Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.04.2011 at 13:07 #727733
Var að tala við Einar berg aðalfarastjóra og stífluvegurinn var rofinn og þess vegna var snúið við og farið upp fyrir lónið og inn á sumarleiðina sem er aðeins lengri. Það gengur á með eljum og búið er að skilja eftir einn Patról sem var á of litlum dekkjum miðað við þyngd. Það er nokkur krapi og þetta sækist því nokkuð seint.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
16.04.2011 at 12:59 #727731Ef að Depillinn er skoðaður þá virðist hópurinn vera stopp neðan við Hrauneyjalón og vera á leið vestanmegin niður með Krókslóni. Á þessari leið er vegur nr F208, en spurning hversu mikið þeir verða á þeim vegi. Það er oftast við þessar aðstæður sem keyrt er sjónleið með hlíðum. Það er líka spurning með GSM samband á svæðinu um það hvort þeir séu stopp eða depillinn sé að bíða eftir að fá næstu skráningu. Á meðan skráist hann stopp.
Guðmundur G. Kristinsson
16.04.2011 at 12:38 #727729Var að heyra frá hópnum fyrir um 20 mínútum. Það var verið að leggja af stað frá Hrauneyjum og einhverjir sem voru á undan voru búnir að finna krapa og einnig hjáleið fram hjá honum. Allt gekk vel og allir bílar á ferðinni og í lagi. Minni á depilinn http://www.depill.is/f4x4 til að sjá hvar hópurinn er.
Guðmundur G. Kristinsson
16.04.2011 at 10:14 #218571Í morgunsárið í dag laugardaginn 16. apríl lagði 45 bíla hópur frá Litlunefnd af stað frá Skeljungi á Vesturlandsvegi inn í Landmannalaugar. Hópnum var skipt upp í átta minni hópa sem hver var með hópstjóra og eftirfara. Síðan voru tveir öryggisbílar til taks með hópunum fyrir utan aðalfarastjóra Einar Berg Gunnarsson og eftirfara Ólaf Magnússon. Sumir hóparnir ætluðu að stoppa í Árnesi og aðrir í hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum.
Það var tvísýnt á tímabili hvort farið yrði inn í Landmannalaugar, en leiðin var lokuð af Vegagerðinni þar til seinnipart föstudags. Ólafur var í sambandi við Vegagerðina og eftir að aflað hafði verið upplýsinga frá aðilum sem nýlega voru á ferðinni var leiðin frá Sigöldu niður í Landmannalaugar opnuð.
Það er nýlunda að með í ferðinni er staðsetningardepill og með honum hægt að fylgjast með ferðahópnum. Slóðin inn á depilinn er http:/www.depill.is/f4x4. Þar er bæði hægt að sjá staðsetningu og einnig leiðina sem farin hefur verið. Þetta er komið til að vera í ferðum Litlunefndar og skapar öryggi þar sem alltaf er hægt að sjá hvernig gengur. Á sumum stöðum á hálendinu er ekki símasamband og þá er hægt að sjá á deplinu hvar hópurinn er. Staðsetningatækið sendir merki yfir GSM línu og staðsetningarmæling dettur því niður ef það næst ekki. Þá er allavega hægt að sjá síðustu staðsetningu á meðan samband var og ferðaleiðina fram að því.
Ég mun setja inn fréttir af ferðinni eftir því sem þær berast.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
31.03.2011 at 14:33 #725461Ég held að best hefði verið að setja þennan link ekki inn hér. Við ættum ekki að setja hér inn tengingar á órökstuddar dylgjur fólks sem greinilega á erfitt með að sjá hlutina í eðlilegu ljósi. það þjónar ekki hagsmunum félagsmanna í klúbbnum að dreifa óhróðri og dylgjum frá öfgasinnuðum einstaklingum á okkar vefsvæði.
