Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.01.2003 at 01:12 #466106
Þetta líst mér á hjá þér Atli, það eru þessi litlu smáatriði sem gera gæfumuninn.
03.01.2003 at 00:25 #465952Var í Landmannalaugum síðasta sunnudag. Dómadalur var vel fær jeppum og Sigölduleiðin var nánast snjólaus.
[url=http://www.pbase.com/partytruck/landmannalaugar_29_des_2002:1idt7ctu]Myndir[/url:1idt7ctu]
22.12.2002 at 19:04 #465830Sjáðu líka til þess að jarðsamband frá geymi út í boddý og vél sé gott, það getur haft mikið að segja. Gamli grútarbrennarinn minn neitaði að drepa á sér þegar það vantaði jarðsamband út í boddý einn daginn (slitnaði úr skónum) og þá gekk hann þangað til að var búið að slökkva á öllu sem setti álag á rafkerfið. Þ.e.a.s miðstöð, ljósum og útvarpi og fleiru.
Byrjaðu á því að hreinsa geymasamböndin og tryggja gott jarðsamband út í vél og boddý. Mældu svo upp hleðsluna og álagsmældu rafgeymirinn.
21.12.2002 at 20:23 #465750Ég heyrði af þessu í haust og þá var talað um að umboðin fengju ekki að selja bílana með þessum grindum framan á bílunum en ekki stæði til að banna mönnum að setja þetta á bílana eftir á.
Sem er ágætis mál því að meðal Terrano II og RAV4 sem er notaður sem innkaupakerra í Reykjavík hefur ekkert með þetta að gera.
13.12.2002 at 16:08 #465382Furðulegt hvað þessi Patrolman er með öll símanúmer og netföng í Vöku á hreinu. Manni gæti dottið það í hug að hann hafi þurft að nýta sér þjónustu þeirra nokkuð oft.
Og svo eru ekki til Toyotalúðar. Þetta eru allt saman toppmenn sem aka um á góðum bílum.
Trog er ekki bara trog heldur [b:7o9nwupf]PATROLTROG[/b:7o9nwupf]
09.12.2002 at 17:48 #465162Hestöfl eru ekkert án togsins!
Hestöfl eru einfaldlega útreikningur á togi vélar og snúnings. Og allar vélar snúast en toga mismikið.
Hérna er grein sem þú skalt lesa ef þú villt skilja þetta betur.
[url=http://www.hugi.is/bilar/greinar.php?grein_id=59859:mpcvgag5]smelltu hér[/url:mpcvgag5]
07.12.2002 at 22:41 #465082Þarftu ekki að exporta ferlunum út úr MapSource og importa þeim í Nobeltec. Ekki save og open heldur export og import.
Svo til að leiðrétta allan miskilning í Patrolman
TROG er ekki bara TROG heldur PATROLTROG. jeeee
07.12.2002 at 16:19 #465070Eina togið sem patrol fær að kynnast á sinni lífsleið er þegar TOYOTAN togar hann upp.
06.12.2002 at 20:40 #465060Ef að það urrar í relayinu og þetta er relay sem er í brettinu (væntanlega hærga megin) þá geturðu prufað að hleypa framhjá því með því að setja skrúfjárn eða skiptilykil á milli pólsins sem liggur niður í startara og pólsins sem fer á geymir. Oft gott að nota 2 skrúfjárn í þetta.
Ef það virkar þá er relayið eflaust ónýtt.
06.12.2002 at 19:23 #464910Patrol togar alveg svakalega vel er það ekki. Menn þurfa víst ekki að lækka hlutföll í þessum ofurtækjum það er svo mikið tog í gangi. Þá hlítur þessi kolamökkur og grútarfýla að myndast þegar er verið að toga ekki satt.
Patrol 2.8 til ársins 1999 eða 2000 togar 252Nm
Hilux 2.4TD togar 215Nm
Hilux 2.5 D-4D togar 260NmÞetta eru hreinlega undravélar í þessum Patrolum
05.12.2002 at 23:50 #464888Við Toyotamenn erum eins og hver annar sértrúarsöfnuður, við höldum tryggð við okkar líka.
Málið með datsunpartana er eflaust það að það vill enginn einn maður sitja undir ruglinu í öllum þessu datsuneigendum.
05.12.2002 at 22:41 #464880Við sem völdum rétt í upphafi getum notið hverar einustu ójöfnu á hálendinu og sjáum alla fegurðina sem íslensk náttúra hefur að skarta.
Það er annað en þessir Datsun kallar sem ekkert sjá fyrir svörtum kolareyk með Jeppaparta Þórðar í spotta bara svona til öryggis.
Og í gamla Jeppamentinu stendur:
"Í upphafi var Toyota almáttugur skapari alls sem gott er……."
05.12.2002 at 19:32 #464874Það er náttullega alveg frá að vera framleiða bíla eins og PLATROL.
29.11.2002 at 22:34 #464708Þá veit maður hver er á ferðinni þegar maður sér kornþreskivél af gerðinni International Harvester á leið yfir langjökul.
Það að mixa eitthvað lettasull ofaní fullfríska toyotu jaðar við geðveiki. En efa menn vilja endilega standa í viðgerðum á furðulegustu stöðum en aka samt um á TOYOTA þá verða þeir víst að setja amerískt í TOY’ið til að fullnægja þörfinni.
20.11.2002 at 22:20 #464452Átti einu sinni GTi Corollu sem gerði þetta og þá vantaði bara vatn á hann. Þá var víst einhver skynjari sem var að fá skvettu af vatni af og til og þá var bíllinn að setja á sig insogið og taka það af jafnóðum.
En það er til góð aðferð til að athuga hvort skyjarar tengdir vélinni séu að gefa villu eða bilanaboð.
Allar upplýsingar eru á þessari síðu.http://www.off-road.com/toyota/tech/codes/index.html
20.11.2002 at 18:14 #464436"I would rather push my Lada than drive a Trooper"
Þetta er alvöru maður!! Enda er miklu skemmtilegra að keyra löduna en eitthvað Trooper fjós og ekki einhver "lyga" hestöfl þar á bæ.
19.11.2002 at 01:06 #464388Ég var að lesa nokkrar "kokkabækur" og þar kemur fram að Patrol hefur aldrei verið með sverari öxlum að framan en 32mm og gamli Patrol (79-88) var með 30mm öxla.
En aftur á móti hefur HILUX (Caps Lock) hásingin alltaf verið með 33mm og 30 rillu öxla eins og Dana 44 og Dana 50.
17.11.2002 at 01:25 #464204Maður var nú alveg búin að gleyma þessum þráð eins og hann var nú spennandi. Best að ramma hann inn við tækifæri.
Annars iða ég í skinninu að fá að vita hvað það var sem Lúther ætlaði að skrifa þarna í restina.
14.11.2002 at 22:25 #461550Hvorn "stóra" Cruiserinn ertu að tala um. Sá eldri LC-60 (81-89) er með 9.5" framdrifi og efast ég um að lítill indjánastrákur sé með svo stórt undir sér.
14.11.2002 at 00:45 #461500Það hlaut að koma að því að þú mundir gjósa. Þetta var bara spurning um hvenær og yfir hvern. Og þá kemur bara eitt fórnarlamb til greina.
Ef allt þrýtur BÞV og Caps Lock takkinn festist þá fékk ég svar við auglýsinguni forðum daga og fjárfesti í lítið notuðu kúbeini, ég skal lána þér það og þú getur farið í kaffi til besta vinar þíns með það og aðstoðað hann með lyklaborðið.
-
AuthorReplies