FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Stefán Stefánsson

Stefán Stefánsson

Profile picture of Stefán Stefánsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 1,279 total)
← 1 … 6 7 8 … 64 →
  • Author
    Replies
  • 20.06.2009 at 22:15 #649226
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [quote:1qjqqbst]Það er verið að nota tvö mismunandi kerfi hérna. Vefurinn sjálfur er kerfi sem kallast Joomla (http://www.joomla.org) en spjallið er kerfi sem heitir phpBB (http://www.phpbb.com), þess vegna eru tveir prófílar.[/quote:1qjqqbst]

    Hvernig er það verður þá einn prófíll látin ráða í framtíðini eða verða þetta þá 3 prófílar þegar upp er staðið. Get rétt ímyndað mér að þessir þunglyndu nöldurseggir sem hafa allt á hornum sér varðandi þessa frábæru uppfærslu eigi eftir að froðufella þegar þeir ætla að setja inn upplýsingar um sig.
    Eins og staðan er núna þá er Joomla prófíllinn gagnslaus að því leiti að enginn getur hvort eð er séð upplýsingar um þig þar, bara prófílinn á spjallinu þar sem einu notendanöfnin birtast.

    Vona bara að þið látið neikvæðnina ekki hafa áhrif á ykkur og haldið áfram að straumlínulaga síðuna svo að allir geti notið hennar.

    mbk. Stebbi





    20.06.2009 at 15:21 #649220
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Varðandi notendaupplýsingarnar, getur verið að það séu 2 prófílar á hvern notanda? Það er eins og stillingarnar sem maður stillir út frá forsíðu með mynd og herlegheitum sé ekki tengdar við stillingar á spjallinu.





    20.06.2009 at 15:15 #650146
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef þig vantar toppa, átakssköft og skrall þá mæli ég hiklaust með Kamasa sem fékst í Aðföngum Esso í gamladaga. Þetta er gjörsamlega ódrepandi og ef það þolir böðulganginn og vitleysuna í mér í áraraðir þá þolir þetta allt. Er með 7 ára gamalt sett af 1/2" toppum og það er ekki að finna að neitt sé farið að gefa sig þó að það hafi verið farið með sleggju á skrallið oftar en einusinni þegar hlutirnir voru það fastir. Tek þetta hiklaust framyfir Facom, Stalhwille og Snap-on þegar kemur að styrk.





    19.06.2009 at 22:14 #649992
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef þú ert ekki búin að laga þetta nú þegar þá átti ég við vírana sem fara aftanúr alternator og út í innrabretti hægra megin. Hreyfingin á milli vélar og boddý getur með árunum jagað í sundur víra. Spennustillirinn er innbyggður í alternatorinn og ef að bíllinn er að hlaða rúm 15v þá er hann að öllum líkindum farinn.
    Mæli með að kippa þessu úr og fara með hann til Kidda í Rafstillingu.





    17.06.2009 at 21:32 #649792
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er ekki nóg að vera bara með púshlíf úr járni eða áli eins og í flestum bílum. Beygja hana bara í kringum pústið og hafa opið niður. Eða sitthvorn 1/4 hringinn beggja vegna við pústið.





    17.06.2009 at 21:26 #649938
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Hvernig í ósköpunum stendur á því að tjaldvagn undir 750kg þarf númer. Eru ekki allar kerrur með burðargetu uppað 750kg undanþegnar skráningu.
    Tek sem dæmi léttasta vagninn í boði hérna heima sem er ekki nema 160kg að eiginþyngd, ég er ekki viss um að maður tæki eftir því á þokkalega stórum fjölskyldubíl að öxullinn færi fljúgandi undan. Þetta er bara enn eitt peningaplokkið úr herbúðum vinstri manna því að þeir líta svo á að ef að þú ert svo ógurlega ríkur að þú getir keypt þér kerru með tjaldi þá hljótir þú að vera svo efnaður að borga einhverjum manni fyrir að sparka í dekkin á tveggja ára fresti.

