FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Guðmundur G. Kristinsson

Guðmundur G. Kristinsson

Profile picture of Guðmundur G. Kristinsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 137 total)
← 1 … 4 5 6 7 →
  • Author
    Replies
  • 15.01.2011 at 09:34 #216857
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    það voru 47 bílar sem lögðu af stað í morgun í ferð Litludeildar upp í Veiðivötn. Ólafur aðalfararstjóri var kominn af stað þegar spjallað var við hann og allt gekk vel. Kristján sem var eftirfari sagði mætingu hafa verið góða og ferðin væri að leggjast vel í fólk. Samkvæmt fréttum má búast við snjó á leiðinni og allt stefnir því í skemmtilega ferð. Fréttir af ferðinni verða settar hér inn öðru hvoru í dag.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    11.01.2011 at 00:41 #716030
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Takk fyrir þetta. Þú getur farið inn á vefinn http://www.ferdafrelsi.is og undir "greinar og efni" finnur þú allt sem birtst hefur um ferðafrelsi í dagblöðum undanfarna mánuði.

    Guðmundur G. Kristinsson





    08.01.2011 at 14:31 #714726
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Þetta er munnlegt nafn hópsins sem stendur fyrir karókíi og söfnun undirskrifta gegn sölu á HS orku og undirskriftasöfnun um kröfu á þjóðaratkvæðageiðslu um um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. Það sem pirrar mig er að þessir aðilar taki sér það að tala fyrir mig og aðra með því að kalla þetta "Raddir þjóðarinnar" Ég er kannski sammála eða ósammála málefninu, en hvorki þessir eða aðrir tala fyrir mig.

    Gumundur G. Kristinsson





    08.01.2011 at 13:53 #714722
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nú er komin upp krítísk staða, því greinin sem ég skrifaði um ákveðinn hópur tæki að sér að tala fyrir mig, þig og alla hina er nú kominn enn og aftur fram og segist tala sem "Raddir þjóðarinnar".

    Ekki ætla ég enn sem komið er að taka afstöðu í því máli sem virðist vera undirstaðan fyrir þeirra baráttu. Mig vantar of mikið af upplýsingum og útfærslum á stefnumótun í því máli til að hægt sé að taka afstöðu. Það á við mörg mál þessa dagana þar er líklega aðild að Evrópusambandinu stærsta málið.

    Hvað finnst ykkur um að þessi hópur fari fram undir þessu nafni "Raddir þjóðarinnar" og segist með því leynt og ljóst taka að sér að tala fyrir okkur hin í samfélaginu. Viljum við að hópur sem þessi vinni stefnumótun í stórum landsmálum og munum við sem þjóð fylgja svona hóp. Hvar stoppar þetta, hvaða málefni koma næst og hver verður okkar framtíð með svona áherslum.

    Því miður þá virðist stór hluti þjóðarinnar standa til hliðar og vera ósáttur, en kemur ekki fram til að taka í alvöru þátt í mótun á samfélaginu. Þessi hópur lýsir yfir óánægju sinni með því að mæta ekki á kjörstað (kom vel fram í siðustu sveitarstjórnakosningingum) eða með því að kjósa yfir sig stjórnmálahópa sem hafa nánast engin alvöru markmið eða stefnu og segjast jafnvel ætla að brjóta öll kosningaloforð.

    Þetta er umhverfið sem við erum að eiga við í okkar frelsisbáráttumálum, við erum oft að berjast við hópa sem hafa yfirlýsta stefnumótun samkvæmt aðgerðum, en afneita henni opinberlega. Eru á móti alverum og virkjunum og beita náttúruvernd sem baráttutæki til að ná árangri í baráttunni gegn virkjunum, álverum og stóriðju. Hvað með Draumalandið, eitt frægast áróðursverkefni þessa "Radda þjóðarinnar". Hverju skilaði það, var þetta Draumaland til hagsbóta fyrir þjóðina til lengri tíma.

