FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Stefán Stefánsson

Stefán Stefánsson

Profile picture of Stefán Stefánsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 1,279 total)
← 1 … 7 8 9 … 64 →
  • Author
    Replies
  • 14.05.2009 at 13:10 #646314
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég var í 2 bíla hópnum sem mætti ykkur eftst í stóru brekkuni á kaldadal. Þar sem að þið gátuð ekki beðið eftir að annar bíllinn kæmi sér uppá skaflinn og tróðuð ykkur á milli. Og við fórum ekki út fyrir veg til að sulla í krapa og drullu því að það var alveg hægt á veginum.
    Svo má ekki misskilja það að ég hef fullan skilning á því að það er erfitt að snúa við og fara aðra leið þegar er svona stutt eftir í jökul og þá sérstaklega með kúnnan í aftursætinu, og það má vel vera að vegurinn verði ekkert verri eftir þetta. En það er ekki okkar að dæma það heldur er það manngreyið á vegheflinum sem getur svarað því.
    Það sem ég var að reyna að benda á er að þegar að vatn er að ryðja sér fram á vorin þá er lítið mál að sniðganga þekkta drulluvegi þessar örfáu vikur til þess að manngreyið á heflinum þurfi ekki að eyða sumarfríinu sínu í að gera vegin nothæfan aftur.

    Og bara svona fyrir Helga stórvin minn þá veit ég að þú varst ekki í þessum hóp og þekki eina patrol manninn í hópnum og hef ekki nafngreint nokkurn mann eða ýjað að einhverjum. Ef þú værir ekki svona upptekin af því að ætla manni skoðanir og leggja manni orð í munn þá færi umræðan sjaldnar í svona rugl.
    .
    .
    Til að enda þessa vitleysu og leyfa mönnum að ræða þetta á rólegu nótunum þá ætla ég að hætta þessu og má Brjóturinn þá eiga síðasta orðið, sem hann skáldar sjálfsagt uppá mig.





    13.05.2009 at 21:47 #646304
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [i:1i8nhqvj][b:1i8nhqvj]Leiðinlegt að þú skulir sjá hroka í pistlinum mínum hérna áðan en ég sé hann ekki en ég sé aftur á móti hroka í þinni hegðun
    [/b:1i8nhqvj][/i:1i8nhqvj]

    Lestu aldrei áður en þú svarar?

    [i:1i8nhqvj][b:1i8nhqvj]Næsta mál þú sakar mig um að vera æstur þegar kemur að túristabílum
    [/b:1i8nhqvj][/i:1i8nhqvj]

    Enn og aftur kemur að lestrinum, ég sagði í bullandi vörn ekki ÆSTUR, og bara svo að þú vitir það framvegis að hástafir eru túlkaðir sem öskur eða köll á netinu.

    [i:1i8nhqvj][b:1i8nhqvj]og halda að það sé í lagi að keyra þarna af því að þið eruð bara 2 á 38 tommu bílum en þeir á 4 46 tommu bílum, það skiftir engu máli 2 eða 4 bílar það er alveg jafnbannað[/b:1i8nhqvj][/i:1i8nhqvj]

    Hvernig geturðu verið í svona mikili þversögn við sjálfan þig, nýbúin að vilja það að okkur sé sýnt traust til að fara vel með og skemma ekki vegina.
    Ég sagði það líka áðan en þú hefur sjálfsagt ekki lesið það frekar en annað sem þú túlkar sem persónulega árás á þig frekar en gagnrýni, ég hef margoft farið kaldadal á vorin og margoft snúið við til þess að hlífa veginum.

    En svo bara til að þú getir andað léttar þá held ég að enginn hérna eða í það minnsta sárafáir skrifa túristabílstjóra sem aulajeppamenn eða annað slíkt, allavegna hefur það ekki komið fram á þessum þráð.





