Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.10.2009 at 17:19 #664322
Það eina sem virkar í svona smíði er eitthvað sem er laust við óþarfa rafmagnsvesen eins og vélatölvur og þess háttar. Ef þú finnur gamlan Camry eða Daihatsu Charmant þá ertu með þokkalegt kram. Annars eru litlar vélar með afturdrifskassa sjaldséðar í dag, það er helst að finna gamlar toyotur eða mözdur til að slátra í þetta, Mazda 929 með 2.2 magnum væri flott í svona mix.
Svo er alltaf möguleiki að kanna hversu lengi Suzuki Swift vélarnar passa á kassan úr Foxinum. Svoleiðis 1.3 GTi vél með innspýtingu væri kanski þess virði að vinna rafmagnsvinnuna við ef hún passar á kassann.
30.10.2009 at 17:09 #664292Byrjaðu á því að fá þér boost mælir og athuga hvað þú ert með mikin þrýsting. Það er ekki gott að skjóta svona út í loftið á hvað vandamálið er fyrr en þú veist hvort túrbínan er að skila nógu inn á vélina eða ekki.
25.10.2009 at 22:23 #663608[quote:2gy1htzw]Held að þetta sé ekki rétt hjá þér Stebbi, getur ekki betur séð en að þessar perur sem þú ert að tala um séu perur sem passa í orginal Xenon, jú það sem kemur með bílnum frá framleiðanda. Þetta eru ekki perur sem passa í aftermarket Xenon líkt og við erum að setja í.
[/quote:2gy1htzw]Ég var að reyna að benda á það að það eru til Xenon perur fyrir venjuleg aðaljós með venjulegum speglum sem eru gerð fyrir halogen perur. Þessar perur eru að öllu jöfnu merktar með bókstafnum R. Þær eru bæði blindaðar á ákveðnum stöðum og með sérstakri húð til að stoppa útfjólubláa geisla sem steikja plast.
Svo má velvera að þær heiti eitthvað allt annað en D1 eða D3, kanski H7 eða H4 enda fer það væntanlega eftir ljóskerinu sem peran á að fara í. Svo hefur mér sýnst á þessum síðum sem selja "greatest lægt per in China" að þeir séu eitthvað lítið að velta sér uppúr stöðlum og merkingum.
25.10.2009 at 22:00 #641910Ég verð að játa það í sakleysi mínu að ég átti von á því að sjá þennan hilux fara hægar í 1sta 1sta lága. Á hvaða drifum er hann?
25.10.2009 at 21:08 #663602Svo má benda framtíðar Xenon notendum á það að það eru til perur sem eru gerðar fyrir venjuleg Halogen aðalljós, þær eru merktar með stafnum R og heita þá D1R eða D2R og svo framvegis. Þær eru húðaðar á sérstökum stöðum til að mynda skurð á geislanum og minka þetta óþolandi stjórnlausa ljósmagn sem blindar alla sem mæta þér.
21.10.2009 at 18:29 #663238Neibbs það er 21 rillu kassi í gamla bílnum en 23 rillu í Grandinum. Breytist í 4.0 bílum í kringum 91-92 svo held ég að bæði peugeot kassinn og AX-5 sé bara til 21 rillu.
14.10.2009 at 23:12 #662044[quote:2o56wapk]46" Yaris? Ég bíð spenntur ;)[/quote:2o56wapk]
Ooooooooo nei, það væri nú sjálfsagt bara hamingja ef svo væri. Straumur er að athuga með lausa stöðu hjá Þolinmæðisgenginu.
14.10.2009 at 23:06 #662038Þetta gæti verið klassískt toyota fokk, það er 10A öryggi í öryggjaboxinu í húddinu oftast merkt DOME. Ef það fer þá geta dottið út hlutir eins og útvarp, parkljós, mælaborðsljós og svona ýmislegt fleira en er mismunandi eftir tegundum á toyotum. Í flestum tilfellum sem ég hef séð þá er lélegu jarðsambandi um að kenna sem veldur meiri straumtöku en öryggið þolir.
12.10.2009 at 17:53 #661524Ef hann er 2.4 diesel og ekki með hjálparlofti þá er þetta bara svona og ekkert hægt að gera í því. ’90 model og orginal vél þá erum við að tala um akstur uppá 300 þús km og þá er 14l/100km bara fínt.