    Við sem erum raunverulega þjóðin og viljum hafa frelsi til að ferðast, frelsi til athafna, frelsi til framkvæmda, frelsi til skoðana, þurfum að standa upp og taka til máls. Við megum ekki láta einhverja menntahópa, listafólk, rithöfunda eða aðra taka okkar málefnalega umhverfi og jafnvel tala í okkar nafni. Þeir sem voru okkar fulltrúar í svæðisráðum Vatnajökulsþjóðgarðs voru að tala fyrir aðra en okkur. Við þetta venjulega fólk (þjóðin innan F4x4) sitjum síðan uppi með vandamálið og þurfum að takast á við það.

    Ég er ekki að leggja mat á hugsjónir þessara aðila hér að ofan, þær eru vafalaust byggðar á góðum hug. Við sem erum í alvöru þjóðin, þurfum bara að passa okkur á að láta ekki einhverja hópa taka okkar samfélag og fara með það eitthvað sem við viljum ekki og leggja grunn að einhverju sem jafnvel er óafturkræft ef illa fer. Við höfum dæmi frá Bandaríkjunum þar sem 95% ferðafrelsis var bannað og baráttan fór að snúast um að ná til baka nokkrum prósentum.

    Guðmundur G. Kristinsson





    05.01.2011 at 18:12 #715224
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það er ekki útilokað að þú komist með ef þú skráir þig strax og við opnum fyrir skráninguna 9. janúar. Þessi tilraun sem við erum að gera núna kemur til vegna þess að heildarfjöldi hefur oft farið yfir 50 bíla í ferð og stór hluti af þeim jafnvel verið stærri en 35". Einnig höfum við heyrt af því að sumum á minni bílum finnst ferðirnar í einhverjum tilfellum jafnvel of erfiðar.

    Það hefur sfellt fjölgað í ferðum síðsustu árin og hlutfall stærri bíla að aukast. Við þurfum að prófa okkur áfram með breytingar í þessu og jafnvel þarf að skoða möguleika á að setja upp ferðir fyrir stærri bíla og hafa þær meira krefjandi. Endilega skráðu þig þann 9. janúar og við sjáum til hvernig þetta fer.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    05.01.2011 at 12:10 #216693
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nú er að koma að fyrstu ferð Litlunefndar á þessu ári, en hún verður 15. janúar n.k. Ekki er búið að ákveða ennþá hvert eigi að fara og verið að skoða leiðir. Ákvörðun um þetta verður tekin fljótlega og tilkynnt um það hér á þessu spjalli. Skráning verður opnuð 9. janúar.

    Ákveðið hefur verið að gera tilraun með að breyta aðeins fyrirkomulagi á skipulagi á ferðinni. Gefa jeppum með dekkjastærðina 35“ og minni forgang á skráningu þátttöku í ferðina og takmarka fjölda þáttakenda við 30 bíla fyrir utan hópstjóra. Einnig var ákveðið að gera tilraun með að hafa tvo hópstjóra með hvern hóp og hafa að hámarki sex bíla í hverjum hópi.

    Eins og venjulega verður mæting hjá Skeljungi við Vesturlandsveg laugardaginn 15. janúar kl. 08:30 og farið af stað ekki síðar en 09:00 (hver hópur fer um leið og allir eru mættir).

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    30.12.2010 at 17:58 #714716
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Takk fyrir frábærar undirtektir og stuðning í því að birta þetta. Held að Logi hafi nokkuð rétt fyrir sér að þetta lið "rísi upp á afturlappirnar og skæli ógurlega" og það verður þá bara að taka því.

    Við þurfum kannski líka að endurskoða okkar baráttuaferðir og ekki vera hrædd við að nota þeirra eigin aðferðir. Þetta lið hefur nefnilega innrætt hjá þjóðinni ranghugsun með sífelldri endurtekningu á alröngum forsendum s.s. auknum utanvegaakstri og auknum náttúruskemmdum sem engar vísindalegar staðfestingar eru til um.

    Guðmundur G. Kristinsson





    30.12.2010 at 11:29 #216613
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Birti hér grein sem ég skrifaði fyrir nokkrum mánuðum, en hef ekki þorað að birt í fjölmiðlum. Set þessa grein hér inn til umhugsunar fyrir þá sem finnst fámenn öfgaklíka náttúruverndarsinna vera að herja á okkar ferðaumhverfi.