    13.05.2009 at 12:58 #646298
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Hvernig er það með þig að í hvert skipti sem minst er á túristabílstjóra þá ert þú komin í bullandi vörn og allir eru hrokafullir og skilningslausir. Við vorum þarna líka og ég er ekkert að reyna að hvítþvo mig af því. En það er talsvert mikill munur á 2 úrheyptum 38" bílum sem vigta rétt um 2 tonn hvor og bílalest af fullpumpuðum 46" bílum sem losa tæp 4 tonn hver.
    Ef að vegurinn hefði verið eitt drullusvað eftir okkur þá hefðum við snúið við með það sama, og höfum við gert það oftar en einu sinni á þessari leið enda erum við ekki með gjaldeyristekjur í aftursætinu.





    12.05.2009 at 15:15 #646274
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Mér finnst sérlega undarlegt að þegar menn hafa atvinnu af því að keyra fjallvegi að þeir skuli ekki fara betur með það sem gefur þeim peninga. Eins og í þessu tilfelli sem ég nefndi hérna að ofan og kom þessari umræðu af stað þá var vegurinn í köku eftir bílalestina. Ég skil bara ekki að þegar tíðin er svona að menn komi sér ekki saman um að nýta aðrar leiðir en þær sem eru þekktar fyrir að vera eitt drullusvað á vorin, ég gef mér að þeir hafi verið að fara upp á langjökul með fólkið og það er ekkert ómerkilegra fyrir túrista með myndavél að fara í gegnum sveitirnar í borgafirðinum heldur en auðnina frá þingvöllum.





    11.05.2009 at 22:10 #647468
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er ekki bara sama tengið en sitt hvor víringin á milli XJ og ZJ. Annað eins þekkist nú fyrir vestan.





    11.05.2009 at 22:08 #647426
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Hef lent í svona á öðrum Toyota vélum (sérstaklega 4AGE) og þá var það í öllum tilfellum að það vantaði vatn.





    10.05.2009 at 20:23 #647372
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Kreppuráð dagsins:
    .
    Það er sterkur leikur að skipta hljóðkúnum út fyrir rör. Handlagin maður ætti að geta gert það sjálfur úti á bílastæði.





    10.05.2009 at 16:23 #646950
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Við tókum nokkrir smá druslubílarallí fyrir nokkrum árum og var ég á lödu 1500. Þegar allt var orðið stopp nema ladan og hún að hruni komin eftir stökk og hamagang þá var gjöfin bundin í botn og athugað hversu lengi hún dugaði. Eftir 5 mínútur þá var ákveðið að tæma eins og einn brúsa af bremsuvökva og nokkrar lúkur af mold og möl oní vélina. Ennþá gekk druslan í 6000 snúningum og var þá aðeins farin að missa úr og ekki hjálpaði gusa af jarðvegssýni oní blöndunginn, svo fyrir rest dalaði lífskrafturinn úr henni og hún dó. Svo þegar var verið að draga kaggann út í furu þá var ákveðið að prufa að setja í gang og viti menn, eins og sannur rússneskur veðhlaupahestur rauk hún í gang og var þá af íslenskum sið sett í bakkgír og reikspólað þangað til dekkin sprungu.

    Það eru ekki til sterkari bílar þó víða væri leitað.





    08.05.2009 at 21:07 #647226
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Láttu hann samt ekki fá hjá þér númerið. Það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að menn spyrja hann um verð á hinu og þessu og þá fer hann bara í það að smíða það og hringir svo og biður menn um að koma og borga og sækja.

    Annars hélt ég að þeir væru hættir.





    08.05.2009 at 21:03 #647314
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Bóndinn hefði frekar átt að nota hann sem hænsnakofa eða ruslagám í staðin fyrir að henda honum bara í ána. Nema að hænsakofinn á bænum sé fokheldur, þá er þetta víst skref afturábak fyrir þær.





    03.05.2009 at 21:45 #646742
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Exhaust Gas Recirculation og það opnar aðeins á milli pústs og soggreinar í hægagangi til að minka mengun. Mig minnir að þetta sé á svipuðum stað og wastegate ventillinn, einhverstaðar við soggreinina.





    03.05.2009 at 16:28 #646734
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta getur verið EGR ventill sem er klassískt vesen á 2.8 pajero. Sumir hafa blindað hann en sjálfsagt er best að koma honum bara í lag aftur.





