildarniðurgírun 1:27,7 sem fer nokkurn veginn meðalveginn fyrir heppilegt drifhlutfall fyrir snjó- og malbiksaakstur fyrir 2 tonna 38″ sjálfskiptan bíl og 35″ á sumrin miðað við mína reynslu Mætti vera samt vera aðeins lægra úr því að skipt er um hlutfall á annað borð en ekkert möst samt.





    18.02.2009 at 21:18 #641246
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það er óþarfi að taka þennan jeppaklúbb eða nokkurn annan svo hátíðlega að ekki megi vera með skrif í anda MHM inn á milli háalvarlega umræðna um brotin drif og affelgarnir.





    16.01.2009 at 20:14 #632940
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Er búinn að stækka dekk hjá mér á bíl sem er með sérskoðun og fór því lauslega yfir reglugerð samgöngumálaráðuneytis yfir ökutæki og athugaði hvort ég þurfi að fara aftur með bílinn í sérskoðun vegna stækkun dekkjana. Í reglugerð (http://reglugerd.is/interpro/dkm/WebGua … enDocument) er talað um að megi stækka eða minnka ummál hjólbarða um 10% án sérskoðunnar sé bifreið ekki breytt bifreið. Einnig að bíll eigi að vera á stærstu dekkjum sem hann verður á í skoðun. En ég get ekki séð neitt yfir hvað má stækka eða minnka hjólbarða sé bifreið hinsvegar með sérskoðun. Úr því að það er ekkert minnst á það þá hlýtur það að þýða að ekkert megi stækka eða minnka hjól frá skráðri stærð á sérskoðuðum bíl til að vera löglegur á vegunum. Svo sem skiljanlegt að ekki megi setja 38" dekk í staðinn fyrir 35" án sérskoðunnar en bagalegt ef þetta þýðir að sérskoðaður jeppi sé ólöglegur á minni dekkjum en hann er sérskoðaður fyrir sem er þó mun saklausari aðgerð en stækkun dekkja. Við alvarleg slys er líklega ansi oft farið ofan í saumana á ástandi bíla, hvort þeir séu löglegir og þá er eins gott að hafa sitt á hreinu. Tryggingafélög hugsa nátturulega bara um sitt eins og aðrir og greiða treglega út tjón nema þeim sé það skylt samkv. lögum og reglugerðum. Ekki víst að það þýði eitthvað að tala um hvað er sanngjarnt og hvað ekki er sanngjarnt. Þetta er allavega minn skilningur á reglugerðunum og ef rétt þá er þetta eitthvað sem mætti reyna að breyta, ef einhver nennir, þ.e. að breyttir jeppar verði löglegir á allt að 10% minni dekkjum (sumardekkjum). Var reyndar búin að senda fyrirspurn til skrifstofu 4×4 klúbbsins fyrir tæpum tveimur mánuðum hvort ég væri að fara með rétt mál með skilning minn á reglugerðunum en hef ekki fengið svar ennþá.





    06.01.2009 at 22:49 #636360
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    60 þús. stk. en ekki til í RVK allavega ekki fyrir áramót. Væru á ca 80 stk. ef pantað í byrjun desember síðastliðnum skv. Bílabúð Benna. Í sama mán. var til á dekkjaverkstæði á Akureyri eitt sett nelgt og mícróskorið á tæplega 300 minnir mig og eitt eða tvö sett á 240 "gamla gengið en ekki eldgamla" á dekkjaverkstæði á Húsavík.





    31.12.2008 at 18:36 #635892
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það er ekki vatn í olíunni og ekki að finna svarf. Annars er aðalmálið að bilunin er ekki núna til staðar, því lítið hægt að bilanagreina nema taka drifið úr sem ég nenni ekki strax. Þegar framlásinn náði ekki upp þrýsting (loftdælan og ventlar eru inni í bíl og sló loftdælan ekki út heldur gekk hratt og álagslaus þegar skipt var á framlás en erfiðaði og þyngdist eðlilega þangað til að hún sló út fyrir afturlás) þá gekk ég af því sem gefnu að slanga væri við það að fara úr sambandi á framlás enda allt í krapa og íshröngli undir bíl og myndi leka í takt við þegar bilinn svignar til og frá og því fór ég ekki út að að skoða öndunarslöngu frá drifi. Þegar heim kom virkar allt eðlilega og engin leið að fá fram bilunina þó álag sé sett á driflínu og lagnir togaðar og sveigðar til og frá. Er að vona að þetta séu stífar V þéttingingar eða tel það sé líklegt því ef brot,los eða sprunga væri í drifinu þá ætti bilunin að vera viðvarandi en ekki koma og fara.





