FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Guðmundur G. Kristinsson

Guðmundur G. Kristinsson

Profile picture of Guðmundur G. Kristinsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 137 total)
← 1 … 5 6 7 →
  • Author
    Replies
  • 25.09.2010 at 12:04 #703668
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Ákveðið hefur verið að prenta límborða í 60×20 og 45×15 sentimetra stærð í einhverjum hundruðum. Stefnt er að því að dreifa honum á sem flesta aðila innan okkar hóps til að líma á afturúðu bíla sem eru að aka um borgina. Ef 50 manns dreifa þessu á 10 bíla í fjöldskyldu verða 500 ti 1000 bílar í umferðinni með þennan stóra auglýsingaborða sem auglýsir viðburðinn okkar í Vonarskarði 2. október. Við látum vita hér hvert hægt verður að sækja borðana.

    Það verður heilsíða í Fréttablaðinu í næstu viku og stefnt að því að hafa þar upplýsingar um staði vítt og breytt um landið þar sem fólk hittist og leggur saman af stað frá.

    Rætt hefur verið um að fulltrúar þeirra aðila sem standa að verkefninu reisi saman krossinn í Vonarskarði.

    Verið er að huga að skipulagi á ferðatilhögun og skoða hvar/hvort hægt sé hægt að leggja bílum, hvar eigi að hittast og reisa krossinn (fólk gengur frá bílum að þeim stað). 500 bílar eru þrír til fimm kílómetrar á vegi og huga þarf að hvernig geti snúið við. Það verður að vera forgang fyrir fulltrúa félaga sem reisa krossinn og fjölmiðla ásamt því að huga þarf að öryggismálum og hafa klára viðbragðsáætlun ef eitthvað kemur upp á. Þetta er mikið verkefni og það verður að skoða alla þætti sem gætu skapað vandræði. Við verðum að tryggja 100% að í þessari ferð verði ekki utanvegaakstur, frekar en í öðrum ferðum um hálendið.

    [b:21c0qb1z]Guðmundur G. Kristinsson[/b:21c0qb1z]
    Í Ferðafrelsinefnd F4x4 og átakshópi um aðgerðir gegn takmörkunum á ferðafrelsi





    21.09.2010 at 23:00 #214694
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Á fundi ferðafrelsinefndar (með aðkomu fjölda félagasamtaka) í kvöld var skipað í framkvæmdanefnd fyrir verkefni útivistarfélaga á Íslandi um að halda stærstu jarðarför fyrr og síðar í Vonarskarði 2. október kl. 13:00. Í nefndinni eru Unnar Garðarsson, Davíð Ingason, Einar Haraldsson, Jón Snæland, Guðmundur G. Kristinsson og Sveinbjörn Halldórsson sem fer fyrir nefndinni.

    Fyrsta verkefni nefndarinnar verður að undirbúa stærstu jarðarför fyrr og síðar á Íslandi þar sem jarða á ferðafrelsi á Íslandi með táknrænum hætti með tilvísun í væntanlega lokun á Vonarskarði.

    Stefnt er að því að þúsundir áhugafólks um ferðafrelsi hittist á ákveðnum stað í Vonarskarði 2. október (nánari staðsetning kemur síðar) og fulltrúar fjölda útivistarfélaga reisi þar saman einn stærsta kross á Íslandi með áletrun um hin geræðislegu vinnubrögð stjórnvalda sem hafa verið viðhöfð í undirbúningsvinnu að Vatnajökulsþjóðgarði og stækkun friðlands í Þjórsárverum.

    Mörg önnur verkefni eru í farvatninu og verður þeim gerð skil næstu daga hér á vefnum hjá Ferðaklúbbnum 4×4 og á vefsíðu fjölda annarra útivistarfélaga á landinu. Má þar til dæmis nefna sjónvarpsþátt um vinnubrögð stjórnvalda, kæru til umboðsmanns alþingis, stjórnvaldskæru á stjórnvöld og fleira.

    Hér er opnaður spjallþráður um þetta málefni og við hvetjum alla sem hafa áhuga á ferðafrelsi til að tjá sig hér.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Ferðafrelsinefnd





    16.09.2010 at 22:47 #214586
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Átakshópur um alvöru aðgerðir í skynsamlegri náttúruvernd er komin í gang.