    Guðmundur G. Kristinsson

    Nota náttúruverndarsinnar falin vopn?
    – loka þeir hálendinu til að ekki verði byggðar virkjanir og álver

    Það hefur verið skondið að fylgjast með umræðu og umfjöllun um náttúruvernd á Íslandi undanfarin ár. Þar hefur farið fremst sjálfskipað baráttufólk með mikla andagift sem segist vera að berjast fyrir sig, mig og alla hina í landinu sem ekki þora eða vilja tjá sig. Þarna má sjá mikið af listafólki, rithöfundum, leikurum og öðrum sem telja sig skapandi fólk með mikla ábyrgðartilfynningu fyrir landinu.

    Maður fylltist stollti á þessu fólki að standa upp og tala fyrir heilagri baráttu um fallegt land til framtíðar sem ekki megi spilla með virkjunum og þeim framkvæmdum sem fylgja stóriðju. Oftar en ekki talar þetta fólk fyrir grænum atvinnuskapandi verkefnum sem eigi að taka upp í staðinn fyrir byggingu álvera. Það sé meira í lagi að byggja orkuver til að skapa grænum verkefnum tækifæri, en hinum megunarmiklu álverum. Því miður finnst mér þessir sömu aðilar líka hafa staðið í veginum fyrir grænu verkefnunum!!

    Bíðum við, þetta hljómar alveg rosalega vel. Meira segja ég keypti þetta lengi vel, allavega að hluta til. Upp á síðkastið hef ég farið að efast um heiðarleika þessara aðila og að kannski sé eitthvað annað á bak við þetta allt! Stækkun á Þjórárverum var það mál sem setti upp hjá mér spurningar um raunverulegan tilgang fyrir náttúruvernd. Voru þessir aðilar kannski bara á móti virkjanaframkvæmdum á svæðinu og voru að misnota baráttu fyrir náttúruverndun með stækkun friðlandsins, til að koma í veg fyrir virkjanaframkvæmdir á svæðinu og þar með að ekki væri hægt að byggja álver.

    Þessi efi um heiðarleika þessara aðila kom líka upp hjá mér varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, en þar átti að loka mörgum ferðaleiðum og engin náttúrufræðileg rök virtust liggja þarna að baki. Í grein frá nokkrum þjóðgarðsvörðum fékk ég staðfest að eitthvað skrýtið væri þarna á ferðinni. Þau segja að Vonarskarðleið sem átti að loka, sé eingöngu fær breyttum jeppum. Ég þekki nefnilega fólk sem hefur farið þarna á Subarú, sem varla getur talist breyttur jeppi. Tekið skal fram að Subarúinn var óbreyttur. Vonarskarðsleið hefur verið þjóðleið íslendinga yfir hálendið í hundruði ára.

    Eftir að hafa fengið bakþanka um þessa baráttuglöðu náttúruverndarsinna, held ég að við sem teljumst til hins almenna almúga í þessu umhverfi, þurfum að fara að leggja okkar af mörkum inn í umræðuna í þessum málaflokkum. Við megum ekki láta eitthvað baráttuglatt fólk með einhverja furðulega hugmyndafræði taka okkur og nota sem viljalaust verkfæri í baráttu, sem við viljum kannski ekki taka þátt í.

    Ég er félagi í Ferðaklúbbnum 4×4 og hef mikið ekið um hálendi Íslands, bæði að sumri og vetri. Ég er í nefnd klúbbsins sem stendur fyrir nýliðaferðum fyrir fólk sem er að byrja að ferðast inn á hálendið og þar hafa þúsundir aðila fengið námskeið og kennslu í að ferðast á ábyrgan hátt um hálendi Íslands. Mér blöskraði þegar átti að loka leiðum í Vatnajökulsþjóðgarði með engum haldbærum rökum og banna akstur á snjó í Þjórsárverum. Ég ákvað persónulega ásamt mörgum öðrum að berjast fyrir skynsamlegri stefnu í þessum málum og hætta að láta baráttuglaða öfgasinna nota mig sem viljalaust verkfæri.

    Ég er ekki að berjast fyrir álverum eða virkjum, heldur skynsamlegri þátttöku almennings í uppbyggingu á landinu til framtíðar. Þess vegna hvet ég alla almenna íslendinga til að vakna og láta í sér heyra. Ekki láta misvirta sérhagsmunaaðila draga ykkur á asnaeyrunum inn í eithvert framtíðarsamfélag sem byggist á hugmyndafræði sem byggð er á blekkingum.





