Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.10.2011 at 08:15 #740465
Þetta eru opinber skilaboð til hinna dverganna um að skrá sig sem fyrst, þetta skilja bara þeir sem eru alvöru dvergar
27.10.2011 at 22:44 #740461Gengið Mjallhvít og dvergarnir mæta:
Einar Berg (Mjallhvít) og frú
Guðmundur (dvergur) og frú
Jón Ingi (dvergur) og frúFleiri dvergar væntanlegir
25.10.2011 at 12:05 #740369Hér er linkur á blaðið okkar án Fréttablaðsins, auðveldara að hlaða niður til að lesa:
http://www.ferdafrelsi.is/Ferdast_um%20 … r_2011.pdf
Guðmundur G. Kristinsson
25.10.2011 at 11:21 #740367Langar líka að þakka vefnefnd fyrir skjót viðbrögð varðandi innskráningu nýrra aðila í klúbbinn sem komin er á forsíðu á vefnum okkar. Ég hvet jafnframt alla þá aðila sem þetta lesa og eru ekki þegar aðilar að klúbbnum, til að skrá sig í klúbbinn og taka þátt í þeirri baráttu sem við eigum í varðandi ferðafrelsi okkar á Íslandi.
Framtíðin er í húfi og við sem viljum ferðast á eigin vegum um landið okkar þurfum að sameinast um að tryggja að okkar ferðafrelsi og ekki síður að ferðafrelsi fyrir framtíðar kynslóðir okkar íslendinga verði ekki skert. Það er á okkar ábyrgð að tryggja aðhald að stjórnvöldum um að hafa samráð við almenning og félagsamtök um framtíðarskipan í þessum málum.
Ég hvet jafnframt allt okkar félagsfólk til að "lika" á alla umfjöllun um þetta blað á Facebook til að sem flestir sjái það og verði þar með upplýstir um stöðuna á þessum málum í dag. Það er 50-60 aðilar í nefndum og stjórn okkar klúbbs og ef hver sendir "like" á sitt fólk, erum við að senda þetta á þúsundir aðila.
Guðmundur G. Kristinsson
25.10.2011 at 11:02 #740365Langaði að upplýsa að í ritnefnd blaðsins eru auk ritstjóra og ábyrgðarmanns:
Jón Snæland
Ólafur MagnússonLangaði að þakka þessum aðilum fyrir frábært samstarf við þetta blað.
Guðmundur G. Kristinsson
30.09.2011 at 00:42 #220588Umfjöllunin í Íslandi í dag (í kvöld) var frábær og sérstaklega gaman að heyra í þessum síðasta viðmælanda sem var að fara í sína fyrstu ferð. Óli fór á kostum, Jakinn sagði brandara og Pétur var á ramm pólitískum bíl. Það sem kom svo sterk í gegn var þetta framtak klúbbsins með Litlunefnd í fararbroddi, að leiða fólk áfram meðan það er að fá reynslu til að ferðast um hálendið á eigin vegum.
Litlanefnd er best geymda leyndarmálið í klúbbnum og það hefur verið gaman að taka þátt í að leggja grunn að því starfi sem þar er á ferðinni. Óli hefur leitt þetta með myndarbrag í meira en þrjú ár og það er ómetanlegt að hafa svona alvöru leiðtoga til að halda utanum verkefnið. Ekki má gleyma öllum hópstjórunum, sem hafa margir farið í hverja einustu ferð Litlunefndar í mörg ár.
HÚRRA FYRIR LITLUNEFND OG ÞEIM SEM ÞAR STARFA!! – og öllum hópstjórunum.
28.09.2011 at 10:03 #737321Er hægt að sjá okkar alvarlegu stöðu með einfaldari og skýrari hætti en í þessum pistli frá Jóni Snæland. Er ekki kominn tími til að gera eithvað alvarlegt í málunum. Hversu lengi ætlum við að láta stjórnvöld komast upp með þetta gerræði í stjórnarháttum og yfirgang í okkar hagsmunum. Það er stofnuð ný og ný nefnd um hver mistökin á fætur annarri og opinberir aðilar gefa út yfirlýsingar hægri og vinstri um samstarf sem eigi að laga eithvað. Hvenær ætlar fólk að sjá þessa fyrringu sem er í gangi.
