Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.08.2013 at 11:00 #378620
Segðu mér Teddi, er það flotið hjá þér sem er vandamálið á þeim eða bara gleðipinna vandamál :)[/quote]
Mér finnst þau fljóta ágætlega en samt taka allt of mikið að afli og torki til sín. Þó að maður hafi nóg af afli þá er þetta alltaf spurning um að hafa togið til að keyra þokkalega greitt en ekki á háum snúning. Þannig finnst mér að maður drífi best. Dekkin eru auðvitað of ný og lítið slitin hjá mér og ég vonast til að þau muni batna til muna eftir því sem þau tilkeyrast betur.
Kveðja, Theodor.
15.08.2013 at 09:49 #378617Frábært verkefni hjá þér, það eina sem ég myndi sleppa í þessu eru 46 tomman. Þau stela bara fullt af afli og eru ekkert að gera skemmtilega hluti. 42 tommu Yrok eða 44 cepek væru góð undir þennan. 46 tomman er örugglega ágæt þegar hún er orðin haugslitin en þá eru hliðar líka orðnar sprungnar og svo videre. Er ekki sáttur við dekkin mín nema að því leiti að það er gott að keyra á þeim á malbiki.
Kveðja, Theodór.
14.05.2013 at 15:26 #765753Ég mæli með að það verði sett sú regla að þeir sem sýni bílana sína verði viðstaddir hjá þeim frá hádegi og til kannski kl 1600 einhvern sýningardaginn og auðvitað alla dagana ef hægt er. Það sem vantar alveg á þessar sýningar er að geta spjallað við eigendur um ökutækin og fá að vita eitthvað meira en stendur á A4 blaði. Eins myndi ég vilja sjá sjófa, stóla og borð víða um salinn, þannig að hægt sé að setjast niður, horfa á bíla og spjalla saman. Fá smá útilegufíling í þetta.
Kveðja, Theodor.
19.04.2013 at 08:59 #765173Vona að Ómar hafi ekki tekið því illa þó að ég hafi verið að gantast með þessa þýðingu mína, var allavega ekki illa meint og ég held að hann hafi vitað það. Kveðja og lofa að vera ekki að bulla í fólki hér.
Tooooooooooooooogggggggggggggkveðja, Patrolman.
18.04.2013 at 14:01 #765433Hefði ekki verið ráð á Ómar fengi áminningu fyrir þessi afglöp, sekt eða eitthvað svoleiðis. Finnst þegar menn komast upp með svona án viðurlaga að þeim hætti við að fremja slík afglöp aftur og aftur.
Toooooooooooooooogggggggggggggkveðja, Theodor
18.04.2013 at 13:58 #765347Benni ég skora á þig að bjóða þig fram í starfið.
Kveðja, Theodor
16.04.2013 at 11:47 #765123Ertu búinn að leita eitthvað á þessum fylgdarsíðum, einkamál.is, escortservice.com og svo videre.
16.04.2013 at 11:44 #765169Ómar ég ætla að reyna að þýða það sem þú sagðir.
mynis töflurna eru í tojotuni mynni hann ekki með ég gleimin. moldrok á kyli takk. tota hjálpar mér lkía að munna td fjóla.
Minnis töflurnar eru í Toyotunni minni því ef ég tek þær ekki með gleymi ég öllu. Er eiginlega alveg viss um að það hafi verið moldrok á Kili en samt ekki viss. Tóta er mjög hjálpleg við að muna eftir henni Fjólu.
Með tooooooooooooooogggggggggggggggkveðju, Theodor
19.03.2013 at 16:21 #764773Var þetta ekki aðallega að það hleðst ís í blöndunginn ef menn eru ekki með möguleika á að taka inn heitt loft. Algengt vandamál líka að lofthreinsarar stíflast.
25.01.2013 at 14:26 #762179Patrolman er náttúrulega bara vindbelgur, þóttist eiga besta bílinn, drífa mest og svoleiðis. Þekki þann mann nánast ekki neitt, hitti hann stöku sinnum. En, jú líklega var hann á blótinu síðast.