    Skráið ykkur inn og sendið Facebook síðuna Ferðafrelsi http://www.facebook.com/group.php?gid=80694601603&ref=nf til allra ykkar Facebook vina og bjóðið þeim að skrá sig. Þá geta þeir og þú fylgst með stórum viðburðum sem eru framundan. Markmiðið með átakshópnum er að vernda íslenska náttúru fyrir því að verða að gömlum minjum sem fáir eða bara útvaldir geta heimsótt.

    Facebook síðan Ferðafrelsi verður það sem tengir þennan átakshóp saman. Þar geta þeir skráð sig sem vilja áfram njóta íslenskrar náttúru án þess að þurfa að kaupa ferðir hjá íslenskum ferðagönguklúbbum og vilja leggja sitt af mörkum til að vinna gegn órökstuddum lokunum á ferðaleiðum í gegnum fallegt íslenskt landslag.

    Á næstu vikum munu fara í gang fjölþættar aðgerðir sem allar hafa það að markmiði að stöðva framgang stjórnvalda í ólýðræðislegum vinnubrögðum varðandi lokun á ferðaleiðum í Vatnajökulsþjóðgarði og friðlandinu í Þjórsárverum. Við ætlum að koma í veg fyrir að stjórnvöld hafni athugasemdum frá meira en 6000 aðilum og hunsi Árósarsáttmálann sem á að tryggja frjálsum félagasamtökum og einstaklingum að hafa eðlilegan aðgang að ákvörðunum stjórnvalda.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Ferðafrelsinefnd/Litlunefnd





    16.09.2010 at 22:40 #702854
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það bætist við á hverjum klukkutíma og fjöldinn kominn í 15 manns. Við getum tekið við allt að 40 til 50 bílum áður en við lokum á þátttökuna, skráið ykkur strax til að tryggja sér þátttöku í þessari árelgu Þórsmerkurferð. Það væri líka gaman að fá ykkar álit sem fóruð í fyrra hér í umræðuna.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    15.09.2010 at 23:17 #702852
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það eru tíu aðilar þegar búnir að skrá sig. Endilega að skrá sig sem fyrst til að við getum farið að sjá í hvaða fjölda stefnir. Ferðin fyrir ári var algjörlega frábær og ekki missa af því að sjá haustlitina í Þórsmörk og taka smá sprett í Krossá undir eftirliti.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    14.09.2010 at 17:54 #214525
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Litla nefndin fer af stað með vetrarstarfið með ferð í Þórsmörk 25. september 2010. Þessi ferð verður í svipuðum dúr og ferðin í september 2009, en margt hefur breyst á þessu svæði og því verður öruggglega gaman að sækja Þórsmörkina heim.

    Skráning er hafin, en lagt verður af stað frá Select Vesturlandsvegi kl. 09:00. Við minnum á kynningu um ferðina sem verður miðvikudagskvöldið 22. september í félagsheimili F4x4 að Eirhöfða.

    Við munum birta nánari fréttir þegar nær líður ferðinni og allir sem hafa áhuga á að koma með sem hópstjórar geta sent okkur línu á litlanefndin@f4x4.is

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    16.06.2010 at 10:32 #696210
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nú eru fyrstu drög að mótmælakortinu sem á að fara inn á old.f4x4.is komin og þetta lítur vel út. Á síðunni old.f4x4.is er hægt að lesa um þær ferðleiðir sem á að loka s.s. Vikrafellsleið, Vonarskarð og Heinabergsleið. Það er birt umfjöllun um nýjar leiðir sem á að loka á hverjum degi á forsíðu old.f4x4.is Fylgstu með og sendu mótmælakortið þegar það verður komið inn á vefinn old.f4x4.is (kemur næstu daga).





    15.06.2010 at 09:20 #696202
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Við erum komin með hátt í 200 manns í viðbót inn á ferðafrelsi á Facebook. Aukning upp á 200 manns á dag er frábært. Minni alla Facebook félagsmenn í F4x4 og aðra að senda Ferðafrelsissíðuna á ALLA SÍNA VINI:

    http://www.facebook.com/home.php?#!/gro … 603&ref=ts

    Þið getið fundið síðuna með því að setja "Ferðafrelsi" í leit og þegar síðan opnar, smella á texta fyrir neðan myndina "Bjóða fólki að gerast meðlimir" og velja síðan alla vini og senda þetta til þeirra.