    21.12.2010 at 00:20 #713600
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Á stjórnarfundi landsamtakanna Ferðafrelsi í kvöld 20. desember var ákveðið að vera með opinn fund mánudaginn 27. desember kl. 20:00 í húsnæði Ferðaklúbbsins 4×4 um drög að breytingum á náttúruverndarlögum. Skila þarf athugasemdum um drögin í síðasta lagi 7. janúar til umhverfisráðherra. Allir áhugasamir aðilar um þetta málefni eru velkomnir á fundinn. Fundarstjóri verður Guðmundur G. Kristinsson.





    19.12.2010 at 15:41 #713596
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Ég tek heilshugar undir margaf því sem sagt er hér að framan, en er ekki endilega viss um að markmiðið með þessum drögum að náttúruverndarlögum sé að hafa alræðisvald um hlutina í framtíðinni eins og mætti halda. Þessi drög eru unnin af fjölmörgum aðilum sem örugglega hafa mismunandi sjónarmið og þegar þeirra sameiginleg vinna kemur fram í heilstæðu umhverfi, getur sjálfsagt margt stangast á og verið furðulegt í heildarsamhenginu.

    Ég held að í stað þess að undirbúa strax mótmæli með stöðvun á umferð, heftingu á ferðafrelsi ráðherra eða sturta skarna vítt og breitt um bæinn, þá sé farsælla að byrja á því fara yfir þessi drög að nýju náttúruverndarlögum og senda okkar athugasemdir og óskir um breytingar og fylgja þeim síðan eftir. Ef og til þess kemur að ekki verður á okkur hlustað, má alveg skoða aðrar og alvarlegri aðgerðir.

    Þessi fullyrðing „mér finnst lítið gert í klúbbnum í því að stemma stigum við þeirri náttúrufasistapólitík sem virðist vera uppi á pallborðinu hjá ráðamönnum okkar síðkastið.“ er ekki alveg sanngjörn og langar mig að nefna útgáfu á blaðinu Ferðafrelsi í júni, afhendingu 5000 undirskrifta gegn lokunum á leiðum í Vatnajökulsþjóðgarði, táknræna jarðarför á Kistuöldu með 1000 manns, nýlega grein í Fréttablaðinu frá níu félagasamtökum og aðilum í ferðaþjónustu til stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, stofnun landsamtakanna Ferðafrelsi 1. desember og vinnu við gerð sjónvarpsmyndar um skynsamlega náttúruvernd sem sýnd verður í sjónvarpi eftir áramót sem dæmi um verkefni á síðustu sex mánuðum. Það er líklega langt síðan jafnmikið hefur verið í gangi frá Ferðaklúbbnum 4×4 og öðrum hagsmunaaðilum í þessum hagsmunamálum.

    Við þurfum að byggja upp samstarfsgrundvöll við stjórnvöld og setja okkur og aðra hagsmunaaðila á borðið sem samstarfsaðila sem ekki er hægt að ganga fram hjá í þessum málaflokkum. Það er mjög víða verið að að þrengja að okkar ferðaumhverfi og setja höft á okkar ferðafrelsi. Við erum með í gangi stækkun Þjórsárvera í gangi, óundirskifaða reglugerð um Vatnajökulsþjógarð, tillögu að breyttum nátttúruverndarlögum, skipulagsmál vegslóða í 24 sveitarfélögum og margt fleira. Það nýjasta sem komið er inn í umræðuna er Geopark "þjóðgarðar" þar sem landeigendur sameinast í útfærslu landssvæða og er til dæmis í gangi varðandi Dyrfjöll.

    Vegna okkar baráttu undanfarna mánuði eru stjónvöld að átta sig á því að þeir sem hafa sameinast í Landssamtökunum Ferðafrelsi eru og ætla að vera öflugur talsmaður almennings um að standa gegn þessum höftum og að ekki verði gengið fram hjá okkur um samráð og samvinnu.

