Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.02.2009 at 22:06 #203715
Ég fór á gönguskíði í Bláfjöll seinni partinn í dag og sá mér til mikilla leiðinda að Jeppi á Trexus dekkjum hafði keyrt meðfram nánast allri skíðagöngubrautinni (sem liggur uppá Heiðin Há) og á mörgum stöðum í sjálfri brautinni og skilið eftir djúp dekkjaför í henni.
Ég vil ekki trúa öðru en um óvitaskap hafi verið að ræða. Þið sem til þekkið endilaga gerið viðkomandi ökumanni ljóst að „svona gera menn ekki“.
Utanvegaakstur á Bláfjallasvæðinu er BANNAÐUR.Svona framferði skaðar okkar ekki alltof góðu ímynd sem unnenda íslenskrar náttúru.
Kveðja
Sveinn
05.10.2007 at 13:59 #598748Ég skipti um spíssa hjá mér um daginn. Fór með gömlu (6 stk) í Kistufell og fékk uppgerða í staðinn. Þ.e. skipt var um dísurnar. Kostaði ca 40þús. Virkar fínnt.
Kveðja Sveinn G
31.03.2007 at 23:28 #586550Á þessum slóða finnið þið marga góða spjallþræði um Patrol þam um túrbó kits fyrir 4.2. Þar mæla þeir með því að á vélum sem eru framleiddar eftir 1994 sé túrbóið ekki látið blása meira en 10-12psi.
Kv. Sveinn
20.03.2007 at 23:23 #584516Ég á vacumpung ef þig vantar
Hafðu samband í 897 4049
Kveðja Sveinn
27.02.2007 at 22:13 #582452Ég er með Patrol ’92. Á afturhásingunni eru járnrör sem slöngurnar tengjast í. Athuga hvort þau eru stífluð. Ég lenti í því um daginn að læsingin var treg og lagaðist hún þegar ég hafði sett ný rör. Einnig má prófa að skipta um olíu á drifinu.
Kveðja Sveinn
23.01.2007 at 22:43 #199478Er ekki einhver sem getur gefið mér upplýsingar um hvar er hægt að nálgast viðgerðarhandbækur fyrir Nissan Patrol Y60 bílana 88-96?
Kveðja Sveinn
06.01.2007 at 17:28 #199305Er ekki rétt að við mætum sem flestir á þennan áhugaverða fyrirlestur.
Kv. Sveinn
Eru Jeppar ÖRUGGARI í umferðinni en fólks-
bifreiðar?Fyrirlesari: Guðmundar Freyr Úlfarsson, Ph.D., verkfræðingur og
sviðsstjóri samgöngusviðs byggingarverkfræðideildar
Washingtonháskóla Í
St. LouisMánudaginn 8. janúar í
Öskju, stofu 132
kl. 16:00 – 17:00Allir velkomnir
Greint verður frá rannsókn þar sem athugaður er munur á meiðslum ökumanna jeppa og fólksbifreiða í árekstrum tveggja ökutækja og í slysum er varða eitt ökutæki, t.d. útafakstur. Einnig er greint frá rannsókn á mun breyttra og óbreyttra jeppa. Leitast er við að svara spurningum um hvort jeppar eru öruggari í umferðinni en fólksbifreiðar og hvort breyttir jeppar séu hættulegri en óbreyttir í árekstrum við fólksbifreiðar.
28.02.2006 at 17:26 #197435Í ljósi þeirra hræðilegu atburða sem gerðust á Hofsjökli um helgina langar mig að heyra í mönnum um útfallið úr Grímsvötnum. Eins og fram kom í Jökli sem kom út um daginn var ákoma á Vatnajökul mjög léleg á síðasta ári. Það eru því líkur til að sprungur og svelgir séu ekki eins vel þjappaðir af snjó og þeir hafa verið oft áður. Vatnajökull var einu sinni (þegar hlýrra var) kallaður Klofajökull og dettur manni í hug að það hafi verið vegna þess að vatnsrásin úr Grímsvötnum hafi verið opin og „klofið“ jökulinn niður í sjó. En þetta er nú bara mín tilgáta.
Eins og við vitum er oft mikil umferð yfir snjóbrúna sem er yfir útfallinu og engin ein leið sem er farin þar yfir. Með minnkandi ákomu (auknum hita) á jökulinn gæti maður gert ráð fyrir að snjóbrúin yfir útfallið væri að þynnast sem gæti skapað aukna hættu á slysum.
Þess vegna spyr ég: Hefur eitthvað verið kannað hvað er undir sjóbrúnni? Má ekki gera ráð fyrir að þar sé heljarmikill hellir vegna jarðvarmans sem þarna er?