    Setjið síðan texta í persónuleg skilaboð "Í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð á að loka fallegum ferðaleiðum. Skráðu þig í hópinn Ferðafrelsi og fylgstu með fréttum af málinu!"

    Við getum gert kraftaverk ef allir okkar félagsmenn senda öllum sínum vinum. [b:1deb13un]SÖFNUN ÞÚSUNDUM TIL AÐ STYÐJA FERÐAFRELSI.[/b:1deb13un]

    Guðmundur G. Kristinsson





    14.06.2010 at 11:23 #696192
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Ég sendi Facebook síðuna Ferðafrelsi á alla mína vini og hvatti þá til að tengjast þessum baráttuhópi sem þar er á ferðinni. Margir eru nú þegar búnir að tengjast og fleiri eiga örugglega eftir að koma. Ef allir félagsmenn í F4x4 myndu senda sambærilega beini til allra sinna vina gætum við fljótt safnað þarna saman þúsunum aðila sem værú í beinni tengingu við allt sem færi inn á þennan frábæra baráttuvef. Þið getið fundið síðuna með því að setja "Ferðafrelsi" í leit og þegar síðan opnar, smella á texta fyrir neðan myndina "Bjóða fólki að gerast meðlimir" og velja síðan alla vini og senda þetta til þeirra.

    Setjið síðan texta í persónuleg skilaboð "Í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð á að loka fallegum ferðaleiðum. Skráðu þig í hópinn Ferðafrelsi og fylgstu með fréttum af málinu!"

    Við getum gert kraftaverk ef allir okkar félagsmenn senda öllum sínum vinum. [b:2eng1adp]SÖFNUN ÞÚSUNDUM TIL AÐ STYÐJA FERÐAFRELSI. [/b:2eng1adp]
    Guðmundur G. Kristinsson





    14.06.2010 at 09:00 #696188
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Ferðafrelsisnefnd er að undirbúa mótmælapóstkort gegn lokunum í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð á vefsvæðin old.f4x4.is sem verður vonandi tilbúið á næstu dögum. Það getur fólk skráð sig á persónulegt mótmælakort og sent til viðeigandi aðila. Þar verður einnig hægt að skrá sig á mótmælaskrá sem afhenda á líklega umhverfisráðherra. Einnig er Ferðafrelsinefnd að undirbúa kynningarblað sem kemur út með fréttablaðinu 22. júní. Þar verður fjallað um þær leiðir sem á að loka í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð.

    Við verðum að spyrna við fótum og stöðva þessa óþolandi afskiptasemi ferðaþjónustufyrirtækja af ferðamálum hins almenna íslenska ferðamanns. Sem dæmi verður ferðaþjónustufyrirtækjum heimilt að aka Heinabergsdal með vistir fyrir ferðahópa, sem íslenskum ferðahópum á eigin vegum verður ekki heimilt. Hinn almenni íslenski ferðamaður verður sem sagt að ganga um þetta umhverfi hungraður eða kaupa rándýra ferð af ferðaþjónustufyrirtæki. Hvernig geta íslensk stjórnvöld afsakað svona framferði, þau eru að ganga erinda einkafyrirtækja á kostnað hins almenna íslenska ferðmanns.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Ferðafrelsisnefnd





    28.05.2010 at 11:43 #694378
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Hvar eru þúsundir okkar félagsmanna í umræðunni um verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð. Það á að loka fullt af fallegum leiðum og svæðum og það virðist engir nema gamlir baráttujaxlar til margra ára hafa skoðun á þessu. Hvernig væri að styðja við bakið þessu frábæra baráttufólki okkar til áratuga og taka þátt í umræðunni. Enn betra væri að fletta upp í myndasafninu og senda okkur myndir frá þessum fallegu leiðum og svæðum til að birta í Ferðafrelsisblaðinu okkar. Við höfum bara nokkra daga til að klára þetta baráttublað okkar fyrir ferðafrelsinu.