Það er eins gott að eitthvað komi út úr þessari samgöngunefnd um Vatnajökulsþjóðgarð, því ef það kemur enn ein yfirlýsingin kemur um að samstarfi hafi verið fullnægt og niðurstaða sé óbreytt ástand, þá er hætt við að alvarlegt ástand skapist hjá okkar baráttufólki fyrir ferðafrelsi. Kannski verður næsta skrefið að stofna enn eina rannsóknarnefndina um samstarfsbrot stjórnvalda gagnvart almenningi í náttúruverndar- og friðunarmálum um misnotkun á þessum málaflokkum til að berjast gegn virkjunum, stóriðju og þar með atvinnuuppbyggingu í landinu.
Þeir aðilar innan F4x4 sem hafa viljað berja niður alvöru baráttu í þessum málum og sagt undanfarin ár að ekki megi styggja samstarfið sem er í gangi við stjórnvöld, ættu að velta fyrir sér hversu miklu við höfum náð fram undanfarin ár. Því miður er það ekki mikið eða kannski bara ekki neitt eins og Jón Snæland segir.
Guðmundur G. Kristinsson
24.09.2011 at 17:57 #737783Þá eru allir bílar annaðhvort komnir að Seljalandsfossi eða rétt ókomnir. Ferðin hefur gengið mjög vel og engin óhöpp utan þess að aðili úr Ferðaklúbbnum braut framöxul við að fara upp á bakkan úr Krossá. Þetta sýnir að það getur allt gerst, jafnvel þó farartækið sé gott og ökumaður reynslumikill.
Nú eru menn (og konur) að bæta lofti í dekkin og síðan verður líklega stefnan hjá flestum tekin til höfuðborgarinnar. Fréttaritaði þakkar fyrir sig og er þetta lokainnleg frá hans hendi. Ólafur Magnússon formaður Litlunefndar mun síðan seinna í kvöld setja hér inn lokainnleg á þennan fréttaþráð vegna Haustlitaferðar Litlunefndar í Þórsmörk 2011.
Guðmundur G. Kristinsson
24.09.2011 at 16:17 #737781Það gekk vel yfir Krossá yfir í Langadal og einnig þegar farið var til baka. Það fóru allir bílar þarna yfir og margir fengið þarna góða þjálfun í akstri yfir á. Síðan fóru flestir einnig yfir Krossá neðan við Merkurranann og inn í Húsadal. Nokkrir treystu sér ekki yfir Krossá á vaðinu inn í Húsadal, en áin er þar nokkuð straumhörð. Hópurinn fór síðan efri leiðina niður eftir og er núna við Lónið.
Ísland í dag er búið að taka viðtöl við marga, bæði fararstjóra og þátttakendur í ferðinni. Einnig var rætt við formann umhverfisnefndar um stikuferðir og fleira. Það verður þvi öruglega gaman að sjá þessa umfjöllun þeirra næstu daga í sjónvarpinu.
Depilinn: http://www.depill.is/f4x4
Guðmundur G. Kristinsson
24.09.2011 at 12:28 #737779Nú eru ferðalangar í Haustlitaferð Litlunefndar komnir inn í Bása í Þórsmörk og þar er verið að fá sé kaffi og fara í gönguferðir um nágrennið. Skálvörður Útivistar tók vel á móti hópnum og opnaði húsið í Húsadal. Haustlitirnir eru komnir og gríðarlega fallegt um að litast og stefnt að því að stoppa í Húsadal í 1-2 klukkutíma. Það er stillt veður og gengur á með skúrum öðru hvoru. Lítið vatn er í ánum og því hefur gengið frábærlega enn sem komið er.
Verið er að skoða leið yfir Krossá inn í Langadal og eftir að koma þaðan til baka, er stefnt á að aka niður fyrir Merkurranann og fara þar yfir Krossá inn í Húsadal.
Munið að hægt er að fylgjast með hópnum með því að skoða depilinn: http://www.depill.is/f4x4
Guðmundur G. Kristinsson
24.09.2011 at 10:31 #220510Það lögðu 45 bílar af stað í morgun laugardag frá Skeljungi við Vesturlandsveg. Hópurinn er núna staddur á Hvolsvelli í rjómablíðu og frábæru veðri. Það er bjart að líta til fjalla og því örugglega skemmileg ferð framundan.
Með í ferðinni eru sjónvarpsfólk frá Íslandi í dag á Stöð 2 og við munum því fá fréttaumfjöllun í Íslandi í dag á næstunni um þessa ferð.