Guðmundur G. Kristinsson
19.03.2011 at 15:13 #723974Þá eru allir hópar komnir á Vigdísarvelli og og bara heimleiðin eftir. Farin verður Djúpavatnsleið til baka niður á Sveifluháls við Krísuvíkurveg. Gera má ráð fyrir að þetta takki um hálftíma, en það gæti breyst ef færðin verður þung. Fréttaritari þakkar fyrir sig og Óli kemur inn hér á eftir með nánari fréttir af ferðinni.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
19.03.2011 at 13:07 #723972Tveir hópar eru komnir inn á Vigdísarvallaleið, en beðið er eftir tveimur hópum. Annar þeirra lenti í einhverju brasi við skála í Bláfjöllum, þar sem einn GPS punkturinn var. Skyggni er gott, en það snjóar lítilega. Síðan á að halda inn á milli fjalla og þá gæti dregist eitthvað að fá næstu fréttir.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
19.03.2011 at 11:31 #723970Það eru um 20 bílar sem mættu í morgunsárið og fengu sína GPS punkta. Leiðin lá síðan yfir á Breiðdal sem er á milli Bláfjallavegar og Kleyfarvatns. Óli sagði þá sem fóru á undan hafa þurft að fara niður í 6 pund í dekkjum (44"), þannig að þessi leið mun örugglega reyna á suma minni bílana. Hann og Kristján eru á leið inn í Krísuvík og ætla að skoða svæðið þar á milli fjalla og jafnvel fara inn á Vigdísarvelli. Við munum síðan setja fréttir af ferðinni hér inn jafnóðum og þær berast.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
04.03.2011 at 17:06 #721634Þá vitum við það, allt fullkomlega löglegt og samráð eins og best verður á kosið er niðurstaða opins fundar umhverfisnefndar með umhverfisráðherra. Þetta var eiginlega sama bullið og hefur verið sett á borðið hjá okkur í gegnum allt ferlið. Við hlustum á ykkur, lofun að vinna með ykkur, en keyrum þessi mál í gegn eins og okkur hentar.
Hvers vegna var sáttatillögunni um Vonarskarð hafnað, þar hefðu allir aðilar geta farið sáttir frá málinu og hægt hefði verið að aka um Vonarskarðið seinni hluta sumars. Hvers vegna þarf að loka Heinabersdal og Vikrafellsleið? Engin svör við þessu endurspegla hrokan sem einkennir alla framkomu stjórnvalda í þessum málum. Stjórnvöld telja sig ekki þurfa að rökstyðja málin eða yfirleitt svara neinum athugasemdum sem gerðar eru.
Við sem viljum ferðast um öðruvísi en fótgangandi vorum svikin af fulltrúum Ferðafélags Íslands í svæðaráðunum í undirbúningi að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, en það eru þeir aðilar sem vísað var til á fundinum að haft hefði verið löglegt samráð við. Við sitjum uppi með þetta og getum líklega engu breytt um þessa niðurstöðu. Við þurfum að læra af þessu að eiga aldrei samstarf við Ferðafélag Íslands í framtíðinni og vinna okkkar mál af festu innan landsamtakanna Ferðafrelsi, þar er vettvangurinn.
Samút er með fund þann 10. mars og hverjir verða settir inn á þeim fundi sem fulltrúar í svæðisráð og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs? Þarna má ekki sofa á verðinum og við verðum að tryggja að nýir fulltrúar verði úr okkar röðum, en ekki frá FÍ. Þarna má ekki gefa neitt eftir, ef við fáum ekki okkar fulltrúa inn, þá verðum við að hafna þessu fyrirkomulagi og krefjast þess að koma inn aðilum frá landsamtökunum Ferðafrelsi.
Guðmundur G. Kristinsson
04.03.2011 at 14:09 #721632Ég hef ferðast um hálendi Íslands að sumri og vetri í áratugi og átt þar góðar stundir hvort sem er akandi eða gangandi. Aldrei hef ég upplifað að aðrir ferðamenn væru að trufla mig á einhvern hátt og í raun var það bara góð upplifun að vita af einhverjum á ferðinni í kringum sig.
