Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.03.2003 at 17:34 #471308
Þó svo að bíllinn sé á klöfum þá getur hann verið með gorma. Suzuki vitara er á klöfum að framan með gorma.
Þetta virðist vera mjög útbreiddur miskilningur að allir jeppar með sjálfstæða fjöðrun að framan séu með Flexitora eins og Hiluxinn.Orðið klafar er notað yfir spyrnurnar og flexitor er stöngin sem veitir fjöðrunina og er tengd í efri spyrnuna(klafann).
26.03.2003 at 23:44 #470352Óttarlegt væl er þetta í mönnum, má ekkert lengur.
Mér finnst það bara flott mál ef að einhver 15 gutti fær að taka í jeppan hjá pabba sínum á meðan sá gamli situr hliðina á honum og fylgist með. Ég vildi bara óska þessa að ég hefði verið í þessum sporum á mínum aldri þá hefði ég aldrei fengið mér fólksbíl.
Vonandi fær hann að keyra niður líka næst.
20.03.2003 at 23:59 #471222Ef þú villt endilega fikta í "eyðslu og reyk skrúfunni" þá er best að losa lofthreinsaraboxið úr og nota 12mm fastann lykil og 6mm topp með framlengingu. Fyrir okkur sem erum ekki 2m á hæð er kollur eða mjólkurkassi nauðsynlegur.
Það er 12mm ró á skrúfunni sem þarf að losa og svo notarðu toppinn og framlenginuna eða annan fastan lykil til að skrúfa upp í verkinu. Bíllinn á að bæta við hægaganginn þegar þú gefur honum meiri olíu og mundu bara að herða rónna með 12mm lyklinum aftur þegar þú ert búinn. Það þarf eflaust að halda stilliskrúfunni með topp eða lykli þegar þú herðir rónna. Ef ég man rétt þá skrúfar maður frá vinstri til hægri eða "clockwise" til að bæta við.
20.03.2003 at 01:06 #471102Láttu olíuverkið eiga sig. Þú verður aldrei ánægður og þetta veldur manni bara vonbrigðum á meðan maður er að fikta í þessu og finna rétta stillingu. Þú græðir ekkert annað en svartan reyk og meiri olíueyðslu. Ég reyndi þetta einu sinni og endaði með því eftir mikið streð að hafa hann á original stillinguni því þá gengur hann réttan hægagang og eyðir eðlilega.
Ef þú vilt fá meiri kraft í bílinn þá skaltu fá þér túrbínu á hann eða turbo vél. Það er dýrt en það skilar sér best og þá geturðu notað gas á hann og skrúfað upp olíuflæðið.Þetta hollráð var jafn frítt eins og þessi vefsíða og kom ekki frá félagsmanni.
16.03.2003 at 15:12 #470880Fyrir okkur sem höfum ekki þurft að reyna þetta er hægt að fá lýsingu á því hvernig maður útbýr tjakkinn á milli bíla.
28.02.2003 at 23:16 #469602Flott dekk
24.02.2003 at 18:50 #469220Er ekki bara gott mál að fleiri félög séu með starfsemi í kringum jeppasportið?
20.02.2003 at 02:51 #467754"Report: Mitsubishi had to rename its Pajero automobile because the word is a vulgar term for a [b:2tpfheep]masturbating[/b:2tpfheep] man.
Comment: This story is true, although there was no blunder involved because the car was marketed under a different name from the beginning. In Spanish-speaking countries, this model has been sold as the Montero."Þetta er bara snilld.
Til hamingju með vagninn BÞV
13.02.2003 at 01:52 #468304Hvaðan færðu það að þetta hafi verið tekið af USA markaði vegna lögsókna og framleiðslugalla? Á síðustu árum hef ég rekist oftar en einu sinni á það að IFS sullið hafi verið sett í vegna V6 vélarinnar til að fá pláss fyrir hana.
Hérna er tilvitnun:
"The IFS introduced in 1986 was designed so that Toyota’s new 3.0-liter V-6 engine would fit. In 1988, the re-tuning of the engine was complete, and the V-6 was made an option. These engines will NOT fit into the solid front axle trucks without great pains, but WILL fit quite easily into earlier (’86-’88) 4-cyl IFS trucks."