    Maður les hér á spjallinu umræðu í mörgum blaðsíðum um stundum afskaplega fánýt málefni, en þegar kemur að stórum málum eins og skerðingu á ferðafrelsi, ER UMRÆÐAN ENGIN!! [b:xxhobg4d]UST og Umhverfisráðuneyti lesa spjallið okkar daglega [/b:xxhobg4d]og hafa sjálfsagt myndað sér skoðun um að [b:xxhobg4d]þessar lokanir skipti okkur litlu máli.[/b:xxhobg4d] Allavega eru mjög fáir að fjalla um þetta hjá okkur. Við berum ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum um að standa vörð um ferðafrelsið og knýja fram eðilega umgengni um landið okkar.

    Við megum ekki láta [b:xxhobg4d]STJÓRNVÖLD OG FERÐAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI STELA FRÁ OKKUR MÖRGUM AF FALLEGUSTU SVÆÐUM Á LANDINU!![/b:xxhobg4d]

    Það á að loka Vonarskarði, Vigrafellsleið, Tungnáröræfum, Jökulheimasvæðinu, Heinabergsleið og fleiri svæðum og okkur vantar myndir og ferðasögur NÚNA. Látið í ykkur heyra á spjallinu og sendið efni til Guðmundar í síma 6611900 eða á póstfang gudmundur.kristinsson@gmail.com.





    26.05.2010 at 10:37 #694374
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Allir áhugaaðilar um hagsmunabaráttu ferðafólks

    Nú er verndaráætlunin um Vatnajökulsþjóðgarð komin út og er opin fyrir athugasemdir til 24. júní 2010. Þeir sem vilja standa vörð um ferðafrelsi verða núna að standa saman og koma í veg fyrir lokanir á mörgum ferðaleiðum. Þar má t.d. nefna Vonarskarð, Vigrafellsleið, Tungnáröræfi og Jökulheimasvæðið.

    Ferðaklúbburinn 4×4 er að undirbúa að gefa út umfjöllun um þessar leiðir í aukablaði með dagblaði til að sýna hinum venjulega íslenska ferðamanni hvað verið er að gera. Þetta snýst nefnilega eins og hefur komið fram í þessu spjalli, fyrst og fremst um réttindi hins almenna íslendings um að geta ferðast um landið sitt. Ég hef ekki komið á alla þessa stað og mig langar að geta farið þarna án þess að þurfa að ganga tugi kílómetra. Í minni fjöldskyldu eru bæði fatlaðir, aldraðir og börn sem líka vilja eiga möguleika á að geta séð þessa staði, en verndaráætlunin kemur í veg fyrir það að óbreyttu.

    Ég tek undir með Ofsa vini mínum og Degi að baráttuaðferðir okkar mætti vera öflugri, en áhugi fyrir þessari baráttu virðist því miður vera allt of lítill. Þess vegna eiga örugglega margir eftir vakna við vondan draum í framtíðinni þegar þeir átta sig á þeim takmörkunum sem við verður að eiga varðandi ferðafrelsi að óbreyttu.

    Við megum samt ekki gleyma að í flestum ef ekki öllum þjóðgörðum í Noregi, Kanada og Bandaríkjunum er nánast allt bannað, meira segja að aka á snjó. Sem betur fer er umræðan um verndaráætlum um Vatnajökulsþjóðgarð á skynsamlegra plani en þetta og þar er fekar allt leyft nema það sé bannað. Þessi staða er betri hjá okkur hér á íslandi vegna baráttu fjölmargra aðila og þar á meðal Ferðaklúbbsins 4×4. Við eigum mikið að þakka mönnum eins og Ofsa og ættum að berjast fyrir því að stytta af honum verði sett upp í Vatnajökulsþjóðgarði til að fólk viti hverjum það eigi að þakka stóran hluta af sínu ferðafrelsi.

    Verndaráætlunin um Vatnajökulsþjóðgarð er bara byrjunin á því að hamla aðgengi, við eigum eftir að standa í þessari baráttu næstu áratugina.

