Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.08.2003 at 07:49 #475292
Þú þarft eflaust að leita að hlutföllum í Dana 35 fyrir framdrifið og Ford 8.8" að aftan.
06.08.2003 at 07:41 #47529004.08.2003 at 17:47 #475260Þrennt sem þú getur gert, það er að skipta um lok á vatnskassanum það er jú það sem heldur réttum þrýsting á vatnskerfinu, athuga kúplinguna á viftuspaðanum og svo að skipta um vatnsdælu ef allt þrýtur.
En þetta kemur að sjálfsögðu á eftir því að þú athugir hvort að vatnskassinn sé þokkalega heill.
31.07.2003 at 13:10 #47517831.07.2003 at 13:03 #475176Wankel vélin sprengir 3 sinnum í hverjum hring sem er einni sprengingu meira en í tvígengisvél. Þannig að þú ert ekki með meira sprengirými en í venjulegri 1300cc vél heldur 3 falda vinnu í hverjum hring.
25.07.2003 at 07:53 #475014Einfalt mál………Framboð og eftirspurn. Það fá færri en vilja. Þú getur valið úr patrolum á meðan þú þarft að hafa fyrir því að finna 80 cruiser.
23.07.2003 at 19:17 #474986Ég man eftir einum í gamla boddýinu sem var annað hvort svartur eða dökkblár sem var með Bullydog Própan innspýtingu og hann verð ég að játa að var sprækasti patrol sem ég hef séð.
22.07.2003 at 23:32 #474972Dana 44 er ekkert sterkari en 10 bolta Toyota. Toyotan er með lokuð liðhús og sterkari liði en er á D44. Dana 44 er með hefðbundna krossa út við hjól.
22.07.2003 at 23:25 #474968Ég tek ofan fyrir þér Einar, við erum í fámennum hópi manna sem SLÆR AF áður en við mætum bílum á þröngum malarvegum.
Annars gleymi ég því aldrei þegar ég ók um á fisksalabíl af dýrustu gerð og var á leiðinni inn í Þórsmörk og þessi líka fíni flotti Patrol lá á afturstuðaranum hjá mér að springa úr spenningi við að komast framfyrir mig og ausa yfir mig grjóti. Svo gaf ég mig loksins og hleypti honum framúr og ók á mínum hraða áfram og HÆGÐI á mér þegar ég mætti bílum sem voru með lakk sem var dýrara en bíllinn minn. Svo þegar var komið að neðra vaðinu í Jökullóninu sá ég í rassgatið á pattanum á leið útí og steig þá allt í botn (sem var ekki mikið) setti tíkinna í 70kmh og tók framúr honum á miðju vaði og gaf honum ókeypis djúphreinsun.Grjótkastarar fá það óþvegið á endanum!
22.07.2003 at 12:54 #474964Ég rak mig á sama hlut fyrir nokkru í mörkini þegar ég bliknaði hliðina á þessum einstöku snillingum sem fundu ekki fyrir því að mæta mér á 70-80km hraða á vegi sem rétt rúmar einn bíl. En breiddin var engin fyrirstaða því að þeir sem eru svona langt komnir í ökuleikni eru að sjálfsögðu komnir á stæðstu mögulegu dekk sem eru seld hér á landi og þó víðar væri leitað og finna ekki fyrir einu barði eða svo. Enda er náttúra íslands ekkert til að hægja á fyrir. Svo virðast þessir menn vita það að við sem náum ekki með tærnar þar sem þeir hafa hælana fáum að sjálfsögðu ókeypis málingarvinnu og 100% aflátt á framljósum fyrir það eitt að kunna ekki að keyra.
21.07.2003 at 02:18 #474940Ég hef heyrt þetta með sogið þegar minst er á flækjur en þá er það yfirleit í miskilningi þar sem flækjur mynda ekki sog. Auk þess sem of stórt púst í bensínbílum getur orsakað það að bakþrýstingur verður gott sem enginn og ruglar vélina og hægagang. T.d á Lada með ekkert púst ekki gott með að ganga sjálf.
Díselbílar aftur á móti finna ekki fyrir þessu og vilja bara enga mótstöðu á leiðinni út. Það sem ég var að fiska eftir er það hvort það sé eihver munur á vinnslu á milli 2.5" og 3" á þetta litlum vélum og hvort það sé þess virði að eyða rúmum 10þús kalli til viðbótar í 3". Ég er búin að heyra báðar útgáfur en þá frá mönnum sem hafa ekki prufað þetta sjálfir.Er einhver með reynslusögu handa mér?
18.07.2003 at 18:47 #192732Nú er komið að því að það er búið að full nýta pústið undir pæjunni hjá mér og þá vaknar sú aldagamla spurning, 2.5 eða 3 tommur?
Borgar sig fyrir ekki stærri vél en 2.5L að fara í 3″ eða er 2.5″ plentí nóg? Nú vantar mig svör frá mönnum sem hafa reynt þetta og þá sérstaklega þá sem hafa farið úr 2.5 í 3 og á vélum svipuðum í stærð og í pæjunum, ekki 6cyl patrol sleggju. Er það þess virði að bæta við 10þús kalli og fara í skólprörið?Svitabylgjukveðja
Stebbi
17.07.2003 at 23:27 #474916Eflaust er þetta bara kúplingin á viftuspaðanum eða vatnsdælan. Annars eru þessi bílar frægir fyrir heddvandamál, vonum bara að þetta sé eitthvað smotterí.
07.07.2003 at 12:20 #474700Voru einhver vitni af þessu sem rútubílstjórinn gerði?
03.07.2003 at 00:00 #474622Það er líka hægt að nota stýfur úr range rover og eflaust auðveldara að nálgast þær. Þær fást á rúm 6000 stykkið hjá BSA í kópavogi.
26.06.2003 at 00:30 #474482Ég á er að byrja að rífa minn. Hringdu í mig í síma 660-1966.
25.06.2003 at 02:11 #474444Nú er ég enginn snilli í þessum amerísku en ég hélt að 9" ford væri eina hásingin af þessum algengu sem væri með drifinu í sér húsi eins og á hilux. Ef að það er hægt að taka drifið í heilu framan úr henni þá er þetta eflaust 9".
Og ef ég man rétt þá er hægt að losa pinionin af drifinu líka án þess að rífa allt í klessu.
25.06.2003 at 02:07 #474458Ég er með minn í 22psi eins og er en var með hann í 25 og fannst það vera í það harðasta. Er með hann á grófum 32" túttum og original felgum og 15 pund eru fín á grófum malarvegum.
23.06.2003 at 01:56 #474386Það er orðið vel smurt á þegar þú færð 2 og hálfa læsingu úti á verði einnar hérna heima. Það er ekki svona dýrt að koma þessu heim, og svo má ekki gleyma því að arctic trucks og benni eru ekki að versla á sama verði og við hinir.
En svo verðum við að taka tillit til þess að þessar verslanir verða að kaupa í magni og liggja með þetta á lager um ókomin tíma. Við megum að sjálfsögðu ekki vera ósanngjarnir gagnvart þeim í öllu en það eru svona dæmi sem fær fólk til að skoða aðra möguleika eins og að kaupa frá USA á netinu. Og ég hvet fólk til þess svo að þessi fyrirtæki sjái að sér í álagningu, það er ekki svo mikið "vesen" að renna niður í tollafgreiðslu og borga dótið út.
22.06.2003 at 16:36 #474382það er víst 48 þús sem hann kostar (smá klikk á reiknivélinni) en það er samt skítbilligt miðað við þá sem selja þetta hérna heima.
-
AuthorReplies