Depillinn er með í ferð og slóðin er http://www.depill.is/f4x4 Hann er staðsettur í bíl eftirfara og sýnir því stöðu síðasta bílsí ferðinni.
Það koma síðan reglulega fréttir hér inn eftir því sem líður á daginn.
Guðmundur G. Kristinsson
24.09.2011 at 00:08 #737663Þetta sem kom í síðasta innleggi hér er það sem málið snýst um. Ferlarnir eru upplýsingar sem eiga að vera aðgengilegar og með leiðbeiningum um að hver aðili noti þær á eigin ábyrgð. Það er nefnilega réttilega ekki hlutverk Ferðaklúbbsins 4×4 að vera upplýsingaraðili fyrir þá sem ganga fram með offorsi um að ganga á rétt hins almenna ferðamanns á Íslandi. Ferðaklúbburinn 4×4 á ekki að taka við fyrirmælum frá aðilum sem loka leiðum eins og Vonarskarði sem er ein af elstu þjóðleiðum landsins, Vikrafellsleið þar sem lokun hefur ekkert með náttúruvernd að gera og fullt af öðrum leiðum um hálendið sem hefur verið lokað án þess að nokkur ástæða sé fyrir hendi.
Enn og aftur er klúbburinn okkar ekki að standa með málstað sem er að berjast gegn ofríki og yfirgangi stjórnvalda sem vaða áfram án samráðs og samstarfs um þessi málefni. Við eigum að gera kröfu til þess að fá aðild að málum sem hafa grundvallaráhrif til framtíðar um okkar frelsi til að ferðast um landið okkar. Við stöndum frammi fyrir því að troðið sé á okkar sjónarmiðum og litið niður á okkar athugasemdir um stór mál eins og Vatnajökulsþjóðgarð. Framundan er að berjast við breytingar á náttúruverndarlögum og meira að segja að að tryggja aðgengi að skálanum okkar í Þjórsárverum.
Við eigum ekki að taka við fyrirmælum frá stjórnvöldum um hvað við birtum á okkar vefsíðu. Það er ekki ólöglegt að birta ferla yfir leiðir sem voru opnar og stjórnvöld hafa lokað þrátt fyrir athugasemdir frá ótal félagasamtökum og hundruðum, ef ekki þúsundum einstaklinga. Við eigum að standa í lappirnar í þessu og ekki gefa neitt eftir þar til stjórnvöld eru tilbúin að vinna þessi mál í góðu samstarfi við okkur, almenning og önnur félagasamtök samkvæmt Árósarsáttmálanum sem Alþingi samþykkti nýlega.
Guðmundur G. Kristinsson
22.09.2011 at 11:32 #737555[i:3via6wey]"segist Svandís vera mjög ósátt við að birtir séu ómerktir slóðar og segist í besta falli líta á það sem ögrun við samstarf þeirra."[/i:3via6wey]
[b:3via6wey]Ögrun við hvaða samstarf?[/b:3via6wey] – það er ekkert samstarf í gangi frá hennar hendi í þessu verkefni frekar en öðrum málum sem tengjast hálendinu og opinberir starfsmenn sem koma að þessu máli útiloka Ferðaklúbbinn 4×4 og aðra frá þátttöku og eðlilegu aðgengi að upplýsingum. Það er kominn tími til að að opinber stjórnsýsla og þar með ráðherra fari að lesa yfir ákvæði Árósarsáttmálans sem nýlega var undirritaður. Það er ekki og hefur ekki verið farið eftir þeim ákvæðum sem þar koma fram um upplýsingaskyldu og samstarfsskyldu stjórnvalda við almenning og frjáls félagasamtök. Ég hef áður sett fram linka á tvær blaðagreinar frá níu félagasamtökum sem birtar voru á síðasta ári og staðfesta þetta samráðsleysi stjórnvalda.
Guðmundur G. Kristinsson
[b:3via6wey]Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hlusti betur á almenning[/b:3via6wey]
https://old.f4x4.is/attachments/952_Ferd … es2010.pdf[b:3via6wey]Samráðsleysi stjórnar og ráðherra[/b:3via6wey]
http://www.ferdafrelsi.is/felagsamtok_g … rs2011.pdf
20.09.2011 at 12:18 #220467Það er gaman að fá nýtt sjónarhorn á umræðu um utanvegaskemmdir á landi, eins og er í þessari frétt hér að neðan, þar sem spjallað er við Gísla Halldór Magnússon, fjallkóng til 25 ára og bónda að Ytri-Ásum í Skaftárhreppi. Þarna talar hann um skemmdir frá hestum og göngufólki, en ekki fjórhjólum og jeppum.