    02.05.2009 at 23:37 #646724
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta er ekkert kraflausara en hver annar japanskur díselbíll, bara spurning um að hafa þetta í lagi. Ég myndi aldrei í lífinu skipta á 2.5 ljósavélinni minni og 2.4TDI hilux vél af svipaðri árgerð þó svo ég fengi borgað með henni.





    30.04.2009 at 19:09 #646762
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef ég er ekki að rugla saman bílum þá minnir mig að það hafi farið í hann 6.2 GM eftir þetta Caterpillar ævintýri og Helgi nokkur úr Hveragerði keypti hann svo og átti í mörg ár og naut vel. Foreldrar mínir og ég ferðuðust talsvert með honum ásamt öðrum stórfurðulegum faratækjum, en ef hann er enþá á númerum þá ætti að vera 4 stafa X númer á honum.





    27.04.2009 at 22:27 #646186
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    A 225/50R16 92V-sized tire as used in our example would have its maximum load and maximum tire inflation pressure typically presented on the sidewall as follows:

    MAX. LOAD 630 kg (1389 lbs)
    MAX. PRESSURE 300 kPa (44 psi)

    This branding identifies that tires in the 225/50R16 92V size used in this example must be capable of, and be rated to carry 630 kg (1,389 pounds). Additionally it identifies that the maximum tire inflation pressure for this tire is 300 kPa (44 psi).

    MAX PRESSURE er hámarksloftþrýstingur á köldu dekki, en svo gefur það auga leið að hámarksburður næst við hámarksþrýsting.





    27.04.2009 at 18:34 #646604
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Var þetta High Output ekki fundið upp hjá Bílabúð Benna. Rámar í að þetta hafi bara verið ferð til Ísleifs í Turbo ehf í smá tjún og flottur límmiði á kaggann.





    21.04.2009 at 18:34 #646244
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Mæli ekki með að menn séu að taka Kaldaldal núna. Núna á sunnudaginn var vegurinn mjög blautur og vorum við nánast með samviskubit yfir því að keyra hann en það svona rétt slapp á 38" í 6-8 psi. Svo mættum við 6 ferðaþjónustu trukkum frá ónefndu fyrirtæki sem voru allir nema einn vel á 4 tonn og var vegurinn vægast sagt ógeðslegur eftir þá. Furðulegt að þeir sinni ekki tilmælum vegagerðarinnar og þesari óskrifðuðu reglu um húsafells vegin þegar þeir hafa atvinnu af því að keyra þessa vegi.





    13.04.2009 at 23:20 #645638
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef að vélin er Powerstroke þá er verið að tala um allt annað mál en gömlu grjótmulningsvélarnar. Þar er bein innspýting og nútímaflottheit sem og turbo frá framleiðanda sem er alltaf gott.
    Ef að þú ert sáttur við orkuna í þessari 6.9 vél í þessum bíl þá er það flott og eina álitið sem skiptir máli. Og ef hann er gamall og ódýr þá skiptir eyðsla ekki máli þar sem mikill sparnaður er í notuðum lánlausum bílum þessa dagana.





    13.04.2009 at 02:14 #645630
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Allur sá olíupeningur sem fer í gegnum 6.9 ford er peningasóun nema að þú hafir einhverja sérstaka ánægju af járnaglamri og hávaða. Þetta gerir minna en ekki neitt þegar þú stígur á gjöfina.





    08.04.2009 at 23:06 #645054
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta er að engu leiti tölvustýrt, 4d56 vélin er bara með venjulegu bosch VE stjörnuverki eins og í flestum 4cyl japönskum díselbílum. Það er ekki fyrr en eftir 2000 sem að þessi vél fær heila og þá í Mitsubishi. Þetta eru bara 100 hestöfl, hvorki meira né minna og 2 tonna bílar þannig að það má ekki búast við því að þetta krumpi malbikið þegar það er tekið af stað.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 1,279 total)
← 1 … 7 8 9 … 64 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.