    Ein góð lausn til að losna við það að menn séu með alltof stóra vagna aftaní alltof litlum bílum er að útbúa 2 stærðir af kúlum og beyslislásum. Ef að litli Yarisinn þinn kemur í skoðun með stóru kúluna þá er það bara stóra sektin. Hægt væri að draga mörkin við Viking 1906 og Palomino Colt, allt stærra þarf stóru kúluna.





    17.06.2009 at 21:08 #649986
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [quote:gxqll3ir]Þannig er mál með vexti að það fóru að loga "aðvörunar"ljós í mælaborðinu fyrir nokkrum vikum síðan: Hleðsluljós, smurljósið (smurkannan) og vélarljósið.[/quote:gxqll3ir]

    Ég lennti í svipuðu og þá var farinn í sundur vír rétt við alternator, einn af þessum 3 sem fara í pluggið. Þá fór að loga hleðsluljós, olíuhæð og eitthvað eitt annað. Áður en það gerðist hafði brunnið díóða fyrir ljóspól í alternatornum og lýsti það sér þannig að hann hlóð fínt en hleðsluljósið logaði alltaf.
    Kíktu á vírana frá alternator og að lúmi.





    15.06.2009 at 22:04 #649072
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þessi CombiCamp sem ég var með í fyrra var 2007 módel og tók hann vel á manni á tjaldstæðinu í Þakgili. Annars ef maður rennir yfir nokkra þræði bæði hér og annarstaðar um val á tjaldvögnum og fellihýsum þá kemst maður að þeirri niðurstöðu að þetta er alltsaman helvítis drasl sem er varla þorandi að fara með útaf malbikinu án þess að eiga hættu á því að hjólin fljúgi undan eða undirvagninn sundrist á malarvegum.
    Best væri að velja vagninn á þeim grundvelli sem skiptir mestu máli, hvernig er að ganga um hann og sofa í honum. Þetta með að draga og fjaðra má laga með suðuvél en það er ekkert sorglegra en að horfa uppá grátandi jeppamann með 10 þumalputta á saumavélinni að reyna að breyta fortjaldinu svo það sé eins og hann vill hafa það.





    14.06.2009 at 14:06 #649442
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [quote:3vhro0o3]Tími varla að fara að skipta út öllum gúmmíum, spindillegum og fl, ef hægt er að komast hjá því.[/quote:3vhro0o3]

    Ég tók einusinni stýrisdempara úr hilux hjá mér sem var svona mátulega slitinn í stýrisgangin og það var eins og við mannin mælt að bíllinn neitaði að fara uppfyrir 50km/h. Stýrið slóst svo svakalega til að ef maður hélt því föstu þá reyndi hann að hrista boddýið af grindini, og þetta var bara á 35" á 10" felgum.
    Ég er andskoti hræddur um að þú þurfir að fara í gegnum allan pakkann eins og allir aðrir sem hafa átt við þetta vandamál að stríða. Ég myndi skipta um spindillegurnar fyrst og kónana sem ganga ofaní spindilinn þegar er hert, það kostar ekki svo mikið. Svo herða uppá hjólalegum og fara yfir stýrisenda og gúmmí.
    Þetta eru fullt af hlutum sem spila saman í að valda þessu en bara spurning um hver. Ágætt að byrja á því ódýrasta og enda á dýru stýrisendunum og stýfufóðringum.





    14.06.2009 at 13:49 #649052
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [quote="ingaling":192ikz27]Ert þú nokkuð að bera þá saman combi camp með eldhúsi og svo ægisvagn??
    En annað hvað eru þessir vagnar þungir?[/quote:192ikz27]

    Ægisvagn er 350kg en Combicamp er 475kg án eldhús. En Combicamp er æðislegur vagn og þó hann sé þyngri er mjög gott að draga hann og bakka með honum en það munar um þessi 125kg í drætti ef þú ert ekki á stórum bíl með stærri gerðina af vél.
    Ég átti sjálfur Alpen Cruzer fyrir nokkrum árum sem voru óttarlegir hlunkar og minnti það mig óþægilega á þá daga þegar ég ætlaði að fara að færa til CombiCampinn á tjaldstæðinu einsamall.