Tooooooooooooogggggggggggggkveðja, Theodor
24.01.2013 at 10:13 #762169Sæll HJörtur. Hefur þú einhvern tíman lesið það sem stendur á speglinum þínum "Objects in mirror are closer than they appear" og í mínu tilfelli er rennireið mín fyrir framan spegillinn. Þessar myndir sanna bara það sem ég sagði, allt niðurskráð í gegnum árin þannig að á þessum myndum sem ég er stopp, húddið opið, fastur eða réttara sagt virðist vera fastur, þá er ég eingöngu þarna að safna gögnum um ferðahraða minn miðað við ykkur hina. Það þarf að skrá hita, skoða vél og olíu, mæla dekkjaþrýsting og svo videre. Hef hingað til ekki einu sinni þurft að hleypa úr til að stynga þig af.
Tooooooooooooooooggggggggggggggggggggggg kveðja, Theodor.
23.01.2013 at 18:10 #762165Já, þetta kemur fyrir bestu menn. Ansi margir lentu í þessu sama þarna um kvöldið. Héldu í einhverju ölæði að þetta væri ég sem kom síðastur í mínum hóp.
23.01.2013 at 16:02 #762161Já, eins og þú segir þið voruð komnir í bauk. Þar af leiðandi er lítið marktækt sem þið segið því söngolía vill hafa þau áhrif að minnið verður gloppótt.
23.01.2013 at 15:55 #762157Fastur, ert þú ekki á Cherokee. Held að þér dugi 18 tímar. Disel Toyota þarf kannski 24 tíma. Ford F350 er eitthvað nálægt diesel Toyotu (2,4 án turbo) þannig að hann þyrfti jafnvel allt að 30 tíma forskot. Þetta eru allt saman reynslutölur sem ég hef safnað í gegnum árin á mínum ferðalögum, s.s mjög áræðanlegar tölur.
Kveðja, Theodor.
23.01.2013 at 15:30 #762153Ég held að aðalástæðan fyrir því að menn ætli svona snemma er að ég stakk alla svo svakalega af í fyrra og eina ráðið að leggja fyrr af stað til að upplifa ekki slíka niðurlægingu. Þetta finns mér allavega líklegasta skýringin.
Toooogggggg kveðja,
Theodor
15.01.2013 at 22:00 #762127Það liggur nú við þegar maður sér svona myndir að maður taki bíltúr á laugardeginum og kíki á liðið og bruni svo aftur í bæinn.
Kveðja Theodor.
23.10.2012 at 15:17 #759545Ekkert títt af þessu myndbandi.
22.08.2012 at 10:24 #756849Eitt af átrúnaðargoðunum í jeppamennsku fallin frá. Vill votta fjölskyldu og félögum hans samúð mína.
Kveðja, Theodór.
10.04.2012 at 22:20 #752947Ég bíð aðstoð mína í þetta. Hlakkar til að komast nokkrar vinnuferðir uppeftir í sumar. Reikna með að Gísli Þór verði líka til í þetta ef tími leyfir hjá honum.
Kveðja, Theodor.
03.04.2012 at 12:51 #752667http://a1customs.com/pdc_pmd_fsd_pump_driver_cooler.htm
If your GM 6.5 Diesel or GM 6.5 Turbo Diesel stalls or is stalling, quitting, dies, idles rough, surges in reverse, surges, hesitates or is hard to start, any ONE or more of these are common symptoms of PMD/FSD failure, your 6.5 Diesel can exhibit one, a few or all, OR if you are a person who serious about RELIABILITY of your GM 6.5 Diesel or GM 6.5 Turbo Diesel then Read This page and entire web site as it is likely the Most Important information you will read about the GM 6.5 Diesels and their problems, causes and solutions.
Kveðja, Theodor
-
AuthorReplies