Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.06.2013 at 19:56 #766353
Verandi húsasmiður þá get ég sagt að steni er varanlegt efni, en það þarf að vanda frágang. Sem ég efast ekki um að verður gert. En á að fara í viðhaldsfría glugga líka? Ég myndi frekar splæsa í það. Og á að klæða á timburgrind eða blikk? Aluzink hefur sýnt sig og sannað líka og ég efast ekki um að það myndi endast þarna í fjölda ára. Ég hef séð það 15 ára gamalt á húsi við sjó og það var í góðu standi. Eins og fram hefur komið á ekki að Saga það heldur klippa eða naga. Hitinn sem myndast við skurð skemmir húðina næst sárinu og þá vill ryðga. Mér persónulega finnst bárustál mikið fallegra en steni. Þetta ER hellings peningur og væri að mínu mati betur varið í að bæta aðstöðuna sem slíka. Ef ég miða við Árbúðir td þá finnst mér ekkert að því þó húsin þar séu hvert með sínu lagi. Og klæðningu. Er ekki rétt munað að Gíslaskáli er klæddur með Alu? Hvað er það gamalt?
26.03.2013 at 22:03 #764545Nei það kunna sjálfsagt fæstir 100% á tækin sín. En að geta gefið upp stefnu í gráðum er nú bara lágmarkskunnátta. Góð hugmynd að halda námskeið á gps tækin með Rikka og jafnvel í samstarfi við slysavarnaskóla landsbjargar að halda námskeið í rötun.
25.03.2013 at 20:33 #764531Þetta var bara þrusugóð ferð. Og túttugengið á mikinn heiður skilinn fyrir skipulagningu og ekki sýst fyrir að fræsa upp aftur um nóttina. Ég á mínum 38" lc lenti ekki í teljandi vandræðum (var með næga olíu og mat til sólarhrings dvalar). Mest kom mér á óvart vankunnátta manna á gps tækin sín og hræðsla sem virtist kræla á. Það er að mínu mati ekki hættulegt að dvelja í jeppa yfir nótt. Þó svo að hann sé ekki í gangi og frost 20*c. Hún Vilborg myndi sennilega kalla okkur aumingja fyrir að mikla það fyrir okkur. En grundvallaratriði í 3-4 daga ferð er að mínu mati að vera með góðan búnað, svefnpoka og föt, eiga eldsneyti sem endist 12-18 tíma í hægagangi og vera vel nestaður. Auðvitað geta komið upp aðstæður þar sem eldsneytisnotkun verður meiri en gert var ráð fyrir, en það er engin afsökun til fyrir því að fara vanbúinn á fjöll. S.s ekki með nóg nesti og ekki hlýjan búnað. Ég fyrir enn, og coarinn sem er kærastan mín skemmtum okkur þrælvel og lærðum margt. Takk fyrir æðislegan túr
25.03.2013 at 20:18 #764853Já ég væri alveg til í að getað opnað "læsta" þræði. Sem gildur limur.
24.03.2012 at 17:49 #750505Þokkalega handlaginn maður kemst vel frá þessu sjálfur. Bara horfa á youtube og ráðast í verkið
07.03.2012 at 23:01 #751529Skemmtilegt (samt ekki) að sjá þetta sett upp í köku. Maður verður bara sár þegar maður les þetta.
17.02.2012 at 20:10 #668760Best að vekja þennan þráð aðeins
Ég var í Barka í dag að spegúlera og fer sennilega í verslunarleiðangur og smíðavinnu í næstu viku. Það sem er helst að angra mig núna er hvað ég fæ kúluloka sem er hægt að taka gegnum innréttingu. S.s þannig að bara "handfangið" sjáist. Svipað og þessi á myndinni. Svo er annað, hvort mæla menn frekar með plast hnjám eða stál og þá með eða án legu.
15.02.2012 at 19:47 #750071Já ég ætla að taka stöðuna á ferðafélögunum á eftir. Læt þig vita sem fyrst.
15.02.2012 at 18:17 #750067Þetta er orðin spurning um að skella sér bara. Hvað er laust í gistingu fyrir marga? Og hvert ætlið þið að stefna á laugardeginum? Ég kæmi þá uppeftir á laugardeginum. Þyrfti að finna allavegana einn með mér.
15.02.2012 at 14:20 #750063Þið eruð helgi of snemma, eða seint
Hefði verið gaman að koma hérna sunnan megin frá.
13.02.2012 at 20:59 #748952Já hvernig væri að láta olíufélögin bjóði í klúbbinn? Ekki það að þeir myndu öruglega hringjast á með verð. Það væri samt fróðlegt að láta gera lokuð tilboð. Kæmi sennilega sama tala uppúr umslögunum.
06.02.2012 at 13:59 #748934Já það má bæta við c.a 15 þús kalli hjá mér sem fer á frúarbílinn. Þetta eru engar smá upphæðir sem við erum að tala um!
06.02.2012 at 12:01 #748930Það er náttúrulega allt annað með endursölu aðila á vöru. Þeir fá að sjálfsögðu meiri afslátt. En mér finnst td 5% varla vera þess virði að eltast við það. Ég er með eitthvað kort sem mér var rétt á Shell einhverntíman og gegn framvísun þess þá fæ ég sama verð og hjá Orkunni. Hvað eru menn að fara með í olíu á mánuði? Í þessum mánuði t.d sé ég fram á 80 þús í olíukaup og sennilega í næsta mánuði líka. Venjulega fer ég með c.a 40.000 kr. Mér finnst að þeir megi alveg bjóða vel í mann til að fá þessi viðskipti. Sérstaklega þegar um er að ræða félag með fleirihundruð meðlimi. Þegar afslátturinn er orðinn veglegur þá eltist maður við hann. Ég geri mér ekki sér ferð á einhverja stöð fyrir 5%. Tek bara þar sem ég er hverju sinni.
06.02.2012 at 00:54 #748924Væri ekki hægt að fá allan afsláttinn í formi punkta og hafa hann þá bara veglegri. T.d 10 krónur (sem er samt skítlélegt). Þá fengi maður 1 líter af hverjum 25 fríann. Það er samt hrikalega lélegt af olíufélögunum að bjóða ekki betri afslátt. Ég t.d skammta mér pening til að eyða í olíu. Það skiptir engu máli hvað líterinn kostar, ég kaupi fyrir sömu krónuupphæð. Keyri svo minna eftir því sem verðið hækkar.
-
AuthorReplies