    Vinsamlega hafið samband við mig ef þið viljið koma einhverju á framfæri í þessi aukablöð sem stefnt er að gefa út fyrir 10. júní. Síminn er 6611900 og póstfangið er gudmundur.kristinsson@gmail.com

    Guðmundur G. Kristinsson
    Ritstjóri Ferðafrelsis F4x4
    Sími 6611900
    gudmundur.kristinsson@gmail.com





    25.03.2010 at 10:04 #211670
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Ágætu félagsmenn,

    Ég veit ekki hvort þið hafið tekið eftir lítilli frétt um að fyrirtækið Athygli hafi keypt nafnið á tímaritinu Útivist og stefnt sé á útgáfu þess fjórum sinnum á ári (sjá frétt). Einn af þeim aðilum sem að þessu standa er Páll Ásgeir Ásgeirsson sem flestir þekkja sem einn öflugasta talsmann landsins gegn vélknúnum ökutækjum á hálendi Íslands. Með því að endurvekja útgáfu á blaðinu Útivist er verið að stilla upp áróðursmaskínu göngufólks sem örugglega á eftir að styrkja stöðu þeirra sem vinna gegn okkar hagsmunum í Ferðaklúbbnum 4×4.

    Það hefur líklega aldrei verið nauðsynlegra að halda frammi sjónarmiðum okkar og verja okkar hagsmuni til ferðafrelsis. Við þurfum að setja upp virka stefnumótun og aðgerðaráætlun um það hvernig við ætlum að koma okkar málefnum og sjónarmiðum á framfæri. Þar þarf að hafa í huga tímarit, dagblöð, útvarp og sjónvarp eða í raun alla þá miðla sem eru í gangi á landinu. Það hefur komið mér á óvart hve lítið hefur undanfarnar vikur og mánuði verið birt af efni til að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og það á við hvort sem er prentað efni eða viðtöl í útvarpi eða sjónvarpi.

    Mig langar því að leggja til að allir aðilar í stjórn og nefndum Ferðaklúbbsins 4×4 kanni grundvöll fyrir nokkrum þáttum s.s:

    • Útgáfu á tímariti þar sem fjallað verði um ferðamennsku á vélknúnum ökutækjum (jeppum)
    • Föstum úrvarpsþáttum þar sem fjallað er um ferðamennsku á vélknúnum ökutækjum (jeppum)
    • Sjónvarpsþáttum eða reglulegum innskotum í dagskrá sjónvarpsstöðva um ferðamennsku á vélknúnum ökutækjum (jeppum)
    • Reglulegum greinaskrifum í dagblöð um ferðamennsku á vélknúnum ökutækjum (jeppum)

    Að setja upp markvissa áætlun í þessum málum gæti hjálpað til að koma okkar baráttumálum á framfæri og styrkt okkar stöðu í baráttunni fyrir ferðafrelsi. Ég er tilbúinn að taka þátt í svona verkefni og miðla minni reynslu og þekkingu til að berjast fyrir okkar stærsta hagsmunamáli allra tíma, að geta ferðast um hálendi Íslands.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd
    Sími 6611900
    gudmundur.kristinsson@gmail.com





    19.11.2009 at 13:22 #666320
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Við minnum á að farið er yfir alla bíla í upphafi allra ferða á vegum Litlunefndar varðandi ástand, dekkjabúnað, króka til að binda í, pílur í dekkjum og fleira. Aðalfararstjóri getur í framhaldi af þessarri úttekt, úrskurðað að bíll sé ekki hæfur í ferð.

    Guðmundur G. Kristinsson, Litlunefnd





    19.11.2009 at 08:55 #666318
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það eru 26 þegar skráðir í ferðina 21. nóvember hjá Litlunefnd. Skráning er opin til miðnættis í kvöld. Við minnum á kynningarfund fyrir þátttakendur kl. 20:30 í húsnæði Ferðaklúbbsins 4×4 á Eirhöfða 11, Skemmu 3. Þar er farið yfir ferðaáætlun og á eftir er létt námskeið í jeppamennsku. Guðmundur G. Kristinsson, Litlunefnd