Það sem nú er verið að gera með verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð að mismuna ferðafólki eftir því hvernig verið er að ferðast, nær engri átt í nútíma samfélagi. Hvers vegna ættu ferðamenn sem ferðast gangandi að hafa forgang? Hvers vegna ættu þeir sem eru gangandi að hafa forgangsrétt til að eiga frátekin svæði á hálendinu fyrir sig? Hvers vegna hafa ekki aðrir ferðamenn sem fara um með öðrum hætti, líka forgang á sín eigin svæði á hálendinu? Það hljóta allir skynsamlegir aðilar að sjá hversu fáránleg þessi mismunun er.
Það sem vekur furðu eru að markmið og tilgangur stjórnvalda með stofnun á Vatnajökulsþjóðgarði virðist vera að ferðamannavæða hálendið. Gæti verið að í þeim efnum fari sameiginlegir hagsmunir stjórnvalda og Ferðafélags Íslands saman og þess vegna hafi þessi einagrunarstefna um lokuð svæði fyrir göngufólk komið til. Í framtíðinni verður þá lílklega ekki hægt að ferðast um hellstu náttúruperlur landsins nema í skipulögðum gönguferðum á vegum Ferðafélags Íslands, sofa í skálum eða á tjaldsvæðum sem rekið er að þeim og ganga örna sinna í kömrum á þeirra vegum og greiða gjald fyrir. Það fer þá ekkert á milli mála að [u:yhdc1qp3]verið er að úthluta Ferðafélagi Íslands hálendi Íslands til framtíðar, svipað og gert var með kótann á sínum tíma.[/u:yhdc1qp3]
Við verðum að stíga niður fæti og stoppa þessi mál af áður en þau fara lengra. Við erum með ný náttúruverndarlög, landnýtingarráætlun, stækkun Þjórsárvera, stofnun Geo Park vísindagarða og fleira á leiðinni. Það er búið að sýna sig að ekkert samráð á að vera við almenning eða félagasamtök og öfgastefnu umhverfissinna í Vinstri grænum og Ferðafélags Íslands skal hrundið í framkvæmd með kjafti og klóm. Það er búið að troða á okkar hagsmunum í öllum málum til þessa og sýna okkar sjónarmiðum það mikla fyrirlitningu að nú höfum við frítt spil. [b:yhdc1qp3]Það er kominn tími til að við setjum okkar baráttu í þann búning að stjórnvöld og Ferðafélag Íslands skilji að okkur er alvara með okkar baráttu fyrir ferðafrelsi.[/b:yhdc1qp3]
Guðmundur G. Kristinsson
28.02.2011 at 16:52 #217677Þá kom það loksins, Svandís hefur samþykkt verndaráætlunina um Vatnajökulsþjóðgarð. Sá fyrirvari er þó gerður að að æskilegt sé að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skoði betur þann kafla áætlunarinnar sem lýtur að samgöngum, í samstarfi við helstu hagsmuna- og umsagnaraðila.
Enn og aftur er lokað máli hjá stjórnvöldum sem snýr að okkar hagsmunaumhverfi án þess að nokkuð tillit sé tekið til okkar athugasemda. Hvað þarf eiginlega til að stjórnvöld fari að vinn að þessum málum í samráði og samvinnu við hagsmunaaðila eins og Ferðaklúbbinn 4×4. Þurfum við kannski að breyta einhverju hjá okkur?
Á meðan okkar hagsmunir eru fótum troðnir eru hagsmunir gönguelitunnar hafðir í hávegum og ákveðnir hagsmunaaðilar þar eru búnir að yfirtaka flestar okkar ferðamannaperlur og komnir vel á veg með að loka þessu öllu fyrir sig.
Nú er kominn tími til að breyta áherslum og nota aðrar og árangursríkari leiðir til að vinna að okkar hagsmunamálum.