    Mig langar að hvetja alla áhugasama um að taka þátt í baráttunni framundan innan landsamtakanna Ferðafrelsi til að senda tölvupóst á ferdafrelsi@gmail.com með nafni, síma, tölvupósti og upplýsingum um sínar skoðanir á hvaða málefni brenni mest á.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Formaður landsamtakanna Ferðafrelsi og í Litlunefnd 4×4, Ferðafrelsinefnd 4×4 og nefnd Samút um Vatnajökulsþjóðgarð.





    20.11.2010 at 18:44 #710868
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Vildi leiðrétta áætlaðan komutíma hér að framan, en fyrstu bílar eru að koma inn á Lyngdalsveg á næsta klukkutíma. Heimkoma verður því fyrr en kom fram hér áðan.

    Guðmundur G. Kristinsson





    20.11.2010 at 17:47 #710866
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það náðist samband við hópinn frá Litlunefnd og hann er í erfiðum snjó sunnan við Skjaldbreið. Það tekur lengri tíma að komast til byggða en reiknað hafði verið með og áætluð koma niður á malbik er núna seint í kvöld eða kl. 22:00 til 24:00. Við látum vita um leið og nánari fréttir berast.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    09.11.2010 at 22:20 #708878
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nú er búið að opna fyrir skráningu í ferð Litlunefndar 20. nóvember og um að gera að skrá sig sem fyrst. Það fóru nokkrir á biðlista síðast, svo það er ekki eftir neinu að bíða til að tryggja sér þáttöku. Snjóalög benda til þess að þetta geti orðið skemmtileg ferð og um að gera að afla sér þekkingar með góðum og traustum ferðafélögum um hvernig á að keyra í snjó.

    Allir sem eru á óbreyttum og breyttum bílum eru velkomnir í ferðir Litlunefndar, hvort sem þeir eru félagsmenn eða ekki. Við fylgjum góðum öryggisstöðlum í okkar skipulagi og sem dæmi er markmið að allir sem eru ekki með VHS stöðvar, fá lánaða stöð frá Ferðaklúbbnum 4×4.

    Munið að taka fram ef þið viljið vera með einhverjum sérstökum í hópi. Ef einhverjar upplýsingar vantar sendið þá póst á litlanefndin@f4x4.is

    Við hvetjum okkar hópstjóra til að skrá sig sem fyrst til að geta séð hvað við getum verið með marga hópa.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd og eftirfari í þessari ferð





    30.10.2010 at 13:11 #708324
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það bíður á Morgunblaðinu grein eftir mig um utanvegaakstur og hvernig umhverfisstofnun eignar sér minnkun á utanvegaakstri á röngum forsendum. Það hefur verið nefnt í umræðunni að Magnús, okkar frábæri fulltrú í Samút hafi farið með tvo stjórnarmenn um Vonarskarð og séð þar mikin utanvegaakstur. Hvort það sé ástæða þess að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur lagt til lokun á Vonarskarði, veit ég ekki, en það hefur sjálfsagt haft einhver áhrif.

    Barátta okkar í dag er erfið vegna þess að við erum að berjast við aðila sem svífast einskis í að nota óprútnar aðferðir. Sem dæmi held ég að baráttan um stækkun Þjórsárvera snúist ekki um náttúruvernd, heldur baráttu gegn álverum. Stækkunin kemur í veg fyrir virkjanaframkvæmdir sem aftur stoppa af álversframkvæmdir. Við erum að berjast við aðila sem nota lokun á hálendinu sem verkfæri til að koma í veg fyrir álversframkvæmdir. Þetta lýsir því hversu erfið okkar barátta er. Við getum ekki borið upp á þessa aðila að þeir séu að nota náttúruvernd sem verkfæri og getum bara svarað þessari baráttu gegn álverum, með náttúruverndarlegum sjónarmiðum sem hafa í raun ekkert með málið að gera. Ég legg til að við setjum okkar félagsmenn alla á skáknámskeið til að tileinka sér þessa hugsun í okkar baráttu. Líklega er það eina leiðin til að vinna baráttuna, nota sömu verkfærin og þeir sem við erum að berjast við nota.