Þessi grein um sögu 4-Runner er að finna á þessari síðu :
http://www.off-road.com/toyota/4runner/history.html
12.02.2003 at 00:24 #468288Þetta með breytingarnar ’86 er rétt hjá rúnari. Toyota markaðsetti nýjan fjöðrunarbúnað í USA 1986 til að "gera klárt" fyrir V6 vélina sem átti að fara í sölu ’88. Ekki til að losa sig við eitthvað framleiðsluvandamál og lögsóknir.
06.02.2003 at 18:12 #467970Það er hægt að gera allann fjandann við þessa bíla.
http://home.off-road.com/~northern_gypsy/240D.html
Sá sami og á þessa Lödu er nýbúinn að rífa úr henni 170 hesta vél úr 280C bens. Aðeins of sprækt fyrir rússann.
30.01.2003 at 19:27 #467290Ég sé það á síðustu skrifum að vistmenn á Kleppi eru komnir með aðgang að internetinu!!
30.01.2003 at 01:31 #467024Svo þarftu á eldri tækjunum að hafa "interface" stillt á "GRMN/GRMN" til að sækja og senda úr tækinu. Ég er ekki viss um hvernig þetta er á nýrri tækjunum en ég er með GPS II+ og það virkar ekkert fyrr en það er stillt svona og það þarf ekkert loftnet á meðan þetta er gert.
24.01.2003 at 17:35 #466962Er þetta yfirleitt svo mikið mál að menn þurfa að fara með þetta á verkstæði? Nú hef ég aldrei opnað svona grip en ég get ekki ímyndað mér að þetta sé flókinn hlutur að taka upp ef það þarf bara að skipta um fóðringar og legur.
15.01.2003 at 19:07 #466548Þar sem ég er ekki félagsmaður er ég eflaust að taka ógurlega sénsa með líf mitt með því að tjá mig um þetta. En afþví að ég er það hugrakkur að þora að ferðast um hálendi Íslands með ekkert félagsskírteini í veskinu læt ég vaða.
Ég sé bara ekkert að því að menn setji inn myndir af því sem þeir eru að auglýsa hérna á þessari frábæru heimasíðu. Eins og flestir vita þá hafa ekki allir sama skyn á hvenær dekk eru hálfslitin , hvenær bílar eru meiriháttar flottir, eða hvað "smá" rispa er. Þessvegna er mjög þægilegt að fá að sjá myndir af hlutunum áður en maður fer að hringja í menn og ræsa þá út fyrir einhverja óvissu. En það er kanski orðið í grófara lagi þegar menn eru að troða inn myndum af gömlu frystikistunni og sófasettinu sem þarf að losna við.
Að mínu mati þá á þetta fullkomlega rétt á sér svo lengi sem er verið að selja hluti sem tengjast jeppum.
12.01.2003 at 15:33 #466326Allt er þegar þrennt er.
12.01.2003 at 15:30 #466340[u:19l14t78]Fyrir veturinn[/u:19l14t78]????????????
Hvenær byrjar veturinn hjá þér Lúther?
12.01.2003 at 02:46 #466318Ef þessar læsingar eru ekki nýlegar þá læsast þær aðalega þegar þú þarft ekkert á þeim að halda, og svo þegar á að fara að nota fínu flottu læsinguna í lausa brekku eða sýna vinunum hvernig luxarinn snýst í hringi í hálkunni þá gerist ekki baun.
No-Spin eða loftlás að aftan það dugar ekkert annað. Það er fyrirgefanlegt að hafa diskalás að framan þar sem að það er ekki gott að vera með fastann lás á þeim dekkjum sem þurfa að beygja.
11.01.2003 at 14:55 #466248Bílar sem ná ekki tonninu á svona dekkjum þurfa ekkert að hleypa úr. Svo heyrði ég það líka að Valdi hefði misst nokkur kíló við að skipta yfir á stóru dekkin.
10.01.2003 at 20:37 #466292Hann hefur eflaust meira pláss í díselbílnum heldur en í V6 því að sexan er svo síð. Las það einhverstaðar í sögu hiluxins að klafabúnaðurinn hafi komið í hilux aðallega til að koma V6 vélinni í bílana.
-
AuthorReplies