11.10.2009 at 21:48 #660268[quote="SaebTheMan":3s3jftzf][quote="straumur":3s3jftzf] þessir díselkallar verða alltaf síðastir…. 😉
Kv, Kristján
Rassskellir[/quote:3s3jftzf]Þar til að því er komið að fylla á tankin[/quote:3s3jftzf]
Þess vegna fann jeppaguðinn upp aukatankinn. Þessar díseltíkur eru lítið annað en hávaðinn, mengun og háir verkstæðisreikningar.
04.10.2009 at 09:38 #659988Líka til í 9" Pajero.
28.09.2009 at 16:41 #658782Ef hann er 2.5 dísel þá mætti skoða það að setja pajero millikassa í hann eða NP242. Það brotnar ekki.
28.09.2009 at 16:39 #659198Eitt hef ég aldrei skilið eða fengið svar við, afhverju þarf bílaflotinn að menga minna? Hvað gerist árið 2020 ef að bílarnir okkar ganga ekki á regnbogum og álfadufti?
Ef að breyttir jeppar eru svona mikill þyrnir í augum Svandísar þá ætti hún að ganga þannig frá endunum að allir geti átt breyttan jeppa sem aukabíl. Þá er hann bara notaður þegar á þarf að halda og þess á milli er hægt að keyra um á einvherju sem er knúið áfram af svartagaldri.
26.09.2009 at 12:51 #649326Það mætti líka vera linkur á spjallprófílnum á myndaalbúmið. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir þvi að það eru 2 prófílar í gangi.
26.09.2009 at 12:47 #658634Eitt enn sem má bæta við það er að þeir þurfa að prufa radarinn með tólnkvísl reglulega og skrá það í radarbókina. Ef þeir gera það ekki þá er mælingin ekki gild.
Mér finnst það líka vera algjört lágmark að ef að það á að vera að hanka mann á einhverjum reglum, þá er lágmark að þeir sem standa að því fari líka eftir reglunum.
24.09.2009 at 17:49 #658628Málið er bara þannig að ef að það er verið að skjóta á þig, sama hvort það er radar eða laser þá ertu böstaður því að löggan er mikið fljótari að læsa inni töluna á radarinn en þú að bremsa. Ég keyrði í mörg ár ekki án þess að vera með radarvara og þá var það bara gamall eins banda Cobra, hann virkaði alveg jafn vel og 3gja og 5 banda radarvararnir, það var alltaf ég sem var brotalömin í því að sleppa við sekt. Eftir að ég hætti að nota radarvara og fór að vera vakandi yfir því sem ég er að gera í umferðini (n.b ég hef ekkert slegið af með árunum) þá fóru sektirnar að hætta að koma inn og ég er afslappaðri við stýrið, ekki endalaust í einhveri taugaveiklun yfir radarvaranum sem pípti út af engu. Læra að meta umhverfið og aðstæðurnar og keyra eftir því er miklu betri leið en að treysta á eitthvað skrapatól sem þú veist ekkert yfir hverju það er að væla.
13.09.2009 at 15:49 #656744Það vantar líka að umsjónarmenn geti sett svona pósta í sérstakan flokk svo að það sé hægt að geyma þessar upplýsingar á vísum stað.
28.08.2009 at 22:11 #655170Hugsanlega geta vírarnir verið snúnir í drasl alveg uppvið skynjaran, gerist þegar að menn gleyma að aftengja áður en þeir snúa síuna lausa. Hljómar eins og þeir nái saman af og til, ef það er ekki það þá er það eins og Kalli segir, flotholtið stendur á sér.
19.08.2009 at 21:34 #654444[quote:1ddlxnl9]Veit enginn hvort felgur af örðum bílum passi á þessi nöf? þetta er 5 gata, [/quote:1ddlxnl9]
Get nokkurn vegin fullyrt að þetta er litla 5 gata deilingin og þá passa felgur undan Jeep á þetta. Það er svoleiðis með Fleetwood húsin og grunar mig að það sé sama dótið undir þessu. Ef þú vilt mæla það þá eiga það að vera 4.5 tommur frá miðjum bolta í miðjan bolta sem er á móti.
Smá hækkun á hjólabúnaði og orginal Jeep Cherokee dekk og álfelgur gera helling fyrir veghæð en því miður ekkert fyrir fjöðrun.
17.08.2009 at 22:12 #653880Þetta er svona ca. 400 þús með ShopUsa. Verðin sem ég fann voru um og yfir $350 á stykkið í 38". Mér þættu menn fjandi góðir ef að þeir næðu þessu niður um 50-100 þús á eigin vegum en þá er þetta samt andskotanum dýrara.
-
AuthorReplies