Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.09.2009 at 21:36 #658002
Þetta er örugglega smjörþefurinn af því sem koma skal, þetta kemur náttúruvernd ekkert við, það segi ég sem mikill náttúruunnandi og keyri aldrei utanvega eins og allir ábyrgir menn og konur. Kannski er neikvæð ímynd af jeppafólki í hugum embættismanna og annara möppudýra. Það sem þarf að gera, ef þetta verður að veruleika, er að efna í hópferð um þetta fagra svæði og sýna þessum fíflum að svona tilgangslaus skerðing á ferðafrelsi verður aldrei liðin. Það þarf að berjast fyrir þessu, því það sem þótti sjálfsagt áður er greinilega orðið vandamál nú í hugum sumra. Ég er tilbúin að láta handtaka mig eða sekta í þágu þess. Ef að þessir andskotar halda að þeir geti eyðilaggt gleðistundir fyrir þeim sem vilja ferðast um hálendið, þá skulu þeir búa sig undir átök.
Eitt það besta við að búa á Íslandi, er að geta ferðast um fjöll og firnindi og átt gleðistundir með fjölskyldunni, óáreittur. Til þessa hefur maður hugsað þegar maður reynir að sættast við það að þurfa að borga skuldir glæpamanna sem óðu uppi í boði íslenskra embættis- og stjórnmálamanna.
Nú þarf ekkert minna en stórkostlega herferð, sem sýnir jeppamenn sem þá öðlinga sem þeir eru (flestir), og að utanvegaakstur sé litin grafalvarlegum augum meðal jeppamanna.Ferðakveðja, Stefán Þórsson
03.07.2009 at 13:57 #20503803.07.2009 at 13:44 #20503711.09.2008 at 09:45 #629136Flott framtak hjá þér Davíð, ekki veitir af í stríðinu við virkjanaóvita. Flestir alvöru jeppamenn eru líka náttúruunnendur og þykja vænt um landið sitt.
Kv, Stefán Þ.
27.08.2008 at 00:30 #628190Gaman að sjá að menn vilji að þetta japanska dót hreyfist eitthvað áfram, annars má ég til með að setja spurningamerki við það sem Theódór er að segja. Er þetta ekki sami Theódór sem er að setja 540 ci Chevy í gamlan Land cruiser og var að spyrja okkur á kvartmíluspjallinu hvort að GM 4L80 skiftingin myndi halda. Ég gat ekki sleppt því að skjóta aðeins á kallinn.
Kv, Stefán Þ.
-
AuthorReplies