Það væri gaman að heyra í mönnum um þetta.Og svo í lokin:
Hvað eru menn að fara sunnarlega frá húsunum þegar þeir fara yfir snjóbrúna?Förum varlega á fjöllum
Kveðja Sveinn G
R-2000
07.11.2005 at 23:04 #530758Það hefur verið ansi fróðlegt að lesa það sem komið hefur fram hér. Væri ekki upplagt að fá skrifað meira um fjarskiptamálin í Setrið. Annars er hér linkur fyrir þá sem hafa áhuga á að vita "howstuffworks" http://electronics.howstuffworks.com/se … =vhf&fr=ch
13.08.2005 at 23:00 #525658Mér finnst það hreint út sagt kjánalegt ef menn ætla ekki að skrifa sig á lista FÍB þar sem háu verði á eldsneyti er mótmælt. Halda menn virkilega að það heyrist eitthvað í okkur ef við sitjum hver og einn í fýlu úti í horni.
Ef við erum óánægðir með FÍB göngum þá í félagið og yfirtökum það.
Kveðja Sveinn G.
18.07.2005 at 16:49 #524944Fórum á tveim bílum úr Reykjavík um Kaldadal, Hallmundahraun, Arnarvatnsheiði, Stórasand og Grímstunguheiði niður í Vatnsdal. Leiðin um Arnarvatnsheiði og Stórasand er ekki spennandi. Þegar við komum í Álftakrók fórum við veginn upp af skálanum í stað þess að fara Leggjarbrjót. Báðir bílarnir voru á 38" dekkjum sem gerði að við þurftum ekki að hugsa mikið um að grjót rækist upp undir bílana. Þetta er mjög seinfarin leið og enn seinfarnari fyrir bíla sem eru á minni dekkjum og myndi ég ráðleggja þeim að láta þessa leið eiga sig nema þeir hafi nógan tíma. Þarna er á köflum stórgrýttur og mjór slóði þannig að maður néri oft dekkjunum báðumengin við grjótið. Einnig er vegurinn mjög hlykkjóttur sem gerir að aftari hjólin fara upp á grjótið í kröppustu beyjunum. Það er lítið um bleytu þarna enda nánast eingöngu grjót en á milli koma fallegir grasbalar þar sem getur orðið drulla ef rignir mikið.
Grímstunguheiðin er allt í lagi og ekkert mál að fara hana.
Skyggni var lélegt og byrjaði að rigna hressilega þegar við vorum komnir í Álftakrók og hélst rigningin með smá hléum allan tíman.
Það er ábyggilega gaman að fara um svæðið fyrir norðan Langjökul þegar einhver snjór er þar. En að sumri til ætla ég að láta þetta svæði eiga sig.
Kveðja Sveinn
14.07.2005 at 13:03 #196096Hafa einhverjir farið Arnarvatnsheiði nýlega? Ég er að pæla í að fara frá Húsafelli í Arnarvatn og svo áfram Stórasand og Grímstunguheiði niður í Vatnsdal.
Hvernig er vegurinn þarna og hvað gæti þetta tekið langan tíma.Kveðja Sveinn
08.02.2005 at 17:09 #515684Ég er með í 4 stk Radial Mudder
Kveðja Sveinn Guðmundsson
sími 897 4049
26.01.2005 at 22:44 #514620Ég var með 2,5" púst undir Patrol ’92 með 2.8l vélinni og breytti yfir í 3". Við breytinguna fann ég mun meiri mun (til hins betra)en ég átti von á.
Kveðja Sveinn
13.01.2005 at 23:19 #513410Ég er á Patrol ’92 með 1:5.42 og líkar það mjög vel. Breytingin frá orginal hlutföllunum er mikil. Snúningshraðinn bagar mig ekki mikið þar sem ég keyri bílinn yfirleitt ekki það hratt úti á vegum. Ég stóð frammi fyrir vali á milli 1:5.13 og 1:5.42 þegar ég breytti um. Mér var ráðlagt að láta 1:5.13 eiga sig þar sem breytingin frá orginal væri alltof lítill til að vera að standa í þessu
Kve Sveinn
22.10.2004 at 00:26 #506664Var mikið mál að skipta um vél. Ég gef mér að þú hafir verið með 2.8l vélina fyrir. Skiptirðu ekki um gírkassa líka?
Kveðja
Sveinn G
17.05.2004 at 16:11 #502489AT 405 þýðir það ekki að þau komi í apríl 2005
kveðja
29.03.2004 at 11:58 #494613Ég er á Patrol ’92 og var í vandræðum með að setja læsinguna á þ.e. fá hana til að grípa og svo að losna aftur. Þetta lagaðist þegar ég skipti up olíu á drifinu og setti á þynnri olíu með hærra frostþoli. Þetta er olía frá Esso. Man ekki týpuna en get fundið það ef þú vilt.
Kveðja Svenni
29.03.2004 at 11:58 #501920Ég er á Patrol ’92 og var í vandræðum með að setja læsinguna á þ.e. fá hana til að grípa og svo að losna aftur. Þetta lagaðist þegar ég skipti up olíu á drifinu og setti á þynnri olíu með hærra frostþoli. Þetta er olía frá Esso. Man ekki týpuna en get fundið það ef þú vilt.
Kveðja Svenni
18.03.2004 at 16:05 #491378 -
AuthorReplies