    Ég er með aðra grein sem er nokkuð krassandi um þetta lið sem við erum að berjast við, en er að safna kjarki til að birta hana. Set hér tvær málsgreinar úr henni til gamans:

    [i:3sfoqrb7][color=#BF0000:3sfoqrb7]Maður fylltist stollti á þessu fólki að standa upp og tala fyrir heilagri baráttu um fallegt land til framtíðar sem ekki megi spilla með virkjunum og þeim framkvæmdum sem fylgja stóriðju. Oftar en ekki talar þetta fólk fyrir grænum atvinnuskapandi verkefnum sem eigi að taka upp í staðinn fyrir byggingu álvera. Það sé meira í lagi að byggja orkuver til að skapa grænum verkefnum tækifæri, en hinum megunarmiklu álverum. Því miður finnst mér þessir sömu aðilar líka hafa staðið í veginum fyrir grænu verkefnunum!!

    Bíðum við, þetta hljómar alveg rosalega vel. Meira segja ég keypti þetta lengi vel, allavega að hluta til. Upp á síðkastið hef ég farið að efast um heiðarleika þessara aðila og að kannski sé eitthvað annað á bak við þetta allt! Stækkun á Þjórárverum var það mál sem setti upp hjá mér spurningar um raunverulegan tilgang fyrir náttúruvernd. Voru þessir aðilar kannski bara á móti virkjanaframkvæmdum á svæðinu og voru að nota baráttu fyrir náttúruverndun með stækkun friðlandsins, til að koma í veg fyrir virkjanaframkvæmdir á svæðinu og þar með að ekki væri hægt að byggja álver.[/color:3sfoqrb7][/i:3sfoqrb7]

    Guðmundur G. Kristinsson





    25.10.2010 at 18:13 #215394
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Í Morgunblaðinu 21. október var grein (sjá hér) þar sem sett var fram spurning um hvort Vatnajökulsþjóðgarður hefði verið stofnaður fyrir útlendinga. Þessi grein byggir að grunni til á því sem Dagur Bragason setti fram á spjallrásum fyrir stuttu:

    „Einnig er ákveðin viðskiptaáætlun um tekjur af ferðamönnum mikilvægur þáttur í ákvarðanatöku þjóðgarðsins. Þessi viskiptaáætlun tók ekker mið af heimafólki, þ.a.s. Íslendingum, og byggðist alfarið á tekjuplani af útlendingum í þjóðgarðinum, sem eiga líklega að vera um 2 miljónir á næsta á næsta ári. Ekkert er gert ráð fyrir venjulegum Íslendingum sem ferðast á eigin vegum um „þjóðgarðinn“ og er verndar og stjórnunaráætlun samkvæmt því. Ég tel að meiriháttar mistök hafi veri gerð við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðin gleymdist og er þetta stofnun garðs fyrir útlendinga, rannsóknar aðila og viðskiptaaðila. Það að loka elstu þjóðleið yfir hálendið, Bárðargötu, fyrir almenningi og hestafólki er bara dæmi um tillitsleysi við sögu og menningu Íslendinga“.

    Lesið greinina og tjáið ykkur um hvort ykkur finnist það ekki undarlegt, ef bara hefur verið gert ráð fyrir útlendingum, rannsóknaraðilum og ferðaþjónustufyrirtækjum.

    Guðmundur G. Kristinsson





    16.10.2010 at 13:07 #705326
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það eru komnir 33 skráðir í ferðina og nú er hver síðastur að skrá sig. Þessi ferð verður skemmtileg og margir sem hafa ekki komið í Hrafntinnuskér. Þetta er kjörið umhverfi fyrir fólk sem langar að ferðast á hálendi að vetri og hefur kannski ekki fólk til að ferðast með. Þannig byrjuðum við hjónin fyrir nokkrum árum og Litludeildarferðirnar voru ævintýri fyrir okkur að byrja á. Þetta hefur verið svo gaman að við erum að fara í ferðir í næstum hverjum mánuði allan veturinn (fyrir utan Litludeildarferðir). Ég hvet því fólk sem vill byrja í þessu, til að skrá sig.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd





    16.10.2010 at 12:39 #705854
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það er alveg stórmerkilegt hvað hann Páll Ásgeir nær að draga fram í umræðunni. Ég sagði fólk að kynna sér ummæli sem hann viðhafði á Facebook og út frá því spunnust langar umræður. Mín skoðun er sú að hann tali ekki fyrir marga og hef eiginlega fengið það staðfest með því hvað fáir virðast styðja hans málstað. Ég held að Ferðafélagið sé í standandi vandræðum með hann og það er ástæðan fyrir því að hann segist bara tala fyrir sig. Hann er nefnilega alls ekki að tala fyrir neinn nema jálfan sig og mér fannst Ólafur formaður Ferðafélagsins tala þannig á síðasta Samútfundi þegar hann sagði félagið skiptast í tvo hópa í þessum málum.

