Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.05.2002 at 19:24 #461408
Jæja BÞV…..
Þessir "unggæðingar" eru fólk í umferðinni líka og verða ekki alltaf krakkar. Ef þeir mynda sér skoðun á jeppamönnum og stimpla okkur alla sem einhverja vitleysinga á drápstólum í umferðinni núna þá eru litlar líkur á því að það breytist eitthvað í bráð. (þetta er stærri hópur en þig grunar).
Ég get ekki séð hvernig minn þroski tengist þessar síðu á einn eða annan hátt og það að ég njóti ávaxta klúbbsins eins og þú sagðir þá geri ég það ekki.
Ég fæ ekki afslátt í nafni ferðaklúbbsins
Ég fæ ekki setrið sennt heim
Ég fer ekki í skipulagðar ferðir á vegum ferðaklúbbsins
Ég mæti ekki á fundi eða opin hús
Ég hef ekki aðgang að VHF kerfi klúbbsins.Ég skoða heimasíðuna af og til og læt eitt og annað flakka hérna og það er það eina sem ég geri sem tengist klúbbnum.
Hvað er svona hallærislegt við það?
Við ræddum í þetta í bréfaskrifum okkar á milli og þar sagði ég þér hvað ástæðuna fyrir því að ég er ekki félagsmaður.
Hallæriskveðja
Stebbi
31.05.2002 at 00:28 #461392Ungir ökumenn og eldri sem aka um á sportbílum og/eða GT bílum virðast vera almennt sammála um það að það eigi að setja meiraprófsskyldu á breytta jeppa og mikill hluti þeirra sem tjá sig á netinu er almennt illa við ökumenn jeppa og kalla þá öllum illum nöfnum.
31.05.2002 at 00:25 #461468Já hásingabíllinn er á sömu drifum að framan.
28.05.2002 at 18:10 #461300Afhverju ættu þeir að vera eitthvað betri vatnabílar en aðrir?
Annars væri ég alveg til í Defender 110 á 38" hann lítur þó allavegna út eins og jeppi.
22.05.2002 at 16:53 #460866Ég veit ekki betur en að framhjólin tolli enþá undir 44" breytta 4-runnernum og hafi ekki verið með neitt vesen að ráði. Þó svo að þessi búnaður sé gjörsamlega fatlaður sem torfærufjöðrun þá virðist þetta hanga.
22.05.2002 at 16:39 #461200Hann býr í hafnarfirði einhverstaðar á holtinu (er með það í kollinum, man bara ekki hvað gatan heitir) og átti held ég orðið ’92 Patrol, gott ef hann er ekki félagi hjá ykkur.
Hann sýndi mér búnaðinn og þetta var ekki merkilegra en lagnir að gasgrilli með segullokanum fræga á leiðinni.
Skal kanna málið aðeins betur en hugmyndin er góð og ef það er hægt að finna membru sem getur startað þessu á 3-4 punda boosti þá er þetta bara flott mál.
22.05.2002 at 16:28 #461190Já þetta er bara hljóð (mp3) en þetta er andskotanum fyndnara.
21.05.2002 at 19:45 #461186Vill benda mönnum á það að Ísleifur er með frábærar upptökur á netinu og er hægt að finna þær á:
http://www.nulleinn.is/mp3/motor.mp3
Og
http://www.nulleinn.is/mp3/motor2.mp3
Sú seinni er ekki við hæfi barna.
21.05.2002 at 18:46 #461184Ég sé það að fastur er kominn í beinan karllegg við Ísleif í Mótor.
Annars……………..
Ég er með hilux.
Dísel.
Læstur að aftan með loftinntak inn í bíl.
Það er ekkert eins pirrandi að fá vatn inná vélina, þannig að notað var 3,5" plaströr í hvalbakinn.
Mikið kítti.3,5" hné sem fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum ásamt barkadruslu sem tengist loftsíuboxinu með öðrum 3,5" plaströrsbút.
Og meira kítti.
Sem er gott.
En bílnum. Hiluxinum. Finst vatnið gott, og er búinn að drekka marga lítra bæði úr krossá og öðrum sprænum. Og líkar bara vel. Sem er gott.
Bestur var hann þó þegar hann hreinsaði rykið úr loftsíunni með Jökullóninu á leið í Þórsmörk á 70km/h í neðra vaði.
Sem er ekki sniðugt á svona bíl.
En samt.
Kom flottur uppúr með beygluð frambretti og brotið ljós.
Sem er gott.
Hávaðavandamálið var leyst á sniðugan máta.
Standard heyrnahlífar sem er hægt að nálgast við flestar nýbyggingar, appelsínugular að lit. Svo maður sjáist. Sem er gott.