Guðmundur G. Kristinsson
06.02.2011 at 17:38 #217283Febrúarferð Litlunefndar verður laugardaginn 19. febrúar n.k. Farið verður á svæðið kring um Kaldadal, enda stutt að komast á fjöll þar. Ákveðið hefur verið að halda skipulagi síðustu ferðar, þ.e. að takmarka fjölda þátttakenda og einnig að vera með stærðartakmarkanir, sem miðast þá við að 35″ og minni bílar njóta forgangs í ferðina.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
20.01.2011 at 16:56 #716626Landssamtökin Ferðafrelsi hafa sent inn sínar athugasemdir til Umhverfisráðherra og eru þær hér með í við hengi. Efni þessara athugasemda er unnið að mestu af Guðmundi G. Kristinssyni, Jóni Hauki Haukssyni og Jóni G. Snæland og öllum frjálst að nota þær allar eða að hluta til að senda inn eigin athugasemdir.
Guðmundur G. Kristinsson
Landsamtökunum Ferðafrelsi
og Ferðaklúbbnum 4×4[attachment=0:t8kvxamj]2011_ferdafrelsi_ath_natturuverndarlog_JHJ_endanlegt.pdf[/attachment:t8kvxamj][attachment=0]
15.01.2011 at 19:47 #716384Hópurinn er allur kominn í Hrauneyjar, en nokkrar tafir urðu þegar einn þátttakandinn missti framdekk undan bílnum. Bíllinn fór út fyrir veg og nokkurn tíma tók að spila hann upp á veginn aftur. Dekkið var síðan sett undir aftur og bíllinn aftur gerður ferðafær.
Einar Berg úr Litlunefndinni var í Hrauneyjum að fá sér að borða og beið eftir síðustu bílunum til að skila talstöðvum. Hann sagði þetta hafa verið góða ferð og allt gengið vel. Hann braut framöxul hjá sér og sagði þetta ekki mikið mál þar sem hann væri á alvöru jeppa með lokum beggja megin að framan. Hann opnaði bara lokurnar og keyrði á afturdrifinu.
Ferðinni er lokið hjá fréttaritara og hann þakkar fyrir sig. Enn einni frábærri ferð hjá Litlu nefndinni er formlega lokið hér á spjallinu. Óli aðalfararstjóri mun síðan koma með samantekt á fréttum úr ferðinni hér á spjallinu. Minni þátttakendur á að setja inn myndir hér á síðuna og í fréttina um ferðina (undir Litlunefnd) verða settir tenglar á þessar myndasíður.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
15.01.2011 at 17:24 #716382Ákveðið var að fara ekki norður fyrir Þórisvatn og hefðbundna Veiðivatnaleið heim. Hópurinn var að koma að Fellsendavatni og átti eftir um 30 mínútur í Hrauneyjar. Allt fór vel og fararstjórabíllinn með brotinn franöxul á leið í bæinn með hópnum. Það er ekki eins mikil hálka og var í dag og eitthvað hafði kólnað. Hópurinn fann á leiðinni góða brekku sem hægt var að leika sér í og fá pínulitla útrás fyrir jeppaveikina. Ferðinni verður slitið við Hrauneyjar og eftir það er allir á sínum eigin vegum á leið til Reykjavíkur.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
15.01.2011 at 15:53 #716380Nokkrir bílar eru komnir inn á Jökulheimasvæðið og tekið er að birta til norðurs. Ferðalangar eru því í fallegu veðri á fjöllum. Það var að brotna framöxull í einum af fararstjórabílunum og verið er að skoða stöðuna á því máli. Verið er að hallast aftur að upphaflegu áætluninni um leið til baka, en nánari fréttir af því koma síðar.
Guðmundur G. Kristinsson
15.01.2011 at 14:15 #716378Óli aðalfararstjóri var að hringja og ákveðið hefur verið að fara upp með Hraunvötnum og sjá síðan til með framhaldið. Ferðin gengur vel og búið að stoppa aðeins í Veiðivötnum og njóta útiverunnar. Nánari fréttir af leiðinni eftir Hraunvötnin koma síðan jafnóðum.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
15.01.2011 at 13:35 #716376Hópurinn var að lenda í Veiðivötnum og allt hefur gengið mjög vel. Tvær ár voru á leiðinni og var sú fyrri sem heiti líklega Vatnahvísl, ekki mikill farartálmi, en nokkuð stór ísskör var á þeirri seinni sem heitir líklega Fossavatnahvísl. Óli aðalfararstjóri sagði að ekki væri á hreinu hvort farið yrði áfram þá leið sem upphaflega var á áætlun og fararstjórar væru að ræða hugmyndir um aðra leið. Við setjum hér inn upplýsingar um þeirra ákvörðun, þegar hún liggur fyrir.