Guðmundur G. Kristinsson
http://visir.is/landid-tholir-hesta-verr-en-fjorhjol/article/2011709209923
19.09.2011 at 14:36 #737295Þetta er frábært framtak sem byggir á mikilli vinnu fárra einstaklinga. Þetta er núna aðgengilegt fyrir alla, innan sem utan klúbbsins og örugglega einstakt í heiminum að fólk hafi aðgengi frítt að svona upplýsingum. Vonandi verður þetta lofsverða framtak til að sýna stjórnvöldum fram á að klúbburinn vilji leggja grunn að ábyrgri ferðamennsku og að það sé nauðsynlegt að hafa hann með í ráðum um þessa hluti í framtíðinni.
Flott uppsetning hjá þér Bragi, einföld og auðskiljanleg. Klúbburinn ætti að gera Jón Snæland að heiðursfélaga til framtíðar fyrir þetta framtak. Bestu þakkir líka til þeirra sem komu að þessu fyrir utan Jón Ofsalega.
Guðmundur G. Kristinsson
08.09.2011 at 11:31 #736795Það er einnig áhugavert að skoða kveikjuna að greinarskrifum 9 félagasamtaka um samráðsleysi stjórnvalda, en það var grein frá stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem þeirra sýn á samráð kemur vel fram. Skoðið þessa grein:
[b:3lev25s8]Vatnajökulsþjóðgarður fyrir alla[/b:3lev25s8]
https://old.f4x4.is/attachments/952_Stjo … ov2010.pdfGuðmundur G. Kristinsson
08.09.2011 at 09:21 #736793Það var vísað í þennan samning í athugasemdum um Vatnajökulsþjóðgarð og einnig í athugasemdum um breytingar á náttúruverndarlögum vegna ónógs samráðs í báðum þessum málum. Stjórnvöld höfðu ekki einu sinni fyrir því að svara þessum athugasemdum og ég tel ekki að það skipti miklu máli þó búið sé að samþykkja þetta formlega. Brotavilji stjórnvalda og sérstaklega umhverfisráðherra varðandi samráð við almenning og félagasamtök í þessum málum er svo beinskeittur að þessi samþykkt skiptir öruglega ekki miklu máli.
Nýjasta dæmið um þetta er umræðan um Hofsjökulsþjóðgarð, sem komin er í gang áður en búið er að klára stækkun á friðlandi í Þjórsárverum. Stjórnvöld (umhverfisráðherra Vinstri grænna) ætla að keyra þessi friðunarmál fram með hörku og markmiðið hefur ekkert með náttúruvernd að gera, því þetta er heilög barátta Vinstri grænna til að koma í veg fyrir virkjanir og þar með uppbyggingu á atvinnu í landinu.
Gott dæmi um vinnubrögðin hjá stjórnvöldum er friðunin á Langasjó, en Einar Haraldsson óskaði eftir upplýsingum varðandi gögn um friðunina þegar hún var tilkynnt og eiga að liggja fyrir samkvæmt lögum þegar friðað er. Þetta lá ekki fyrir við ákvörðunina og er gott dæmi um vinnubrögðin í heilagri baráttu gegn virkjunum sem ekki einu sinni er hægt að vinna samkvæmt lögum. Þessi mál eiga síðan eftir að bíta í bakið á Samfylkingunni sem styðja leynt og ljóst við þessa heilögu baráttu Vinstri grænna.
Í Svíþjóð voru ákvæði um samráð í þessum málum höfð í hávegum, enda þar um að ræða borgarlegt lýðræðislegt stjórnmálaumhverfi. Þar var unnið markvisst með almenningi og félagsamtökum og þeirra sjónarmið virt og höfð til hliðsjónar í ákvörðunum. Þar er eftir því sem best er vitað, gott samkomulag um öll þessi mál og ekki um að ræða stríð stjórnvalda gagnvart almenningi eins og er hér á landi. Ég minni á tvær blaðagreinar frá 9 félagsamtökum sem birtar voru í Fréttablaðinu á síðasta ári og allir ættu að skoða. Þær segja allt um stöðuna í þessum málum hér á landi. [u:7y811aa7]Við búum í landi þar sem réttindi almennings og frjálsra félagasamtaka eru fótum troðin.[/u:7y811aa7]
[b:7y811aa7]Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hlusti á almenning
https://old.f4x4.is/attachments/952_Ferd … es2010.pdfSamráðsleysi stjórnar og ráðherra[/b:7y811aa7]
http://www.ferdafrelsi.is/felagsamtok_g … rs2011.pdfGuðmundur G. Kristinsson
02.09.2011 at 16:58 #735603Meira en til í það Bragi. Við finnum dagsetningu og tökum fljótlega góðan túr þarna uppeftir.