    Best væri að hunsa algjörlega það sem Páll Ásgeir skrifar og leiða umræðuna aldrei að eða frá einhverju sem hann hefur skrifað. Á síðasta fundi Samút fannst mér Ólafur formaður ferðafélagsins segja margt skynsamlegt og lendingin með þeim nefndum sem samþykktar voru er góð niðurstaða í erfiðri stöðu. Með Samút er komin formlegur aðgangur að opinberu umhverfi sem skiptir okkur miklu máli til framtíðar. Þetta var það sem Ólafur sagði á síðasta Samútfundi og margir tóku undir með. Þetta var það sem lagði grunn að þeim tveimur nefndum sem stofnaðar voru.

    Samút hefur ekki unnið vel varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, en það þarf að muna að margt af því sem náðst hefur fram jákvætt í Vatnajökulsverkefninu (sem er efnislega margt umfram aðra þjóðgarða í heiminum) er frábært afrek og má þakka það sumum fulltrúum Samút og mörgum baráttumönnum innan okkar vébanda og annarra félagsamtaka.

    Verkefnið núna er ekki að fjasa um bull í steingerðum mönnum sem virðast hafa það eitt að leiðarljósi að draga upp það versta í skrifuðu máli, heldur að leggja grunn að markvissri stefnumótun um okkar innlegg hjá F4x4 til að berjast í okkar hagsmunamálum. Við þurfum að tryggja eðlilegan baráttugrundvöll innan Samút og að þar sé fólk í fararbroddi sem hefur skynsamlega náttúruvernd að markmiði.

    Það kemur fljótlega að næsta fundi Samút og þar þarf að skipa/kjósa í nýja stjórn og setja niður tíma fyrir stefnumótun og markmiðasetningu fyrir starfsemina næstu árin. Það þarf að legja grunn að því að Samút hafi aðstöðu, starfsfólk og umhverfi sem hægt er að nota á markvissan hátt til að berjast fyrir sameiginlegum markmiðum útivistarfólks og almennings á Íslandi. Mörg félög og fyrirtæki eru nú sameinuð í skynsamlegri baráttu og það liggur fyrir markviss áætlun um aðgerðir næstu mánuði. Okkur vantar bara að hafa aðila í þessu sem geta unnið þetta af heilum hug. Þetta er of stórt mál til að hægt sé að vinna þetta í sjálfboðavinnu.

    [b:18tm28me]Sameinumst um að gera það sem þar til að ná árangri!![/b:18tm28me]

    Guðmundur G. Kristinsson





    14.10.2010 at 21:02 #705834
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nefnd Samút um Vatnajökulsþjóðgarð fundaði í dag fimmtudaginn 14. október með umhverfisráðherra. Á fundinum voru fjórir fulltrúar Samút eða frá Alpaklúbbnum, Útivist, Skotreyn/Skotvís og F4x4. Þetta var góður fundur og stað mála rædd fram og aftur.

    Ráðherra segir að hennar hendur séu bundnar vegna þess að mikið þurfi til að hún geti gert breytingar á fyrirliggjandi drögum samkvæmt hefðbundnum stjórnsýsluumhverfi. Ég nefndi þá hversu stjórnsýslan varðandi undirbúning og framkvæmd á verkferli við Vatnajökulsþjóðgarð hefði verið ábótavant og ábyrgð ráðherra væri mikil að bæta fyrir það með því að ná samstöðu um niðurstöðu varðandi lokanir.

    Tvennt er til skoðunar vegna Vatnajökulsþjóðgarðs. Annarsvegar vandamál innan Samút varðandi upplýsingastreymi og fundarboðanir og hins vegar slæmt verkferli frá hendi Svæðisráða og meðferð stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs á athugasemdum við fyrirliggjandi drög.