Guðmundur G. Kristinsson
Litlunefnd
15.01.2011 at 13:06 #716342[u:3mryarr8][b:3mryarr8]Var að svara Páli Ásgeiri á blogginu hans og birti svarið hér líka[/b:3mryarr8][/u:3mryarr8]
Þessi tilvitnun mín sem Páll Ásgeir er að vísa til kemur fram í umræðu um texta sem ég setti saman fyrir nokkru. Þar er ég að vísa til þess að fólk (þjóðin) láti ekki einhverja sérhagsmunahópa teyma sig út í eitthvað sem það vill ekki.
Öfgarnar sem Páll Ásgeir nefnir, er barátta venulegs fólks fyrir því að hafa frelsi til að ferðast um landið og í samtökunum Ferðafrelsi eru þessir aðilar að sameinast um þetta „öfga“ baráttumál sem ferðafrelsi okkar er. Ég hvet fólk til að skoða vefsíðuna http://www.ferdafrelsi.is og mynda sér persónulega skoðun á þessum öfgum sem Páll Ásgeir nefnir.
Þjóðin sem ég er að tala um eru allt fólkið í samfélaginu, ekki bara þeir sem hafa sig mest í frammi og jafnvel segjast tala fyrir þjóðina. Ég tók þessa hópa sem koma fram í textanum sem dæmi, en hefði eins getað sagt „pípulagningamenn, húsmæður og bókarar“. Ekki má gleyma því sem kemur á eftir hópunum „og aðra“. Allir þessir hópar teljast til þjóðarinnar, því það er til listafólk, rithöfundar, pípulagningamenn, húsmæður og bókarar og aðrir sem ekki endilega koma fram og tala fyrir þjóðina.
Til gamans þá set ég hér fyrir neðan textann sem ég er að vísa til með ummælum mínum. Ég vill taka það fram að ég tala þar fyrir mig persónulega, en ekki annað fólk, félög eða samtök. Þetta er mín skoðun og það má dæma mig eftir henni!
NOTA NÁTTÚRUVENDARSINNAR FALIN VOPN?
– loka þeir hálendinu til að ekki verði byggð álverÞað hefur verið skondið að fylgjast með umræðu og umfjöllun um náttúruvernd á Íslandi undanfarin ár. Þar hefur farið fremst sjálfskipað baráttufólk með mikla andagift sem segist vera að berjast fyrir sig, mig og alla hina í landinu sem ekki þora eða vilja tjá sig. Þarna má sjá mikið af listafólki, rithöfundum, leikurum og öðrum sem telja sig skapandi fólk með mikla ábyrgðartilfynningu fyrir landinu.
Maður fylltist stollti á þessu fólki að standa upp og tala fyrir heilagri baráttu um fallegt land til framtíðar sem ekki megi spilla með virkjunum og þeim framkvæmdum sem fylgja stóriðju. Oftar en ekki talar þetta fólk fyrir grænum atvinnuskapandi verkefnum sem eigi að taka upp í staðinn fyrir byggingu álvera. Það sé meira í lagi að byggja orkuver til að skapa grænum verkefnum tækifæri, en hinum megunarmiklu álverum. Því miður finnst mér þessir sömu aðilar líka hafa staðið í veginum fyrir grænu verkefnunum!!