    Eggert Sverrisson, Dodge Ram 2500, 35
    Atli Lýðsson, Econoline, 44
    Baldur Sigurðsson, Ford Econline, 38
    Atli Sturluson, Grand Cherokee, 35
    Brynjar traustason, Jeep Cherokee
    Víðir Víðisson, Jeep Cherokee, 38
    Hróar Pálsson, Jeep Cherokee, 38
    Pétur Friðrik Þórðarson, Jeep Commance, 38
    Böðvar Markan, Jeep Rubikon, 31
    Sigurður Haraldson, LC 80, 38
    Skúli Páll Skúlason, Mitsubisi L 200, 31
    Hafþór Atli Hallmundsson, MMC Pajero Sport V6., 32
    Gunnar K Karlsson, Musso Sport 35
    Guðmundur G. Kristinsson, Mussó, 33
    Kristján Kristjánsson, Mussó, 35
    Thor Magnus Berg, Nissan Patrol, 35
    Kristinn Helgi Sveinsson, Pajero, 32
    Gunnar Hróðmarsson, Patrol, 38
    Einar Sveinn, Suzuki, 33
    Gísli Sverrisson, Suzuki Samurai, 33
    Hafsteinn Davíðsson, Suzuki Sidekic, 33
    Sigurjón Eyjólfsson, Suzuki Sidekick, 33
    Brynjar Hróarsson, Suzuki vitara, 33
    Sævar Örn, Suzuki vitara, 33
    Þórarinn Guðjónsson, Toyota Hilux, 38
    Einar Berg Gunnarsson, Toyota hilux Mjallhvit, 35





    17.11.2009 at 13:03 #666312
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það eru 14 bílar þegar skráðir í ferð Litlunefndar 21. nóvember. Við minnum á kynningarfundinn á fimmtudagskvöldið 19. nóvember kl. 20:30 þar sem farið er yfir ferðaplan og boðið upp á stutt námskeið í jeppamennsku. Skráning í ferðina er opin til miðnættis 19. nóvember. Hér að neðan eru þeir sem þegar hafa skráð sig. Guðmundur G. Kristinsson, Litlunefnd

    Pétur Friðrik Þórðarson, Jeep Commance, 38
    Guðmundur G. Kristinsson, Mussó, 33
    Einar Berg Gunnarsson, Toyota hilux Mjallhvit, 35
    Kristján Kristjánsson, Mussó, 35
    Eggert Sverrisson, Dodge Ram 2500, 35
    Kristinn Helgi Sveinsson, Pajero, 32
    Hafsteinn Davíðsson, Suzuki Sidekic, 33
    Skúli Páll Skúlason, Mitsubisi L 200, 31
    Hafþór Atli Hallmundsson, MMC Pajero Sport, 32
    Thor Magnus Berg, Nissan Patrol, 35
    Brynjar Hróarsson, Suzuki vitara, 33
    Hróar Pálsson, Jeep Cherokee, 38
    Baldur Sigurðsson, Ford Econline, 38
    Þórarinn Guðjónsson, Toyota Hilux, 38





    30.10.2009 at 00:35 #660390
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Þátttakendur í ferð Litlunefndar í Hungurfit 31. október verða að lesa ferðaleiðbeiningar sem þeir eiga að hafa fengið sendar í tölvupósti. Ef þær hafa ekki borist er hægt að finna þær á síðu Litlunefndar á þessu vefsetri. Góða ferð.
    Guðmundur G. Kristinsson, Litlunefnd





    28.10.2009 at 09:22 #660384
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það hafa 31 aðili skráð sig í ferð LItlunefndar í Hungurfit 31. október. Hér að neðan er listi yfir þá sem hafa skráð sig. Við minnum á kynningarkvöldið á morgun kl. 20:30 á Eyrhöfðanum. Skráning er opin til miðnættis sama kvöld.
    Guðmundur G. Kristinsson, Litlunefnd