    30.12.2008 at 22:52 #635876
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    80W-90 er þykktin. Það væri athugandi að breyta um gírolíu ef ekki dugar að hafa drifið volgt þegar lás er settur á.





    30.12.2008 at 22:22 #203438
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Náði ekki upp loftþrýsting á ARB framlás hjá mér í tvígang í dag en allt í lagi að aftan. Fyrra skiftið er ég var nýbúin að setja lokunar á og þá framdrifið nátturulega líka og svo aftur þegar bíllinn hafði staðið í ca 1 klst. Fór svo í lag af sjálfu sér. Svo þegar tóm gafst til fór ég yfir allar lagnir, togaði þær og teygði og þær halda fullum þrýsting. Varla orðið ársgamalt bæði lás og búnaður í kringum hann. Ég held að V þéttingarnar inni í lásnum séu að svíkja þegar drifið er kalt og drifolían seig og þung í vöfum. Eitthvað sem menn kannast við ? Líklega lítið við þessu að gera nema að hafa drifið volgt, með keyrslu í framdrifinu í einhvern tíma, áður en lás er settur á.





    22.12.2008 at 10:32 #203396
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Hvar er best að kaupa snjóakkeri í dag ?





    14.12.2008 at 21:17 #203365
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Höfðingi á verndarsvæði Indjána í Norður Ameríku fann það á sér núna í haust að það yrði harður vetur og mikið fannfergi á komandi vetri. Því fyrirskipaði hann ættbálkum að safna miklu spreki fyrir eldivið. Þetta var tölverð vinna fyrir ættbálkinn og langt að fara. Svo þegar tölvert var liðið á söfnunina þá fékk höfðinginn bakþanka. Hvað ef það yrði svo ekki harður vetur eftir allt saman og allt erfiðið og fyrirhöfnin til lítils hjá fólkinu. Svo hann hringir í veðurstofuna til að spyrja hvernig veturinn verði. Jú, jú þeir á veðurstofunni fullyrtu að það yrði harður vetur. Höfðingjanum létti við að heyra að hann hef’ði haft á réttu að standa og því yrði ættbálkurinn ekki pirraður út í hann yfir óþarfa fyrirhöfn. Svo ætlaði hann að fara að kveðja þegar honum datt í hug að spyrja hvernig þeir vissu það yfirhöfuð. Það væri nú einfalt. Indjánarnir væru farnir að safna miklu spreki fyrir veturinn.





    16.11.2008 at 23:43 #203215
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Hvar er best að nálgast reglugerðir um breytingar og sérskoðarnirá jeppum ?





    08.09.2008 at 22:42 #628824
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Spaugstofan náði einna best að lýsa nátturuverndar snobbi/ofstæki hérna fyrir tíu árum eða svo þegar þeir létu einhverja tvo kalla, sem voru á veiðum að mig minnir, fara úr skónum áður en þeir gengu til fjalla.





    23.08.2008 at 17:10 #202818
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Var inni í afdal lengst upp í sveit núna fyrir stuttu þar sem 37 „dekk, af öðrum bíl af tveimur í ferðinni missti loft eftir að bíllinn hafði staðið í tvo daga. Ekki var loftdæla í ferðinni en samt þetta fína varadekk með í för en einhverja hluta vegna fannst engin toppur upp á felgurærnar svo varadekkið var frekar gagnslitið. Ég var þó með loftslöngu með mér og vafði upp á slönguendann renning af álpappír og stakk slönguendanum inn í púströr þar sem álpappírinn þétti á milli púströrs og slöngu og setti í gang. Náðist sex punda þrýstingur á þennan hátt og þótti bara nokkuð gott. En þá kom eigandinn á loftlitla bílnum með nokkuð sniðuga hugmynd. Tengja slönguna á milli tveggja dekkja á bílnum en hin dekkin stóðu í ca. 28 pundum. Framkvæmdum þetta og virkaði fínt. Stóðu bæði dekkin í 12 pundum eftirá. Mjög einföld redding sem ég veit ekki til að hafi verið notuð sem þó getur vel verið. En notadrýgst væri þessi aðferð við að fá mikið loft í einu við að koma þrýsting inn í affelgað dekk þegar menn eru ekki með loftkút í bílnum eða kolsýrukút. Af því gefnu að loftdæla væri með í för sem myndi pumpa í það dekk, sem ætti að taka loftið úr, háum þrýsting. Tengja síðan slöngu úr því í affelgaða dekkið. Með þessu fyrirkomulagi næðist mikið loftmagn í einu sem oftast er þörf á þegar verið koma dekki á felgu aftur. Myndi ekki telja að loftgjafardekkið affelgist af sjálfu sér þó allt loft fari úr því við þetta nema kannski ef bíllinn myndi liggja í mjög miklum hliðarhalla.





