Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.05.2013 at 23:55 #760161
Sælir
Hvernig líst ykkur á þessa mig vantar einnmitt nýja vél í bílinn http://tolvutek.is/vara/acer-iconia-w70 … -kapu-64gb
Kveðja Þórir
23.09.2012 at 01:22 #748083Sæll Atli
Ég held að Árni Gunnarsson 8960567 eigi 1 stk prufaðu að bjalla í hann
kv Þórir
18.10.2010 at 08:13 #706570hehe
Þetta lofar góðu áfram með þetta gæti orðið hinn besti þráður
en hvað mig varðar þá vel ég 44"dc og ætla að hafa ró og frið í vetur
Ferðakv Tóti
17.10.2010 at 21:28 #706566sælir
gaman er velta fyrir sér dekkjamálum á meðan maður bíður eftir vetri en ég talaði við N1 þeir eiga engin super svamper núna en væntanleg síðasti gangur fór á um 400.000 en þeir buðu dc á 500.000 með öllu. Væntanlega ættu dekk sem flutt eru inn núna að vera á töluvert hagstæðara verði en í miðri kreppu.þökk fyrir svörin með von um fleiri dæmi
ferðakv Tóti
16.10.2010 at 19:31 #706556Hvernig er það hefur enginn virkilega prófað 44"super svamper sem hefur viðmið við 44"dc
Ferðakv Tóti
30.08.2010 at 22:15 #214247Sælir félagar
langaði að athuga hvort að menn í léttubíladeildini hafi eitthvað skoðað þennann búnað http://cgi.ebay.com/ebaymotors/King-2-5-Air-Shocks-10-Travel-Nitrogen-shocks-Pair-_W0QQcmdZViewItemQQhashZitem45ec9ceec8QQitemZ300322451144QQptZMotorsQ5fCarQ5fTruckQ5fPartsQ5fAccessories
þetta er eins og þeir í torfærunni eru að nota. þarf enga loftpúða gorma eða samslátta púða en í ameríkuhreppi sá ég að þeir að nota 2 stk á þyngri bíla. það væri gaman ef einhver sem veit eittvað um þetta myndi tjá sig hvernig þetta virkar, langar í eitthvað nýtt í 1750 kg bíl.kv Tóti
23.03.2010 at 21:55 #211636Ég vil vara menn á leið í Setur frá Kvíslaveituvegi við þessum punkti n 64.31.656 og w 18.44.516 við þennan punkt er ansi stór hola sem rúmar nokkra bíla ekki gott að sjá holuna sérstaklega ef menn eru á leið úr Setrinu.
Kv Tóti
20.03.2010 at 21:05 #687374Sælir
Fórum í gær frá Húsafelli yfir á Hveravelli um jökulinn og var hann nokkuð sléttur færið var frekar misjafnt hraðinn var frá 1km til 45km en þyngst var upp frá Þursaborgum. Engar sprungur voru sjáanlegar á okkar leið og nóg var af snjó á jöklinum. Nú var verið að klára grilla stórsteik í Setrinu eftir frábæran dag á fjöllum.
Ferðakv Tóti
6968815
16.03.2010 at 21:11 #687060Sæll Gísli
Ég giska á að Kiddi B 8924030 eða Sveinn Ómar 8972054 gætu aðstoðað þig
kv Tóti
19.01.2010 at 22:51 #210053Sælir
Hafa menn eitthvað verið að prófa skrúfaða nagla í dekkin hjá sér. Veit til þess að þetta hefur verið notað mikið í dráttarvélar og ýmsar þungavinnuvélar með góðum árangri, en spurning hvernig þetta hangi í dekkjunum á 90 km hraða.
kv Tóti
http://www.supatracks.com/best-grip-screw-in-ice-studs.html
http://www.maxigripicestuds.com/
03.12.2009 at 20:19 #669908Hagstál upp á holti í hafnarfirði topp strákar gera þetta fyrir sangj pening
Ferðakv Tóti
26.09.2009 at 14:04 #652452seld
kv Tóti
10.08.2009 at 23:20 #20570424.07.2009 at 20:13 #205405Til sölu Telwin mastermig 253 mjög fín suðuvél 3 fasa með tigg. spíssar fyrir 6-8 og 10 mm vír
kv Tóti
6968815
26.06.2009 at 00:50 #204906Sælir bensínkallar
Ég er með gamlann 3.3 patta og hef verið að spá í langann tíma að skifta um hjartað og bensínvæða fara í 350 chevi og setja hann upp sem togmótor hvað segja menn um eyðslu í bíl sem er um 2.8-3 tonn og 44″-46″ dekk 4:88 drif er ekki mikil hætta á hitavandamálum í þungu færi með svona mótor. Ég ætla að nota gírkassana úr pattanum sem passar mjög vel á kúplingshúsið á chevi því þá næ ég að halda lólóinu ekki vil ég sleppa því.
kv Þórir
15.05.2009 at 18:18 #204393Var að spá hvort einhver hafi verið að þvælast upp á Snæfellsjökul nýlega spurning um færð og með þjóðgarðsvörðinn hvort hann sé farinn að ókyrrast
ferðakv Tóti
Fór á síðasta ári upp í júní lok við hittum þá á sleðaleiguni þeir báðu okkur bara að þvera ekki yfir vélsleða förin
15.03.2009 at 15:42 #643576Nei það er rétt hjá þér Benni minn það er sennilega bara hagstæðara fyrir mig að setja bara spotta í Fordinn og borga smá í olíu
ferðakv Tóti
15.03.2009 at 13:04 #204038Hvar hafa menn verið að kaupa sér góð gleraugu sem henta vel í snjóinn og og hvaða lit eru menn yfirleitt með á glerinu. Ég hef nú yfirleitt notað gul en þar sem kominn er tími á endurnýjun langar mig í það besta eða næstbesta
kv Þórir
08.01.2009 at 19:13 #203511jæja þá er komin spurning um að hleypa að aðeins fleiri hestum í húddið. Er að pæla í 6.5 dísil turbo með mekanísku olíuverki. Hvernig hefur verið að koma þessu í húddið og aðalmálið er hvort þessar vélar séu veikar fyrir hitamálum. Ég er að spá í að nota patrol gírkassana mína bara að mixa kúplings úr 6.5.
kv Tóti
01.12.2008 at 23:57 #633862Þetta er víst búnaðurinn minn 2 gírkassar settir saman 5 gírinn tekinn aftan af þeim fremri til þess að stytta lengjuna svínvirkar og búinn að keyra með þetta í tvö ár án þess að líta á þetta. Hentar líka vel þar sem auðvelt er að nota þetta í öllum færum. bara að hringja ef þú hefur einhverja spurningar
kv Tóti
6968815
-
AuthorReplies