Guðmundur G. Kristinsson
01.09.2011 at 12:41 #735597Verð því miður að hætta við þátttöku í þessari stikuferð. Sit uppi með þrjú barnabörn og eitt stórafmæli sem var of stór pakki til að skilja eftir. Þetta er mikið áfall vegna þess að mig hefur langað að keyra Gljúfurleitina upp í Setur í mörg ár. Bið bara að heilsa og vona að allt gangi vel.
Guðmundur G. Kristinsson
24.08.2011 at 09:36 #735487Gott innlegg í umræðuna hjá þér Didda. Þetta sem þú nefnir hér að ofan um launaðan talsmann er nefnilega megin ástæða þess að við höfum ekki verið að ná árangri í okkar hagsmunabaráttu. Að reka okkar hagsmunagæslu í sjálfboðaliðsstarfi er ávísun á misvísandi skilaboð og jafnvel rangan málflutning sem skilar litlum eða engum árangri í okkar hagsmunabaráttu til lengri tíma. Þögn okkar kjörnu fulltrúa í stjórn klúbbsins í umræðu á spjallinu og opinberlega í hinum ýmsu hagsmunamálum hjálpar ekki til. Þeir sem kosnir eru í stjórn klúbbsins á hverjum tíma eiga að hafa skoðanir og þurfa að leiða málefnalega hagsmunabaráttu klúbbsins. Stjórn klúbbsins þarf því að leggja grunn að stefnumótun í samstarfi við klúbbmeðlimi í okkar hagsmunamálum og tefla fram öflugum talsmanni fyrir sjónarmiðum klúbbfélaga.
Það væri strax hægt að ná meiri árangri ef til væri markviss stefnumótun í okkar hagsmunamálum og sjálfboðaliðar innan klúbbsins hefðu aðgang að slíkum upplýsingum til að byggja sinn málflutning á. Slíkar upplýsingar eru ekki til nema í mjög sundurleitri framsetningu hér og þar inn á vef klúbbsins og finnast ekki nema lagst sé í mikla rannsóknarvinnu.
Það er svo merkileg afstaða síðasta aðalfundar að mikill meirihluti sé fyrir því að hafa ekki starfsmann/talsmann til að sinna okkar hagsmunamálum og er kannski komið til vegna misskilnings á stöðu mála innan klúbbsins. Talað hefur verið um að ekki sé til fjármagn til að standa undir slíku, en ef ársreikningar klúbbsins eru skoðaðir kemur annað í ljós.
Á meðan þessi staða er munum við sem erum í klúbbnum standa frammi fyrir því að tapa jafnt og þétt baráttunni í flestum okkar hagsmunamálum og eftir stuttan tíma standa frammi fyrir því að búið sé að loka fjölmörgum svæðum á hálendinu og þurfa jafnvel að greiða aðgang inn á þau svæði sem eftir eru opin, greiða fyrir leiðsögufólk eða kaupa okkur inn í skipulagðar ferðir með útlendingum til að ferðast um landið okkar.
Ég hvet stjórn klúbbsins til að endurskoða stöðuna í þessum málum varðandi framkvæmdastjóra og allavega leggja grunn að markvissri stefnumótun í hagsmunamálumog setja fram öflugan talsmann fyrir okkar málstað. Einnig hvet ég stjórn klúbbsins til að skoða alvarlega þann mun sem er á leiðinni sem farin var í Noregi (allt bannað nema um annað sé talað) og í Svíþjóð (ferðafólki tryggð réttindi til að ferðast um land í einkaeigu). Það væri gaman að fá kynningarfund á vegum klúbbsins þar sem fjallað væri um þann gríðarlega mismun sem er á nálgun þessara tveggja landa varðandi ferðafrelsi almennings um landið.
Guðmundur G. Kristinsson
-
AuthorReplies