    12.06.2008 at 11:58 #624458
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Það er laaaaaangæskilegast að skipta um allar legur í leiðinni nema þú vitir að það hafi verið gert áður og þá ekki of langt síðan. En ef ekki er hreyft við pinnjón eða pinnjónslegum þá er einfalt í sjálfu sér að stilla inn hlutfallið. Stillt inn þyngd á hliðarlegum og er slagið á milli kambs og pinjóns (backlash) haft það sama og áður á gamla drifinu. Þá verður engin breyting á hvernig pinnjón tekur á kambi. Ekki má því gleyma að mæla slagið áður en drifið er tekið úr. Einhverra hluta vegna er ekki er gott að eiga við að stilla inn gamalt hlutfall með stillimaki að einhverju viti. Því er fljótlegt að gera þetta svona ef ekkert er hreyft við pinnjón eins og ég sagði áður.





    03.06.2008 at 21:06 #623906
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Veit nú ekki hvort hækkun upp á 5-7 kr muni skifta sköpun í þeirri runu verðhækkanna á eldsneyti sem skollið hefur á undanfarin misseri. Munar ekki um einn kepp í viðbót í sláturtíð. Maður er hvort sem er fyrir löngu verið látinn taka meiri ábyrð á því að vera á jeppa sem mengar og eyðir slatta og á sinn þátt í að ganga of ört á takmarkaðar olíulindir heimsins. Annars úr því að talað er um olíuhækkanir, olíukreppu, þá skilst mér að ástæðan sé ekki beint stjórnmálalegs eðlis eins og áður, heldur sé ástæðan einfaldlega sú að auðlindir jarðar fari ört þverrandi og það sé búið að ná hámarksframleiðslugetu og það fyrir nokkrum árum. Eftirspurnin hefur sjaldan eða aldrei verið meiri ekki síst vegna aukinnar eftirspurnar Kínverja á olíu. Ætli það sé ekki núna að koma vesturlandabúum í koll, t.d. að þessu leyti þegar upp er staðið, að öll ódýra framleiðslan frá Kína, sem selst eins og heitar lummur, stuðlar að aukinni orkuþörf þeirra, uppgangi og nútímavæðingu milljarðaþjóðar.





    29.05.2008 at 18:32 #623674
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Engin akstur á jeppum í þessum tilvikum og þetta um helgina tengist ekki Björgunarfélagi Akranes á neinn hátt. Eina sem gæti talist vera nálægt bænum var skutl með farangur ,meðal annars mínum, á sleðum fyrir Ferðafélag Íslands frá Holtavörðuheiði inn á Arnarvatnsheiði fyrir ansi mörgum árum, kannski 2000 eða 2001. Eins og ég sagði smávægilegt og ég held að þetta hafi verið gert endurgjaldslaust í tengslum við æfingu.





    29.05.2008 at 09:39 #623666
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    mmm.já það er kannski eitthvað aðeins pínkupons um það að björgunarsveitir séu að seilast út fyrir sitt svið. Hef sjálfur séð það tvisvar eða þrisvar. Núna síðast núna um helgina. Þessi tilvik hafa verið smávægileg og held ég að ekki hafi verið þegin greiðsla fyrir. Því held ég að þessi athugun hjá eftirlitsmönnunum eftir kvörtun frá ferðaþjónustuaðilum sé ekki alveg út í hött. Þetta er eitthvað sem mætti alveg athuga og ræða og beina í annan farveg enda björgunarsveitir ekki hafnar yfir réttmæta gagnrýni frekar en aðrir.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 184 total)
← 1 … 3 4 5 … 10 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.