En svona í lokin.
Ef þú átt hilux.
Dísel.
Og ert að spá í loftinntakinu.
Þá er þetta auðvelt.
Ódýrt.
Og virkar.
Sem er GOTT.
20.05.2002 at 23:49 #461196Talaði einu sinni mann sem sagði mér það að hann hefði smíðað sér gasinnspýtingu úr segulloka úr argonsuðu, þrýstijafnara, nokkrum rörum og slöngum og nippil á soggreinina. Þetta var á Patrol 3.3L Turbo og skilaði sama árangri og Bullydog innspýting fyrir eitthvað undir 10þ. íslenskar krónur. En var að sjálfsögðu ekki tengt við túrbínu heldur í takka inni í bíl og svo var þessu bara fretað inná vélina þegar hún var kominn á sæmilegan snúning.
Eflaust má finna membru sem getur sett gasið í gang þegar túrbínan nær ákveðnu boosti.
20.05.2002 at 23:34 #461218Hvernig púða ertu með?
11.05.2002 at 01:52 #460836Ég veit hvernig þér líður, mér er sagt það að bíllinn minn sé svo kraftlaus að það sé dagatal í mælaborðinu á honum í staðin fyrir hraðamæli. Og svo hefur hann líka slæm áhrif á líkamlegt ástand ferðafélaga minna þar sem þeir keppast við að éta eins marga hamborgara í Hlíðarenda á leiðinn í þórsmörk á meðan þeir bíða eftir mér. En það virðist vera að þetta fari í taugarnar á öllum nema mér en það er önnur saga. Ég sé allt á leiðinni og grillið er orðið heitt þegar ég kem þannig að þetta pirrar mig ekkert.
En kannaðu þetta með flækjurnar og hringdu svo í mig: 699-7646 frændi minn á pípurnar og er eflaust sanngjarn á verði.
11.05.2002 at 00:59 #460832Einhver sagði mér að það pössuðu flækjur af 1300 fox á vitöruna. Ef það passar þá veit ég um flækjur fyrir lítið handa þér.
09.05.2002 at 15:18 #460956Fyrirgefðu kjartang en þetta var nú ætlað BÞV sem ég hélt að væri enþá æðstiprestur í utanvegaprestakalli. En ég ætla þá að nota tækifærið til að óskaþér til hamingju með titilinn og vona að þú vinnir gott starf, því að það starf sem ferðaklúbburinn vinnur endurspeglast ekki alltaf bara á klúbbinn heldur jeppaeigendur í "heild" sinni.
09.05.2002 at 15:12 #460994Hver þarf óvini þegar hann á svona vini……..
En pottþétt saga samt.
07.05.2002 at 23:49 #460932Hvar er ykkar ástkæri formaður og æðstiprestur. Hefur hann ekkert um málið að segja ef það er ekki myndavél á staðnum?
07.05.2002 at 18:36 #460924JEPPAMENN eru ein heild sama hvort þú borgir félagsgjöld til ferðaklúbbsins eða ekki, alveg eins og þú ert jafn hvítur og Hitler var þó að þú sért íslendingur.
Það er mín skoðun að það ætti að nota þetta atvik sem prófstein á hegningarvinnu við náttúruspjöllum og ef mennirnir laga ekki til eftir sig þá borga þeir bara sekt eða fara í steininn. Og þá meina ég ekki að tyrfa bara yfir drulluna og fara síðan heldur að sjá til þess að þetta grói þó að það taki 1 – 2 sumör.
07.05.2002 at 12:57 #460962Þú ert væntanlega að tala um vél til að opna kubbana. Ef svo er þá er þetta frekar ómerkileg græja sem lítur út eins og lítil stingsög og er með járn-lykkju sem er stillanleg og hitnar svo þegar er kveikt á græjunni. Svo er bara mokað úr kubbunum. Er sjálfur að leita að svona græju, talaði einu sinni við gaur sem hafði fengið þetta lánað eða leigt einhverstaðar og var að þessu í bílskúrnum hjá sér.
07.05.2002 at 12:53 #46091007.05.2002 at 12:32 #460908Skítt með allar refsingar og sektir. Er ekki um að gera að senda þá sem eru sekir í þessu máli að sá og tyrfa í skemdirnar eftir sig og láta þá sjá til þess að staðurinn grói aftur í sitt fyrra horf. Og svo er náttúrlega skylda að senda Ómar með myndavélina og hafa þetta í beinni í fréttatímanum.
Annars efast ég um að þetta hafi verið tilgangur ferðarinnar hjá þeim en ef svo er þá á að láta þá annast svæðið fram á næsta vor og borga það úr eigin vasa.
-
AuthorReplies