Bíðum við, þetta hljómar alveg rosalega vel. Meira segja ég keypti þetta lengi vel, allavega að hluta til. Upp á síðkastið hef ég farið að efast um heiðarleika þessara aðila og að kannski sé eitthvað annað á bak við þetta allt! Stækkun á Þjórárverum var það mál sem setti upp hjá mér spurningar um raunverulegan tilgang fyrir náttúruvernd. Voru þessir aðilar kannski bara á móti virkjanaframkvæmdum á svæðinu og voru að misnota baráttu fyrir náttúruverndun með stækkun friðlandsins, til að koma í veg fyrir virkjanaframkvæmdir á svæðinu og þar með að ekki væri hægt að byggja álver.
Þessi efi um heiðarleika þessara aðila kom líka upp hjá mér varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, en þar átti að loka mörgum ferðaleiðum og engin náttúrufræðileg rök virtust liggja þarna að baki. Í grein frá nokkrum þjóðgarðsvörðum fékk ég staðfest að eitthvað skrýtið væri þarna á ferðinni. Þau segja að Vonarskarðleið sem átti að loka, sé eingöngu fær breyttum jeppum. Ég þekki nefnilega fólk sem hefur farið þarna á Subarú, sem varla getur talist breyttur jeppi. Tekið skal fram að Subarúinn var óbreyttur. Vonarskarðsleið hefur verið þjóðleið íslendinga yfir hálendið í hundruði ára.
Eftir að hafa fengið bakþanka um þessa baráttuglöðu náttúruverndarsinna, held ég að við sem teljumst til hins almenna almúga í þessu umhverfi, þurfum að fara að leggja okkar af mörkum inn í umræðuna í þessum málaflokkum. Við megum ekki láta eitthvað baráttuglatt fólk með einhverja furðulega hugmyndafræði taka okkur og nota sem viljalaust verkfæri í baráttu, sem við viljum kannski ekki taka þátt í.
Ég er félagi í Ferðaklúbbnum 4×4 og hef mikið ekið um hálendi Íslands, bæði að sumri og vetri. Ég er í nefnd klúbbsins sem stendur fyrir nýliðaferðum fyrir fólk sem er að byrja að ferðast inn á hálendið og þar hafa þúsundir aðila fengið námskeið og kennslu í að ferðast á ábyrgan hátt um hálendi Íslands. Mér blöskraði þegar átti að loka leiðum í Vatnajökulsþjóðgarði með engum haldbærum rökum og banna akstur á snjó í Þjórsárverum. Ég ákvað persónulega ásamt mörgum öðrum að berjast fyrir skynsamlegri stefnu í þessum málum og hætta að láta baráttuglaða öfgasinna nota okkur sem viljalaust verkfæri.
Ég er ekki að berjast fyrir álverum eða virkjum, heldur skynsamlegri þátttöku almennings í uppbyggingu á landinu til framtíðar. Þess vegna hvet ég alla almenna íslendinga til að vakna og láta í sér heyra. Ekki láta misvirta sérhagsmunaaðila draga ykkur á asnaeyrunum inn í eitthvert framtíðarsamfélag sem byggist á hugmyndafræði sem byggð er á blekkingum.
Guðmundur G. Kristinsson
15.01.2011 at 11:56 #716374Var að tala við Ólaf fararstjóra og síðasti hópurinn var að koma í Hrauneyjar og fyrsti hópur að leggja af stað frá Hrauneyjum. Allt hefur gengið vel, en mikil hálka var á leiðinni. Það er ekki mikill snjór og það heyrðist í talstöðinni að menn væru að spá í að breyta þessu í tveggja daga ferð og fara norður. Ólíklegt er að að það verði gert og sá litli 10 cm snjór sem er fyrir hendi, verður bara að duga. Jón Snæland sem er undanfari í ferðinni var að keyra upp Vatnsfellið og sagði um klukkutíma vera eftir upp í Veiðivötn. Hann var bjartsýnn á á þetta allt og taldi nokkra skafla eiga eftir að verða á veginum. Einar Berg sem er hópstjóri með næst síðasta hópinn á leiðinni, sagði líka að mikil hálka væri á leiðinni og keyrt væri rólega þess vegna.
Guðmundur G. Kristinsson
-
AuthorReplies