    13.06.2009 at 15:51 #649046
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Nýr CombiCamp er þyngri í drætti en Ægisvagn, ekkert geðveikt en samt þannig að maður finnur fyrir því.





    13.06.2009 at 15:41 #649474
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    [quote:2cnwke1h]Það er lítil kassi (heili) í miðri innréttingu niður við gólf. Það ætti að vera nóg að afteingja hann. Hlífin ætti að vera mert og víranir eru gulir fyrir loftpúða. Enn við þetta virka eingir púðar.
    [/quote:2cnwke1h]

    Þar sem ég hef fengið svör við svona loftpúðaspurningum er alltaf brýnt fyrir mönnum að fjarlægja sprengjuna sjálfa líka. Þó svo að búnaðurinn sé óvirkur þá er alltaf möguleiki á því að sprengjan springi við högg eða ákeyrslu og blási upp púðan. Svo er líka fáránlegt að aftengja alla púða í bílnum til að gera einn óvirkan, þú vilt væntanlega að hann sé til staðar í stýrinu ef þú lendir í árekstri og ert einn í bínum.





    08.06.2009 at 20:10 #640718
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ánægjulegt að sjá svona jákvæðar breytingar. Er eitthvað vitað hvenær myndasíðan fæðist og hvort allt efni skili sér yfir?





    02.06.2009 at 00:12 #648270
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég hugsa að NV242 úr jeep eða sambærilegu ætti ekki langa né ánægjulega lífdaga aftaná 455 með gírkassa. Það er hægt að fá 242 kassa úr Dodge sem á að vera eitthvað heavy duty og eru þá merktir NV242HD á litlu hringlaga plötuni aftaná kassanum.





    02.06.2009 at 00:07 #648368
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta á að vera sama dótið, 4D56 heitir hún. Það gæti verið einhver munur á olíuverki og túrbínu en þá er ekkert annað en að færa það á milli. Mig minnir að túrbínan í 2.5 pajero svona gömlum sé ekki vatnskæld en hún gæti verið það í ’99 módelinu.





    30.05.2009 at 22:23 #648256
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Afhverju í ósköpunum myndirðu vilja skrúfa svoleiðis ósköpnuð í bílinn hjá þér?





    30.05.2009 at 00:29 #648150
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er ekki rétt að menn taki fram hvort um ræðir Dodge 360 eða AMC 360 því að það eru tveir ólíkir hundar.





    26.05.2009 at 18:16 #648130
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég held að ég hafi lesið það að þessar vélar eru ekki eins og Magnum vélarnar að aftan. 1999 skipta Mopar yfir í modular framleiðslu og þá koma alveg nýjar skiptingar aftan á V8 vélarnar. Þessi umrædda 5.7 kemur held ég með 5-45RFE sem er þrusu skipting og hefur ekki verið vandamál með í Grand Cherokee. 5 þrepa, 6 gíra skipting með 2 hlutföll fyrir annan gírinn, eitt fyrir upshift og annað fyrir downshift. Mæli hiklaust með að láta hana ganga með 5.7 vélini því að 3 þrepa 727 myndi gera lítið úr svona góðri vél.





    20.05.2009 at 21:26 #647960
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef að það dugar ekki að bæta við kælivatni þá er góð hugmynd að annaðhvort láta lesa úr honum í Toyota umboðinu eða gera það sjálfur. Þetta getur hæglega verið TPS eða MAF skynjari.





    15.05.2009 at 21:37 #647632
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Það er alveg í góðu lagi að það blandist nokkrir lítrar við fullan tank en það er annað sem ætti að skoða og það er að losa bæði slef og olíulögn að síu og láta renna aftur í tank. Eins að tæma hráolíusíuna og fylla hana af dísel. Það er ekki gott að fá nánast hreint bensín inná olíuverk og spíssa.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 1,279 total)
← 1 … 6 7 8 … 64 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.