Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.02.2013 at 11:53 #763841
Það er ekkert mál að sjóða í bensíntank. Þú byrjar bara á því að skola sæmilega vel bensínið úr honum og setur svo í han góðan slatta af þurís færð hann að mér skilst hjá einokunnarfélaginu ísaga hann sér um að ryðja öllu súrefni úr tanknum þá geturu slípað og soðið eins og engin sé morgundagurinn. Þetta lærði ég hjá honum Gústa í Áliðjunni hann hefur verið að sjóða í áltanka fyrir menn.
11.10.2012 at 10:59 #758861boddýið á þessum bílum hefur ekki verið að riðga grindurnar hafa farið á sama stað og í toyota, nissan, mmc og fleiri jeppum. Sennilega er það útaf salti og skorti á þrifum sem þetta fer.
26.01.2010 at 16:31 #679372Það er nú ekki rétt hjá þér Dabbi að lc 90 sé léttari en ´87 patrol. Alla vega er ´88 patrolinn sem er til heima í sveitinni skráður innan við 1900 kg og eftir að það hvarf úr honum gólfið þá léttist hann meira.
15.01.2010 at 13:53 #676934Afhverju eru menn ekki farnir að nota kúluliði í þetta?
Þá ertu með jafnhraðalið og þá skiptir það engu máli þótt að hornið sé ekki eins uppi og niðri.
14.01.2010 at 09:20 #676734Minn var á því bili líka 15-20 ekki h.o vélin. Það var hægt að koma honum neðar en ég nennti því aldrei.
Fór talsvert neðar í langkeyrslu mældi það samt aldrei nákvæmlega. Þetta eyðir svipað og 4 strokka hilux
en það gerist talsvert meira þegar þú stígur á gjöfina heldur en í hilux.
11.01.2010 at 17:20 #675972Með því að herða það mikið út í handbremsuna hjá mér að það var nánast ekki hægt að koma skálunum á og herða svo á barkanum eftir að draslið var komið saman þannig að bremsan var við það að liggja utaní þá fékk ég handbremsuna til að virka nógu vel til að fá skoðun. Núna viku síðar er hún nánast hætt að virka. Ég hef verið að spá í að setja bremsudælur sem eru með handbremsunni í dælunum. Menn voru að nota framdælur úr gömlum subaru 1800 í svona mix en þær eru vandfundnar í dag. Hins vegar er til fullt af vw transporter sem eru með afturdælum með handbremsu. Það er örugglega ekki mikið mál að nota svoleiðis þær eru líka ætlaðar til að stoppa meira en fólksbíl þannig að það gæti komið vel út.
05.01.2010 at 18:33 #674570það fer eftir því hvort apparatið sé með fjórlappastýringu eða ekki.
19.12.2009 at 02:07 #671730Ég man eftir nokkrum Hj 60 með sjálfskiftingu. Þeir voru allir turbo lausir ´86 og ´87 model hi roof.Hj 62 ´88 og´89 bíllinn með fjórum ferkönntuðum framljósum var að mér skilst ekki til hér á landi sjálfskiptur hvað svo sem var löndum útlendngana. Eftir að hafa prufað bæði sjálfskipt og beinskipt í snjóakstri þá finnst mér sjálfskiptingin hafa mikla yfirburði og mér fannst gírkassinn fínn áður. En eftir að hafa prufað hitt þá vill ég helst ekki annað. Sjálfskipting á líka vel heima við vél eins og þína sem vinnur á lágum snúning þetta er frábær blanda í þungu færi ef þú þarft mjúkt átak og í brekkum þar sem þarf að halda ferð. Hinsvegar þýðir ekkert að vera með sjálfskiptingu við máttlausa vél enda eru máttlausir bílar leiðinlegir og máttlaus sjálfskiptur jeppi ennþá leiðinlegri.
12.12.2009 at 17:54 #671190Ég myndi alls ekki sjóða mismunadrifið að framan vegna þess að það útilokar möguleikan á að keyra bílinn í framdrifinu í hálku.
Ég hef sjálfur verið á bílum með soðið drif og það angraði mig mun minna að vera með soðið að aftan en að framan.
Svona míll eins og þinn þars alveg á því að halda að hafa möguleikann á framdrifinu í hálku og að ætla að nota þá mara aðra lokuna er ekki að gera sig því að þá leitar bíllinn alltaf undan lokunni þ.e. ef þú ert með hægri lokuna á þá leitar hann til vinstri.
Drífðu frekar aðeins minna þangað til að þú hefur efni á læsingu.
20.11.2009 at 13:43 #667530Mér fannst skelfilegt að keyra bílinn hjá mér á 8" fegum var þá á 33×12,5 x 15 setti svo sömu dekkin á 10" felgur og bíllinn varð allt annar.
20.11.2009 at 12:49 #667552Svona spacera hef ég séð að framan hjá mönnum sem eru búnir að setja of mjóa hásingu undir Toyotuna sína að framan.
Með þessu ertu að auka álag á legurnar hjá þér sem og stýrisgang. Ég á sjálfur erfitt með að treysta þessu
en það er kannski bara bull í mér. Kaninn notar þetta að framan á apparötin sem eru á tvöföldu að aftan svo þeir spori rétt
á samstæðum felgum. Ef þú ert með öflugar legur spindla og stýrisenda þá er þetta líklegast í lagi.
10.11.2009 at 23:05 #208172Eru menn með reynslu af svoleiðis æfingum? Þá hvaða hásing var notuð og jafnvel myndir af smíðinni.
kv. Þorri
10.11.2009 at 23:00 #6661261.Gír 2,80 2.Gír 1,53 3.Gír 1,00 4.Gír 0,75 Þetta fékk ég upp gefið millikassi 1.00 háa og 2,28 lága er samt ekki viss með millikassan.
10.11.2009 at 22:38 #666088held að 4.56 sé klárlega málið. Það sem ég hef kynnst þessum mótorum þá held ég að það hennti betur sérstaklega ef þú ætlar að nota minni dekk á sumrin.
17.09.2009 at 17:37 #657852sennilega er hann bara skrúfaður á. Ég tók svona mælir af musso og seldi hann. Hann er núna á vélavagni sem er skildugur til að vera með mæli.
29.07.2009 at 08:32 #652288er summit þá ekki bara málið. þótt dollarinn sé hár
29.07.2009 at 08:30 #652602Er ekki hægt að nota úr gamla k5 blazer hann var til með th700 og kúluna hægra meginn. Ef ég man rétt þá er sami öxull útúr th350 og th700 svo það ætti að vera hægt að nota úr bíl sem hefur verið með henni líka. Flestar Toyotur sem ég hef vitað um með Chevy í húddinu hafa verið með orginal millikassa og millistikki milli skiptingar og millikassa enda auðvelt að kaupa það frá útlandinu. Kv þorri.
27.07.2009 at 19:18 #652282Ég notaði hugger flækjur í minn það var gert útaf plássleysi. Ég sé ekki eftir þeim 14 þúsundum sem þær kostuðu á þeim tíma eflaust helmingi dýrari í dag. Ég er með 2 1/4 út úr flækjum í einfalt 3" sem ég smíðaði sjálfur eina túbu og engan kút. kv. Þorri
27.07.2009 at 19:02 #652534 -
AuthorReplies