    Það liggur fyrir fundur í Samút í byrjun nóvember þar sem gengið verður frá því hvernig samstarf F4x4 verður við Samút. Persónulega finnst mér að það þurfi að skipta um flesta fulltrúa Samút í stjórnkerfinu og skipa starfhæfa stjórn sem leggur grunn að stefnumótunarvinnu innan samtakanna. Samút getur verið öflugt tæki ef rétt er haldið á spilunum, en mistökin við undirbúningsvinnu vegna Vatnajökulsþjóðgarðs mega ekki endurtaka sig.

    Það á eftir að koma í ljós hvernig ráðherra tekur á drögum um Vatnajökulsþjóðgarð, en það er nokkuð ljóst að stjórnsýslulög voru brotin varðandi svör stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs við athugasemdum okkar og fleiri aðila.

    Nú þurfum við að bíða eftir ákvörðun ráðherra og taka síðan stöðuna þegar hún liggur fyrir. Vonandi verður þetta mál leist á farsælan hátt fyrir alla aðila.

    Næst er síðan að takast á við Þjórsárverin og þar má ekki gera sömu mistök og voru gerð varðandi Vatnajökulsþjóðgarð. Í því máli þarf Samút aðkoma fram sem öflugur samtaka aðili með tillögur um hvernig best að standa að samgöngum í friðlandinu. Það er starfandi sérstök nefnd frá Samút sem vonandi leggur fram góðar tillögur í þessum efnum.

    Guðmundur G. Kristinsson





    03.10.2010 at 11:55 #704988
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Þessi viðburður við Kistuöldu var einhver magnaðasta stund sem ég hef upplifað og engin spurning að þetta skilar sér í baráttunni fyrir okkar málstað. Ferðafrelsisnefndin og framkvæmdanefndin sem var í undirbúningi fyrir þetta verkefni er rétt að byrja og það eru mörg önnur verkefni framundan. Barátta sem unnin er á faglegan og markvissan hátt er til þess fallandi að að skila árangri og þessi barátta á eftir að vera löng og ströng. Við þurfum bara að passa okkur á að ganga ekki of langt og ég tel að umhverfisráðherra haf fengið mjög sterk skilaboð um stöðuna með athöfninni við Kistuöldu. Samút hefur skipað í tvær nefndir og önnur á að fara yfir vinnuferli vegna Vatnajökulsþjóðgarðs og hin nefndin á að setja upp tillögu að heildarskipulagi fyrir umferð og umgegni í Þjórsárverum. Framundan er því mikil vinna og áríðandi að halda áfram baráttunni og muna að persónugera hana ekki í einstaklingum. Við skulum ekki gleyma því, að það er eftir að taka endanlega ákvörðun um Vatnajökulsþjóðgarð. Aldrei að vita nema við náum fram okkar kröfum, allavega að einhverju leiti!! Þegar ákvörðunin kemur, þurfum við að setjast niður og endurskipuleggja okkur til framtíðarbaráttu.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Litlunefnd, Ferðafrelsisnefnd og nefnd Samút um Vatnajökulsþjóðgarð.





    27.09.2010 at 22:42 #703682
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Nú er undirbúningur fyrir jarðarförina á ferðafrelsinu í Vonarskarði næsta laugardag kominn á fullt. Prentaðir hafa verið auglýsingaborðar um þetta verkefni sem þurfa að fara á alla bíla hjá félögum í Ferðaklúbbnum 4×4. Þetta er fljótleg og örugg leið til að vekja athygli á þessum merka viðburði. Borðana er hægt að nálgast á verkstæði Jóns Snælands sem er Vagnhöfða 7 á Ártúnshöfðanum (sama bílaplan og hjá Stál og stansar) og hann getur aðstoðað við að setja þetta á bílinn. Það eru tvær stærðir til (60×20 cm og 45 x15 cm) og fólk getur valið hvaða stærð henti. Gert er ráð fyrir að setja borðana á afturrúðu, en fyrir þá hörðustu geta þeir líka sett á hlið bíla beggja megin. Þetta er tækifæri hins almenna félagsmanns til að koma skilaboðum til fjöldans. Það ætti enginn félagsmaður að aka um bæinn án þessa borða.

    Guðmundur G. Kristinsson
    Ferðafrelsisnefn





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 137 total)
← 1 … 4 5 6 7 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.