Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.05.2002 at 18:36 #461280
Ég held að þú verðir ekkert of ánægður með 6,2 ofan í Range Rover. Prófaðu að ræða við Ljónstaðabræður um þetta. Þeir eru með 6,2 ofan í Landcruiser en eru búnir að bæta á hana túrbínu. Svona vél án túrbínu er ekkert sérstaklega spræk og togar ekki nein ósköp. Það að bæta túrbínu á er dýr aðgerð.
06.05.2002 at 20:10 #460844Hafið þið ekki smá áhyggjur af drifbúnaði og þá sérstaklega að framan í svona ofurbarbí. Það má heldur ekki gleyma að 44" dekk hafa ákaflega gaman af því að eyða hestöflum og togi ásamt ýmsu öðru þannig að ofurdæmið er ansi fljótt að snúast í venjulegan bíl sem allir 38" bílar þeysa framúr nema í einstaka færi þar sem 44" er nauðsynleg.
38" = áhyggjulaust ævikvöld með blóm í haga og 44" = hestöfl breytast í folöld, budduna þarf að stækka í hagkaupspoka, afruglara þarf að nota til að sjá fram fyrir bílinn og svo koll af kolli.
Kveðja Theodor.
15.04.2002 at 11:38 #460446Þessi búnaður (tannhjól) er til hjá Toyota á Íslandi, allavega í stóra krúserinn. Ókosturinn við þetta er að hæsti gír í lágadrifinu verður alltof lár. Það þýðir að þegar þú ert í meðal þungu færi þar sem þú getur stundum brunað áfram en lendir þess á milli í erfiðu púðri, þarftu alltaf að vera að skipta úr lága drifinu yfir í háa. Oftast ekkert vandamál að setja úr lága yfir í háa en þarft aftur á móta að stoppa til að setja í lága. Það getur vel verið að sumum þyki þetta ekkert mál en ég tel þetta vera mikinn ókost.
12.04.2002 at 16:14 #460366Frábær hugmynd, ég er með.
12.02.2002 at 20:01 #458958Fáðu þér gott reiðhjól
19.01.2002 at 11:56 #457446Ég held að menn ættu að fara varlega í að vera of fljótir í að fjárfesta í gervihnattasímum. Mér skilst að þetta kerfi sé mjög dýrt og að markaðurinn sé ekki nógu stór. Það kæmi mér ekki á óvart þó að kerfið yrði lagt niður.
19.01.2002 at 11:03 #458448Það er greinilegt að þér tekst að kreista meira en margir út úr 2,4 diesel. Þar sem þú ert greinilega með þungan hægrifót skaltu bara skella þér í að breyta fyrir hásingu. Miðað við það sem þú ert búinn að brjóta nú þegar, stefnir allt í gjaldþrot hjá þér nema að dana 60 sé sett undir. Nei, nei bara að fíflast. Ég myndi veðja á ca. 100.000 -150.000.kr færu í að setja hásingu undir og geri þá ráð fyrir að þú gerir þetta sjálfur. Þá er ég að miða við að þú kaupir notaða hluti.
17.01.2002 at 17:52 #458438Í þínum sporum myndi ég nota klafana áfram nema að þú hafir þeim mun fleiri hesta til að brjóta framdrifið. Klafafjöðrunin er miklu betri en hásing með gorma. Það er stór kostur að hafa sjálfstæða fjöðrun að framan og samkvæmt varahlutaversluninni hjá Toyota er brotið meira af öxlum í hásingabílunum.
10.01.2002 at 14:24 #458264Mjög góð hugmynd. Aðalmálið er að þeir sem fari séu á vel útbúnum bílum og geri sér grein fyrir að þeir sem ferðast á fjöllum þurfa að vera svolítið sjálfbjarga. 1-2 klst festa eru bara hressandi fyrir líkama og sál.
-
AuthorReplies