    Guðmundur Árnason, Jeep Grand Cherokee, 30
    Jón Árni Guðmundsson, Jeep Grand Cherokee, 31
    Árni Bergs, Econoline, 33
    Guðmundur G. Kristinsson, Mussó, 33
    Þór Ingi Árdal, Musso, 33
    Hafsteinn Davíðsson, Suzuki Sidekic, 33
    Hans Ragnar Þór, Nissan Patrol 1999, 33
    Sverrir Kr. Bjarnason, Nissan Patrol, 35
    Einar Berg Gunnarsson, Toyota hilux Mjallhvit, 35
    Kristján Kristjánsson, Mussó, 35
    Thor Magnus Berg, Nissan Patrol , 35
    Birgir Pétursson, Nissan Patrol, 35
    Gunnar K Karlsson, Musso Sport, 35
    Gunnar Gunnarsson , Toyota LC120, 35
    Friðrik Þorsteinsson, Toyota Hilux, 35
    Atli Þór Kristbergsson, Isuzu D-Max, 35
    Þengill Ólafsson, Jeep Cherokee, 36
    Gunnar Hróðmarsson, Patról, 38
    Sigurður Pálmarsson , Mussó, 38
    Pétur Friðrik Þórðarson, Commance, 38
    Baldvin Zarioh, MMC Pajero, 38
    Magnús Sveinsson, Grand Cherokee, 38
    Bogi Sigvaldason, Nissan Doble , 38
    Ómar Andri Jónsson, Ómar Andri Jónsson, 38
    Valdimar Nielsen, Ford Explorer, 38
    Björgvin Sigurðsson, Nissan Patrol, 38
    Unnar Steinn, Nissan Patról, 38
    Bragi Þór Jónsson, Ford F150 FX4, 41
    Ólafur Magnússon, Toyota LC 80, 44
    Elías Þorsteinsson, Nissan Patrol 44
    Samúel, 4Runner, 44





    17.09.2009 at 15:59 #657524
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Hér listinn eins og hann lítur út í dag fimmtudag. Helmingurinn er á 32 eða 33 tommu dekkjum og aðrir á stærri. Við minnum síðan á kynningarfundinn í kvöld fimmtudag kl. 20:30 í félagshúsnæðinu að Eyrhöfða 3.

    Ólafur Magnússon, Toyota LC 80, 44
    Gunnar Hróðmarsson, Patról, 38
    Pétur Friðrik Þórðarson, Commance, 38
    Sigurður Pálmarsson, Mussó, 38
    Helgi Ragnarsson, Jeep, 38
    Vladimar Örn Helgason, Hilux, 38
    Marteinn J. Sigurðsson, Pajero, stuttur, 38
    Sverrir Kr. Bjarnason, Nissan Patrol, 35
    Einar Berg Gunnarsson, Toyota hilux Mjallhvit, 35
    Kristján Kristjánsson, Mussó, 35
    Kári Jóhannsson, Nissan Patrol 94, 35
    Björn Bergmann Þorvaldsson, Nissan Navara, 35
    Ólafur Vignir Sigurðsson, Toyota 4runner 1994, 35
    Hróar Pálsson, Cherokee, 35
    Árni Bergs, Econoline, 33
    Karl Hákon Karlsson, MMC Montero 2005, 33
    Þórður Ámundason, Galloper, 33
    Guðlaugur Jónasson, Cherokee 2005, 33
    Björn Guðmunddson, Terrano, 33
    Þór Ingi Árdal, Musso, 33
    Sverrir Jónsson, Isuzu crew cab, 33
    Kristinn Helgi Sveinsson, Pajero 03, 32
    Friðrik Karl Weisshappel, IZUSU D-MAX, 32
    Trausti Friðriksson, Musso, 32
    Brynjar Harðarson/Sigrún Helga Sigurðardóttir, Nissan Pathfinder, 265/70 R17

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    16.09.2009 at 22:44 #657516
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Hróar,

    Vinsamlega svara þessu…

    • Nafn ökumanns
    • Bílnúmer
    • Bíltegund
    • Dekkjastærð
    • Fjarskiptabúnaður í bílnum
    • GSM símanúmer
    • Er GPS tæki í bílnum ?
    • Annar búnaður tengdur vetrarferðum
    • Félagsmaður eða ekki
    • Heildarfjöldi í bíl – að bílstjóra meðtöldum.
    • Reynsla af fjallaferðum
    • Ég vill vera í hópi með:

    Og senda svarið á litlanefndin@f4x4.is

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 137 total)
← 1 … 5 6 7 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.